{"id":1015,"date":"2026-09-01T21:27:34","date_gmt":"2026-09-01T21:27:34","guid":{"rendered":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=1015"},"modified":"2026-09-11T11:19:45","modified_gmt":"2026-09-11T11:19:45","slug":"thusund-og-ein-nott-i-reykjavik","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=1015","title":{"rendered":"\u00de\u00fasund og ein n\u00f3tt \u00ed Reykjav\u00edk"},"content":{"rendered":"\n<h3 class=\"wp-block-heading has-text-align-center\">Gu\u00f0r\u00fan Eva M\u00ednervud\u00f3ttir<\/h3>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd safna\u00f0arheimilinu a\u00f0 n\u00fdaflokinni messu st\u00f3\u00f0 bor\u00f0 \u00fati \u00e1 mi\u00f0ju g\u00f3lfi og \u00e1 \u00fev\u00ed st\u00f3rar kaffi- og tek\u00f6nnur, hv\u00edtir bollar, kaffirj\u00f3mi, sykurmolar, mj\u00f3lkurkex og kremkex. Messugestir h\u00f6f\u00f0u dreift s\u00e9r um r\u00fdmi\u00f0 og r\u00e6ddu saman e\u00f0a r\u00fdndu \u00ed s\u00edmaskj\u00e1, sparikl\u00e6dd b\u00f6rn geystust um \u00ed h\u00e1lft\u00f6mdum \u00e6singi og \u00fearna var presturinn bugtandi sig \u00ed samtali vi\u00f0 l\u00e1gvaxna hv\u00edth\u00e6r\u00f0a konu me\u00f0 perlufesti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dati vi\u00f0 glugga st\u00f3\u00f0 einsamall ma\u00f0ur me\u00f0 kaffibolla og kexk\u00f6ku. Hann leit upp og m\u00e6tti augum m\u00ednum, jafn undrandi og \u00e9g. Vi\u00f0 \u00feekktumst ekkert en \u00e1ttum stefnum\u00f3t s\u00ed\u00f0ar \u00feennan sama dag. \u00c9g \u00feekkti hann af pr\u00f3f\u00edlmyndinni \u00e1 facebook. Hann var jafn fallegur \u00ed raunheimum og hann var \u00e1 lj\u00f3smyndinni; einn af \u00feessum drengjalegu sextugu m\u00f6nnum, beinn \u00ed baki me\u00f0 sp\u00e9koppa og milda birtu \u00ed svipnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrsta og eina samtal okkar haf\u00f0i \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed s\u00edma s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn mi\u00f0vikudag. \u00dea\u00f0 var kaldur og s\u00f3lr\u00edkur morgunn \u00ed apr\u00edl. \u00c9g var heima a\u00f0 skr\u00fafa saman \u00edt\u00f6lsku kaffik\u00f6nnuna, dreif hana \u00e1 helluna og svara\u00f0i h\u00e1lfutanvi\u00f0 mig \u00fe\u00f3tt n\u00fameri\u00f0 v\u00e6ri \u00f3kunnugt. Hall\u00f3?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e6l, Kolbr\u00fan?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa \u00feekkir mig ekki en vi\u00f0 eigum sameiginlega vini \u00e1 facebook og h\u00f6fum s\u00e9st \u00ed Melab\u00fa\u00f0inni. Einu sinni rakstu k\u00f6rfuna utan \u00ed mig og sag\u00f0ir afsaki\u00f0, en \u00fe\u00fa manst l\u00edklega ekki eftir \u00fev\u00ed. En \u00e9g heiti \u00d6rn Lev\u00ed. Og h\u00e9rna \u2026 hvers vegna er \u00e9g n\u00fa eiginlega a\u00f0 hringja \u00ed \u00feig?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00fe\u00f6g\u00f0um \u00ed s\u00edmann \u00ed stundarkorn en svo sag\u00f0i \u00e9g: \u00de\u00fa m\u00e1tt alveg bj\u00f3\u00f0a m\u00e9r \u00ed kaffi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, \u00fea\u00f0 var n\u00fa l\u00edklega erindi\u00f0, svara\u00f0i hann og vi\u00f0 samm\u00e6ltumst um a\u00f0 \u00e9g k\u00e6mi heim til hans s\u00ed\u00f0degis \u00e1 sunnudaginn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa var sunnudagur upp runninn og vi\u00f0 undir sama \u00feaki \u00feremur klukkustundum fyrr en \u00e1\u00e6tla\u00f0 var.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g gekk til hans. Hann var kl\u00e6ddur gr\u00e6nni skyrtu, lj\u00f3sum buxum og vaxjakka me\u00f0 br\u00fanum flauelskraga. Hann st\u00f3\u00f0 alveg kyrr me\u00f0 kaffibollann \u00ed annarri og kexk\u00f6ku \u00ed hinni og \u00e9g vissi ekki hvers vegna \u00e9g upplif\u00f0i hann svo varnarlausan. Kannski vegna \u00feess a\u00f0 hann gat ekki bori\u00f0 fyrir sig hendurnar. E\u00f0a vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 erum flest varnarlaus svona vi\u00f0 fyrstu kynni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kolbr\u00fan, sag\u00f0i hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn Lev\u00ed, svara\u00f0i \u00e9g og hneig\u00f0i h\u00f6fu\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ert \u00fe\u00fa kirkjur\u00e6kin, Kolbr\u00fan?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eiginlega ekki. \u00c9g \u00e1 a\u00f0 halda litlum fr\u00e6nda undir sk\u00edrn \u00e1 eftir. En \u00fe\u00fa?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann saup \u00e1 kaffinu og svara\u00f0i: \u00dea\u00f0 er n\u00fdtilkomi\u00f0. N\u00fa er a\u00f0 ver\u00f0a \u00e1r s\u00ed\u00f0an \u00e9g flutti \u00ed hverfi\u00f0. \u00c9g bj\u00f3 \u00e1\u00f0ur \u00ed Fossvoginum en \u00fear heyr\u00f0ist ekki \u00ed kirkjuklukkum. Svo eftir a\u00f0 hafa hlusta\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e6r nokkra sunnudaga \u00ed r\u00f6\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r hef\u00f0u neina s\u00e9rstaka merkingu fyrir m\u00e9r, nema a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 hugsa um Chekov, \u00fe\u00e1 \u00e1kva\u00f0 \u00e9g sem sagt a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed messu. Og hef komi\u00f0 nokkrum sinnum s\u00ed\u00f0an. En \u00e9g bj\u00f3st ekki vi\u00f0 \u00fe\u00e9r h\u00e9r. \u00dea\u00f0 er undarleg tilviljun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sannarlega, svara\u00f0i \u00e9g \u2013 l\u00edkt og undir \u00e1hrifum af bibl\u00edsku or\u00f0alagi. Sannlega segi \u00e9g y\u00f0ur. En vi\u00f0 sj\u00e1umst \u00e1 eftir, b\u00e6tti \u00e9g vi\u00f0. Klukkan \u00ferj\u00fa, er \u00fea\u00f0 ekki?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00fa, svara\u00f0i hann og v\u00e9k fimlega fyrir tveimur skr\u00edkjandi st\u00falkum \u00ed eltingaleik. \u00d6nnur \u00feeirra var fr\u00e6nka m\u00edn, hin n\u00fdtilkomin stj\u00fapsystir hennar. \u00de\u00e6r voru \u00ed sams konar bleikum tjullkj\u00f3lum. A\u00f0l\u00f6gunin virtist ganga s\u00e6milega \u00e1 \u00feeim b\u00e6.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er kannski skr\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00e9g sem hringdi \u00ed \u00feig bj\u00f3st samt engan veginn vi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa myndir svara, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 sam\u00feykkja a\u00f0 hitta mig, b\u00e6tti hann vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g t\u00f3k \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 segja j\u00e1 vi\u00f0 alla sem by\u00f0u m\u00e9r \u00ed kaffi, nema \u00e9g hef\u00f0i einhverja s\u00e9rstaka \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 ekki, svara\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann horf\u00f0i spyrjandi \u00e1 mig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eins og \u00ed danssk\u00f3la Hei\u00f0ars \u00c1stvaldssonar. Til a\u00f0 hei\u00f0ra framtaki\u00f0, \u00fatsk\u00fdr\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samtali\u00f0 var snubb\u00f3ttara en \u00fea\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 vera. Systurd\u00f3ttir m\u00edn sat me\u00f0 sk\u00edrnarbarni\u00f0 \u00ed fanginu umkringd f\u00f3lkinu okkar. \u00dea\u00f0 var engin s\u00e9rst\u00f6k \u00e1st\u00e6\u00f0a fyrir mig a\u00f0 fl\u00fdta m\u00e9r til \u00feeirra. En m\u00e9r \u00fe\u00f3tti vandr\u00e6\u00f0alegt a\u00f0 \u00fej\u00f3fstarta stefnum\u00f3tinu \u00fearna \u00ed safna\u00f0arheimilinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir ath\u00f6fnina hj\u00f3la\u00f0i \u00e9g heim og setti \u00e1 mig varalit. \u00cd hva\u00f0a tilgangi eiginlega? \u00c9g sulla\u00f0i hreinsivatni \u00ed b\u00f3mullarsk\u00edfu og \u00feurrka\u00f0i varalitinn af m\u00e9r aftur. \u00d6rn Lev\u00ed bj\u00f3 ekki langt fr\u00e1 m\u00e9r, \u00fea\u00f0 var tuttugu m\u00edn\u00fatna ganga \u00ed mesta lagi. \u00c1 lei\u00f0inni haf\u00f0i \u00e9g t\u00edma til a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hversu \u00f3skynsamlegt \u00fea\u00f0 var a\u00f0 fara heim til \u00f3kunnugs manns. Burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed hvort hann v\u00e6ri kirkjur\u00e6kinn. En \u00e9g haf\u00f0i ekki \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed. \u00dea\u00f0 var eitthva\u00f0 \u00ed r\u00f6ddinni og hl\u00e1trinum sem inns\u00e6i mitt br\u00e1st vi\u00f0 flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 \u00e9g svara\u00f0i \u00ed s\u00edmann me\u00f0 espresso k\u00f6nnuna kraumandi \u00e1 hellunni. \u201e\u00deessi ma\u00f0ur er fullkomlega h\u00e6ttulaus f\u00e9lagsskapur\u201c, sag\u00f0i inns\u00e6i\u00f0. Var \u00fea\u00f0 fullgild \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a s\u00e9r heim til hans \u00ed kaffi? Kannski ekki, en l\u00edfi\u00f0 er frj\u00f3rra ef f\u00f3lk fer reglulega sm\u00e1vegis \u00fat af sporinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g var komin \u00e1 lei\u00f0arenda rann upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 kunningjakona m\u00edn bj\u00f3 \u00ed \u00feessu sama h\u00fasi. Og n\u00fa vona\u00f0ist \u00e9g til a\u00f0 rekast ekki \u00e1 hana. Ekki af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 gera neitt af m\u00e9r, en h\u00fan var spurul og \u00e1hugas\u00f6m manneskja og \u00e9g k\u00e6mist ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra hva\u00f0a erindi \u00e9g \u00e1tti vi\u00f0 n\u00e1grannann. Kannski haf\u00f0i h\u00fan einhverja sko\u00f0un \u00e1 honum e\u00f0a bj\u00f3 yfir uppl\u00fdsingum sem varpa\u00f0 g\u00e6tu skugga \u00e1 stefnum\u00f3ti\u00f0. \u00c9g k\u00e6r\u00f0i mig ekki um neitt sl\u00edkt. M\u00e9r \u00fe\u00f3tti fallegra og meira spennandi a\u00f0 renna blint \u00ed sj\u00f3inn. \u00dea\u00f0 var or\u00f0atilt\u00e6ki\u00f0 sem kom upp \u00ed hugann: a\u00f0 renna blint \u00ed sj\u00f3inn. Sem var \u00f6nnur einkennileg tilviljun mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem var framundan. En um \u00fea\u00f0 haf\u00f0i \u00e9g enga hugmynd \u00feegar \u00e9g skokka\u00f0i upp steintr\u00f6ppurnar me\u00f0 blindan sj\u00f3inn marandi \u00ed vitundinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 innganginn voru \u00ferj\u00e1r bj\u00f6llur. Efst var nafn kunningjakonunnar, fyrir ne\u00f0an hana \u00ed h\u00e1st\u00f6fum or\u00f0i\u00f0 \u00d6LD. \u00d6rn Lev\u00ed Dav\u00ed\u00f0sson. \u00c9g \u00fer\u00fdsti \u00e1 hnappinn og t\u00f3k \u00ed h\u00faninn. Dyrnar lukust upp um lei\u00f0 og su\u00f0i\u00f0 byrja\u00f0i. \u00c9g steig inn og heyr\u00f0i a\u00f0rar dyr opnast beint fyrir ofan h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00e9r. Stigagangurinn var lag\u00f0ur n\u00fdlegum gr\u00e1um g\u00f3lfd\u00fak og veggirnir hv\u00edtm\u00e1la\u00f0ir. F\u00f3tatak mitt \u00e1 d\u00fakl\u00f6g\u00f0um \u00ferepunum hlj\u00f3ma\u00f0i dempa\u00f0 og kurteislegt, l\u00edkt og r\u00fdmi\u00f0 v\u00e6ri hanna\u00f0 til a\u00f0 l\u00e1gmarka umgangshlj\u00f3\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Uppi \u00e1 fyrstu h\u00e6\u00f0 st\u00f3\u00f0u dyrnar a\u00f0 \u00edb\u00fa\u00f0inni opnar. \u00c9g gekk inn og heilsa\u00f0i Erni, en hann var a\u00f0 hella kaffi \u00ed tvo bolla inni \u00ed bj\u00f6rtu eldh\u00fasi sem var hluti af alr\u00fdminu. Stofan var t\u00f3mleg; einu h\u00fasg\u00f6gnin voru tveir h\u00e6gindast\u00f3lar me\u00f0 tekkf\u00f3tum, \u00f6rl\u00edti\u00f0 bor\u00f0 \u00e1 milli \u00feeirra og st\u00f3r skenkur, l\u00edklega fr\u00e1 sj\u00f6unda \u00e1ratugnum. Engar myndir voru \u00e1 hv\u00edtm\u00e1lu\u00f0um veggjunum og engir skrautmunir sj\u00e1anlegir a\u00f0 undanskilinni lj\u00f3smynd af barni \u00ed gluggakistunni \u00ed stofunni og kerti \u00ed l\u00e1t\u00fansstjaka \u00fear vi\u00f0 hli\u00f0ina. Eldh\u00fasbor\u00f0i\u00f0 var hla\u00f0i\u00f0 mat og drykk: bl\u00e1berjum, jar\u00f0arberjum, hunangsmel\u00f3nu, ag\u00farku og t\u00f3m\u00f6tum \u00e1samt rau\u00f0ri papriku, tveimur ger\u00f0um af skinku og \u00feremur af ostum, r\u00fanstykkjum, hr\u00f6kkbrau\u00f0i og fernu me\u00f0 appels\u00ednusafa. \u00c9g fann lykt af kaffi, \u00e1v\u00f6xtum, kertavaxi og vi\u00f0arh\u00fasg\u00f6gnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn sag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 gj\u00f6ra svo vel og hellti appels\u00ednusafa \u00ed glas fyrir framan mig um lei\u00f0 og \u00e9g settist: Miki\u00f0 er \u00e9g gla\u00f0ur a\u00f0 sj\u00e1 \u00feig, sag\u00f0i hann og sp\u00e9kopparnir d\u00fdpku\u00f0u. Hann haf\u00f0i skipt vaxjakkanum og skyrtunni \u00fat fyrir rennda hettupeysu \u00far gr\u00e1rri b\u00f3mull.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f6mulei\u00f0is, svara\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 var barni\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 heita? spur\u00f0i hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Klettur \u00c1rni, svara\u00f0i \u00e9g og f\u00e9kk m\u00e9r sopa af sv\u00f6rtu kaffi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig l\u00e6t \u00e9g, viltu ekki rj\u00f3ma \u00ed kaffi\u00f0? sag\u00f0i \u00d6rn og reis aftur \u00e1 f\u00e6tur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00fa, kannski, \u00feakka \u00fe\u00e9r fyrir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann r\u00e9tti m\u00e9r litla rj\u00f3mafernu me\u00f0 skr\u00faftappa. \u00c9g hellti og horf\u00f0i \u00e1 rj\u00f3matauminn li\u00f0ast og hringa sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r finnst \u00e9g ver\u00f0i a\u00f0 segja \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00e9g hringdi satt a\u00f0 segja \u00ed \u00feig alveg \u00f3vart, sag\u00f0i hann. \u00c9g haf\u00f0i fengi\u00f0 d\u00e1l\u00edti\u00f0 harkaleg t\u00ed\u00f0indi og \u00e1\u00f0ur en \u00e9g vissi af var \u00e9g b\u00fainn a\u00f0 hringja. \u00c9g man mj\u00f6g \u00f3lj\u00f3st eftir a\u00f0 hafa flett upp n\u00famerinu en hins vegar man \u00e9g ekkert hva\u00f0 \u00e9g var a\u00f0 hugsa. N\u00fa finnst m\u00e9r eins og \u00e9g hlj\u00f3ti a\u00f0 hafa hlj\u00f3ma\u00f0 eitthva\u00f0 undarlegur \u00ed s\u00edmann. \u00c9g var \u00ed h\u00e1lfger\u00f0u \u00e1falli. \u00de\u00fa afsakar \u00fea\u00f0 vonandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g ra\u00f0a\u00f0i paprikusnei\u00f0um og osti \u00e1 hr\u00f6kkbrau\u00f0snei\u00f0 og spur\u00f0i: Hva\u00f0a t\u00ed\u00f0indi f\u00e9kkstu?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 skal \u00e9g segja \u00fe\u00e9r \u00e1 eftir. N\u00fa skulum vi\u00f0 bor\u00f0a. Ertu ekki sv\u00f6ng?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00fa, svara\u00f0i \u00e9g og moka\u00f0i berjum \u00e1 diskinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var b\u00fain me\u00f0 \u00ferj\u00e1r hr\u00f6kkbrau\u00f0ssnei\u00f0ar og diskurinn fylltist sm\u00e1m saman af mel\u00f3nuh\u00fd\u00f0i \u00e1 me\u00f0an vi\u00f0 skiptumst \u00e1 uppl\u00fdsingum eins og f\u00f3lk gerir \u00e1 svona stefnum\u00f3tum. Hann sag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 hann v\u00e6ri m\u00farari og \u00e6tti \u00ferj\u00fa b\u00f6rn og tv\u00f6 barnab\u00f6rn, hef\u00f0i \u00e1 yngri \u00e1rum n\u00fdtt hvert t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 komast \u00ed stangvei\u00f0i, en \u00fea\u00f0 var \u00e1\u00f0ur en hann f\u00f3r a\u00f0 upplifa of mikla sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 fiskunum til a\u00f0 f\u00e1 af s\u00e9r a\u00f0 p\u00edna \u00fe\u00e1 og drepa. \u00de\u00e1 f\u00e9kk hann \u00e1huga fyrir sveppat\u00ednslu og l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 brugga v\u00edn \u00far kr\u00e6kiberjum. Og \u00e1 einhverjum t\u00edmapunkti sag\u00f0i hann: \u00c9g reyndi a\u00f0 ganga \u00ed sj\u00f3inn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Augu gestgjafa m\u00edns voru svo full af trega a\u00f0 mel\u00f3nubitinn b\u00f3lgna\u00f0i upp \u00ed m\u00e9r. \u00c9g kyngdi me\u00f0 erfi\u00f0ismunum og sag\u00f0i: Hva\u00f0 ertu a\u00f0 segja?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, \u00fea\u00f0 var, svo \u00fea\u00f0 komi n\u00fa fram, \u00e1\u00f0ur en konan m\u00edn skildi vi\u00f0 mig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Varstu svona \u00feunglyndur? spur\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann yppti \u00f6xlum og svara\u00f0i: Hl\u00fdtur \u00fea\u00f0 ekki a\u00f0 vera? \u00c1n \u00feess a\u00f0 \u00e9g \u00feykist hafa neitt vit \u00e1 \u00fev\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Varstu drukkinn? spur\u00f0i \u00e9g og heyr\u00f0i um lei\u00f0 hva\u00f0 spurningin var kaldranaleg.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekki drukkinn e\u00f0a d\u00f3pa\u00f0ur e\u00f0a neitt sl\u00edkt. Sem eru l\u00edklega einmitt takt\u00edsku mist\u00f6kin sem \u00e9g ger\u00f0i. Vinur minn haf\u00f0i sagt m\u00e9r a\u00f0 \u00e1 \u00feessum \u00e1rst\u00edma v\u00e6ri n\u00f3g a\u00f0 synda \u00ed tuttugu m\u00edn\u00fatur \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 myndi hjarta\u00f0 st\u00f6\u00f0vast. \u00dat af kuldanum. \u00deetta var \u00ed febr\u00faar \u00ed fyrra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g star\u00f0i \u00e1 hann: Vinur \u00feinn?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann horf\u00f0i \u00e1 m\u00f3ti og svara\u00f0i: Hann vissi ekki hva\u00f0 \u00e9g \u00e6tla\u00f0ist fyrir. En \u00e9g sem sagt f\u00f3r \u00far f\u00f6tunum, braut \u00feau saman og skildi \u00feau eftir \u00ed snj\u00f3skafli vi\u00f0 fj\u00f6rukambinn. \u00c9g vildi frekar kr\u00f3kna en drukkna, skilur\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, f\u00f6tin og sk\u00f3rnir hef\u00f0u dregi\u00f0 \u00fei\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 sundinu, svara\u00f0i \u00e9g og reyndi a\u00f0 gl\u00f6ggva mig \u00e1 \u00fev\u00ed hversu mikil fjarl\u00e6g\u00f0 v\u00e6ri temmileg til a\u00f0 halda samtalinu yfirvegu\u00f0u, \u00e1n \u00feess a\u00f0 f\u00f3rna mennskunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einmitt. En \u00e9g synti og synti, a\u00f0 m\u00e9r fannst \u00ed heila eil\u00edf\u00f0, en hjarta\u00f0 h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 banka. \u00dea\u00f0 var svol\u00edtill vindur og \u00f6ldurnar st\u00e6kku\u00f0u eftir \u00fev\u00ed sem \u00e9g synti lengra \u00fat. Svo s\u00e1 \u00e9g eina st\u00f3ra n\u00e1lgast hv\u00edtfryssandi og hugsa\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 h\u00fan myndi kaff\u00e6ra mig, enda var \u00e9g alveg a\u00f0 \u00f6rmagnast. En \u00fea\u00f0 sem ger\u00f0ist var a\u00f0 h\u00fan hrifsa\u00f0i mig og fleyg\u00f0i m\u00e9r upp \u00e1 sker. Og \u00fear l\u00e1 \u00e9g \u00e1 maganum me\u00f0 hausinn \u00ed \u00e1tt a\u00f0 landi og hugsa\u00f0i bara: \u00d3kei.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g horf\u00f0i \u00e1 hann yfir br\u00fanina \u00e1 glasinu me\u00f0 appels\u00ednusafanum en gleymdi a\u00f0 f\u00e1 m\u00e9r sopa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sp\u00e9koppurinn d\u00fdpka\u00f0i \u00ed \u00f6\u00f0rum vanga hans; eins og honum v\u00e6ri skemmt yfir \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00e9g lif\u00f0i mig \u00e1kaflega inn \u00ed fr\u00e1s\u00f6gnina: Svo komst \u00e9g \u00ed land vi\u00f0 illan leik og hringdi \u00e1 sj\u00fakrab\u00edl, h\u00e9lt hann \u00e1fram. \u00c9g l\u00e1 \u00ed marga daga \u00e1 sp\u00edtalanum og var einhvern veginn \u00f3huggandi yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00e1 l\u00edfi \u00fear til \u00e9g t\u00f3k \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 segja alltaf sannleikann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g lag\u00f0i fr\u00e1 m\u00e9r glasi\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00e9g spur\u00f0i: Meinar\u00f0u a\u00f0 l\u00e1ta aldrei eftir \u00fe\u00e9r a\u00f0 lj\u00faga, ekki einu sinni hv\u00edtar og saklausar lygar?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann t\u00f3k um skegglausa h\u00f6kuna og horf\u00f0i fjarr\u00e6nn yfir h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00e9r. Svo svara\u00f0i hann: \u00c9g hef n\u00fa alltaf veri\u00f0 sanns\u00f6gull og ekki vani\u00f0 mig \u00e1 beinar lygar. Nei, \u00fea\u00f0 sem \u00e9g meina er a\u00f0 segja allan sannleikann, a\u00f0 allt megi vera uppi \u00e1 bor\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g fann \u00f6ldu fara um mig, sem \u00e9g held a\u00f0 hafi veri\u00f0 hrifning e\u00f0a a\u00f0d\u00e1un. M\u00e1lflutningur hans var svo \u00f3l\u00edkur \u00f6llu sem \u00e9g haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur heyrt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00e9ttirinn af \u00fev\u00ed a\u00f0 taka \u00feessa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un var yfirgengilegur, sag\u00f0i hann. \u00deetta var eini l\u00edfst\u00edllinn sem \u00e9g gat hugsa\u00f0 m\u00e9r. En kostna\u00f0urinn var \u00f3gurlegur. \u00c9g sag\u00f0i konunni minni hluti sem ekki nokkur manneskja \u00e6tti a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 vita um hugarfylgsni maka s\u00edns.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g horf\u00f0i spyrjandi \u00e1 hann, en hann horf\u00f0i \u00e1 m\u00f3ti \u00e1n \u00feess a\u00f0 gera sig l\u00edklegan til a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra meiningu s\u00edna n\u00e1nar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 endanum rauf \u00e9g \u00fe\u00f6gnina: Hva\u00f0 sag\u00f0ir\u00f0u henni?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 skal \u00e9g segja \u00fe\u00e9r seinna, m\u00f6gulega, svara\u00f0i hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa ertu farinn a\u00f0 hlj\u00f3ma eins og amb\u00e1ttin \u00ed \u00de\u00fasund og einni n\u00f3tt, sag\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann hl\u00f3 og spur\u00f0i: M\u00e1 bj\u00f3\u00f0a \u00fe\u00e9r meira kaffi. Eigum vi\u00f0 kannski a\u00f0 f\u00e6ra okkur yfir \u00ed betri stofuna?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er heilmiki\u00f0 enn\u00fe\u00e1 eftir \u00ed bollanum m\u00ednum, svara\u00f0i \u00e9g og reis \u00e1 f\u00e6tur. \u00c9g finn mj\u00f6g miki\u00f0 \u00e1 m\u00e9r af kaffi. N\u00fa \u00feegar er \u00e9g or\u00f0in h\u00e1lfn\u00f6trandi og er ekki viss um a\u00f0 \u00e9g geti kl\u00e1ra\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa skammta\u00f0ir m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 gerir n\u00fa minnst til, sag\u00f0i hann og st\u00f3\u00f0 l\u00edka upp. Vi\u00f0 settumst \u00ed h\u00e6gindast\u00f3lana tvo \u00ed stofunni og l\u00f6g\u00f0um bollana fr\u00e1 okkur \u00e1 bor\u00f0i\u00f0 sem st\u00f3\u00f0 \u00e1 milli \u00feeirra. Gluggakistan var \u00ed s\u00f6mu h\u00e6\u00f0 og bor\u00f0i\u00f0. Lj\u00f3smyndin \u00ed standrammanum og kerti\u00f0 \u00ed stjakanum voru \u00ed seilingarfjarl\u00e6g\u00f0. \u00c9g s\u00e1 n\u00fana a\u00f0 drengurinn \u00e1 myndinni var fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum t\u00edma. Sennilega gestgjafi minn sj\u00e1lfur fremur en barn hans e\u00f0a barnabarn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 skilja vi\u00f0 mig, andvarpa\u00f0i hann og horf\u00f0i fjarr\u00e6nn \u00e1 vegginn hinum megin stofunnar. Dyr st\u00f3\u00f0u \u00fear h\u00e1lfopnar og fyrir innan s\u00e1 \u00ed tv\u00edbreitt r\u00fam me\u00f0 vi\u00f0argafli, vandlega umb\u00fai\u00f0 og sveipa\u00f0 hv\u00edtu r\u00famteppi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa ert b\u00fainn a\u00f0 segja <em>konan m\u00edn<\/em> \u00ed \u00fer\u00edgang um fyrrverandi konuna \u00fe\u00edna, sag\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann leit sn\u00f6ggt \u00e1 mig: Hva\u00f0 ertu a\u00f0 segja? Afsaka\u00f0u innilega.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekkert a\u00f0 afsaka, svara\u00f0i \u00e9g. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 einmitt r\u00f3andi. \u00c9g hugsa\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa v\u00e6rir jafn fjarri \u00fev\u00ed a\u00f0 vera tilb\u00fainn og \u00e9g. Fyrir stefnum\u00f3tamarka\u00f0inn meina \u00e9g. \u00dear a\u00f0 auki s\u00fdnir \u00fea\u00f0 hva\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0unin \u00e1 sp\u00edtalanum ristir dj\u00fapt. \u00de\u00fa segir ekki bara allan sannleikann, ef \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00e1 m\u00f6gulegt, heldur birtir hann l\u00edka me\u00f0 \u00f3me\u00f0vitu\u00f0um h\u00e6tti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa segir nokku\u00f0, tauta\u00f0i hann hugsi. Sennilega er einhver sannleikur f\u00f3lginn \u00ed or\u00f0alaginu. Samt veit \u00e9g ekki n\u00e1kv\u00e6mlega hver hann er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annar en s\u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt enn bundinn konunni \u00feinni tilfinningab\u00f6ndum \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 umgj\u00f6r\u00f0in s\u00e9 brotin? lauma\u00f0i \u00e9g \u00fat \u00far m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dear hittir\u00f0u naglann \u00e1 h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 b\u00fdst \u00e9g vi\u00f0, sag\u00f0i hann. \u00c9g vissi svo sem a\u00f0 \u00fea\u00f0 hlaut a\u00f0 vera \u00e1st\u00e6\u00f0a fyrir \u00feessu \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1\u00f0a s\u00edmtali. M\u00e9r fannst \u00fe\u00fa einhvern veginn l\u00edkleg til a\u00f0 kunna r\u00e9ttu or\u00f0in utan um alla \u00feessa hluti sem eru annars alveg \u00f3lj\u00f3sir og \u00f3skiljanlegir fyrir m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sennilega er \u00e9g bara innbl\u00e1sin af \u00fe\u00e9r, svara\u00f0i \u00e9g. A\u00f0 segja svona jafn\u00f3\u00f0um \u00fea\u00f0 sem kemur upp \u00ed hugann \u00e1n \u00feess a\u00f0 hugsa fyrst \u00fat \u00ed hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 vi\u00f0eigandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann kinka\u00f0i h\u00e6gt kolli og sag\u00f0i: \u00deegar \u00e9g hringdi var \u00e9g n\u00fdstiginn \u00fat fr\u00e1 l\u00e6kni. \u00c9g st\u00f3\u00f0 bara \u00fearna \u00e1 b\u00edlast\u00e6\u00f0inu fyrir utan heilsug\u00e6sluna. L\u00e6knirinn haf\u00f0i tilkynnt m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri me\u00f0 krabbamein. Hann sag\u00f0i m\u00e9r l\u00edka a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri algeng tegund og au\u00f0velt a\u00f0 l\u00e6kna, en m\u00e9r br\u00e1 bara svo rosalega. Sem hlj\u00f3mar kannski undarlega mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki nema r\u00famt \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g reyndi a\u00f0 fyrirfara m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 mj\u00f6g skiljanlegt. A\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi brug\u00f0i\u00f0, \u00e1 \u00e9g vi\u00f0, sag\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c6, \u00feakka \u00fe\u00e9r fyrir, sag\u00f0i hann. M\u00e9r finnst \u00fe\u00fa n\u00fa s\u00fdna m\u00e9r meira umbur\u00f0arlyndi en \u00e9g \u00e1 skili\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ertu viss um a\u00f0 \u00fe\u00fa eigir ekki bara allt gott skili\u00f0? spur\u00f0i \u00e9g og augu m\u00edn hv\u00f6rflu\u00f0u um t\u00f3mlega fleti stofunnar, eins og \u00feau hef\u00f0u teki\u00f0 \u00fea\u00f0 upp hj\u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r a\u00f0 leita a\u00f0 einhverju. En \u00e9g vissi svo sem ekki a\u00f0 hverju \u00feau voru a\u00f0 leita.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skr\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir segja \u00fea\u00f0, sag\u00f0i hann. \u00dea\u00f0 er satt a\u00f0 segja einmitt barningur l\u00edfs m\u00edns. Fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g var sex \u00e1ra og horf\u00f0i \u00e1 litla br\u00f3\u00f0ur minn deyja. Hann steig ofan \u00ed sj\u00f3\u00f0andi hver.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g fann leitandi augun fyllast af t\u00e1rum og \u00feurfti a\u00f0 r\u00e6skja mig \u00e1\u00f0ur en \u00e9g kom upp or\u00f0i: Varst \u00fe\u00fa a\u00f0 passa hann?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekki beinl\u00ednis, vi\u00f0 vorum bara \u00fati a\u00f0 leika okkur. Me\u00f0 fleiri str\u00e1kum. Einn jafnaldri minn kippti honum upp \u00far. En \u00fea\u00f0 var of seint. \u00c9g kom au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 har\u00f0ahlaupum en gat ekkert gert anna\u00f0 en a\u00f0 vera hj\u00e1 honum \u00e1 me\u00f0an hann fjara\u00f0i \u00fat. Einhver f\u00f3r og n\u00e1\u00f0i \u00ed einhvern fullor\u00f0inn. \u00de\u00e1 f\u00f3r allt \u00ed gang og \u00e1 endanum f\u00f3ru allir heim til s\u00edn, nema \u00e9g held a\u00f0 \u00e9g hafi kannski or\u00f0i\u00f0 eftir \u00fearna \u00e1 hverasv\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00e1rin runnu og kitlu\u00f0u \u00e1 m\u00e9r h\u00e1lsinn. \u00c9g t\u00f3k myndina \u00far gluggakistunni og horf\u00f0ist \u00ed augu vi\u00f0 alvarlegt barn \u00ed lopapeysu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er ekki br\u00f3\u00f0ir minn, heldur \u00e9g \u00feegar \u00e9g var sj\u00f6 \u00e1ra, sag\u00f0i \u00d6rn Lev\u00ed og b\u00e6tti vi\u00f0: \u00c9g \u00e1 myndir af honum en hef ekki treyst m\u00e9r til a\u00f0 hafa \u00fe\u00e6r uppi vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 segja a\u00f0 eitthva\u00f0 um a\u00f0 m\u00e9r \u00fe\u00e6tti leitt a\u00f0 sakleysi hans hef\u00f0i laskast me\u00f0 svo hro\u00f0alegum h\u00e6tti, en gat ekki tala\u00f0 e\u00f0lilega. Svo \u00e9g \u00feag\u00f0i bara og \u00feurrka\u00f0i t\u00e1rin jafn\u00f3\u00f0um me\u00f0 handarb\u00f6kunum undan kj\u00e1lkunum. \u00c9g heyr\u00f0i tif \u00ed klukku, en s\u00e1 hana hvergi. Sennilega var h\u00fan \u00e1 vegg inni \u00ed eldh\u00fasi. Glugginn sem vi\u00f0 s\u00e1tum vi\u00f0 sneri \u00fat \u00ed bakgar\u00f0inn \u00fear sem b\u00f6rn voru a\u00f0 leika s\u00e9r. Kannski voru \u00feau n\u00fdkomin \u00fat. E\u00f0a a\u00f0 \u00e9g t\u00f3k ekki eftir \u00feeim fyrr en n\u00fana. Raddir \u00feeirra voru hvellar og fullar af l\u00edfi \u00ed n\u00fdkviknu\u00f0u vori. Peysuermarnar m\u00ednar voru or\u00f0nar blautar af t\u00e1rum \u00feegar \u00d6rn Lev\u00ed reis loks \u00e1 f\u00e6tur, opna\u00f0i eina af sk\u00faffunum \u00ed skenknum, t\u00f3k upp \u00far henni bunka af bl\u00f6\u00f0um og r\u00e9tti m\u00e9r. \u00dea\u00f0 voru abstrakt myndir m\u00e1la\u00f0ar me\u00f0 kaffi \u00e1 \u00feykkan og tuskulegan papp\u00edr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r kemur ekkert sk\u00e1rra \u00ed hug til a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r a\u00f0 hugsa um eitthva\u00f0 anna\u00f0, sag\u00f0i hann h\u00e1lf kindarlegur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g fletti myndunum \u00ed h\u00e6gagangi og t\u00e1runum f\u00f3r sm\u00e1m saman f\u00e6kkandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi er flott, sag\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa m\u00e1tt eiga hana.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nei, \u00e9g \u00e6tla\u00f0i ekki a\u00f0 \u2026 ertu alveg viss? tafsa\u00f0i \u00e9g og reis \u00e1 f\u00e6tur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minna m\u00e1 \u00fea\u00f0 n\u00fa ekki vera, svara\u00f0i hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g n\u00e1\u00f0i \u00ed k\u00e1puna af eldh\u00fasst\u00f3lnum \u00fear sem \u00e9g haf\u00f0i skili\u00f0 hana eftir. Gestgjafi minn fylgdi m\u00e9r til dyra og r\u00e9tti m\u00e9r t\u00f6skuna og h\u00fafuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00e6sta sunnudag, eftir messu, fer \u00e9g heim og legg \u00e1 bor\u00f0 og helli upp \u00e1 kaffi, sag\u00f0i hann. \u00de\u00fa ert velkomin aftur ef \u00fe\u00fa vilt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 segir\u00f0u m\u00e9r kannski af \u00feessu h\u00e6ttulega \u00ed hugarfylgsnunum sem kosta\u00f0i \u00feig hj\u00f3nabandi\u00f0, sag\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er \u00e9g n\u00fa ekki viss um a\u00f0 s\u00e9 g\u00f3\u00f0 hugmynd, sag\u00f0i hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g kem ef \u00fe\u00fa lofar a\u00f0 segja m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed, sag\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann hugsa\u00f0i sig lengi um \u00e1\u00f0ur en hann kinka\u00f0i kolli til sam\u00feykkis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 gangst\u00e9ttinni fyrir utan gekk \u00e9g \u00ed flasi\u00f0 \u00e1 kunningjakonu minni sem bj\u00f3 \u00ed sama h\u00fasi og \u00d6rn Lev\u00ed. H\u00fan var a\u00f0 st\u00edga \u00fat \u00far hv\u00edtum Yaris me\u00f0 st\u00f3ran br\u00e9fpoka. Upp \u00far pokanum g\u00e6g\u00f0ist d\u00f6kkgr\u00e6ni endinn \u00e1 bla\u00f0lauk. H\u00fan rak upp st\u00f3r augu og sag\u00f0i: Nei, h\u00e6. \u00c1 hva\u00f0a fer\u00f0alagi ert \u00fe\u00fa?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var \u00ed sm\u00e1 heims\u00f3kn \u00ed munkaklaustri, svara\u00f0i \u00e9g. E\u00f0a svona heilunarmusteri, er kannski n\u00e1kv\u00e6mara or\u00f0alag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hl\u00e1turinn hnussa\u00f0ist upp \u00far henni: \u00de\u00fa ert alltaf svo dularfull, sag\u00f0i h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kannski segi \u00e9g \u00fe\u00e9r betur fr\u00e1 \u00fev\u00ed seinna, svara\u00f0i \u00e9g og fannst um lei\u00f0 a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri or\u00f0in a\u00f0 hlekk \u00ed l\u00edfr\u00e6nni sagnake\u00f0ju. Einhvers konar tilviljanakenndri \u00fe\u00fasund og einni n\u00f3tt sem l\u00edfi\u00f0 skrifa\u00f0i me\u00f0 bundi\u00f0 fyrir augu og nota\u00f0i vatn \u00ed sta\u00f0inn fyrir blek.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan virti mig betur fyrir s\u00e9r, s\u00e9rstaklega uppr\u00falla\u00f0 kaffim\u00e1lverki\u00f0 \u00ed k\u00e1puvasanum, og spur\u00f0i: Varstu a\u00f0 gr\u00e1ta?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, svara\u00f0i \u00e9g. Samt er ekkert a\u00f0, \u00feannig s\u00e9\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g er a\u00f0 fara a\u00f0 elda gr\u00e6nmetiss\u00fapu, sag\u00f0i h\u00fan full hluttekningar og lyfti pokanum. Viltu bor\u00f0a me\u00f0 okkur?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Takk, en \u00e9g get \u00fea\u00f0 ekki n\u00fana, svara\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan sag\u00f0i: \u00dea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 langt s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 h\u00f6fum hist. \u00dea\u00f0 ger\u00f0ist d\u00e1l\u00edti\u00f0 sem mig langar a\u00f0 segja \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, sag\u00f0i \u00e9g og b\u00e6tti vi\u00f0: Seg\u00f0u m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 tengist dansn\u00e1mskei\u00f0inu sem \u00e9g var \u00e1 lei\u00f0inni \u00e1 s\u00ed\u00f0ast \u00feegar vi\u00f0 hittumst, sag\u00f0i h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 horf\u00f0umst \u00ed augu. \u00c9g bei\u00f0 eftir framhaldinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa \u00fearf \u00e9g a\u00f0 fara a\u00f0 elda \u00feessa s\u00fapu, en \u00e9g hringi \u00ed \u00feig vi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri, sag\u00f0i h\u00fan og hvarf inn \u00ed h\u00fasi\u00f0 me\u00f0 br\u00e9fpokann.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gu\u00f0r\u00fan Eva M\u00ednervud\u00f3ttir \u00cd safna\u00f0arheimilinu a\u00f0 n\u00fdaflokinni messu st\u00f3\u00f0 bor\u00f0 \u00fati \u00e1 mi\u00f0ju g\u00f3lfi og \u00e1 \u00fev\u00ed st\u00f3rar kaffi- og tek\u00f6nnur, hv\u00edtir bollar, kaffirj\u00f3mi, sykurmolar, mj\u00f3lkurkex og kremkex. Messugestir h\u00f6f\u00f0u dreift s\u00e9r um r\u00fdmi\u00f0 og r\u00e6ddu saman e\u00f0a r\u00fdndu \u00ed s\u00edmaskj\u00e1, sparikl\u00e6dd b\u00f6rn geystust um \u00ed h\u00e1lft\u00f6mdum \u00e6singi og \u00fearna var presturinn bugtandi sig \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1015","page","type-page","status-publish","hentry"],"jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/1015","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1015"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/1015\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1085,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/1015\/revisions\/1085"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1015"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}