{"id":1049,"date":"2026-09-09T08:04:09","date_gmt":"2026-09-09T08:04:09","guid":{"rendered":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=1049"},"modified":"2026-09-11T11:14:16","modified_gmt":"2026-09-11T11:14:16","slug":"trampolin","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=1049","title":{"rendered":"Tramp\u00f3l\u00edn"},"content":{"rendered":"\n<h3 class=\"wp-block-heading has-text-align-center\">V\u00f3nbj\u00f8rt Vang<\/h3>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rd\u00eds stendur me\u00f0 hendur \u00ed gallabuxnav\u00f6sunum og horfir \u00e1 hann. H\u00fan haf\u00f0i sta\u00f0i\u00f0 \u00fearna lengi, l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en hann t\u00f3k yfir h\u00f6fu\u00f0 eftir henni. H\u00fan hallar s\u00e9r \u00f6rl\u00edti\u00f0 inn \u00ed gar\u00f0inn og l\u00e6tur \u00f6xlina hv\u00edla \u00e1 svartm\u00e1lu\u00f0u grindverkinu. Kv\u00f6ldbirtan fellur \u00e1 h\u00fashli\u00f0ina \u00feannig a\u00f0 h\u00fan glitrar, r\u00e9tt eins og h\u00fan s\u00e9 vot eftir rigningu. Dagurinn haf\u00f0i \u00fe\u00f3 a\u00f0 mestu veri\u00f0 \u00feurr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eil\u00edtill andvari fer\u00f0ast r\u00f3lega \u00ed gegnum gar\u00f0inn og \u00fdfir upp grasi\u00f0 \u00e1 lei\u00f0 sinni. H\u00e1rlokkur fellur ni\u00f0ur \u00e1 vanga hennar en h\u00fan gerir ekkert til a\u00f0 bl\u00e1sa hann fr\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann stendur nokkrum metrum fr\u00e1 henni, me\u00f0 baki\u00f0 h\u00e1lfpartinn til m\u00f3ts vi\u00f0 hana eins og hann s\u00e9 ekki alveg b\u00fainn a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a hvort hann \u00e6tli a\u00f0 fara eitthva\u00f0 e\u00f0a vera um kyrrt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ni\u00f0ri \u00ed gar\u00f0inum stendur \u00f3samsett tramp\u00f3l\u00edni\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00c9g h\u00e9lt a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6rir \u00fe\u00fa sem \u00e6tla\u00f0ir a\u00f0 setja tramp\u00f3l\u00edni\u00f0 saman,\u201c segir h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan tekur hendur \u00far v\u00f6sunum og setur \u00fe\u00e6r \u00e1 mja\u00f0mir. R\u00f6dd hennar er r\u00f3leg, en af einhverri \u00e1st\u00e6\u00f0u voma or\u00f0in yfir eins og hlj\u00f3\u00f0laus dr\u00f3ni \u00e1 hei\u00f0um sumarhimni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann sn\u00fdr s\u00e9r a\u00f0eins meir a\u00f0 henni, r\u00e9tt eins og hann s\u00e9r fyrst n\u00fana a\u00f0 taka eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 a\u00f0 tala.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00dea\u00f0 \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 gera,\u201c segir hann. \u201e\u00c9g er a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 n\u00fana.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan nikkar og l\u00edtur r\u00f3lega fr\u00e1 honum a\u00f0 tramp\u00f3l\u00edninu eins og h\u00fan s\u00e9 a\u00f0 bera or\u00f0 hans saman vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00ed raun og veru er \u00fearna fyrir framan \u00feau.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00c6tlar,\u201c endurtekur h\u00fan l\u00e1gm\u00e6lt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Birtan breytist st\u00f6\u00f0ugt \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokkur taki \u00ed raun eftir \u00fev\u00ed. H\u00fan ver\u00f0ur m\u00fdkri og f\u00e6rir sig ni\u00f0ur fjallshl\u00ed\u00f0ina, ni\u00f0ur a\u00f0 h\u00fasunum, gar\u00f0inum, tramp\u00f3l\u00edninu. H\u00e1v\u00e6rar raddir heyrast einhvers sta\u00f0ar \u00far h\u00fasinu, einhver f\u00e6rir til st\u00f3l og \u00fea\u00f0 klingir \u00ed gl\u00f6sunum um lei\u00f0 og \u00feau eru sett \u00e1 bor\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ni\u00f0ri \u00ed gar\u00f0i liggur tramp\u00f3l\u00edni\u00f0 og b\u00ed\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann svarar ekki. \u00cd sta\u00f0inn gengur hann framhj\u00e1 henni og \u00e1 \u00fev\u00ed augnabliki sem l\u00edkamar \u00feeirra eru vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 fara framhj\u00e1 hvor \u00f6\u00f0rum, str\u00fdkst handleggur hans vi\u00f0 hennar. Tilfinningin fyrir snertingu tveggja l\u00edkama hangir \u00ed loftinu \u00ed sek\u00fandubrot, \u00e1\u00f0ur en hann heldur \u00e1fram \u00e1n \u00feess a\u00f0 sem svo miki\u00f0 a\u00f0 l\u00edta aftur fyrir sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann gengur a\u00f0 sk\u00farnum. \u00dea\u00f0 \u00edskrar \u00ed hur\u00f0inni \u00feegar hann opnar hana og stuttu s\u00ed\u00f0ar birtist hann aftur. N\u00fa heldur hann \u00e1 beyglu\u00f0um verkf\u00e6rakassa \u00ed annarri og hv\u00edtum lei\u00f0beiningarb\u00e6klingi \u00ed hinni. Bla\u00f0s\u00ed\u00f0urnar d\u00e1l\u00edti\u00f0 krumpa\u00f0ar. Gleraugun sem h\u00f6f\u00f0u seti\u00f0 \u00e1 h\u00f6f\u00f0i hans renna ni\u00f0ur, hann setur \u00feau \u00e1 nefi\u00f0 af g\u00f6mlum vana.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann heldur lei\u00f0beiningunum \u00e1 lofti, bla\u00f0ar nokkrum s\u00ed\u00f0um fram og til baka og les gegnum samanp\u00edr\u00f0 augnlok. Hann kinkar skyndilega kolli \u00fev\u00ed hann hefur komist a\u00f0 einhverju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann \u00fearfnast skr\u00fafj\u00e1rns.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann leggur verkf\u00e6rakassann fr\u00e1 s\u00e9r og fer a\u00f0 r\u00f3ta \u00ed honum. \u00fea\u00f0 heyrist m\u00e1lmhlj\u00f3\u00f0 \u00feegar hann f\u00e6rir til skiptilykla, skr\u00fafur og gamlar tengur. En \u00fea\u00f0 er ekkert skr\u00fafj\u00e1rn \u00fear a\u00f0 finna. Hann h\u00e6ttir, r\u00e9ttir a\u00f0eins \u00far s\u00e9r og l\u00edtur yfir gar\u00f0inn. S\u00f3lin br\u00fdst \u00f6\u00f0ru hvoru \u00ed gegnum sk\u00fdin. Hann p\u00edrir augun og \u00fdtir gleraugunum aftur upp \u00e1 enni\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann er hreyfingarlaus um stund, eins og hann s\u00e9 a\u00f0 reyna a\u00f0 muna eitthva\u00f0. S\u00ed\u00f0an sn\u00fdr hann s\u00e9r vi\u00f0 og gengur aftur upp a\u00f0 sk\u00farnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Inni er lofti\u00f0 \u00feungt og rakt. Lyktin af g\u00f6mlum vi\u00f0, ol\u00edu og raka lo\u00f0ir vi\u00f0 veggina. Hann smeygir s\u00e9r inn \u00e1 milli stafla\u00f0ra gar\u00f0h\u00fasgagna, ry\u00f0ga\u00f0ra hj\u00f3la og kassa af t\u00f3mum bj\u00f3rfl\u00f6skum sem klingir \u00ed \u00feegar hann rekst utan \u00ed \u00fe\u00e1. Hann leitar, \u00e1n \u00feess a\u00f0 fl\u00fdta s\u00e9r, eins og einhver sem hefur komi\u00f0 oft hinga\u00f0 og veit a\u00f0 hlutir finnast sjaldan \u00fear sem \u00feeir \u00e6ttu a\u00f0 vera.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Loks nemur hann sta\u00f0ar vi\u00f0 hillu aftast \u00ed geymslunni. Hann r\u00e9ttir fram h\u00f6ndina, hikar um stund, og einmitt \u00fearna, fali\u00f0 \u00e1 bak vi\u00f0 gamla m\u00e1lningard\u00f3s, finnur hann skr\u00fafj\u00e1rni\u00f0. Hann vegur skr\u00fafj\u00e1rni\u00f0 a\u00f0eins \u00ed l\u00f3fanum eins og hann s\u00e9 a\u00f0 tryggja a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 \u00f6rugglega hi\u00f0 r\u00e9tta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar hann kemur \u00fat \u00far sk\u00farnum heyrir hann raddir, hl\u00e1tur og hn\u00edfaglamur. Gestirnir eru l\u00f6ngu komnir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann opnar dyrnar og st\u00edgur inn, en sta\u00f0n\u00e6mist n\u00e1nast samstundis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Forstofan er yfirfull.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00f3r \u00ed \u00f6llum st\u00e6r\u00f0um, ger\u00f0um og litum liggja \u00ed einni allsherjar k\u00f6s um allt g\u00f3lfi\u00f0. Sumir liggja \u00ed p\u00f6rum, a\u00f0rir stakir. Barnask\u00f3r me\u00f0 blikkandi lj\u00f3sum er klemmdur upp vi\u00f0 st\u00f3rt, sk\u00edtugt st\u00edgv\u00e9l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e9tt innan vi\u00f0 dyrnar er bekkur sem er \u00e1 kafi undir hr\u00fagu af j\u00f6kkum og peysum sem gestirnir hafa fleygt af s\u00e9r, \u00f3\u00feolinm\u00f3\u00f0ir eftir a\u00f0 komast \u00ed matinn og afm\u00e6li\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann hikar, \u00edhugar hvort hann eigi a\u00f0 fara inn, en sn\u00fdr svo vi\u00f0 \u00e1 punktinum, opnar hur\u00f0ina fyrir aftan sig og gengur \u00ed kringum h\u00fasi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd gar\u00f0inum fyrir aftan liggur h\u00e1lfuppteki\u00f0 tramp\u00f3l\u00edni\u00f0 enn eins og flak \u00e1 grasfl\u00f6tinni. B\u00fai\u00f0 er a\u00f0 r\u00edfa pappann utan af, \u00edhlutir \u00ed plastfl\u00e6kju og langar j\u00e1rnstangir standa \u00fat \u00ed allar \u00e1ttir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann kr\u00fdpur \u00e1 hn\u00e9 og fer a\u00f0 eiga vi\u00f0 partana. Dregur j\u00e1rnstangirnar \u00fat, hverja \u00e1 f\u00e6tur annarri, og dreifir \u00feeim yfir grasi\u00f0. Safnar \u00feeim svo \u00ed litla bingi og reynir a\u00f0 f\u00e1 einhverja yfirs\u00fdn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann veltir og sn\u00fdr einni st\u00f6ng \u00ed hendinni, eins og h\u00fan g\u00e6ti sagt honum hvert h\u00fan \u00e1 a\u00f0 fara ef hann bara rannsakar hana n\u00f3gu lengi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e1lmurinn er kaldur vi\u00f0komu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar hann beygir sig lengra ni\u00f0ur finnur hann buxnastrenginn skerast inn um sig mi\u00f0jan. Buxurnar s\u00edga sm\u00e1vegis ni\u00f0ur a\u00f0 aftan og \u00fea\u00f0 sk\u00edn r\u00e9tt svo \u00ed mj\u00f3a rifuna. Hann stir\u00f0nar upp \u00ed sek\u00fandubrot, r\u00e9ttir svo \u00far s\u00e9r, sl\u00e9ttir \u00far skyrtunni, dregur hana ni\u00f0ur og tre\u00f0ur henni aftur ofan \u00ed buxurnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann l\u00edtur \u00ed \u00e1tt til s\u00f3lar, en h\u00fan er n\u00fa \u00feegar hnigin \u00e1 bak vi\u00f0 fjalli\u00f0. Birtan er m\u00fdkri, fellur l\u00e6gra og skuggarnir lengjast \u00fevert yfir grasi\u00f0. \u00deokusl\u00e6\u00f0a f\u00e6rist h\u00e6gt ni\u00f0ur fjallshl\u00ed\u00f0ina. Marglita lj\u00f3saser\u00edan sem hangir \u00e1 milli h\u00fassins og tr\u00e9sins vaggar h\u00e6gt \u00ed golunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e1lmstengurnar fanga aftur athygli hans. Enn vir\u00f0ast \u00fe\u00e6r bara vera lausir hlutir \u00e1 v\u00ed\u00f0 og dreif. Hann klappar \u00e1 bringuna \u00e1 s\u00e9r eins og hann s\u00e9 a\u00f0 leita a\u00f0 einhverju, en stoppar \u00ed mi\u00f0ri hreyfingu \u00feegar hann \u00e1ttar sig \u00e1 a\u00f0 gleraugun eru komin aftur upp \u00e1 enni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann stendur \u00fearna stundarkorn \u00e1n \u00feess a\u00f0 hreyfa sig almennilega. Hl\u00e1turinn innan \u00far h\u00fasinu ver\u00f0ur h\u00e6rri, einhver kallar, barn hleypur yfir g\u00f3lfi\u00f0. Afm\u00e6li\u00f0 er hafi\u00f0 \u00e1n hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann veit m\u00e6tavel hva\u00f0 \u00e1 a\u00f0 gerast n\u00fana. Hann \u00e1 a\u00f0 lj\u00faka vi\u00f0 tramp\u00f3l\u00edni\u00f0, setja \u00fea\u00f0 upp og gera \u00fea\u00f0 tilb\u00fai\u00f0, l\u00e1ta l\u00edta \u00fat eins og \u00feetta hafi alltaf sta\u00f0i\u00f0 til. Eins og \u00fea\u00f0 s\u00e9 enn t\u00edmi, ef hann bara fl\u00fdtir s\u00e9r og leggur sig allan fram.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samt stendur hann bara \u00ed sta\u00f0, horfir \u00e1 partana fyrir framan sig, m\u00e1lminn, plasti\u00f0, allt \u00fea\u00f0 sem ekkert var\u00f0 \u00far.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og hann veit a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00feegar or\u00f0i\u00f0 of seint.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stuttu s\u00ed\u00f0ar er hann kominn aftur \u00e1 hn\u00e9n \u00ed grasinu og reynir a\u00f0 \u00fer\u00fdsta tveimur j\u00e1rnst\u00f6ngum saman. Hann sn\u00fdr og \u00fdtir og reynir aftur. M\u00e1lmurinn gefur sig ekki. \u00dea\u00f0 er eins og stangirnar smelli n\u00e6stum saman, en samt ekki alveg, eins og \u00fea\u00f0 vanti millimetra, a\u00f0eins \u00f6gn lengra, sem hann n\u00e6r ekki me\u00f0 handafli.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sm\u00e1ar svitaperlur spretta fram \u00e1 enni hans. Hann str\u00fdkur \u00fe\u00e6r af me\u00f0 handarbakinu. Hann reynir aftur, \u00fdtir af meira afli, \u00fer\u00fdstir af \u00f6llu afli, gn\u00edstir t\u00f6nnum, \u00feannig a\u00f0 kj\u00e1lkinn skelfur af \u00e1reynslunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eHelv\u00edtis,\u201c hv\u00e6sir hann \u00ed gegnum samanbitnar tennurnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann missir stangirnar og \u00fe\u00e6r detta hvor fr\u00e1 annarri me\u00f0 hvellum m\u00e1lmhlj\u00f3mi. Hann situr hlj\u00f3\u00f0ur um stund, vir\u00f0ist vera a\u00f0 \u00edhuga hvort \u00fea\u00f0 hafi nokkurn tilgang a\u00f0 halda \u00e1fram, en stendur svo skj\u00f3tt aftur upp.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann stingur h\u00f6ndum \u00ed vasa, dregur andann dj\u00fapt, reynir a\u00f0 safna s\u00e9r saman, finna n\u00fdjan takt, eitthva\u00f0 sem gefur til kynna a\u00f0 hann hafi stj\u00f3rn. \u00cd d\u00e1g\u00f3\u00f0a stund stendur hann \u00feannig \u00e1n \u00feess a\u00f0 gera nokku\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo tekur hann nokkur skref og hallar s\u00e9r til m\u00f3ts vi\u00f0 gar\u00f0inn. Steinsteypan er k\u00f6ld vi\u00f0 baki\u00f0 \u00e1 honum. Hann l\u00e6tur \u00feungann hv\u00edla \u00e1 veggnum, eins og hann hafi \u00fe\u00f6rf fyrir eitthva\u00f0, til a\u00f0 halda honum uppi og l\u00edtur svo aftur upp a\u00f0 h\u00fasinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bak vi\u00f0 gluggann er afm\u00e6lisveislan \u00ed fullum gangi. F\u00f3lk rekur sig hvert \u00ed anna\u00f0, fyllir \u00e1 gl\u00f6s, r\u00e9ttir hvert \u00f6\u00f0ru diska me\u00f0 smur\u00f0um brau\u00f0bollum, spjallar saman. \u00dati er kv\u00f6ldbirtan a\u00f0 f\u00e6rast yfir og dv\u00ednandi lj\u00f3si\u00f0 gerir herbergin inni enn bjartari og sk\u00fdrari. Kertin fl\u00f6kta, litlir lifandi logar \u00ed hl\u00fdju lj\u00f3sinu sem kasta skuggum yfir veggi og loft.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er m\u00f3\u00f0a \u00e1 r\u00fa\u00f0unum. \u00deunn, r\u00f6k himna \u00feekur gleri\u00f0 sem kemur til af sj\u00f3\u00f0andi pottum, katli, andardr\u00e6tti og allt of m\u00f6rgum l\u00edk\u00f6mum samankomnum \u00ed r\u00fdminu. Bl\u00f6\u00f0rur hanga \u00far loftinu og lita\u00f0ar f\u00e1nalengjur \u00fevera herbergin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datidyrnar opnast og lokast. B\u00f6rn \u00fej\u00f3ta \u00fat, hvert af \u00f6\u00f0ru. \u00deau hlaupa yfir fl\u00f6tina, kalla hvert til annars og stefna \u00e1 r\u00f3lurnar sem gefa fr\u00e1 s\u00e9r \u00edskur \u00feegar \u00feau hoppa upp \u00e1 \u00fe\u00e6r og halla s\u00e9r fram og aftur til a\u00f0 r\u00f3la hra\u00f0ar. \u00d6nnur halda \u00e1fram fram hj\u00e1 \u00feeim a\u00f0 b\u00farunum vi\u00f0 sk\u00farinn \u00fear sem kan\u00ednurnar eru. \u00deau beygja sig ni\u00f0ur, g\u00e6gjast inn, sl\u00e1 l\u00e9tt \u00e1 neti\u00f0 og hv\u00edsla s\u00edn \u00e1 milli \u00e1\u00f0ur en \u00feau sn\u00faa vi\u00f0 og hlaupa aftur a\u00f0 h\u00fasinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tramp\u00f3l\u00edni\u00f0 fer h\u00e6gt og r\u00f3lega a\u00f0 taka \u00e1 sig mynd. F\u00e6tur eru skr\u00fafa\u00f0ir \u00e1 og d\u00fakurinn er strekktur yfir. \u00deetta gengur h\u00e6gt, en n\u00fa er hann a\u00f0 kl\u00e1ra \u00fea\u00f0. En hann mun ekki n\u00e1 a\u00f0 festa \u00f6ryggisneti\u00f0. \u00dea\u00f0 liggur enn \u00ed grasinu, vafi\u00f0 \u00ed plast, \u00feegar fyrstu gestirnir streyma \u00fat \u00ed gar\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deokan sm\u00fdgur r\u00f3lega \u00e1 milli h\u00fasanna. \u00dea\u00f0 er enn sumar, en ve\u00f0ri\u00f0 er s\u00edbreytilegt, \u00fea\u00f0 hangir eitthva\u00f0 yfir, s\u00edfelld h\u00e6tta \u00e1 rigningu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann sn\u00fdr s\u00e9r vi\u00f0 og gengur aftur upp a\u00f0 h\u00fasinu. \u00cd tr\u00f6ppunum m\u00e6tir hann Hj\u00f6rd\u00edsi og litlu Brynhild, afm\u00e6lisbarninu. Hann var \u00e1 lei\u00f0 fram hj\u00e1 \u00feeim, en \u00feegar \u00fe\u00e6r nema sta\u00f0ar, nemur hann l\u00edka sta\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eEr tramp\u00f3l\u00edni\u00f0 tilb\u00fai\u00f0?\u201c spyr Brynhild. H\u00fan heldur \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 m\u00f6mmu sinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e6r horfa b\u00e1\u00f0ar \u00e1 hann fullar eftirv\u00e6ntingar og hann tekur eftir bolnum sem Brynhild er \u00ed. \u00c1 honum er kvenkyns ofurhetja, en hann haf\u00f0i aldrei teki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed fyrr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann yppir \u00f6xlum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00d6ryggisneti\u00f0 er ekki komi\u00f0 upp enn\u00fe\u00e1,\u201c segir hann og lyftir hendi til a\u00f0 strj\u00faka af s\u00e9r enninu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann tekur \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 Brynhild og gengur \u00e1lei\u00f0is a\u00f0 tramp\u00f3l\u00edninu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eH\u00fan m\u00e1 ekki hoppa \u00e1n \u00f6ryggisnets,\u201c kallar Hj\u00f6rd\u00eds \u00e1 eftir honum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eEkki hafa \u00e1hyggjur, \u00e9g g\u00e6ti hennar,\u201c svarar hann \u00e1n \u00feess a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau lei\u00f0ast ni\u00f0ur a\u00f0 tramp\u00f3l\u00edninu. Brynhild sleppir h\u00f6nd hnas um lei\u00f0 og \u00feau koma a\u00f0 \u00fev\u00ed. Spennt klifrar h\u00fan upp \u00e1 tramp\u00f3l\u00edni\u00f0 og fer a\u00f0 strax hoppa. Fyrst varlega, s\u00ed\u00f0an h\u00e6rra og h\u00e6rra, \u00fear til hl\u00e1turinn br\u00fdst \u00fat \u00far henni \u00ed takt vi\u00f0 hreyfingarnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann stendur vi\u00f0 hli\u00f0 tramp\u00f3l\u00ednsins, d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00ed burtu fr\u00e1 \u00fev\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6nnur b\u00f6rn b\u00e6tast \u00ed h\u00f3pinn. Fyrst eitt, svo tv\u00f6, svo enn fleiri. Flj\u00f3tlega eru \u00feau m\u00f6rg \u00e1 tramp\u00f3l\u00edninu. Hreyfingar \u00feeirra fl\u00e9ttast saman \u00feannig a\u00f0 d\u00fakurinn svignar undan \u00feeim. \u00deau hoppa \u00ed takt, \u00e6pa, detta um koll \u00ed hl\u00e1tursk\u00f6stum og standa aftur upp.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e9tt um \u00fe\u00e1 mund sem hann \u00e6tlar s\u00e9r inn, sn\u00fdr hann s\u00e9r vi\u00f0 og s\u00e9r tv\u00e6r sv\u00f6lur l\u00ed\u00f0a um lofti\u00f0 \u00e1 milli h\u00fasanna. \u00de\u00e6r flj\u00faga l\u00e1gt, alveg upp vi\u00f0 h\u00fas\u00feaki\u00f0, og kasta s\u00e9r svo skyndilega til hli\u00f0ar, eins og einhver hafi toga\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e6r me\u00f0 \u00f3s\u00fdnilegum \u00fer\u00e1\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deokan hefur loki\u00f0 h\u00e6gri fer\u00f0 sinni ni\u00f0ur a\u00f0 \u00feorpinu. H\u00fan leggst \u00ed kringum \u00feau, m\u00fdkir br\u00fanir og \u00fejappar hlj\u00f3\u00f0um. Fleiri foreldrar hafa lauma\u00f0 s\u00e9r \u00fat \u00ed gar\u00f0inn og hrings\u00f3la um tramp\u00f3l\u00edni\u00f0, sumir me\u00f0 krosslag\u00f0ar hendur \u00e1 bringunni, a\u00f0rir me\u00f0 h\u00f6nd \u00ed vasa, allir me\u00f0 augun \u00e1 kr\u00f6kkunum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skerandi hl\u00e1tur barna blandast vi\u00f0 spjall fullor\u00f0inna sem standa \u00ed kring og fylgjast me\u00f0. Stundum fer barn of n\u00e1l\u00e6gt br\u00faninni, missir jafnv\u00e6gi\u00f0 um stund, er vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 detta af, en h\u00f6nd gr\u00edpur \u00fea\u00f0, \u00f6nnur \u00fdtir barninu aftur inn fyrir m\u00f6rkin, einhver hj\u00e1lpar, \u00feannig er aldrei raunveruleg h\u00e6tta s\u00e9 \u00e1 fer\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enginn minnist \u00e1 \u00f6ryggisneti\u00f0. Enginn s\u00e9r \u00fea\u00f0, e\u00f0a k\u00fds a\u00f0 sj\u00e1 \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deokan liggur eins og blautt handkl\u00e6\u00f0i sem dreypt er yfir axlir hans, gar\u00f0inn, allt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rd\u00eds er l\u00edka komin \u00fat aftur. H\u00fan gengur a\u00f0 hli\u00f0 hans og heldur \u00e1 kaffibolla. H\u00fan hefur vafi\u00f0 b\u00e1\u00f0um h\u00f6ndum um drykkinn, eins og til a\u00f0 ylja s\u00e9r, og fylgist me\u00f0 b\u00f6rnunum. \u00deau standa svona d\u00e1g\u00f3\u00f0a stund.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00c9g get flutt \u00fat,\u201c segir hann og l\u00edtur \u00e1 hana.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan svarar ekki strax.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eJ\u00e1,\u201c segir h\u00fan a\u00f0 lokum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Daggardropar lo\u00f0a vi\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 henni. Litlar perlur sem fanga s\u00ed\u00f0asta lj\u00f3si\u00f0. Loksins tekur hann eftir \u00feeim, eins og hann hafi ekki horft almennilega \u00e1 hana \u00ed langan t\u00edma. Svo lyftir hann handleggnum h\u00e6gt og leggur yfir axlir hennar. Hvorugt \u00feeirra hreyfir sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00c6tlar\u00f0u ekki a\u00f0 pr\u00f3fa tramp\u00f3l\u00edni\u00f0?\u201c spyr hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan l\u00edtur \u00e1 hann. L\u00edti\u00f0 bros. R\u00e9ttir honum bollann og gengur a\u00f0 tramp\u00f3l\u00edninu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan fer upp \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Finnur jafnv\u00e6gi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fer a\u00f0 hoppa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan og Brynhild.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hreyfingar \u00feeirra spegla hvor a\u00f0ra, \u00fe\u00e6r skiljast og koma aftur saman \u00ed sm\u00e1um, \u00f3reglulegum takti. Hl\u00e1turinn er bjartari n\u00fana, frj\u00e1lsari.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann stendur og fylgist me\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hugsar um sv\u00f6lurnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Myrkri\u00f0 f\u00e6rist hratt yfir f\u00f3lki\u00f0 og tramp\u00f3l\u00edni\u00f0. \u00dea\u00f0 er ekki lengur au\u00f0velt a\u00f0 sj\u00e1 neitt. Andlit ver\u00f0a \u00f3sk\u00fdr, hreyfingar breytast \u00ed skuggaleik. Gestirnir t\u00ednast aftur inn einn af \u00f6\u00f0rum. \u00deeir hr\u00f3pa til krakkana a\u00f0 \u00feeir eigi a\u00f0 koma, \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur of dimmt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 lokum er gar\u00f0urinn n\u00e6stum t\u00f3mur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann stendur d\u00e1l\u00edti\u00f0 lengur, sn\u00fdr s\u00e9r svo vi\u00f0. Hann t\u00ednir saman verkf\u00e6rin s\u00edn, skilar \u00feeim \u00ed verkf\u00e6rakassann me\u00f0 r\u00f3legum, v\u00e9lr\u00e6num hreyfingum. Hann safnar pappanum og plastinu, krumpar \u00fea\u00f0 allt saman og tre\u00f0ur ofan \u00ed st\u00f3ran, svartan ruslapoka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6\u00f0ru hvoru l\u00edtur hann upp a\u00f0 h\u00fasinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00f3sin inni eru hl\u00fd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar hann er b\u00fainn gengur hann upp a\u00f0 h\u00fasinu. Hann stendur um stund fyrir framan gluggann og g\u00e6gist inn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann stendur kyrr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Inni \u00ed stofu er afm\u00e6liskakan borin fram. Kveikt hefur veri\u00f0 \u00e1 sj\u00f6 kertum, litlir logar vagga \u00ed h\u00e6gum takti \u00feegar einhver lyftir k\u00f6kunni svo allir geti s\u00e9\u00f0. H\u00f3purinn brestur \u00ed afm\u00e6liss\u00f6ng.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann fylgist me\u00f0 gufunni krullast upp \u00far potti fullum af heitu s\u00fakkula\u00f0i. Hann s\u00e9r bl\u00f6\u00f0rur \u00ed \u00f6llum litum hanga \u00far loftinu. Hann drekkur \u00ed sig hreyfingar, bros og klappandi hendur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann dokar a\u00f0eins vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en hann f\u00e6rir sig loksins \u00far sta\u00f0 rekur hann augun \u00ed sv\u00f6lurnar \u00e1 n\u00fd. \u00de\u00e6r skera lofti\u00f0 \u00ed sn\u00f6rpum bogum, fl\u00e9ttast \u00e1 milli h\u00fasanna, myrkri\u00f0 vir\u00f0ist ekki hafa \u00e1hrif \u00e1 \u00fe\u00e6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann enn stendur um stund og fylgist me\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Veltir \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvernig \u00fe\u00e6r fari a\u00f0 \u00fev\u00ed, a\u00f0 flj\u00faga svona vel \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 birtan s\u00e9 n\u00e1nast \u00f6ll horfin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo gengur hann a\u00f0 \u00fatidyrunum, opnar hur\u00f0ina varlega og st\u00edgur inn.<\/p>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-right wp-block-paragraph\"><em>\u00cdslensk \u00fe\u00fd\u00f0ing: M\u00f3\u00f0hei\u00f0ur Hl\u00edf Geirlaugsd\u00f3ttir<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>V\u00f3nbj\u00f8rt Vang Hj\u00f6rd\u00eds stendur me\u00f0 hendur \u00ed gallabuxnav\u00f6sunum og horfir \u00e1 hann. H\u00fan haf\u00f0i sta\u00f0i\u00f0 \u00fearna lengi, l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en hann t\u00f3k yfir h\u00f6fu\u00f0 eftir henni. H\u00fan hallar s\u00e9r \u00f6rl\u00edti\u00f0 inn \u00ed gar\u00f0inn og l\u00e6tur \u00f6xlina hv\u00edla \u00e1 svartm\u00e1lu\u00f0u grindverkinu. Kv\u00f6ldbirtan fellur \u00e1 h\u00fashli\u00f0ina \u00feannig a\u00f0 h\u00fan glitrar, r\u00e9tt eins og h\u00fan s\u00e9 vot eftir [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1049","page","type-page","status-publish","hentry"],"jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/1049","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1049"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/1049\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1072,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/1049\/revisions\/1072"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1049"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}