Mamma las b\u00e6kurnar um m\u00fam\u00ednsn\u00e1\u00f0ann fyrir hann t\u00edu \u00e1ra \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann g\u00e6ti vel lesi\u00f0 sj\u00e1lfur en hann vildi l\u00e1ta lesa fyrir sig og h\u00fan valdi \u00feessar b\u00e6kur. Aldrei sag\u00f0ist h\u00fan vera m\u00fam\u00ednmamma e\u00f0a hann m\u00fam\u00ednsn\u00e1\u00f0inn en samt fannst honum a\u00f0 s\u00e1 v\u00e6ri leikur \u00feeirra. Flestar voru fyndnar en s\u00fa sem leita\u00f0i mest \u00e1 hann n\u00fana var tregablandna b\u00f3kin \u00fear sem m\u00fam\u00ednsn\u00e1\u00f0inn vaknar um veturinn og \u00fearf a\u00f0 lifa hann af aleinn, fj\u00f6lskylda hans steinsofandi og kunnuglegt heimili\u00f0 \u00e1 valdi annarra.
\u2003Um hva\u00f0 fjallar \u00feessi saga? haf\u00f0i hann spurt m\u00f6mmu.
\u2003\u00de\u00fa ert skr\u00edti\u00f0 barn, haf\u00f0i h\u00fan sagt. S\u00f6gur eru um \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e6r eru um.
\u2003En hann haf\u00f0i ekki gefist upp og kve\u00f0i\u00f0 sj\u00e1lfur upp \u00far me\u00f0 \u00fea\u00f0:
\u2003M\u00fam\u00ednsn\u00e1\u00f0inn er einmana. Hann saknar fj\u00f6lskyldunnar. M\u00f6mmu sinnar.
\u2003Hann l\u00e6rir a\u00f0 vera \u00e1n \u00feeirra, sag\u00f0i mamma \u00fe\u00e1. Hann f\u00e6r a\u00f0 sj\u00e1 allan heiminn \u00ed n\u00fdju lj\u00f3si og tekur \u00fat \u00feroska. \u00derosku\u00f0 manneskja er ekki einmana.
\u2003Skynja\u00f0i mamma ekki \u00fej\u00e1ninguna e\u00f0a vildi ekki r\u00e6\u00f0a hana? Eftir sat a\u00f0 hvergi yr\u00f0i sn\u00e1\u00f0inn meira einmana en \u00e1 eigin heimili innan um sofandi \u00e1stvini; minningarnar um horfnar hamingjustundir k\u00e6fandi, engar jafn \u00fer\u00fagandi hillingar \u00e1starinnar a\u00f0 finna \u00e1 \u00f3kunnum st\u00f6\u00f0um.
\u2003N\u00fana l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ar s\u00e1 hann a\u00f0 sagan um v\u00f6kuveturinn var full af d\u00e6mum um fl\u00f3kna, s\u00e1rsaukafulla og hverfula vin\u00e1ttu og \u00fea\u00f0 hvarfla\u00f0i a\u00f0 honum a\u00f0 h\u00f6fundurinn hlyti a\u00f0 hafa kynnst \u00fatsk\u00fafun og f\u00e9lagslegri einangrun. H\u00fan haf\u00f0i sennilega or\u00f0i\u00f0 \u00fer\u00edtug og s\u00e9\u00f0 vinina halda s\u00edna lei\u00f0. Horft r\u00e1\u00f0alaus \u00e1 eftir \u00feeim og ekki haft hugmynd um hva\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 gera.  <\/p>\n\n\n\n
Ekki elta f\u00f3lk, haf\u00f0i mamma sagt. L\u00e1ttu f\u00f3lk eltast vi\u00f0 \u00feig.
\u2003Sem g\u00e6ti veri\u00f0 gott r\u00e1\u00f0 \u00ed einhverju samhengi en eins og sta\u00f0an var n\u00fana var ni\u00f0ursta\u00f0an s\u00edvaxandi og sligandi einsemd.
\u2003Hann hlaut a\u00f0 hafa misst af \u00ed sk\u00f3lanum \u00feegar \u00feeim var kennd listin a\u00f0 l\u00e1ta f\u00f3lk elta sig og eftir alla sk\u00f3lag\u00f6nguna var hann enn ekki einhver sem f\u00f3lk elti. Hann haf\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 glugga\u00f0 \u00ed lei\u00f0togahandb\u00e6kur sem snerust um n\u00e1kv\u00e6mlega \u00feetta en lei\u00f0 \u00fe\u00e1 eins og hann l\u00e6gi \u00e1 g\u00e6gjum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r voru auglj\u00f3slega \u00e6tla\u00f0ar \u00f6\u00f0ruv\u00edsi t\u00fdpum. <\/p>\n\n\n\n
Hva\u00f0 \u00e6tli klukkan s\u00e9? Hann langar ekki til a\u00f0 vita \u00fea\u00f0. S\u00edminn titrar, \u00fea\u00f0 glamrar \u00ed t\u00f3mu glasinu vi\u00f0 hli\u00f0ina og hann \u00feykist vita a\u00f0 senn s\u00e9 morgunn. Vill ekki \u00e1 f\u00e6tur. G\u00e6ti dvali\u00f0 a\u00f0 eil\u00edfu undir s\u00e6nginni. <\/p>\n\n\n\n
\u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekkert a\u00f0 setja traust sitt \u00e1 f\u00f3lk, haf\u00f0i mamma sagt. Manni \u00e1 a\u00f0 l\u00ed\u00f0a best einum.
\u2003\u00c9g vil vera ein, haf\u00f0i Greta Garbo sagt. Mamma tala\u00f0i oft um hana full a\u00f0d\u00e1unar. En hvernig haf\u00f0i henni tekist til? Haf\u00f0i h\u00fan veri\u00f0 ein? Er f\u00f3lk eitt ef \u00fea\u00f0 s\u00e9st ekki \u00e1 fr\u00e9ttalj\u00f3smynd \u00e1 \u00e1rinu? Stundum hl\u00fdtur Garbo a\u00f0 hafa langa\u00f0 til a\u00f0 segja fr\u00e1 skondnu atviki e\u00f0a \u00f3v\u00e6ntum fr\u00f3\u00f0leik. \u00c6sku sinni \u00e1 Blekingegatan e\u00f0a \u00feegar fa\u00f0ir hennar d\u00f3 \u00far sp\u00e6nsku veikinni. Ef til vill haf\u00f0i h\u00fan r\u00e6tt \u00feetta vi\u00f0 p\u00edpulagningamanninn og p\u00f3stinn. E\u00f0a legi\u00f0 \u00ed s\u00edmanum til annarra gleymdra Hollywoodstjarna. Nema h\u00fan hafi gengi\u00f0 til s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ings eins og t\u00ed\u00f0ka\u00f0ist hj\u00e1 \u00feeim fr\u00e6gu \u00ed Vesturheimi. Ef hann minntist sj\u00e1lfur \u00e1 einsemd var vi\u00f0kv\u00e6\u00f0i\u00f0 gjarnan a\u00f0 hann \u00e6tti a\u00f0 leita til s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ings. \u00de\u00f3tt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri skr\u00edti\u00f0 a\u00f0 borga manni til a\u00f0 hlusta \u00e1 s\u00f6gu af skondnu atviki e\u00f0a r\u00e6\u00f0a Gretu Garbo vi\u00f0 hann.
\u2003Haf\u00f0i Greta Garbo veri\u00f0 jafn ein og m\u00fam\u00ednsn\u00e1\u00f0inn vakandi \u00ed fullu h\u00fasi af sofandi \u00e6ttingjum og vinum? E\u00f0a hann sj\u00e1lfur \u00ed h\u00fasi andanna \u00fear sem hver einasta mynd \u00e1 vegg minnti \u00e1 m\u00f6mmu og pabba? H\u00fasi\u00f0 fullt af andardr\u00e6tti f\u00f3lks sem aldrei mun anda framar.
\u2003Hver einasti munur. Hver einasta b\u00f3k. Hvert einasta h\u00fasgagn. Veggirnir. G\u00f3lfi\u00f0. Brotna r\u00fa\u00f0an \u00ed stofuhur\u00f0inni sem f\u00e9kk a\u00f0 vera brotin \u00e1fram \u00ed \u00e1ratug vegna \u00feess a\u00f0 r\u00e9tt tegund af gleri haf\u00f0i ekki fengist \u00e1 landinu \u00e1ri\u00f0 2003.<\/p>\n\n\n\n
Hv\u00ed er \u00e9g einn? spur\u00f0i hann sig stundum en \u00fe\u00e1 var eins og m\u00f6mmu skyti \u00ed hans haus og seg\u00f0i: \u00fea\u00f0 er ekki spurningin heldur hvers vegna \u00fe\u00e9r finnst \u00f3\u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 vera einn? Hann var kominn me\u00f0 f\u00e1ein sv\u00f6r sem hugsanlega v\u00e6ru n\u00f3gu skynsamleg. Eitt var: \u00e9g er ekki Garbo. Anna\u00f0: ma\u00f0ur er manns gaman. \u00cdmynda\u00f0a mamma hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0. Alv\u00f6ru spurningum \u00e1 ekki a\u00f0 svara me\u00f0 augl\u00fdsingafr\u00f6sum, jafnvel d\u00fdrt stolnum \u00far H\u00e1vam\u00e1lum, frasasafni as\u00edska h\u00f6f\u00f0ingjans sem \u00fe\u00f3ttist vera gu\u00f0.
\u2003Drauga-Mamma minntist \u00fe\u00f3 ekki \u00e1 Jes\u00fas. \u00de\u00f3 a\u00f0 hann v\u00e6ri auglj\u00f3s kostur \u00fev\u00ed a\u00f0 Jes\u00fas er einmitt vinur \u00feeirra sem eiga enga vini. Sem er l\u00edklega helsti tilgangur allra gu\u00f0a. Hv\u00ed n\u00e1\u00f0i hann engu sambandi vi\u00f0 hinn krossfesta?
\u2003E\u00f0a g\u00e6ti ekki einu sinni hringt \u00ed hinn jafn muna\u00f0arlausa Batman \u00far bl\u00f6kus\u00edma? Gr\u00edmukl\u00e6ddir gl\u00e6pamannaskelfar f\u00e1st au\u00f0vita\u00f0 ekki vi\u00f0 spurningar af \u00feessu tagi. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i mamma geta\u00f0 sagt honum. H\u00fan kalla\u00f0i reyndar le\u00f0urbl\u00f6kur flj\u00fagandi rottur og hlusta\u00f0i aldrei \u00feegar hann reyndi a\u00f0 fr\u00e6\u00f0a hana um a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri algengur misskilningur: le\u00f0urbl\u00f6kur v\u00e6ru s\u00e9rstakur \u00e6ttb\u00e1lkur d\u00fdra og ekkert skyldari rottum en pr\u00edm\u00f6tum. <\/p>\n\n\n\n
\u00dea\u00f0 haf\u00f0i teki\u00f0 \u00e1 a\u00f0 dingla einn eins og millj\u00f3nungurinn Batman \u00ed hversdagslegu h\u00fasi me\u00f0 of m\u00f6rgum herbergjum og h\u00fasg\u00f6gnum sem foreldrar hans h\u00f6f\u00f0u haft sinn undarlega smekk fyrir, a\u00f0 \u00f3gleymdum sj\u00f6t\u00edu sm\u00e1um uglum sem mamma haf\u00f0i safna\u00f0 en engum au\u00f0fundnum kjallara me\u00f0 le\u00f0urbl\u00f6kum og sportb\u00edl \u00feannig a\u00f0 stundum reyndi hann frekar a\u00f0 vera Greta, einkum \u00feegar hann vakna\u00f0i \u00ed b\u00edti\u00f0 og hlusta\u00f0i \u00e1 \u00fe\u00f6gnina. Haf\u00f0i h\u00fan alltaf muna\u00f0 \u00ed morguns\u00e1ri\u00f0 a\u00f0 h\u00fan var Garbo en ekki a\u00f0eins l\u00edti\u00f0 sandkorn \u00ed geimnum?
\u2003Hann haf\u00f0i b\u00fai\u00f0 \u00ed 50 fermetrum \u00ed mi\u00f0b\u00e6num \u00e1\u00f0ur en hann var\u00f0 \u00f3v\u00e6nt eigandi \u00feessa einb\u00fdlish\u00fass \u00e1 \u00e1snum ofan vi\u00f0 dalinn en \u00ed b\u00e6num haf\u00f0i aldrei r\u00edkt \u00feessi dj\u00fapa \u00fe\u00f6gn sem var honum framandi; \u00feau h\u00f6f\u00f0u ekki flutt hinga\u00f0 fyrr en hann var 19 \u00e1ra og andlega floginn \u00far hrei\u00f0rinu. Haf\u00f0i \u00e1 \u00feeim \u00e1rum b\u00e6gt \u00fe\u00f6gninni fr\u00e1 me\u00f0 t\u00f3nlist \u00ed eyrunum.<\/p>\n\n\n\n
H\u00fasi\u00f0 st\u00f3\u00f0 \u00ed hl\u00ed\u00f0 \u00ed sk\u00f3gi v\u00f6xnu \u00edb\u00fa\u00f0ahverfi og inni var\u00f0 ekki vart vi\u00f0 neitt utandyra. Tilgangurinn eflaust a\u00f0 \u00feykjast b\u00faa \u00ed sveit fjarri asa heimsins. Sj\u00e1lfan hef\u00f0i hann aldrei dreymt um a\u00f0 b\u00faa \u00e1 sl\u00edkum sta\u00f0 en samt haf\u00f0i hann dregist hinga\u00f0 inn \u00feegar \u00feau voru ekki lengur til, n\u00e6stum eins og svipleg \u00f6rl\u00f6g \u00feeirra v\u00e6ru a\u00f0dr\u00e1ttargeislinn \u00far Star Wars sem Obi Van f\u00f3rna\u00f0i l\u00edfinu til a\u00f0 sl\u00f6kkva \u00e1. Hann \u00e6tla\u00f0i fyrst a\u00f0eins a\u00f0 dvelja h\u00e9r \u00ed m\u00e1nu\u00f0 og taka til. Haf\u00f0i jafnvel \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 hann slaka\u00f0i \u00e1 og fyndi innri fri\u00f0 sem hann skorti \u00e1takanlega. Au\u00f0vita\u00f0 haf\u00f0i l\u00edtill smeykur p\u00faki birst r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en hann flutti inn og h\u00e1sr\u00f3ma vara\u00f0 vi\u00f0 \u00feessu au\u00f0a h\u00fasi fullu af draugslegum minningum. H\u00fas hafa sterka n\u00e6rveru, hv\u00e6sti p\u00fakinn. Hann haf\u00f0i kve\u00f0i\u00f0 p\u00fakann \u00ed k\u00fatinn og sagt hl\u00e6jandi vi\u00f0 \u00feennan r\u00e1ma talandi fingur sinn a\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir alla gr\u00f3\u00f0urs\u00e6ld v\u00e6ru engir \u00feyrnirunnar a\u00f0 stinga sig \u00e1 og \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 sofa \u00f3st\u00fdril\u00e1tum svefni \u00ed eina \u00f6ld en \u00fe\u00f3 haf\u00f0i honum l\u00edklega einmitt tekist a\u00f0 stinga sig \u00e1 svefn\u00feorni og n\u00fa rata\u00f0i hann ekki \u00fat.<\/p>\n\n\n\n
Greta Garbo \u00feurfti ekki \u00e1 f\u00f3lki a\u00f0 halda. H\u00fan heilla\u00f0i millj\u00f3nir me\u00f0 augnar\u00e1\u00f0inu einu. Jafnvel n\u00fana n\u00e6stum einni \u00f6ld s\u00ed\u00f0ar haf\u00f0i myndband \u00e1 netinu af henni n\u00e6stum 140 \u00fe\u00fasund \u00e1horf. H\u00fan var \u00ed gervi Krist\u00ednar Sv\u00edadrottningar horfandi dulr\u00e6\u00f0 \u00ed fjarskann. Illu heilli haf\u00f0i hann reynt a\u00f0 st\u00e6la svipinn vi\u00f0 spegil en speglar eru verstu \u00f3vinir fegurstu sj\u00e1lfsblekkinga og s\u00fdndu honum aldrei nema tekinn og v\u00e6skilslegan mi\u00f0aldra mann a\u00f0 geifla sig, ekki forkunnarfagra kvikmyndastj\u00f6rnu.
\u2003Hann haf\u00f0i aldrei veri\u00f0 einn \u00feeirra sem speglar elska, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 myndav\u00e9lar. \u00cd sta\u00f0 \u00feess ger\u00f0ists hann \u00fereyttur og a\u00f0 lokum \u00fatbrunninn fangav\u00f6r\u00f0ur sem s\u00e1 til \u00feess a\u00f0 unglingar villtust ekki \u00e1 glapstigu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kenna \u00feeim \u00fe\u00fdska sagnbeygingu og lesa me\u00f0 \u00feeim l\u00e9ttlestrarb\u00e6kur um mor\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 jafnvel D\u00fcrrenmatt og Max Frisch voru or\u00f0nir of erfi\u00f0ir fyrir ungvi\u00f0i\u00f0. <\/p>\n\n\n\n
Svipur Garbo gleymdist ekki en hann dingla\u00f0i \u00f6llum gleymdur \u00ed \u00feessari grafhvelfingu, ekki s\u00e9rdeilis Garbolegur, l\u00edkari veslings gamla riddaranum \u00ed Indiana Jones myndinni sem haf\u00f0i sta\u00f0i\u00f0 v\u00f6r\u00f0 um gralinn \u00ed \u00e1tta aldir til \u00feess eins a\u00f0 l\u00e1ta \u00feennan svokalla\u00f0a fornleifafr\u00e6\u00f0ing r\u00fasta pleisinu \u00e1 h\u00e1lft\u00edma. \u00c6\u00f0i snjallt af gamla manninum annars a\u00f0 vera me\u00f0 nokkra bikara til a\u00f0 villa \u00f3ver\u00f0ugum s\u00fdn og \u00feannig n\u00e1\u00f0i hann a\u00f0 fara illa me\u00f0 f\u00e9g\u00edruga Amer\u00edkanann sem haf\u00f0i elst leitursn\u00f6ggt me\u00f0 t\u00e6knibrellum en \u00fe\u00f3 ekkert \u00f3svipa\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feegar \u00e1\u00f0ur hressilegt f\u00f3lk er skyndilega or\u00f0i\u00f0 aldra\u00f0 \u00e1 \u00f6rf\u00e1um vikum \u00ed raunheimum.
\u2003Greta Garbo og gralriddarinn voru ef til vill alein en samt me\u00f0 hlutverk. F\u00f3lk mundi eftir henni og \u00fea\u00f0 voru alltaf einhverjir \u00e1 lei\u00f0inni til hans me\u00f0 \u00e6rinni fyrirh\u00f6fn. En honum sj\u00e1lfum barst ekki einu sinni p\u00f3stur af \u00fev\u00ed a\u00f0 pabbi vildi ekkert \u00f3n\u00e6\u00f0i \u00ed kastalanum og \u00e1tti box \u00e1 p\u00f3sth\u00fasinu sem haf\u00f0i n\u00fa veri\u00f0 lagt ni\u00f0ur e\u00f0a \u00ed or\u00f0i kve\u00f0nu sameina\u00f0 \u00f6\u00f0ru p\u00f3sth\u00fasi lengst \u00ed fjarska en \u00e1 gamla p\u00f3stinum haf\u00f0i pabbi \u00feekkt allar konurnar og r\u00e6ddi \u00fe\u00e6r i\u00f0ulega vi\u00f0 soninn eins og hann \u00e6tti a\u00f0 \u00feekkja \u00fe\u00e6r l\u00edka.
\u2003Pabbi haf\u00f0i aldrei efast um a\u00f0 hann \u00feekkti f\u00f3lk. Ef til vill h\u00f6f\u00f0u \u00feau mamma b\u00e6\u00f0i haft \u00fe\u00e1 n\u00e1\u00f0arg\u00e1fu a\u00f0 sj\u00e1 inn \u00ed s\u00e1lir annarra og bera kennsl \u00e1 innsta e\u00f0li \u00feeirra. Lengi haf\u00f0i hann tali\u00f0 sig eins; hann haf\u00f0i skili\u00f0 krakkana sem hann kenndi fyrstu \u00e1rin \u00ed sk\u00f3lanum og \u00feau h\u00f6f\u00f0u kunna\u00f0 vel vi\u00f0 hann. Uns dag einn voru allir sem hann hitti framandi. Eins og hann hef\u00f0i vakna\u00f0 horfinn \u00far tegundinni og b\u00fainn a\u00f0 gleyma hvernig mannf\u00f3lk hugsar. Hef\u00f0i fer\u00f0ast til framt\u00ed\u00f0ar \u00ed t\u00edmav\u00e9l og veri\u00f0 skilinn \u00fear eftir innan um el\u00f3a og m\u00f3l\u00f3ka. Hvernig hugsa sl\u00edkar verur? Er eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e6r a\u00f0 r\u00e6\u00f0a? Hefur hann sj\u00e1lfur svo sem eitthva\u00f0 vi\u00f0 manneskjur a\u00f0 r\u00e6\u00f0a?<\/p>\n\n\n\n
Hann haf\u00f0i lengi hugsa\u00f0 um sj\u00e1lfan sig sem vinmargan og \u00edmynda\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 a\u00f0rir h\u00e9ldu hi\u00f0 sama. En \u00feegar vinirnir draga saman seglin kom \u00ed lj\u00f3s hverjir voru mikilv\u00e6gastir og \u00fea\u00f0 var ekki hann. Nema \u00feetta hef\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 hinn veginn. Hann haf\u00f0i misst sambandi\u00f0 vi\u00f0 g\u00f6mlu vinina vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau ur\u00f0u lei\u00f0inleg og hann gat ekki liti\u00f0 fram hj\u00e1 \u00fev\u00ed. \u00c6tti ekki a\u00f0 sakna \u00feeirra. Verst hve erfitt honum fannst a\u00f0 eignast n\u00fdja vini.
\u2003Hrapi\u00f0 ofan \u00ed einveruna h\u00f3fst fyrir t\u00e6pum \u00e1ratug. Fyrst \u00feegar hann h\u00e6tti a\u00f0 drekka en versna\u00f0i margfalt \u00feegar hann gafst upp \u00e1 a\u00f0 fara \u00fat a\u00f0 skemmta s\u00e9r \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 og s\u00ed\u00f0an vegna alls konar \u00f3vi\u00f0r\u00e1\u00f0anlegra a\u00f0st\u00e6\u00f0na, eins og \u00fea\u00f0 h\u00e9t \u00ed fr\u00e9ttatilkynningum. \u00c1 vinnusta\u00f0num voru fylkingar: annars vegar yngra f\u00f3lk sem vildi djamma en hins vegar f\u00f3lk \u00e1 hans aldri sem r\u00e6ddi helst bleyjutegundir og n\u00f6ldra\u00f0i yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 eiga krakka. Sj\u00e1lfur f\u00e9ll hann milli stafs og hur\u00f0ar eins og allir sem ekki falla a\u00f0 hinu vi\u00f0tekna. Hann haf\u00f0i fyrst reynt a\u00f0 tilheyra yngra f\u00f3lkinu. Haf\u00f0i hann tr\u00faa\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau sam\u00feykktu hann? En lei\u00f0 \u00f3\u00fe\u00e6gilega \u00ed h\u00f3pnum, fannst hann frekar umborinn en vel li\u00f0inn. Hann heyr\u00f0i \u00feau stundum h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 k\u00f6rlum \u00e1 fertugsaldri sem \u00fdmist v\u00e6ru lifandi dau\u00f0ir e\u00f0a hall\u00e6rislegir pervertar sem s\u00e6ktust \u00e1 vandr\u00e6\u00f0alegan h\u00e1tt eftir f\u00e9lagsskap hinna yngri. \u00deessum s\u00f6gum var ekki beint til hans en samt lei\u00f0 honum eins og bo\u00f0flennu \u00feegar hann heyr\u00f0i \u00fe\u00e6r enda varla s\u00e9rstaklega k\u00fal fyrir sinn aldur.
\u2003Stundum \u00edmynda\u00f0i hann s\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 best a\u00f0 vingast vi\u00f0 krakkana sem hann kenndi. \u00deau voru i\u00f0ulega skemmtilegri en samkennarar hans en \u00fea\u00f0 m\u00e1tti au\u00f0vita\u00f0 ekki hanga me\u00f0 kr\u00f6kkum; enginn Robin fyrir \u00feennan Batman. Samt var honum alltaf bo\u00f0i\u00f0 \u00ed part\u00fdin fyrir \u00e1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0ina \u00feegar m\u00e1tti bj\u00f3\u00f0a kennurum en hann af\u00feakka\u00f0i vandr\u00e6\u00f0alega. Ekki vegna \u00feess a\u00f0 hann langa\u00f0i ekki heldur \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti. A\u00f0 lokum f\u00e9kk hann engin bo\u00f0 lengur og \u00edmynda\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri vegna \u00feess a\u00f0 hann v\u00e6ri n\u00fa or\u00f0inn gamall og lei\u00f0inlegur. <\/p>\n\n\n\n
\u00c9g skil ekki f\u00f3lk sem alltaf hangir me\u00f0 st\u00fadents\u00e1rganginum s\u00ednum, sag\u00f0i mamma oft. Hefur \u00fea\u00f0 ekkert \u00feroskast og \u00fer\u00f3ast?
\n\u2003S\u00ed\u00f0an haf\u00f0i h\u00fan sent honum \u00fe\u00fd\u00f0ingarmiki\u00f0 augnar\u00e1\u00f0. Hann haf\u00f0i aldrei l\u00e6rt a\u00f0 leita s\u00e9r a\u00f0 vinum eins og kom n\u00fa \u00e1 daginn. Hann \u00e1tti alltaf s\u00f6mu vinina og a\u00f0allega Dagmar sem hann \u00edmynda\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 m\u00f6mmu hef\u00f0i aldrei l\u00edka\u00f0 vi\u00f0. Hann haf\u00f0i reynt a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00fe\u00e6r hittust eftir fyrsta skipti\u00f0. Stundum fannst honum a\u00f0 \u00feessi vin\u00e1tta v\u00e6ri misheppnu\u00f0 uppreisnartilraun. Au\u00f0vita\u00f0 voru \u00fea\u00f0 a\u00f0allega Dagmar og Raggi sem h\u00f6f\u00f0u slegi\u00f0 eign sinni \u00e1 hann, hringdu \u00ed hann \u00feegar \u00feeim henta\u00f0i, en ekki honum. Voru \u00fea\u00f0 \u00feeirra n\u00f6fn sem gl\u00f3\u00f0u \u00e1 skj\u00e1 titrandi s\u00edmans n\u00fana? Varla. <\/p>\n\n\n\n
Hann \u00e1tti l\u00edklega enga vini lengur, ekki ef vinir eru skilgreindir sem f\u00f3lk sem ma\u00f0ur hittir \u00ed hverri viku. Dag einn voru \u00feeir gufa\u00f0ir upp. \u00dea\u00f0 m\u00e1tti sk\u00fdra sem r\u00f6\u00f0 hendinga sem h\u00f6f\u00f0u ra\u00f0ast illa upp en \u00f6nnur t\u00falkun var m\u00f6guleg sem snerist um a\u00f0 ma\u00f0ur sem allir sem \u00feekkja hann best kj\u00f3sa a\u00f0 yfirgefa geti ekki veri\u00f0 skemmtilegur e\u00f0a ge\u00f0\u00feekkur. Allir beri nokkra \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 eigin \u00f6rl\u00f6gum og enginn s\u00e9 yfirgefinn \u00e1n \u00feess a\u00f0 eiga nokkra s\u00f6k \u00e1 \u00fev\u00ed sj\u00e1lfur. Fyrst er \u00feetta \u00f3lj\u00f3s tilfinning aftast \u00ed kollinum en sm\u00e1m saman l\u00e6\u00f0ist h\u00fan framar og fer st\u00e6kkandi uns h\u00fan ver\u00f0ur yfir\u00feyrmandi. Skr\u00edmsli \u00ed h\u00f6fu\u00f0k\u00fapunni urrar grimmdarlega \u00e1 hann: \u00deau f\u00f3ru fr\u00e1 \u00fe\u00e9r af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa varst ekki g\u00f3\u00f0ur vinur. Menn uppskera eins og \u00feeir s\u00e1 til. Sag\u00f0i Kristur sj\u00e1lfur ekki eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 vegu \u00ed einni d\u00e6mis\u00f6gunni og varla laug hann? Enginn ver\u00f0ur vinalaus sem allt er \u00ed lagi me\u00f0.
\n\u2003S\u00f6nnunarg\u00f6gnin l\u00e1gu fyrir og eftir st\u00f3\u00f0 a\u00f0eins a\u00f0 skilgreina hva\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 manninum. Var hann \u00f3fyndinn og \u00f3\u00e1hugaver\u00f0ur? Skeytingarlaus og sj\u00e1lfselskur? \u00d3fr\u00ed\u00f0ur og sjarmalaus? Honum fannst eiginlega ekkert athugavert vi\u00f0 sig en hvernig gat annars sta\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edf hans haf\u00f0i t\u00e6mst af vinum og vandam\u00f6nnum? Gat veri\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri vetur \u00ed M\u00fam\u00edndal en s\u00ed\u00f0an sneru vinirnir aftur? Voru \u00feeir kannski \u00feegar h\u00e9r en honum \u00f3s\u00fdnilegir? <\/p>\n\n\n\n
Strax \u00e1 unglings\u00e1runum t\u00f3k a\u00f0 ganga verulega \u00e1 \u00feolinm\u00e6\u00f0i hans gagnvart pabba og m\u00f6mmu. Me\u00f0al annars vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau h\u00e6ldu honum aldrei e\u00f0a studdu. L\u00e9tu s\u00e9r f\u00e1tt um finnast \u00feegar hann lauk pr\u00f3fi. Fannst sj\u00e1lfsagt a\u00f0 hann fengi g\u00f3\u00f0a vinnu og voru \u00e1hugalaus \u00feegar hann l\u00fdsti henni. Engan skilning h\u00f6f\u00f0u \u00feau \u00e1 verkefnum hans e\u00f0a \u00feeim tr\u00fana\u00f0i sem honum haf\u00f0i veri\u00f0 s\u00fdndur. Almennt hlustu\u00f0u \u00feau n\u00e6sta l\u00edti\u00f0 \u00e1 hann. Spur\u00f0u hann aldrei um sko\u00f0anir hans n\u00e9 tilfinningar. En raunar haf\u00f0i hann ekki heldur s\u00fdnt \u00feeirra hug\u00f0arefnum mikinn \u00e1huga. Sm\u00e1m saman haf\u00f0i hann fari\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru frekar lei\u00f0inlegt f\u00f3lk en n\u00fana hugleiddi hann \u00e6 oftar a\u00f0 sj\u00e1lfum kippti honum \u00ed kyni\u00f0 og v\u00e6ri jafnvel enn lei\u00f0inlegri.
\u2003Haf\u00f0i hann veri\u00f0 \u00f3sanngjarn? N\u00fa hegndist honum fyrir. Var 37 \u00e1ra barn sem kann ekki a\u00f0 f\u00f3ta sig \u00e1n foreldranna sem hann haf\u00f0i ekki kunna\u00f0 a\u00f0 meta me\u00f0an \u00feau lif\u00f0u. <\/p>\n\n\n\n
Hann haf\u00f0i \u00e1tt vini \u00ed barnask\u00f3la og menntask\u00f3la en l\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00e1 gossa og \u00fea\u00f0 var ekki l\u00e9tt a\u00f0 taka upp \u00fer\u00e1\u00f0inn eftir langt hl\u00e9, \u00feau h\u00f6f\u00f0u vaxi\u00f0 hvert \u00ed s\u00edna \u00e1tt og l\u00edf flestra tro\u00f0fullt af fj\u00f6lskyldu og hug\u00f0arefnum sem \u00feeim hef\u00f0i fundist f\u00e1r\u00e1nleg for\u00f0um. Eftir sat hann vinnuf\u00edkinn og hobb\u00fdlaus; afsl\u00f6ppun taldist v\u00edst ekki me\u00f0 sem \u00e1hugam\u00e1l. Hann haf\u00f0i hugleitt a\u00f0 fara a\u00f0 spila golf me\u00f0 g\u00f6mlum bekkjarbr\u00f3\u00f0ur en var skrambi \u00f3hittinn og auk heldur \u00e1tti s\u00e1 a\u00f0ra f\u00e9laga sem ekki voru skemmtilegir. \u00d3hittni golfarinn, haf\u00f0i hann hugsa\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r. Sem er daglegur gestur \u00e1 vellinum en talar vi\u00f0 f\u00e1a og fyrir viki\u00f0 ber golfheimurinn \u00f3ttablandna vir\u00f0ingu fyrir honum. En hann haf\u00f0i gl\u00fapna\u00f0 \u00e1 a\u00f0 taka hlutverki\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r.
\u2003Eitt haust f\u00f3r hann a\u00f0 syngja \u00ed k\u00f3r af \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e6lt haf\u00f0i veri\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed en eftir tvo m\u00e1nu\u00f0i var hann enn utanveltu. Hann haf\u00f0i veri\u00f0 settur \u00ed 2. bassa og s\u00f6ng a\u00f0allega bomm bomm bomm. Sem ger\u00f0i minnst til en verra var hve erfitt hann \u00e1tti me\u00f0 a\u00f0 brydda upp \u00e1 samr\u00e6\u00f0um vi\u00f0 k\u00f3rf\u00e9lagana sem voru \u00e1hugasamir um prj\u00f3naskap, matarger\u00f0, gar\u00f0r\u00e6kt og fleira sem hann f\u00e9kk sig ekki til a\u00f0 f\u00e1 \u00e1huga \u00e1 og hann treysti s\u00e9r ekki til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 neinn um Batman e\u00f0a Garbo. Fyrst reyndi hann a\u00f0 tala um t\u00f3nlistina en \u00feau reyndust hafa takmarka\u00f0an \u00e1huga \u00e1 henni. Hann haf\u00f0i reynst vera \u00e1 r\u00f6ngum aldri. K\u00f3rinn \u00e1tti a\u00f0 vera skemmtilega blanda\u00f0ur en allir nema hann voru undir \u00fer\u00edtugt e\u00f0a yfir fimmtugt. Ef til vill haf\u00f0i hann ekki vali\u00f0 r\u00e9tta k\u00f3rinn.
\u2003Hann heyr\u00f0i oft tala\u00f0 um g\u00f6ngukl\u00fabba og matarkl\u00fabba sem a\u00f0 lokum t\u00f3ku yfir allt anna\u00f0 f\u00e9lagsl\u00edf l\u00edka en \u00ed \u00feeim voru a\u00f0eins hj\u00f3n og hann \u00fatiloka\u00f0ur. Yfir \u00feessu kv\u00f6rtu\u00f0u margir \u00e1 netinu en svari\u00f0 virtist yfirleitt vera a\u00f0 komast \u00e1 deit og \u00fea\u00f0 r\u00e9\u00f0 hann ekki vi\u00f0. Hann haf\u00f0i reynt \u00ferisvar fyrir \u00feremur \u00e1rum og \u00ed \u00f6ll skiptin sta\u00f0i\u00f0 eftir slyppur og t\u00e6mdur.
\u2003Sm\u00e1m saman var\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lunum of \u00f3raunverulegt til \u00feess a\u00f0 hann g\u00e6ti fylgst me\u00f0 l\u00edfi \u00feeirra. \u00cd sta\u00f0inn hlusta\u00f0i hann \u00e1 t\u00f3nlist allan daginn og fannst h\u00fan bjarga s\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00f6kkva. Lengi vel. Horf\u00f0i \u00e1 Netflix e\u00f0a l\u00e1 \u00e1 netinu. Var\u00f0 \u00e6 betur heima \u00ed annarra manna s\u00f6gum \u00e1 fl\u00f3tta undan eigin s\u00f6guleysu. <\/p>\n\n\n\n
\u00deetta var hi\u00f0 r\u00f6klega samhengi. En innra me\u00f0 s\u00e9r velti hann fyrir s\u00e9r hvort \u00fatleg\u00f0in v\u00e6ri ekki einfaldlega e\u00f0li hans. Batman var \u00fatlagi. Eina vir\u00f0ingarver\u00f0a hlutskipti\u00f0. En \u00fatlagi me\u00f0 tilgang og h\u00e6fileika og samf\u00e9lagslegt v\u00e6gi; f\u00f3lk \u00fearfna\u00f0ist hans \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00f3tta\u00f0ist hann. Svo haf\u00f0i hann f\u00e9laga til a\u00f0 deila me\u00f0 sinni mikilfenglegu \u00fatleg\u00f0. Haf\u00f0i tekist a\u00f0 sveipa s\u00edna eigin \u00fatleg\u00f0 gl\u00e6sibrag. Ma\u00f0ur ver\u00f0ur a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, haf\u00f0i mamma oft sagt. Hann seig aftur \u00e1 m\u00f3ti \u00e6 ne\u00f0ar, fjarl\u00e6g\u00f0ist gl\u00e6sibraginn \u00ed hverju skrefi og l\u00edka \u00feeim sem hann ekki t\u00f3k. Eins og s\u00e1 sem er byrja\u00f0ur a\u00f0 s\u00edga ni\u00f0ur fjallshl\u00ed\u00f0 en ekki farinn a\u00f0 hrapa.
\u2003Uns hann au\u00f0vita\u00f0 f\u00f3r a\u00f0 hrapa. <\/p>\n\n\n\n
Fyrir einni \u00f6ld h\u00f6f\u00f0u \u00f6ll h\u00f3tel veri\u00f0 full af r\u00edkum einhleypingum sem sennilega h\u00f6f\u00f0u einmitt misst foreldra s\u00edna af slysf\u00f6rum n\u00fdlega og erft st\u00f3rh\u00fdsi. \u00deeir h\u00f6f\u00f0u flakka\u00f0 um heiminn \u00ed leit a\u00f0 einhverju \u00f3h\u00f6ndlanlegu sem g\u00e6ddi l\u00edfi\u00f0 inntaki. Fyrir sk\u00f6mmu haf\u00f0i hann gripi\u00f0 \u00far hillunni Dau\u00f0ann \u00ed Feneyjum eftir Thomas Mann sem ger\u00f0ist einmitt \u00e1 fer\u00f0alagi. N\u00fa var h\u00fan \u00e1 n\u00e1ttbor\u00f0inu, st\u00f6\u00f0ugt \u00e1reitt af s\u00edmanum sem l\u00e1 ofan \u00e1 henni. \u00deetta var b\u00f3k sem pabba haf\u00f0i veri\u00f0 t\u00ed\u00f0r\u00e6tt um og hann sj\u00e1lfur haf\u00f0i margoft veri\u00f0 hvattur til a\u00f0 lesa. Sem au\u00f0vita\u00f0 dug\u00f0i til a\u00f0 hann treysti s\u00e9r alls ekki til a\u00f0 opna hana, ekki einu sinni \u00feegar hann \u00e1tti a\u00f0 lesa hana \u00ed h\u00e1sk\u00f3lanum en las \u00ed kringum hana \u00e1 netinu \u00ed sta\u00f0inn. Fyrr en n\u00fana \u00feegar pabbi var horfinn, \u00fe\u00e1 var eins og h\u00fan hafi skyndilega runni\u00f0 \u00ed hendur hans \u00feegar hann var a\u00f0 sko\u00f0a b\u00f3kask\u00e1pana. Eintaki\u00f0 l\u00fai\u00f0 eins og upp\u00e1haldsb\u00e6kur ver\u00f0a. Fimmt\u00edu \u00e1ra g\u00f6mul b\u00f3k \u00e1 ensku, \u00fatgefandi Knopf \u00ed New York. Sennilega haf\u00f0i pabbi keypt hana um tv\u00edtugt. \u00c1 ensku \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann kynni \u00fe\u00fdsku m\u00e6tavel en l\u00edklega geymdi hann b\u00f3kina vegna \u00feess a\u00f0 \u00feetta voru fyrstu kynni hans af Thomas Mann. G\u00e6ti hann sj\u00e1lfur sem kenndi t\u00e1ningum tungum\u00e1li\u00f0 veri\u00f0 \u00feekktur fyrir a\u00f0 lesa b\u00f3k eftir \u00fe\u00fdskt N\u00f3belssk\u00e1ld \u00e1 ensku? Jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00feetta v\u00e6ri eintaki\u00f0 hans pabba?
\u2003Pabbi haf\u00f0i sjaldan lesi\u00f0 fyrir hann e\u00f0a horft \u00e1 sj\u00f3nvarp me\u00f0 honum. Stundum h\u00f6f\u00f0u \u00feeir fari\u00f0 saman \u00ed b\u00ed\u00f3 en pabbi aldrei r\u00e6tt myndina \u00e1 lei\u00f0inni heim. Hann tala\u00f0i a\u00f0eins um \u00f6rf\u00e1ar b\u00e6kur en ein \u00feeirra var Dau\u00f0inn \u00ed Feneyjum. L\u00f6ngu r\u00e6\u00f0urnar um \u00feessa b\u00f3k h\u00f6f\u00f0u l\u00edklega fari\u00f0 inn um anna\u00f0 eyra\u00f0 og \u00fat um hitt; hann mundi ekki lengur hva\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 vera fr\u00e1b\u00e6rt vi\u00f0 hana og \u00feegar hann f\u00f3r a\u00f0 lesa hana \u00ed leit a\u00f0 pabba reyndist erfitt a\u00f0 sj\u00e1 nokkur spor hans. En b\u00f3kin fanga\u00f0i hann eins og pabba sem haf\u00f0i alla jafna ekki lesi\u00f0 sk\u00e1lds\u00f6gur oft.
\u2003\u00c1 netinu kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 Mann haf\u00f0i sami\u00f0 b\u00f3kina 37 \u00e1ra og ef til vill \u00feess vegna virtist hann skilja hvernig er a\u00f0 komast \u00e1 \u00feennan aldur fastur \u00e1 endast\u00f6\u00f0 \u00ed ey\u00f0ilegu borgarhverfi. Mann haf\u00f0i raunar \u00e1tt st\u00f3ra fj\u00f6lskyldu en \u00fe\u00f3 skynja\u00f0i hann hvernig \u00feeim l\u00ed\u00f0ur sem hefur misst \u00e6skuna en ekki fundi\u00f0 \u00ed sta\u00f0inn neitt ver\u00f0ugt verkefni til a\u00f0 helga l\u00edf sitt. Au\u00f0vita\u00f0 haf\u00f0i hann ekki veri\u00f0 n\u00f3gu kjarka\u00f0ur til a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 \u00feannig v\u00e6ri l\u00edf hans sj\u00e1lfs or\u00f0i\u00f0 svo a\u00f0 hann l\u00e9t s\u00f6gupers\u00f3nuna vera a\u00f0eins eldri en 37 \u00e1ra. Vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00e1 fl\u00f3tta, hugsa\u00f0i muna\u00f0arleysinginn \u00ed kastalanum og brosti a\u00f0 kjarkleysi sk\u00e1ldsnillingsins. <\/p>\n\n\n\n
\u00dea\u00f0 var engin mamma lengur til a\u00f0 spyrja um hva\u00f0 sagan v\u00e6ri. E\u00f0a til a\u00f0 segja honum a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 hugsa um \u00fea\u00f0.
\u2003\u00cd b\u00f3kinni sag\u00f0i fr\u00e1 Gustav von Aschenbach fimmtugum rith\u00f6fundi \u00ed tilvistarkreppu n\u00fdkomnum til Feneyja en undir ni\u00f0ri virtist h\u00fan fjalla um \u00e1stina og dau\u00f0ann sem tv\u00e6r hli\u00f0ar s\u00f6mu myntar. S\u00e1 sem leitar \u00e1starinnar er \u00e1 fl\u00f3tta undan dau\u00f0anum e\u00f0a \u00ed leit a\u00f0 l\u00edfinu. L\u00edfinu fyrir dau\u00f0ann \u00fe\u00e1. \u00dev\u00ed a\u00f0 jafnvel hinn lifandi ma\u00f0ur tr\u00fair \u00fev\u00ed ekki alveg a\u00f0 hann s\u00e9 \u00ed raun og veru \u00e1 l\u00edfi. Eiga ekki allir a\u00f0 lifa l\u00edfinu lifandi? En hva\u00f0 var \u00fea\u00f0? Fara \u00ed teygjust\u00f6kk? Teldist f\u00f3lk ekki l\u00edfs nema st\u00f6kkva ni\u00f0ur \u00ed t\u00f3mi\u00f0?
\u2003\u00cd tilviki Aschenbachs \u00ed s\u00f6gunni f\u00f3lst \u00feessi leit \u00ed \u00fev\u00ed s\u00edgilda r\u00e1\u00f0i a\u00f0 ver\u00f0a upptekinn af annarri manneskju sem \u00fe\u00e1 \u00e1 sennilega a\u00f0 vera \u00e1lfkonan sem breytir sp\u00edtukalli \u00ed lifandi str\u00e1k. Ma\u00f0ur er manns gaman h\u00e9t \u00fea\u00f0 \u00ed frasab\u00f3k \u00d3\u00f0ins en merkti frekar a\u00f0 ma\u00f0ur v\u00e6ri manns bjargr\u00e6\u00f0i. \u00deess vegna l\u00edklega h\u00e9t b\u00f3kin Dau\u00f0inn en ekki \u00c1stin \u00ed Feneyjum. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1stin skiptir a\u00f0allega m\u00e1li sem a\u00f0fer\u00f0 til a\u00f0 lifa raunverulegu l\u00edfi \u00ed sta\u00f0 gr\u00e1rrar h\u00e1lftilvistar. Thomas Mann l\u00e9t \u00feennan mi\u00f0aldra h\u00f6fund uppg\u00f6tva \u00e1stina \u00ed l\u00edki p\u00f3lsks t\u00e1ningspilts sem fr\u00e1leitt var a\u00f0 hann t\u00e6ki upp samband vi\u00f0. \u00deessi \u00fer\u00e1 g\u00e6ti virst hl\u00e6gileg en var \u00fea\u00f0 ekki \u00ed s\u00f6gunni, ekki einu sinni \u00feegar \u00fer\u00e1hyggja mannsins var\u00f0 allri skynsemi yfirsterkari og hann f\u00f3r a\u00f0 elta p\u00f3lska unglinginn \u00e1 r\u00f6ndum. Mann haf\u00f0i l\u00edka \u00feann n\u00e6ma skilning \u00e1 \u00e1stinni a\u00f0 unglingspilturinn vir\u00f0ist aldrei sj\u00e1 rith\u00f6fundinn \u00feannig a\u00f0 hann g\u00e6ti veri\u00f0 viss um \u00fea\u00f0. Hann var alsta\u00f0ar en \u00f3snertanlegur og milli hans og rith\u00f6fundarins aldrei \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0 tengsl. \u00deetta var l\u00edklega ekki sem verst l\u00fdsing \u00e1 \u00e1stinni. S\u00e1 elska\u00f0i aldrei til \u00ed alv\u00f6runni e\u00f0a a\u00f0 minnsta kosti h\u00e1lfur tilb\u00faningur \u00feess sem \u00fer\u00e1ir hann.
\u2003Svo h\u00e9t b\u00f3kin Dau\u00f0inn \u00ed Feneyjum af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er veiki \u00e1 sveimi og rith\u00f6fundurinn vir\u00f0ist fyrst og fremst hr\u00e6ddur vi\u00f0 a\u00f0 drengurinn deyi. Haf\u00f0i hann sj\u00e1lfur kynnst sl\u00edkri \u00f3eigingjarnri en samt eigingjarnri \u00e1st \u00fear sem \u00f6nnur manneskja er hafin upp \u00e1 stall og tilbe\u00f0in en \u00fe\u00f3 eiginlega sem hluti af manni sj\u00e1lfum? L\u00edklega ekki. Haf\u00f0i Greta Garbo kynnst sl\u00edkri \u00e1st? Mamma og pabbi?
\u2003Samkv\u00e6mt Mann vorum vi\u00f0 \u00f6ll \u00ed l\u00edfsh\u00e6ttu sem er hluti af tilverunni en h\u00f6fundurinn \u00ed s\u00f6gunni var l\u00edka \u00ed kreppu me\u00f0 sk\u00e1ldskap sinn sem virtist vera s\u00e1 dau\u00f0i sem listama\u00f0urinn \u00f3ttast mest: a\u00f0 geta ekki lengur fanga\u00f0 tilvist s\u00edna \u00ed or\u00f0um og lj\u00e1\u00f0 henni merkingu. Listin \u00e1tti \u00fe\u00e1 greinilega a\u00f0 vera hli\u00f0st\u00e6\u00f0 \u00e1stinni og snerist um a\u00f0 finna l\u00edf fyrir dau\u00f0ann sem \u00e1 dulr\u00e6nan h\u00e1tt g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 um lei\u00f0 a\u00f0 l\u00edfi eftir dau\u00f0ann. <\/p>\n\n\n\n
Hann er kominn til Feneyja. \u00dear er st\u00e6k d\u00edkjalykt. Me\u00f0 stafprik og k\u00faluhatt tr\u00edtlar hann um g\u00f3\u00f0ur me\u00f0 sig. Finnur \u00fe\u00f3 sei\u00f0ing \u00ed hn\u00e9nu \u00far steininum \u00ed \u00ferepunum. Hvar \u00e6tli Tadzio s\u00e9? Hvort er betra a\u00f0 sp\u00e1ssera um stefnulaust e\u00f0a leita hans? N\u00fa getur hann vali\u00f0 um a\u00f0 fara til vinstri e\u00f0a h\u00e6gri og vali\u00f0 skiptir engu nema hann \u00edmyndi s\u00e9r a\u00f0 \u00ed annarri hvorri \u00e1ttinni s\u00e9 p\u00f3lskur t\u00e1ningur. \u00d3\u00feolandi titringurinn \u00ed s\u00edmanum dregur hann til baka fr\u00e1 borginni vi\u00f0 Adr\u00edahafi\u00f0 og aftur \u00ed formlausan l\u00edkamann. <\/p>\n\n\n\n
Haf\u00f0i pabba falli\u00f0 vi\u00f0 \u00feessa s\u00f6gu \u00fat af h\u00f6rmulegum endi hennar? Aschenbach festist \u00ed \u00e1stinni sem heldur honum \u00ed Feneyjum reikandi um \u00e1 eftir \u00f3snertanlegu p\u00f3lsku ungmeni \u00ed \u00f3lj\u00f3sum tilgangi. Ef til vill \u00ed leit a\u00f0 \u00e6skunni sem hann hefur misst e\u00f0a listinni sem hann hefur t\u00edmabundi\u00f0 misst t\u00f6kin \u00e1 e\u00f0a hinni \u00f3h\u00f6ndlanlegu erlendu manneskju sem hann aldrei talar vi\u00f0 og kannski er fulltr\u00fai alls f\u00f3lksins \u00ed heiminum sem ma\u00f0ur \u00feekkir ekki. \u00deetta var \u00f3hugnanlega l\u00edkt einhverju sem hann haf\u00f0i sj\u00e1lfur lifa\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 muna hva\u00f0.
\u2003Haf\u00f0i h\u00f6f\u00f0a\u00f0 til pabba a\u00f0 sagan kemur fyrir Aschenbach en hann er sj\u00e1lfur \u00f3virkur fr\u00e1 upphafi til enda: b\u00ed\u00f0ur, vonar og \u00fer\u00e1ir en lifir ekki? \u00dea\u00f0 var engin lei\u00f0 a\u00f0 valdefla sig me\u00f0 \u00feessari s\u00f6gu, hvetjandi s\u00f6gur sn\u00faast um a\u00f0 \u00fer\u00e1 geti or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 veruleika en \u00fer\u00e1 Aschenbachs var vonlaus. Hin heillandi \u00e6ska p\u00f3lska drengsins er honum sj\u00e1lfum horfin og kannski var Mann l\u00edka a\u00f0 gefa \u00ed skyn a\u00f0 listama\u00f0urinn geti t\u00edmabundi\u00f0 hrifi\u00f0 a\u00f0ra me\u00f0 s\u00e9r en \u00fe\u00f3 ekki h\u00f6ndla\u00f0 neitt sem er \u00e6\u00f0ri en hann sj\u00e1lfur. Hugmyndin um listina sem handan mannsins var \u00fe\u00e1 ef til vill hli\u00f0st\u00e6\u00f0 go\u00f0s\u00f6gninni um hi\u00f0 lifandi l\u00edf.
\u2003Hann velti \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort \u00feessi undarlega \u00fer\u00e1hyggja s\u00f6gumannsins v\u00e6ri \u00e1 einhvern h\u00e1tt hli\u00f0st\u00e6\u00f0 hans eigin \u00f3tta e\u00f0a f\u00e6lni vi\u00f0 unglinga. Ef hann m\u00e6tti unglingah\u00f3pi gekk hann stundum yfir g\u00f6tuna. Samt vissi hann af s\u00e9r sj\u00e1lfum kl\u00e6ddum nokkurn veginn eins og \u00feeir og margir sem s\u00e1u hann \u00far fjarska h\u00e9ldu a\u00f0 hann v\u00e6ri miklu yngri, jafnvel t\u00e1ningur. L\u00edklega haf\u00f0i hann gengi\u00f0 enn lengra en rith\u00f6fundurinn \u00ed s\u00f6gunni \u00ed a\u00f0 \u00feykjast vera ungur. Hann velti fyrir s\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 v\u00e6ru \u00fe\u00e1 ekki \u00f3svipu\u00f0 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 innst inni a\u00f0 reyna a\u00f0 sj\u00e1 ekki ungmenni e\u00f0a a\u00f0 g\u00f3na \u00e1 \u00feau eins og Aschenbach. Og alveg eins og p\u00f3lski unglingurinn s\u00e1 ekki fimmtuga manninn, vissi hann a\u00f0 unglingarnir sem hann sj\u00e1lfur for\u00f0a\u00f0ist s\u00e6ju hann ekki heldur. \u00deeim var \u00f6llum alveg sama um svona gamalt f\u00f3lk. L\u00edklega haf\u00f0i Thomas Mann 37 \u00e1ra fundist \u00fea\u00f0 \u00f3b\u00e6rilegt, eins og honum fannst oft. <\/p>\n\n\n\n
Honum var h\u00e1lfillt \u00ed bakinu og fannst hann \u00feurfa a\u00f0 pissa aftur. En gat ekki hreyft sig af \u00f3tta vi\u00f0 a\u00f0 gleyma \u00f6llu. Hann haf\u00f0i ekki fari\u00f0 \u00fat \u00far h\u00fasi \u00ed marga daga, hann vissi ekki sj\u00e1lfur hve marga, og n\u00fa komst hann ekki \u00far r\u00faminu, ekki til a\u00f0 pissa, ekki til a\u00f0 taka upp s\u00edmann.
\u2003\u00dea\u00f0 var erfitt a\u00f0 skilja hva\u00f0 pabbi hef\u00f0i s\u00e9\u00f0 \u00ed Aschenbach en sj\u00e1lfur var hann ekki \u00f3l\u00edkur pers\u00f3nunni a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 almennt f\u00e9ll honum betur a\u00f0 hlusta og hugsa sitt en hafa h\u00e1tt og l\u00e1ta horfa \u00e1 sig. Hann haf\u00f0i teki\u00f0 eftir a\u00f0 sum \u00f6nnur b\u00f6rn \u00feoldu illa anna\u00f0 en a\u00f0 vera stanslaust me\u00f0 or\u00f0i\u00f0 og athyglina en fyrirleit \u00fe\u00e1 \u00fe\u00f6rf \u00e1l\u00edka miki\u00f0 og mamma. Hann haf\u00f0i aftur \u00e1 m\u00f3ti l\u00e6rt a\u00f0 segja f\u00e1tt en drekka \u00ed sig allt sem a\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e6ist \u00e1 honum. Og muna allt. Eflaust haf\u00f0i \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0an komi\u00f0 honum vel \u00ed starfi sem snerist um a\u00f0 skilja hvernig f\u00f3lk hugsar. Fremsti kennarinn s\u00e1 sem hlustar best og skilur allt. <\/p>\n\n\n\n
Eftir \u00fev\u00ed sem drengnum \u00ed s\u00f6gunni var l\u00fdst oftar var\u00f0 honum hugsa\u00f0 til p\u00f3lska \u00fej\u00f3nsins \u00e1 h\u00f3telinu sem hann haf\u00f0i s\u00f3tt eitt sumar fyrir \u00feremur \u00e1rum og seti\u00f0 \u00fear yfir kaffi af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var eini sta\u00f0urinn \u00fear sem honum fannst \u00e1 \u00feeirri stundu ekki vandr\u00e6\u00f0alegt a\u00f0 sitja einn. Oft h\u00f6f\u00f0u \u00feeir veri\u00f0 einir \u00e1 sta\u00f0num. P\u00f3lski \u00fej\u00f3nninn h\u00e9t Sebastian, ekki unglingur en \u00fe\u00f3 t\u00edu \u00e1rum yngri en hann sj\u00e1lfur, grannur og li\u00f0ugur \u00ed hreyfingum og ung\u00e6\u00f0isleg sveifla \u00ed g\u00f6ngulaginu. \u00dear a\u00f0 auki l\u00e9ttur \u00ed fasi og brosmildur, eins og honum hef\u00f0i tekist a\u00f0 fresta endalokum unglings\u00e1ranna. En samt h\u00e6gur og kyrrl\u00e1tur, eins og unglingar ur\u00f0u stundum \u00feegar \u00feeir voru einir en ekki \u00ed h\u00e1v\u00e6rum h\u00f3pi f\u00e9laganna.
\u2003\u00cd upphafi haf\u00f0i hann ekki veri\u00f0 kominn \u00e1 \u00feennan sta\u00f0 til a\u00f0 sj\u00e1 Sebastian l\u00ed\u00f0a um h\u00f3telbarinn eins og balletdansari en l\u00edklega var ekki me\u00f0 \u00f6llu \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 hann hef\u00f0i sn\u00fai\u00f0 aftur me\u00f0al annars til \u00feess. \u00c1n \u00feess a\u00f0 hann skildi endilega hvort e\u00f0a hvernig e\u00f0a hvers vegna hinn ma\u00f0urinn dr\u00f3 hann a\u00f0 s\u00e9r.
\u2003Sebastian hunsa\u00f0i hann eins og Tadzio haf\u00f0i hunsa\u00f0 Aschenbach. Brosti fallega \u00feegar hann panta\u00f0i kaffi\u00f0 og \u00feegar hann f\u00e6r\u00f0i honum \u00fea\u00f0. \u00deess \u00e1 milli var eins og gesturinn s\u00e6ti \u00fearna \u00f3s\u00fdnilegur. Sebastian \u00e1 fer\u00f0 og flugi, leit aldrei til hans nema eldsn\u00f6ggt ef vera kynni a\u00f0 hann skorti eitthva\u00f0. \u00d6fugt vi\u00f0 \u00ed s\u00f6gunni var \u00fea\u00f0 fullkomlega r\u00f6kr\u00e9tt og \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 kr\u00f6fur atvinnul\u00edfsins: \u00fej\u00f3nar eiga a\u00f0 s\u00fdna k\u00fannanum natni \u00feegar vi\u00f0skiptin fara fram en \u00feess \u00e1 milli hunsa hann \u00fev\u00ed a\u00f0 k\u00fanninn vill au\u00f0vita\u00f0 ekki vera undir eftirliti e\u00f0a \u00e1 leiksvi\u00f0i. Sebastian kunni sitt fag og \u00fev\u00ed var\u00f0 r\u00famlega \u00fer\u00edtugi ma\u00f0urinn sem alltaf sat einn a\u00f0alatri\u00f0i\u00f0 \u00ed l\u00edfi hans eina \u00f6rskotsstund \u00feegar hann panta\u00f0i drykk en gufa\u00f0i upp \u00feess \u00e1 milli.
\u2003Einu sinni haf\u00f0i hann spurt Sebastian hva\u00f0an hann k\u00e6mi. T\u00f3k \u00e1h\u00e6ttu \u00fev\u00ed a\u00f0 sumir fyrtust vi\u00f0 sl\u00edkar spurningar. En Sebastian leit greinilega \u00e1 sm\u00e1spjall vi\u00f0 k\u00fannann sem e\u00f0lilegan hluta af starfinu og uppl\u00fdsti vinsamlega a\u00f0 hann k\u00e6mi fr\u00e1 Krak\u00e1 sem v\u00e6ri st\u00f3rkostlega falleg borg \u00ed mikilli s\u00f3kn. En samt ertu h\u00e9r, haf\u00f0i hann hugsa\u00f0 en ekki \u00feora\u00f0 a\u00f0 spyrja hvers vegna. \u00deeir h\u00f6f\u00f0u ekki talast vi\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00fev\u00ed a\u00f0 litlu s\u00ed\u00f0ar h\u00e6tti honum a\u00f0 finnast \u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 koma \u00e1 einmitt \u00feetta h\u00f3tel \u00e1n \u00feess a\u00f0 skilja af hverju og fann s\u00e9r annan sta\u00f0 fjarri alfaralei\u00f0. <\/p>\n\n\n\n
Haf\u00f0i hann \u00fer\u00e1\u00f0 Sebastian e\u00f0a a\u00f0 vera hann? Ef til vill \u00fer\u00e1\u00f0 \u00e1ratuginn sem hann haf\u00f0i misst en Sebastian \u00e1tti fyrir h\u00f6ndum. Nema hann \u00fer\u00e1\u00f0i \u00feennan austur-evr\u00f3pska l\u00e9ttleika sem norr\u00e6na manninum var ekki e\u00f0lisl\u00e6gur og honum sj\u00e1lfum haf\u00f0i mistekist a\u00f0 r\u00e6kta me\u00f0 s\u00e9r. Greta Garbo hef\u00f0i skili\u00f0 \u00fea\u00f0. S\u00fa sem yfirgaf heimsfr\u00e6g\u00f0ina og sneri aldrei aftur sama hva\u00f0 var \u00ed bo\u00f0i var fr\u00e1b\u00e6rt d\u00e6mi um norr\u00e6nan viljastyrk lausan vi\u00f0 l\u00e9tt\u00fa\u00f0.
\u2003Eina n\u00f3ttina me\u00f0an hann var a\u00f0 lesa b\u00f3kina haf\u00f0i hann dreymt sj\u00e1lfan sig a\u00f0 leita a\u00f0 Sebastian. Hann haf\u00f0i leita\u00f0 hans \u00ed fj\u00f6lmennu part\u00edi og elt hann \u00far einu herbergi \u00ed anna\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 n\u00e1 til hans e\u00f0a vita hva\u00f0 hann hyg\u00f0ist \u00fe\u00e1 gera. <\/p>\n\n\n\n
Stundum hvarfla\u00f0i a\u00f0 honum a\u00f0 ef hann haf\u00f0i eitthva\u00f0 sagt vi\u00f0 Sebastian umfram kurteisishjal \u00fe\u00e1 hef\u00f0i ef til vill allt breyst. Samt haf\u00f0i hann n\u00e6stum gleymt P\u00f3lverjanum \u00e1\u00f0ur en \u00feessi b\u00f3k rata\u00f0i skyndilega \u00ed hendur hans og hann f\u00f3r a\u00f0 hugsa: af hverju tala\u00f0i \u00e9g ekki meira vi\u00f0 hann? Hi\u00f0 auglj\u00f3sa svar: af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var ekki vi\u00f0eigandi. Hann lif\u00f0i \u00ed st\u00f6\u00f0ugum \u00f3tta um a\u00f0 f\u00f3lk liti \u00e1 hvert or\u00f0 hans, augnatillit e\u00f0a snertingu sem \u00e1reiti. \u00deannig haf\u00f0i \u00fea\u00f0 lengi veri\u00f0; hann haf\u00f0i eitt sinn heyrt m\u00f6mmu r\u00e6\u00f0a hr\u00e6\u00f0slu hans vi\u00f0 \u00f3kunnuga vi\u00f0 \u00f6mmu. Sl\u00edk f\u00e6lni var e\u00f0lileg hj\u00e1 b\u00f6rnum en \u00ed hans tilviki haf\u00f0i h\u00fan enst fram \u00e1 fertugsaldurinn.
\u2003\u00d3vi\u00f0eigandi. \u00dea\u00f0 h\u00e9lt hann en sannast sagna haf\u00f0i honum alltaf reynst erfitt a\u00f0 skilja hva\u00f0 v\u00e6ri vi\u00f0eigandi og hva\u00f0a lei\u00f0ir m\u00e6tti feta \u00ed gegnum l\u00edfi\u00f0. Sennilega alltaf svol\u00edti\u00f0 \u00e1ttavilltur. Ekki haf\u00f0i pabbi hins vegar virst \u00fea\u00f0 og \u00fev\u00ed kom d\u00e1l\u00e6ti hans \u00e1 \u00feessari b\u00f3k \u00e1 \u00f3vart. Nema hann hef\u00f0i skili\u00f0 hana allt \u00f6\u00f0ruv\u00edsi en sonurinn. Hann h\u00e9lt \u00fe\u00f3 ekki og \u00fea\u00f0 var a\u00f0 gefnu tilefni.
\u2003\u00deegar hann var n\u00e6stum kominn \u00e1 enda uppg\u00f6tva\u00f0i hann a\u00f0 \u00e1 au\u00f0ri s\u00ed\u00f0u aftast haf\u00f0i veri\u00f0 skrifa\u00f0 me\u00f0 bl\u00fdanti: Tekst \u00e1 vi\u00f0 angistina me\u00f0 or\u00f0um.<\/i> Hann s\u00e1 ekki betur en \u00feetta v\u00e6ri rith\u00f6nd pabba. Ekki virtist \u00feetta vera \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 neinu sem st\u00f3\u00f0 \u00ed b\u00f3kinni og \u00fea\u00f0 kom honum \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 pabbi hef\u00f0i hugsa\u00f0 svona. Aldrei haf\u00f0i hann minnst \u00e1 angist \u00f6ll \u00feessi \u00e1r. <\/p>\n\n\n\n
Haf\u00f0i hann dotta\u00f0 \u00e1 n\u00fd e\u00f0a horfi\u00f0 inn \u00ed eigin hugarheim? Ekki lei\u00f0 honum lengur eins og horfinni Hollywoodstj\u00f6rnu enda h\u00f6llin hrunin. Einhver bar\u00f0i \u00e1 \u00fatidyrnar. Bar\u00f0i h\u00fasi\u00f0 a\u00f0 utan og hr\u00f3pa\u00f0i nafn. Kannski hans nafn sem hann mundi ekki \u00ed svipinn. \u00de\u00f6gn. Enginn var a\u00f0 koma inn. Hann var horfinn sj\u00f3num. \u00de\u00e1 d\u00e6i hann kannski. Einhver skrifa\u00f0i langan pistil \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lana sem h\u00e6fist \u00e1 \u201eN\u00fa get \u00e9g ekki or\u00f0a bundist\u201c og s\u00ed\u00f0an yr\u00f0i a\u00f0 fr\u00e9tt um hvernig kerfi\u00f0 hef\u00f0i gleymt manneskjunni sem allir a\u00f0rir h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur gleymt. F\u00f3lki\u00f0 sem skrifar athugasemdir vi\u00f0 fr\u00e9ttir yr\u00f0i yfir sig hneyksla\u00f0. Enginn kenndi sj\u00e1lfum s\u00e9r um. Sekt annarra sn\u00fdst um sakleysi sj\u00e1lfsins.
\n\u2003Enda v\u00e6ri engum um a\u00f0 kenna nema honum sj\u00e1lfum. Hann haf\u00f0i sj\u00e1lfur f\u00e6lt fr\u00e1 s\u00e9r vinina, sagt upp vinnunni, flutt inn \u00ed h\u00fas sem reyndist vera grafh\u00fdsi. \u00dea\u00f0 var l\u00edka honum sj\u00e1lfum a\u00f0 kenna og engum \u00f6\u00f0rum.
\n\u2003Hann g\u00e6ti sta\u00f0i\u00f0 upp. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0eins spurning um vilja. Ef hann gleymdist \u00ed \u00feessu r\u00fami, v\u00e6ri enginn annar \u00e1byrgur. Engum \u00f6\u00f0rum um a\u00f0 kenna. Hver ber \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 eigin dau\u00f0a. Var einhver a\u00f0 berja \u00e1 dyrnar? Berja og berja og reyna a\u00f0 brj\u00f3ta hur\u00f0ina. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"
\u00c1rmann Jakobsson Mamma las b\u00e6kurnar um m\u00fam\u00ednsn\u00e1\u00f0ann fyrir hann t\u00edu \u00e1ra \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann g\u00e6ti vel lesi\u00f0 sj\u00e1lfur en hann vildi l\u00e1ta lesa fyrir sig og h\u00fan valdi \u00feessar b\u00e6kur. Aldrei sag\u00f0ist h\u00fan vera m\u00fam\u00ednmamma e\u00f0a hann m\u00fam\u00ednsn\u00e1\u00f0inn en samt fannst honum a\u00f0 s\u00e1 v\u00e6ri leikur \u00feeirra. Flestar voru fyndnar en s\u00fa sem leita\u00f0i mest […]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"jetpack_post_was_ever_published":false,"footnotes":""},"class_list":["post-159","page","type-page","status-publish","hentry"],"jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/159","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=159"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/159\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":242,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/159\/revisions\/242"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=159"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}