\u201eHvar heldur\u00f0u a\u00f0 P\u00e9tur Pan s\u00e9 ni\u00f0urkominn?\u201c spur\u00f0i Saga og \u00f3k s\u00e9r \u00e1 rau\u00f0um st\u00f3l.
\u2001\u201eHver? \u00c6 \u2026 vertu kyrr, Saga m\u00edn, annars klippi \u00e9g eyrnasnepil af \u00fe\u00e9r,\u201c sag\u00f0i Jean-Pierre. \u201e\u00dea\u00f0 viljum vi\u00f0 ekki, s\u00e6ta m\u00edn,\u201c b\u00e6tti hann vi\u00f0 og smellti sk\u00e6rum fyrir framan nefi\u00f0 \u00e1 henni. Klipp. Klipp.
\u2001Saga greip um skeljalaga eyrnalokk \u00ed h\u00e6gra eyra l\u00edktog til a\u00f0 fullvissa sig um a\u00f0 hann v\u00e6ri enn\u00fe\u00e1 \u00fear. S\u00ed\u00f0an horf\u00f0i h\u00fan ni\u00f0ur \u00e1 gr\u00e1a svuntu og taldi lj\u00f3su lokkana. Einn, tveir, \u00fer\u00edr, fj\u00f3rir. Sk\u00e6rin d\u00f6nsu\u00f0u \u00ed gegnum h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 henni \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 l\u00e1gst\u00faf sem Jean-Pierre raula\u00f0i fyrir munni s\u00e9r. Klipp. Klipp. Klipp.
\u2001\u201eVoil\u00e0!\u201c hr\u00f3pa\u00f0i hann og sneri henni \u00ed hring \u00e1 st\u00f3lnum. Saga hata\u00f0i \u00feegar hann ger\u00f0i \u00feetta.
\u2001\u201eHvernig l\u00edkar y\u00f0ur h\u00e1rgrei\u00f0slan, madame?\u201c spur\u00f0i hann og r\u00e9tti henni l\u00edtinn, kringl\u00f3ttan ba\u00f0herbergisspegil.
\u2001H\u00fan klappa\u00f0i saman h\u00f6ndunum svo nokkur h\u00e1r f\u00e9llu \u00e1 g\u00f3lfi\u00f0.
\u2001\u201e\u00deetta er n\u00e1kv\u00e6mlega einsog mig dreymdi um. Svona Sin\u00e9ad O’Connor d\u00e6mi,\u201c svara\u00f0i h\u00fan og hugsa\u00f0i um plakat af s\u00f6ngkonunni sem h\u00e9kk \u00e1 veggnum \u00ed herbergi hennar. N\u00fa yr\u00f0u allar bekkjarsysturnar \u00f6fundsj\u00fakar. H\u00fan brosti vi\u00f0 tilhugsunina, en brosi\u00f0 hvarf \u00feegar h\u00fan hugsa\u00f0i um t\u00f3mt b\u00fari\u00f0 fyrir ne\u00f0an plakati\u00f0. Skelfilega t\u00f3mt.
\u2001\u201eMagnifique!\u201c sag\u00f0i Jean-Pierre, mynda\u00f0i st\u00fat \u00e1 v\u00f6runum og smellti fingrum einsog hann v\u00e6ri a\u00f0 hr\u00f3sa einstaklega g\u00f3ms\u00e6tum mat.
\u2001\u201eEr \u00feetta b\u00fai\u00f0, Jean?\u201c spur\u00f0i hv\u00f6ss karlmannsr\u00f6dd fyrir aftan rakarann. \u201e\u00c9g er n\u00fa \u00feegar seinn \u00ed vinnuna.\u201c J\u00f3n leit \u00f3\u00fe\u00f3linm\u00f3\u00f0ur \u00e1 \u00fari\u00f0 sitt.
\u2001\u201eA\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u, monsieur. Afsaka\u00f0u seinkunina, en h\u00e1rgrei\u00f0sluk\u00fanst krefst s\u00edns t\u00edma, r\u00e9tt einsog hver \u00f6nnur listgrein,\u201c svara\u00f0i Jean-Pierre \u00edhugull og kinka\u00f0i kolli. Lj\u00f3saperulj\u00f3s glampa\u00f0i \u00e1 h\u00e1rlausu h\u00f6f\u00f0i hans.
\u2001\u201eJ\u00e6ja,\u201c svara\u00f0i J\u00f3n og banda\u00f0i \u00fat h\u00f6ndum. \u201eHva\u00f0 borga \u00e9g miki\u00f0?\u201c Hann s\u00f3tti svart, \u00fer\u00fati\u00f0 se\u00f0laveski\u00f0 upp \u00far f\u00ednlegum jakkaf\u00f6tum.
\u2001\u201eAh, sama og venjulega, monsieur,\u201c sag\u00f0i rakarinn annars hugar.
\u2001Me\u00f0an mennirnir gengu fr\u00e1 borgun horf\u00f0i Saga \u00ed kringum sig. Stofan var \u00e6lugr\u00e6n me\u00f0 svarthv\u00edtum myndum af Eiffelturninum og g\u00f6mlum leikkonum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 hl\u00e6jandi Marilyn Monroe. Kannski var \u00fea\u00f0 \u00feess vegna sem fa\u00f0ir hennar dr\u00f3 hana hinga\u00f0 \u00ed hverjum m\u00e1nu\u00f0i, en aldrei \u00e1 a\u00f0ra stofu \u00ed borginni. Gamlir menn bl\u00f3mstra \u00ed be\u00f0i minninga. S\u00f6gu l\u00edka\u00f0i samt vi\u00f0 Jean-Pierre. Hann var afbrag\u00f0srakari og skynja\u00f0i alltaf hva\u00f0a h\u00e1rgrei\u00f0slu h\u00fan vildi helst, einsog hann hef\u00f0i f\u00e6\u00f0st me\u00f0 dularfullt aukaskilningavit.
\u2001\u00dea\u00f0 klingdi \u00ed kassanum og Saga hr\u00f6kk \u00ed k\u00fat. H\u00fan snerist \u00e1 h\u00e6li og gekk til f\u00f6\u00f0ur s\u00edns.
\u2001\u201eKomi\u00f0 endilega aftur,\u201c sag\u00f0i Jean-Pierre. \u201eBon voyage!\u201c \u00f6skra\u00f0i hann svo og veifa\u00f0i \u00feeim me\u00f0 hundra\u00f0kr\u00f3nuse\u00f0lunum.
\u2001\u00deau gengu \u00fat \u00ed bjartan j\u00fan\u00eddag, s\u00f3lin gn\u00e6f\u00f0i yfir \u00feeim, b\u00e1tur \u00far lj\u00f3si. \u00cd fjarska glampa\u00f0i \u00e1 hafinu, \u00f6ldur sungu eitthvert ne\u00f0ansj\u00e1varlag. B\u00edlarnir keyr\u00f0u framhj\u00e1 \u00e1 r\u00fantinum \u00e1 Vesturg\u00f6tunni, reyndu a\u00f0 flauta burt tilgangsleysi l\u00edfsins, enda ekkert meira spennandi a\u00f0 gera \u00e1 sunnudegi sem sl\u00edkum.
\u2001J\u00f3n kraup \u00e1 hn\u00e9 s\u00e9r:
\u2001\u201eSaga, elskan m\u00edn, \u00fe\u00fa getur ekki bara spurt hva\u00f0a manneskju sem er um P\u00e9tur Pan. \u00c9g veit a\u00f0 \u00fe\u00fa saknar hans, en \u2026 sorg annarra er einkam\u00e1l, skilur\u00f0u mig? H\u00fan kemur Jean-Pierre ekkert vi\u00f0, gerir hann bara \u00f3r\u00f3legan.\u201c
\u2001Saga reyndi a\u00f0 vefja h\u00e1rlokki um v\u00edsifingur einsog alltaf \u00feegar h\u00fan var\u00f0 vandr\u00e6\u00f0aleg, en mundi svo a\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i veri\u00f0 r\u00f6ku\u00f0 fyrir nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0an.
\u2001\u201eEn pabbi \u2026\u201c m\u00f3tm\u00e6lti h\u00fan.
\u2001\u201eEkkert en-pabbi, elskan m\u00edn. Komdu h\u00e9r.\u201c Hann fa\u00f0ma\u00f0i d\u00f3ttur s\u00edna innilega a\u00f0 s\u00e9r, svo leit hann aftur \u00ed \u00f3l\u00edvugr\u00e6n augun. \u201e\u00deetta ver\u00f0ur allt \u00ed lagi, \u00e1stin m\u00edn, \u00e9g lofa.\u201c
\u2001Honum var\u00f0 liti\u00f0 \u00e1 \u00fari\u00f0 sitt, gyllt me\u00f0 br\u00fanni le\u00f0ur\u00f3l. \u201e\u00c6 \u2026 \u00e9g er a\u00f0 ver\u00f0a seinn \u00e1 vaktina. Hvar er h\u00fan n\u00fa?\u201c Hann skima\u00f0i \u00ed kringum sig, augun p\u00edr\u00f0 \u00ed eil\u00edfri s\u00f3linni. \u201e\u00dearna ertu!\u201c hr\u00f3pa\u00f0i hann \u00ed \u00e1tt a\u00f0 konu \u00ed gr\u00e6nni k\u00e1pu sem gekk \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim. Me\u00f0 henni var st\u00falka, \u00e1 svipu\u00f0um aldri og Saga. \u2001\u201eAh, J\u00f3n \u2026 afsaka\u00f0u hva\u00f0 \u00e9g er sein \u2026 \u00e9g var \u2026\u201c byrja\u00f0i h\u00fan en hann greip fram fyrir henni.
\u2001\u201e\u00c9g er a\u00f0 ver\u00f0a seinn \u00e1 vaktina,\u201c sag\u00f0i hann aftur l\u00edktog hann \u00e6tti von um a\u00f0 \u00feessi or\u00f0 h\u00e6g\u00f0u \u00e1 t\u00edmanum \u00fev\u00ed oftar sem hann endurt\u00e6ki \u00feau. Hann kraup \u00e1 hn\u00e9 s\u00e9r einu sinni enn og setti lykil \u00e1 sn\u00faru um h\u00e1ls S\u00f6gu.
\u2001\u201eElsku Saga m\u00edn. Veri\u00f0 n\u00fa g\u00f3\u00f0ar hvor vi\u00f0 a\u00f0ra \u00e1 me\u00f0an vi\u00f0 tv\u00f6 erum \u00e1 br\u00e1\u00f0am\u00f3tt\u00f6kunni. Manstu hva\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt a\u00f0 gera?\u201c
\u2001Saga kinka\u00f0i kolli. \u201eKoma heim um eittleyti\u00f0.\u201c
\u2001\u201eN\u00e1kv\u00e6mlega, elskan m\u00edn. Og mundu a\u00f0 afi \u00feinn heims\u00e6kir okkur \u00ed dag!\u201c Hann kyssti hana \u00e1 enni\u00f0.
\u2001H\u00fan d\u00e6sti. \u201e\u00c9g veit pabbi, \u00e9g veit\u2026\u201c svara\u00f0i h\u00fan \u00ed takt vi\u00f0 f\u00f3tatak f\u00f6\u00f0ur s\u00edns sem fjarl\u00e6g\u00f0ist.
\u2001\u201eV\u00e1, en k\u00fal h\u00e1rgrei\u00f0sla!\u201c St\u00falkan benti \u00e1 h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 S\u00f6gu, opinmynnt. \u201eAlveg einsog \u2026\u201c
\u2001\u201eH\u00fan Sin\u00e9ad, J\u00f3na. J\u00e1, \u00e9g veit,\u201c svara\u00f0i Saga og brosti til hennar. \u201e\u00deess vegna ba\u00f0 \u00e9g Jean-Pierre um a\u00f0 klippa mig svona. Hugsa\u00f0u bara hva\u00f0 st\u00falkurnar segja \u00feegar \u00e9g m\u00e6ti svona \u00ed Land\u00f3 eftir sumari\u00f0!\u201c H\u00fan renndi hendinni um skoll\u00f3ttan hausinn.
\u2001\u201eAllavega, J\u00f3na, hva\u00f0 viltu gera \u00ed dag?\u201c spur\u00f0i h\u00fan og leit \u00e1 v\u00ednkonu s\u00edna. H\u00fan var kl\u00e6dd \u00ed l\u00e9ttan hermannajakka me\u00f0 of s\u00ed\u00f0um ermunum, lj\u00f3sbr\u00fanar gallabuxur og me\u00f0 tyggj\u00f3 \u00ed munninum sem bomba\u00f0i \u00fat \u00ed lofti\u00f0 me\u00f0 h\u00e1v\u00e6rum skelli.
\u2001H\u00fan yppti \u00f6xlum. \u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki. Getum bara hangi\u00f0 saman \u00e1 bl\u00e1a r\u00f3l\u00f3, ef \u00fe\u00fa vilt.\u201c J\u00f3na smellti tyggj\u00f3inu \u00fat \u00ed lofti\u00f0.
\u2001\u201e\u00c6 \u2026 ekki gera \u00feetta,\u201c sag\u00f0i Saga. \u201eJ\u00fa, getum alveg fari\u00f0 \u00feanga\u00f0, hangi\u00f0 \u00fear.\u201c \u00de\u00e6r f\u00f3ru af sta\u00f0. Vindurinn l\u00e9k s\u00e9r mildilega me\u00f0 dimmlj\u00f3st h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 J\u00f3nu sem fossa\u00f0i ni\u00f0ur axlirnar \u00feegar h\u00fan gekk. H\u00fan leit \u00e1 sno\u00f0a\u00f0a vinkonu s\u00edna me\u00f0 blik \u00ed br\u00fanum augum, en sag\u00f0i ekkert. Allssta\u00f0ar \u00ed kringum \u00fe\u00e6r voru m\u00e6\u00f0gur \u00e1 fer\u00f0, fj\u00f6lskyldur og flissandi b\u00f6rn, himinninn hei\u00f0sk\u00fdr \u00ed \u00e6pandi m\u00f3ts\u00f6gn vi\u00f0 gr\u00e1ar byggingar hverfisins. \u00deegar \u00fe\u00e6r komu \u00e1 r\u00f3luv\u00f6llinn var hann fur\u00f0ulega t\u00f3mur.
\u2001J\u00f3na sp\u00fdtti tyggj\u00f3inu \u00fat \u00far s\u00e9r og klessti \u00fea\u00f0 me\u00f0 sv\u00f6rtum hermannast\u00edgv\u00e9lum \u00e1 gangst\u00e9ttina. \u00de\u00e6r settust \u00e1 bekk. J\u00f3na s\u00f3tti rau\u00f0an s\u00edgarettupakka \u00ed vasann og ota\u00f0i honum a\u00f0 S\u00f6gu, sem hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0. H\u00fan yppti \u00f6xlum og kveikti s\u00e9r \u00ed \u00feykkri, gulri s\u00edg\u00f3. Saug reykinn alla lei\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed magann og h\u00f3sta\u00f0i \u00f6rl\u00edti\u00f0. P\u00faa\u00f0i svo reykinn.
\u2001\u201eJ\u00e6ja,\u201c sag\u00f0i h\u00fan. \u201eSeg\u00f0u m\u00e9r n\u00fa hva\u00f0 er a\u00f0.\u201c
\u2001Saga lyfti augabr\u00fanum. \u201eHva\u00f0 meinar\u00f0u? \u00dea\u00f0 er ekkert a\u00f0.\u201c
\u2001\u201eEkki bullshitta mig, k\u00e6ra m\u00edn.\u201c J\u00f3na kveikti s\u00e9r \u00ed annarri s\u00edgarettu. \u201e\u00de\u00fa hefur veri\u00f0 \u00f3venju\u00fe\u00f6gul alla lei\u00f0ina. Kommon, \u00fe\u00fa m\u00e1tt alveg segja m\u00e9r hva\u00f0 angrar \u00feig.\u201c
\u2001\u201eJ\u00fa, \u00fea\u00f0 er bara a\u00f0 \u2026\u201c Saga teikna\u00f0i hring \u00ed sandinn.
\u2001J\u00f3na lyfti hendinni upp \u00ed loft. \u201e\u00c9g mun ekki hl\u00e6ja. T\u00edu fingur upp til Gu\u00f0s.\u201c
\u2001Saga horf\u00f0i \u00e1 vinkonu s\u00edna einsog til a\u00f0 ganga \u00far skugga um hvort h\u00fan v\u00e6ri \u00f6rugglega ekki a\u00f0 gr\u00ednast. Eftir nokkrar m\u00edn\u00fatur \u00ed \u00fe\u00f6gn hv\u00edsla\u00f0i h\u00fan:
\u2001\u201eViltu gefa m\u00e9r s\u00edgarettu?\u201c
\u2001\u201eSj\u00e1lfsagt.\u201c J\u00f3na r\u00e9tti henni pakkann og kveikti \u00ed. Saga saug a\u00f0 s\u00e9r reykinn og h\u00f3sta\u00f0i og h\u00f3sta\u00f0i og h\u00f3sta\u00f0i.
\u2001J\u00f3na klappa\u00f0i henni \u00e1 baki\u00f0. \u201eFyrsta skipti\u00f0 er alltaf svona. Svo ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 einfaldara og einfaldara.\u201c H\u00fan kveikti s\u00e9r \u00ed \u00feri\u00f0ju s\u00edg\u00f3. Andlit S\u00f6gu hvarf bakvi\u00f0 reykinn.
\u2001\u201eP\u00e9tur Pan d\u00f3,\u201c hv\u00edsla\u00f0i h\u00fan.
\u2001\u201eP\u00e9tur Pan?\u201c \u00e1t J\u00f3na upp eftir henni. \u201eNaggr\u00edsinn \u00feinn? \u00deessi me\u00f0 hv\u00edtbr\u00fana feldinn? What happened?\u201c
\u2001\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki, \u00e9g skil \u00fea\u00f0 ekki. \u00c1 f\u00f6studaginn  \u00e6tla\u00f0i \u00e9g a\u00f0 gefa honum a\u00f0 bor\u00f0a og hann l\u00e1 bara \u00fearna hreyfingarlaus \u00ed b\u00farinu s\u00ednu. Hreyf\u00f0i sig ekki, \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g kalla\u00f0i og h\u00f3a\u00f0i \u00e1 hann, hreyf\u00f0i sig ekki neitt, l\u00e1 bara vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 hj\u00f3linu s\u00ednu sem hann haf\u00f0i alltaf svo gaman af!\u201c H\u00fan reykti hra\u00f0ar, h\u00f3sta\u00f0i meira.
\u2001\u201eV\u00e1 \u2026\u201c sag\u00f0i J\u00f3na. \u201eKannski d\u00f3 hann bara af \u00fev\u00ed a\u00f0 eldast?\u201c
\u2001Saga hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, s\u00edgarettan h\u00e1lfnu\u00f0. \u201eHann var ekki nema t\u00e6plega eins \u00e1rs.\u201c
\u2001\u201eOg \u2026 og \u2026 hva\u00f0 ger\u00f0ir\u00f0u?\u201c
\u2001\u201e\u00c9g bara \u2026 pabbi var aftur \u00e1 t\u00f3lfstundavakt \u2026 P\u00e9tur gat ekki bara legi\u00f0 \u00ed b\u00farinu og be\u00f0i\u00f0 komu hans \u2026 svo \u00e9g bara t\u00f3k st\u00f3ran eldsp\u00fdtustokk \u2026 og setti P\u00e9tur ofan \u00ed hann \u2026 og t\u00f3k svo sk\u00f3flu \u2026 og \u2026 og \u2026 gr\u00f3f holu \u00ed bakgar\u00f0inum.\u201c
\u2001\u201eV\u00e1 \u2026 alv\u00f6ru jar\u00f0arf\u00f6r?\u201c spur\u00f0i J\u00f3na. Augun \u00ed henni glj\u00e1\u00f0u.
\u2001Saga kinka\u00f0i kolli og kasta\u00f0i s\u00edgarettustubbnum \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina. Trampa\u00f0i \u00e1 gl\u00f3\u00f0inni me\u00f0 g\u00famm\u00edsk\u00f3num s\u00ednum.
\u2001\u201eViltu samt ekki vita hva\u00f0 ger\u00f0ist?\u201c spur\u00f0i J\u00f3na \u00edhugulum r\u00f3mi.
\u2001\u201eHva\u00f0 meinar\u00f0u? \u00c9g er ekki d\u00fdral\u00e6knir.\u201c
\u2001\u201eJ\u00fa. \u00c9g veit \u00fea\u00f0, en \u2026\u201c H\u00fan ger\u00f0i hl\u00e9. \u201e\u00dea\u00f0 eru a\u00f0rar lei\u00f0ir.\u201c
\u2001Saga horf\u00f0i skelku\u00f0 \u00e1 vinkonu s\u00edna. \u201e\u00de\u00fa ert ekki a\u00f0 stinga upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 g \u2026 g \u2026gr\u00f6f \u2026\u201c H\u00fan gat ekki fengi\u00f0 sig til \u00feess a\u00f0 segja \u00feetta or\u00f0 upph\u00e1tt.
\u2001J\u00f3na horf\u00f0i \u00e1 hana me\u00f0 eldingu \u00ed augasteinum. \u201eKannski. En viltu vita \u00fea\u00f0?\u201c
\u00deegar h\u00fan opna\u00f0i dyr \u00edb\u00fa\u00f0arinnar t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti henni kunnuglegur ilmur. Lykt af \u00fdsuflaki og ofso\u00f0num kart\u00f6flum, \u00fea\u00f0 eina sem fa\u00f0ir hennar kunni a\u00f0 elda, en kl\u00fa\u00f0ra\u00f0i samt alltaf. H\u00fan sparka\u00f0i af s\u00e9r sk\u00f3num, leit inn \u00ed spegil \u00ed forstofunni og renndi hendinni um sl\u00e9tt h\u00f6fu\u00f0i\u00f0. Hva\u00f0 mun afi segja um \u00feetta?<\/i> datt henni \u00ed hug.
\n\u2001H\u00fan labba\u00f0i inn \u00ed bjarta stofuna, hv\u00edtir veggir, bor\u00f0stofubor\u00f0 me\u00f0 fj\u00f3rum st\u00f3lum. \u00c1 einum \u00feeirra sat afi hennar og p\u00edr\u00f0i augun \u00e1 hana \u00ed sterku s\u00f3lskininu.
\n\u2001\u201eG\u00f3\u00f0an og blessa\u00f0an daginn, elskan m\u00edn,\u201c sag\u00f0i hann dj\u00fapum r\u00f3mi og lagf\u00e6r\u00f0i prestakragann sinn l\u00edti\u00f0 eitt.
\n\u2001\u201eH\u00e6 afi,\u201c svara\u00f0i h\u00fan og settist \u00e1 st\u00f3linn vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 honum. Hjarta\u00f0 \u00ed henni hama\u00f0ist \u00e1 lj\u00f3shra\u00f0a.
\n\u2001Afi renndi augunum eftir henni, svo s\u00f3tti hann velktan vasakl\u00fat og \u00feerra\u00f0i svita af enni s\u00e9r. Hann losa\u00f0i a\u00f0eins um prestakragann og r\u00e6skti sig.
\n\u2001\u201eHva\u00f0 segir\u00f0u gott, Saga m\u00edn?\u201c
\n\u2001H\u00fan \u00f3k s\u00e9r \u00ed s\u00e6tinu. \u201eBara allt gott. Vi\u00f0 J\u00f3na vorum a\u00f0 hanga saman \u00e1 r\u00f3l\u00f3 \u00e1\u00f0an.\u201c H\u00fan horf\u00f0i upp til hans \u00e1 svipbrig\u00f0alaust skeggja\u00f0 andliti\u00f0.
\n\u2001\u201eN\u00fa, og hva\u00f0 er a\u00f0 fr\u00e9tta af henni?\u201c spur\u00f0i hann og \u00feerra\u00f0i fleiri svitadropa sem l\u00e1ku ni\u00f0ur andliti\u00f0. Saga velti fyrir s\u00e9r af hverju hann k\u00e6mi undantekningalaust \u00ed prestkuflinum \u00ed matarbo\u00f0in til \u00feeirra, en \u00fe\u00e1 mundi h\u00fan a\u00f0 \u00fea\u00f0 var sunnudagur og l\u00edklegast brj\u00e1la\u00f0 a\u00f0 gera hj\u00e1 honum.
\n\u2001\u201eBara allt gott, h\u00fan er farin a\u00f0 \u2026\u201c byrja\u00f0i h\u00fan, en \u00fe\u00e1 fann h\u00fan skugga gn\u00e6fa yfir s\u00e9r.
\n\u2001\u201eGj\u00f6ri\u00f0 svo vel,\u201c sag\u00f0i pabbi hennar og setti disk me\u00f0 rj\u00fakandi heitum fiski fyrir framan hana. Svo setti hann ni\u00f0ur tvo a\u00f0ra diska og vatnsk\u00f6nnu \u00e1 mi\u00f0ju bor\u00f0sins og settist, enn me\u00f0 svuntuna \u00e1 s\u00e9r. Hann leit \u00e1 tifandi stofuklukkuna og sag\u00f0i:
\n\u2001\u201e\u00c9g \u00fearf a\u00f0 vera kominn aftur \u00ed m\u00f3tt\u00f6kuna eftir 40 m\u00edn\u00fatur. En \u2026 sk\u00e1l fyrir \u00feessum fundi,\u201c sag\u00f0i hann og lyfti glasinu klaufalega upp.
\n\u2001\u201eSk\u00e1l,\u201c s\u00f6g\u00f0u afi og Saga \u00ed k\u00f3r. \u00cd sm\u00e1stund r\u00edkti \u00fe\u00f6gn \u00ed stofunni, rofin af og til \u00feegar klingdi \u00ed g\u00f6fflum og hn\u00edfum og vatns\u00feambi \u00ed \u00feyrstum afa. Hann r\u00e6skti sig og brosti til S\u00f6gu.
\n\u2001\u201e\u00de\u00fa varst a\u00f0 segja \u00e1\u00f0an \u2026 hva\u00f0 er a\u00f0 fr\u00e9tta, elskan? Hvernig l\u00ed\u00f0ur P\u00e9tri Pan?\u201c
\n\u2001Saga fraus me\u00f0 h\u00f6ndina \u00e1 lofti.
\n\u2001\u201eHann er d\u00e1inn, afi,\u201c hv\u00edsla\u00f0i h\u00fan. \u201eD\u00e1inn,\u201c endurt\u00f3k h\u00fan enn hlj\u00f3\u00f0legar.
\n\u2001Hann lyfti augabr\u00fanum. \u201eN\u00fa? Hva\u00f0 ger\u00f0ist?\u201c
\n\u2001\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki. En hann er d\u00e1inn.\u201c H\u00fan t\u00f3k st\u00f3ran sopa af \u00edsk\u00f6ldu vatni og leit svo beint \u00ed andlit afa s\u00edns. Svitadropar fer\u00f0u\u00f0ust ofan \u00ed snj\u00f3hv\u00edtt skegg.
\n\u2001\u201eHvert heldur\u00f0u a\u00f0 \u2026\u201c byrja\u00f0i h\u00fan, en \u00fe\u00e1 lyfti pabbi hendinni:
\n\u2001\u201eEkki \u00feetta aftur, elskan m\u00edn, vi\u00f0 erum b\u00fain a\u00f0 tala um \u00fea\u00f0. Kannski vill afi \u00feinn ekki \u2026\u201c
\n\u2001 Afi greip fram \u00ed fyrir honum. \u201e\u00dea\u00f0 er \u00ed lagi. E\u00f0lilegt a\u00f0 spyrja.\u201c
\n\u2001Saga greip andann dj\u00fapt. \u201eHvar heldur\u00f0u a\u00f0 s\u00e1lin hans s\u00e9 n\u00fana?\u201c
\n\u2001\u201eHva\u00f0 meinar\u00f0u? G\u00e6lud\u00fdr hafa engar s\u00e1lir. \u00deau eru ekki mannverur.\u201c
\n\u2001\u201eEngar s\u00e1lir? Hefur\u00f0u aldrei horft \u00ed hvolpsaugu e\u00f0a glyrnur \u00ed ketti?\u201c sag\u00f0i h\u00fan og fann hvernig r\u00f6ddin byrja\u00f0i a\u00f0 skj\u00e1lfa l\u00edti\u00f0 eitt.
\n\u2001Afi kom s\u00e9r betur fyrir \u00ed st\u00f3lnum. Hann losa\u00f0i a\u00f0eins betur um prestakragann.
\n\u2001\u201eJ\u00fa,\u201c sag\u00f0i hann. \u201eEn \u00fea\u00f0 er samt ekki \u00fea\u00f0 sama. Samkv\u00e6mt Bibl\u00edunni.\u201c
\n\u2001\u201eBibl\u00edunni? \u00de\u00fa sag\u00f0ir \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur a\u00f0 \u00ed himnar\u00edki v\u00e6ri pl\u00e1ss fyrir alla.\u201c
\n\u2001\u201eParad\u00eds er fyrir manneskjur, ekki fyrir skepnur.\u201c
\n\u2001\u201eEn \u2026 en \u2026 \u00fea\u00f0 getur bara ekki veri\u00f0 a\u00f0 P\u00e9tur Pan s\u00e9 \u2026\u201c N\u00fa var r\u00f6ddin \u00ed henni afkastamikill jar\u00f0skj\u00e1lfti. H\u00fan bar\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 halda aftur af t\u00e1rum. \u201e\u00dea\u00f0 getur bara ekki veri\u00f0 \u2026\u201c endurt\u00f3k h\u00fan.
\n\u2001Afi horf\u00f0i \u00e1 hana \u00e1st\u00fa\u00f0lega. \u201eSaga, elskan m\u00edn, d\u00fdr fara hvergi eftir dau\u00f0ann. Svona er \u00feetta bara.\u201c
\n\u2001H\u00fan hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, varirnar herptar saman. \u201eNei, nei, \u00fea\u00f0 er ekki satt!\u201c \u00e6pti h\u00fan, st\u00f3\u00f0 upp og hlj\u00f3p \u00fat \u00far stofunni. \u00c1\u00f0ur en h\u00fan skellti dyrunum \u00e1 eftir s\u00e9r, heyr\u00f0i h\u00fan \u00f6skru\u00f0 samtalsbrot:
\n\u2001\u201e\u00de\u00fa veist a\u00f0 \u00feessi naggr\u00eds var s\u00ed\u00f0asta gj\u00f6fin fr\u00e1 V\u00f6lu, \u00e1\u00f0ur en h\u00fan \u2026!\u201c
H\u00fan hlj\u00f3p, og hlj\u00f3p, og hlj\u00f3p, s\u00e1 ekkert fyrir heitum t\u00e1rum sem \u00fer\u00fdstu s\u00e9r \u00far augunum, l\u00e1ku ni\u00f0ur andliti\u00f0, heyr\u00f0i varla umfer\u00f0arni\u00f0 fyrir eigin ekkasogum, l\u00edkaminn reyndi a\u00f0 skj\u00e1lfa fr\u00e1 s\u00e9r rei\u00f0ina, h\u00fan hlj\u00f3p \u00e1fram \u00ed endalausri gle\u00f0ibirtu sem umlukti borgina einsog fa\u00f0mur himinsins, \u00feanga\u00f0 til h\u00fan heyr\u00f0i bj\u00f6llu dingla, kling, kling.
\u2001H\u00fan sta\u00f0n\u00e6mdist og \u00feerra\u00f0i t\u00e1rin me\u00f0 ermunum, saug upp \u00ed nefi\u00f0. Leit \u00ed kringum sig, og s\u00e1 a\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i brotist \u00e1fram alla lei\u00f0 inn \u00ed P\u00e9tursb\u00fa\u00f0. H\u00fan anda\u00f0i a\u00f0 s\u00e9r kunnuglegum sjoppuilmi, og lykt af s\u00e6lg\u00e6ti. \u00cd nokkrar m\u00edn\u00fatur st\u00f3\u00f0 h\u00fan \u00fe\u00f6gul og horf\u00f0i slj\u00f3lega \u00e1 snyrtilega uppr\u00f6\u00f0u\u00f0 t\u00edmarit \u00ed hillum, kart\u00f6flufl\u00f6gupakka, og anna\u00f0 sl\u00edkt.
\u2001Hvernig gat hann veri\u00f0 svona miskunnarlaus, hann afi? Hefur hann aldrei horft \u00ed augun \u00e1 d\u00fdrum? hugsa\u00f0i h\u00fan \u00e1 me\u00f0an andardr\u00e1tturinn r\u00f3a\u00f0ist a\u00f0eins.
\u2001\u201eSaga, alm\u00e1ttugur, hva\u00f0 ger\u00f0ist?\u201c heyr\u00f0i h\u00fan skyndilega fyrir aftan sig. H\u00fan sneri s\u00e9r vi\u00f0 og s\u00e1 J\u00f3nu. H\u00fan var enn kl\u00e6dd \u00ed hermannajakkann fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrr um daginn og h\u00e9lt \u00e1 appels\u00ednugulum kart\u00f6flufl\u00f6gupakka.
\u2001\u201e\u00dea\u00f0 er afi minn, hann er algj\u00f6rlega s\u00e1larlaus!\u201c sag\u00f0i Saga rei\u00f0um r\u00f3mi.
\u2001\u201eAh, presturinn.\u201c H\u00fan kinka\u00f0i kolli. \u201eHva\u00f0 sag\u00f0i hann?\u201c
\u2001\u201eA\u00f0 d\u00fdr hafi engar s\u00e1lir. A\u00f0 \u00feau deyi bara!\u201c Saga kreppti hnefann.
\u2001\u201eF\u00e1viti!\u201c sag\u00f0i J\u00f3na og r\u00e9tti fram pakkann.
\u2001\u201eAumingi!\u201c svara\u00f0i Saga og t\u00f3k handfylli af fl\u00f6gum upp \u00far skrj\u00e1fandi pokanum. \u201e\u00c9g bara skil ekki \u2026\u201c b\u00e6tti h\u00fan vi\u00f0.
\u2001J\u00f3na yppti \u00f6xlum. \u201eHva\u00f0 svosem getur hann anna\u00f0 sagt? Hann er svartkl\u00e6ddi ma\u00f0urinn eftir allt saman. \u00d6llu \u00ed heilanum hans er ra\u00f0a\u00f0 eftir Bibl\u00edunni.\u201c H\u00fan \u00feag\u00f0i. \u201eSvona f\u00f3lk hefur enga sam\u00fa\u00f0 whatsoever.\u201c H\u00fan rannsaka\u00f0i st\u00f3ra fl\u00f6gu sem h\u00fan veiddi upp \u00far pokanum l\u00edktog um sjaldg\u00e6fa d\u00fdrategund v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Narta\u00f0i \u00ed hana.
\u2001J\u00f3na leit beint inn \u00ed augu vinkonu sinnar. \u201e\u00c9g tr\u00fai \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00fdr hafi s\u00e1l, e\u00f0a allavega einhverja me\u00f0vitund. Ef \u00fe\u00fa villt vita hvert d\u00fdras\u00e1lir fara, \u00fe\u00e1 veit \u00e9g um konu sem g\u00e6ti l\u00edklegast hj\u00e1lpa\u00f0 \u00fe\u00e9r. \u2001Saga var\u00f0 eitt spurningarmerki \u00ed framan.
\u2001\u201e\u00de\u00fa veist hvern \u00e9g er a\u00f0 tala um,\u201c sag\u00f0i J\u00f3na me\u00f0 leynil\u00f6ggur\u00f3mi.
S\u00f3lsetur gyllti kr\u00f3nur trj\u00e1nna yfir \u00d6skjuhl\u00ed\u00f0inni \u00feegar \u00fe\u00e6r b\u00f6nku\u00f0u \u00e1 vi\u00f0ardyrnar \u00e1 vagninum. \u00de\u00e6r opnu\u00f0ust d\u00e1l\u00edti\u00f0 me\u00f0 l\u00e1gu skr\u00f6lti og \u00fat um rifuna g\u00e6g\u00f0ist hettukl\u00e6tt h\u00f6fu\u00f0.
\u2001\u201eHva\u00f0 vilji\u00f0i h\u00e9r, telpur?\u201c sag\u00f0i  konan grunsamlega. H\u00fan m\u00e6ldi \u00fe\u00e6r \u00fat. Augun \u00ed henni voru litlaus, me\u00f0 slikju fyrir sem minnti S\u00f6gu \u00e1 \u00feoku a\u00f0 morgni til.
\u2001\u201eMadame Silfurbirta,\u201c sag\u00f0i J\u00f3na og hneig\u00f0i sig. H\u00fan gaf S\u00f6gu olnbogaskot og h\u00fan ger\u00f0i sl\u00edkt hi\u00f0 sama. \u201eVi\u00f0 erum h\u00e9r til a\u00f0 spyrja \u00feig um nokku\u00f0.\u201c
\u2001Madame Silfurbirta hnykla\u00f0i br\u00fdnnar. \u201eN\u00fa,\u201c sag\u00f0i h\u00fan. \u201eOg eigi\u00f0 \u00fei\u00f0 peninga til a\u00f0 borga fyrir \u00fej\u00f3nustu m\u00edna?\u201c
\u2001J\u00f3na kinka\u00f0i kolli og benti \u00e1 vasann \u00e1 jakkanum s\u00ednum me\u00f0 h\u00f6fu\u00f0hreyfingu.
\u2001\u201eN\u00fan\u00fa, komi\u00f0 inn,\u201c skr\u00e6kti Madame og loka\u00f0i dyrunum. H\u00fan rj\u00e1tla\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e6r og svo opna\u00f0i h\u00fan upp \u00e1 g\u00e1tt. Stelpurnar smeyg\u00f0u s\u00e9r inn. Saga fann hvernig hjartsl\u00e1tturinn \u00ed l\u00edkamanum j\u00f3kst me\u00f0 hverju litlu skrefi sem h\u00fan t\u00f3k innar.
\u2001Madame Silfurbirta var sm\u00e1vaxin og aldurhnigin me\u00f0 kryppu \u00e1 bakinu sem boga\u00f0ist \u00fat \u00ed loft. H\u00fan var \u00e6vag\u00f6mul, kannski eins g\u00f6mul og Reykjav\u00edk sj\u00e1lf, Saga var ekki viss. Enginn vissi hva\u00f0a nafni h\u00fan h\u00e9t, allir krakkarnir \u00ed sk\u00f3lanum k\u00f6llu\u00f0u hana Madame Silfurbirtu vegna sk\u00e6rs silfurlj\u00f3ss sem stafa\u00f0i fr\u00e1 gamaldags vagninum \u00e1 dimmum vetrarkv\u00f6ldum. Madame settist vi\u00f0 kringl\u00f3tt bor\u00f0, bau\u00f0 \u00feeim a\u00f0 setjast andsp\u00e6nis s\u00e9r og kasta\u00f0i hettunni af s\u00e9r. \u00cd lj\u00f3s kom a\u00f0 h\u00fan var eins sk\u00f6ll\u00f3tt og Saga. H\u00fan setti olnbogana \u00e1 d\u00fakalagt bor\u00f0i\u00f0 og kr\u00e6kti saman l\u00f6ngum, hn\u00fdttum fingrum.
\u2001\u201eJ\u00e6ja, hva\u00f0 get \u00e9g gert fyrir ykkur telpurnar?\u201c spur\u00f0i h\u00fan einbeitt \u00e1 svip.
\u2001\u201e\u00c9g vil vita um s\u00e1larfarir eins d\u00fdrs,\u201c s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e6r b\u00e1\u00f0ar \u00ed k\u00f3r. Saga leit \u00e1 vinkonu s\u00edna me\u00f0 \u00feakkl\u00e6tisblik \u00ed augum. J\u00f3na r\u00e6skti sig.
\u2001\u201eJ\u00e1, vi\u00f0 viljum vita um \u2026\u201c en Madame Silfurbirta greip fram \u00ed fyrir henni.
\u2001\u201eEkkisvonahratt, telpa. Fyrst peningar. Annars er samningurinn milli okkar \u00f3gildur.\u201c
\u2001H\u00fan r\u00e9tti fram gr\u00e1\u00f0uga h\u00f6nd. Fingurnir skri\u00f0u \u00e1 bor\u00f0inu einsog eitru\u00f0 na\u00f0ra \u00e1 me\u00f0an konan taldi se\u00f0lana, hummandi fyrir munni s\u00e9r.
\u2001Vinkonurnar \u00fe\u00f6gnu\u00f0u og Saga leit \u00ed kringum sig. Sp\u00e1konuvagninn var snyrtilegur, me\u00f0 mj\u00fakt teppi yfir brakandi g\u00f3lfinu. \u00c1 veggjum b\u00e1\u00f0um megin voru hillur me\u00f0 allskonar b\u00f3kum. Saga renndi yfir nokkra titla. Draumafr\u00e6\u00f0i fyrir byrjendur<\/i>, Svefnt\u00e1kn fyrir lengra komna<\/i>, Stj\u00f6rnuspeki: Himingeimurinn og \u00fe\u00fa<\/i>. \u00c1 hillunum voru l\u00edka glerkrukkur, sumar me\u00f0 gl\u00e6rum v\u00f6kva inni \u00ed, a\u00f0rar t\u00f3mar. H\u00fan s\u00e1 krummaf\u00f3t, hv\u00edtar fja\u00f0rir og \u00feurrku\u00f0 bl\u00f3m \u00e1 milli. Saga hryllti sig, horf\u00f0i upp, yfir \u00feeim var hringlaga gler\u00feak, v\u00e6ntanlega til \u00feess a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed fer\u00f0 himintungla.
\u2001Madame Silfurbirta klappa\u00f0i saman h\u00f6ndunum, svo Saga hr\u00f6kk vi\u00f0.
\u2001\u201eJ\u00e1j\u00e1,\u201c sag\u00f0i konan og stakk se\u00f0lunum \u00ed vasann. H\u00fan leit beint \u00e1 S\u00f6gu:
\u2001\u201e\u00dea\u00f0 ert samt helst \u00fe\u00fa sem vilt skyggnast fyrir um s\u00e1larfer\u00f0ir \u00feessa d\u00fdrs. S\u00fdndu m\u00e9r hendurnar me\u00f0 l\u00f3fana upp.\u201c
\u2001Saga ger\u00f0i \u00fea\u00f0.
\u2001\u201eHmm \u2026\u201c humma\u00f0i h\u00fan. \u201eSvona ungar, i\u00f0andi hendur, \u00e9g var me\u00f0 mj\u00f6g svipa\u00f0ar fyrir aldal\u00f6ngu,\u201c hv\u00edsla\u00f0i h\u00fan. \u201e\u00dea\u00f0 kraumar rei\u00f0ihaf inni \u00ed \u00fe\u00e9r, \u00f6ldurnar brj\u00f3tast um strendur sorgar sem \u00fe\u00fa vissir ekki a\u00f0 byggju innra me\u00f0 \u00fe\u00e9r. Hinga\u00f0 til.\u201c H\u00fan leit \u00e1 S\u00f6gu s\u00ednum litlausu augum. \u201eHann h\u00e9t P\u00e9tur Pan, naggr\u00edsinn \u00feinn, heitinn.\u201c
\u2001Saga kinka\u00f0i kolli, stein\u00fe\u00f6gul. Madame opna\u00f0i litla sk\u00faffu fyrir framan sig og s\u00f3tti tarotspilastokk. \u201e\u00dear sem hendurnar eru merkingarb\u00e6rasti hluti l\u00edkamans,\u201c byrja\u00f0i h\u00fan, \u201e\u00fearftu a\u00f0 draga \u00ferj\u00fa spil me\u00f0 \u00feeim.\u201c H\u00fan stokka\u00f0i spilin \u00ed nokkrar sek\u00fandur og r\u00e9tti fram h\u00f6ndina.
\u2001Saga kyngdi h\u00e1tt og leit \u00e1 J\u00f3nu sem kinka\u00f0i kolli me\u00f0 samanherptar varir.
\u2001Saga valdi \u00ferj\u00fa og setti mj\u00faklega \u00e1 bor\u00f0i\u00f0.
\u2001\u201eHmm,\u201c sag\u00f0i Madame dj\u00fapt hugsi. \u201eSl\u00e1ttuma\u00f0urinn, \u00ferj\u00fa sver\u00f0, \u00fer\u00edr bikarar. Vegurinn framundan er enn hulinn mistri, en \u00feetta er mistur dagrenningar.\u201c
\u2001\u201eHva\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00feetta?\u201c spur\u00f0i Saga titrandi r\u00f6ddu.
\u2001\u201eA\u00f0 \u00e9g \u00fearf a\u00f0 s\u00e6kja meiri uppl\u00fdsingar, telpa,\u201c muldra\u00f0i Madame. H\u00fan erfi\u00f0a\u00f0ist upp \u00far s\u00e6tinu og skj\u00f6gra\u00f0i \u00ed \u00e1tt a\u00f0 hillunum. Bl\u00e9s \u00f3s\u00fdnilegt ryki\u00f0 af gl\u00e6rri kristalk\u00falu og setti hana \u00e1 bor\u00f0i\u00f0. \u201eH\u00fan \u00e6tlar a\u00f0 vera lei\u00f0togi okkar \u00ed kv\u00f6ld,\u201c sag\u00f0i h\u00fan bl\u00ed\u00f0lega.
\u2001\u201eHva\u00f0 \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 gera?\u201c spur\u00f0i J\u00f3na. R\u00f6dd hennar var spennt og undrandi barnsleg.
\u2001\u201eSitjum \u00ed hring og h\u00f6ldumst \u00ed hendur. \u00deetta s\u00ed\u00f0asta er mikilv\u00e6gt, \u00fei\u00f0 megi\u00f0 ekki sleppa takinu, sama hva\u00f0 gerist. Skilji\u00f0 \u00fei\u00f0? Hendur eru okkar helstu tengsl vi\u00f0 veruleikann, ef \u00fei\u00f0 sleppi\u00f0 \u00fe\u00e1 geti\u00f0 \u00fei\u00f0 enda\u00f0 hinum megin og aldrei fundi\u00f0 lei\u00f0ina \u00fat aftur.\u201c
\u00deegar Saga opna\u00f0i augun var h\u00fan ekki lengur \u00ed sp\u00e1konuvagninum, heldur umlukin h\u00e1um trj\u00e1m. Tr\u00e9, hvert sem h\u00fan leit. Skrj\u00e1fandi og ilmandi bylgju\u00f0ust \u00feau \u00ed miskunnarlausum vindi. H\u00fan hlusta\u00f0i \u00e1 \u00feennan trj\u00e1s\u00f6ng, fuglat\u00edst, og svo st\u00f3\u00f0 h\u00fan upp af naktri j\u00f6r\u00f0inni, leit \u00ed kringum sig, s\u00e1 hvorki Madame Silfurbirtu n\u00e9 J\u00f3nu. Sk\u00f3garst\u00edgurinn l\u00e1 framundan, einsog bo\u00f0 inn \u00ed annan heim, og h\u00fan byrja\u00f0i a\u00f0 ganga \u00e1fram, skref fyrir skref. S\u00f3lin l\u00e1gt \u00e1 lofti, himinninn eldrau\u00f0ur, bleik ro\u00f0ask\u00fd r\u00e1fu\u00f0u um hann einsog \u00ed leit a\u00f0 merkingu l\u00edfsins.
\n\u2001Skuggi S\u00f6gu lengdist eftir \u00fev\u00ed sem h\u00fan gekk lengra inn \u00ed sk\u00f3ginn, sprek brustu undan f\u00f3tum hennar. H\u00fan hall\u00f3a\u00f0i: \u201eJ\u00f3na, J\u00f3na!\u201c en f\u00e9kk ekkert svar fyrir utan litr\u00edkan laufdans \u00e1 trj\u00e1num. H\u00fan gekk d\u00e1g\u00f3\u00f0an sp\u00f6l \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 h\u00fan heyr\u00f0i bl\u00edstur, ekki einsog \u00ed vindi, heldur einsog su\u00f0 \u00ed pirra\u00f0ri b\u00fdflugu. Saga sta\u00f0n\u00e6mdist og hl\u00fdddi \u00e1. \u00dea\u00f0 var ekki um a\u00f0 villast, hlj\u00f3\u00f0i\u00f0 var veiklulegt, en greinilegt. H\u00fan lyfti augabr\u00fanum og elti \u00fea\u00f0, kom inn \u00ed st\u00e6r\u00f0arinnar rj\u00f3\u00f0ur, me\u00f0 litr\u00edkum bl\u00f3mum sem h\u00fan kunni ekki n\u00f6fn \u00e1. Saga rak upp st\u00f3r augu. \u00cd mi\u00f0junni var trj\u00e1bolur, og \u00e1 honum sat enginn annar en rakarinn Jean-Pierre. Saga st\u00f3\u00f0 \u00ed sta\u00f0, steinruninn gapandi tr\u00f6llastelpa.
\n\u2001\u201eOui oui, monsieur, oui oui,\u201c hv\u00edsla\u00f0i Jean-Pierre. Hann var me\u00f0 gr\u00e1a vinnusvuntu og h\u00e9lt \u00e1 su\u00f0andi rakv\u00e9l. H\u00fan var tengd me\u00f0 rafmagnssn\u00faru \u00ed innstungu \u00e1 trj\u00e1bolnum. Milli l\u00e6ranna sat hr\u00e6ddur, rau\u00f0h\u00e6r\u00f0ur \u00edkorni sem Jean-Pierre raka\u00f0i, muldrandi s\u00edfellt vi\u00f0 sj\u00e1lfan sig: \u201eOui oui, monsieur, oui oui! \u00de\u00fa ver\u00f0ur \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 \u00fatkomuna, oui oui.\u201c
\n\u2001Saga hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 og r\u00e6skti sig: \u201eJean-Pierre, hva\u00f0 ertu a\u00f0 gera h\u00e9r? L\u00e1ttu \u00edkornann \u00ed fri\u00f0i!\u201c
\n\u2001Hann leit upp, horf\u00f0i forvitinn \u00ed kringum sig, renndi augunum eftir S\u00f6gu. \u201eVindurinn er \u00f3venjuh\u00e1va\u00f0asamur \u00ed dag, finnst \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0 ekki, vinur minn?\u201c Hann horf\u00f0i \u00e1 d\u00fdri\u00f0 \u00ed skauti s\u00e9r. \u00cdkorninn leit \u00e1 hann betlaraaugum, svo \u00ed kringum sig \u00ed leit a\u00f0 \u00fatg\u00f6ngulei\u00f0.
\n\u2001\u201eL\u00e1ttu ekki svona, einsog \u00fe\u00fa heyrir ekki \u00ed m\u00e9r!\u201c Saga stappa\u00f0i f\u00e6tinum. Nokkur bl\u00f3m lutu h\u00f6f\u00f0i s\u00ednu. H\u00fan anda\u00f0i dj\u00fapt, fikra\u00f0i sig \u00ed \u00e1tt a\u00f0 Jean-Pierre. \u201eL\u00e1ttu hann \u00ed fri\u00f0i!\u201c sag\u00f0i h\u00fan og r\u00e9tti hendurnar \u00ed \u00e1tt a\u00f0 \u00edkornanum. En \u00feegar h\u00fan \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 gr\u00edpa hann f\u00f3ru hendurnar \u00ed gegnum d\u00fdri\u00f0. H\u00fan rak upp hlj\u00f3tt \u00f6skur og greip fyrir munni s\u00e9r. Pr\u00f3fa\u00f0i einu sinni enn, me\u00f0 s\u00f6mu aflei\u00f0ingunum. Jean-Pierre hryllti sig einsog hann st\u00e6\u00f0i \u00ed skyndigusti. Hva\u00f0 er a\u00f0 gerast?<\/i> hugsa\u00f0i Saga. Er \u00e9g d\u00e1in?<\/i>
\n\u2001\u201eHann heyrir ekki \u00ed \u00fe\u00e9r. Og s\u00e9r \u00feig ekki,\u201c sag\u00f0i reykmettu\u00f0 r\u00f6dd fyrir aftan hana. H\u00fan leit vi\u00f0.
\n\u2001\u201eJ\u00f3na!\u201c \u00f6skra\u00f0i h\u00fan og hlj\u00f3p \u00ed \u00e1tt vinkonu sinnar, fa\u00f0ma\u00f0i hana en f\u00f3r \u00ed gegnum kroppinn l\u00edka. \u201eHva\u00f0 er a\u00f0 gerast, J\u00f3na? Erum vi\u00f0 d\u00e1nar? Og hvar er Madame Silfurbirta? Er \u00feetta \u00d6skjuhli\u00f0arsk\u00f3gurinn?\u201c fl\u00e6ddi upp \u00far henni.
\n\u2001J\u00f3na hugsa\u00f0i sig um. \u201e\u00c9g er ekki viss,\u201c sag\u00f0i h\u00fan \u00e1n \u00feess a\u00f0 varirnar hreyf\u00f0ust. \u201e\u00deetta getur veri\u00f0 einhvers konar draumver\u00f6ld, e\u00f0a astral-\u00e1stand sem vi\u00f0 erum komnar \u00ed.\u201c H\u00fan r\u00e9tti fram h\u00f6ndina. \u201eKomdu, \u00fe\u00fa \u00fearft a\u00f0 sj\u00e1 eitthva\u00f0, kannski munt \u00fe\u00fa meika sens \u00far \u00feessu. \u00c9g skil \u00fea\u00f0 ekki, allavega\u201c\n\u2001\u00de\u00e6r gengu \u00ed \u00e1tt a\u00f0 einu horni rj\u00f3\u00f0ursins. Saga s\u00e1 a\u00f0 skuggi hennar haf\u00f0i lengst, en \u00feegar h\u00fan leit upp var s\u00f3lin enn\u00fe\u00e1 \u00e1 sama sta\u00f0 og \u00e1\u00f0an.
\n\u2001\u201eH\u00fan sest aldrei h\u00e9r, s\u00f3lin. \u00c9g er b\u00fain a\u00f0 vera h\u00e9r allavega \u00ed nokkurn t\u00edma, en \u00feessi eldhn\u00f6ttur, hann neitar a\u00f0 f\u00e6ra sig um set,\u201c \u00fatsk\u00fdr\u00f0i J\u00f3na fyrir henni. H\u00fan kl\u00f3ra\u00f0i s\u00e9r \u00ed kinnina, fingurnir hurfu ofan \u00ed andliti\u00f0. \u201e\u00c9g botna ekki neitt \u00ed \u00feessu \u00f6llu saman. H\u00e9r erum vi\u00f0,\u201c sag\u00f0i h\u00fan og benti \u00ed \u00e1tt a\u00f0 manninum fyrir framan \u00fe\u00e6r. \u201e\u00de\u00fa \u00feekkir eflaust \u00feennan.\u201c
\n\u2001\u201ePabbi!\u201c \u00e6pti Saga. \u201eHva\u00f0 ertu a\u00f0 gera h\u00e9r? Hall\u00f3?\u201c
\n\u2001\u201eHann heyrir ekki \u00ed \u00fe\u00e9r. Horf\u00f0u.\u201c
\n\u2001\u00de\u00e6r \u00fe\u00f6g\u00f0u. Fa\u00f0ir S\u00f6gu var kl\u00e6ddur \u00ed sk\u00edtugar buxur, gr\u00e6nn jakkinn \u00feakinn moldarblettum og h\u00fafu sem minnti S\u00f6gu \u00e1 sk\u00f3garh\u00f6ggsmann. Hann h\u00e9lt \u00e1 sk\u00f3flu og raula\u00f0i fyrir munni s\u00e9r, um lei\u00f0 og hann gr\u00f3f holu. \u00c1 bakvi\u00f0 hann var r\u00f6\u00f0 af trj\u00e1m og vi\u00f0 eitt \u00feeirra hr\u00faga af illa lyktandi hr\u00e6jum. Saga p\u00edr\u00f0i augun og \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta voru refir og t\u00f3fur. Rau\u00f0, br\u00fan, hv\u00edt hr\u00e6 af \u00f6llum m\u00f6gulegum st\u00e6r\u00f0um og ger\u00f0um. Fa\u00f0ir hennar t\u00f3k eitt upp og fleyg\u00f0i \u00fev\u00ed m\u00e1sandi ofan \u00ed holuna, sk\u00f3fla\u00f0i svo moldinni ofan \u00e1. Svo t\u00f3k hann n\u00e6sta og n\u00e6sta og n\u00e6sta.
\n\u2001\u201eHva\u00f0 er hann a\u00f0 gera?\u201c spur\u00f0i Saga.
\n\u2001\u201e\u00c9g held hann s\u00e9 a\u00f0 taka grafir fyrir refina,\u201c svara\u00f0i J\u00f3na.
\n\u2001\u201eT\u00fdp\u00edskt hann. Alltaf \u00ed vinnunni. Kannski erum vi\u00f0 \u00ed hugarheimi hans?\u201c
\n\u2001 J\u00f3na hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0. \u201e\u00c9g er ekki viss. \u00dea\u00f0 er ekki bara hann sem \u00e9g s\u00e1 h\u00e9r.\u201c
\n\u2001\u201eN\u00fa. Hverja fleiri s\u00e1stu?\u201c
\n\u2001\u201eAfa \u00feinn,\u201c svara\u00f0i J\u00f3na og tv\u00edsteig vandr\u00e6\u00f0alega. \u201eHann er miklu skr\u00fdtnari en pabbi \u00feinn.\u201c
\n\u2001\u201eHva\u00f0 meinar\u00f0u, J\u00f3na?\u201c
\n\u2001\u201e\u00c9g meina \u2026\u201c byrja\u00f0i h\u00fan, en \u00fe\u00e1 heyr\u00f0ust kirkjuklukkur. Saga hr\u00f6kkti vi\u00f0.
\n\u2001H\u00fan lyfti augabr\u00fanum. \u201eKirkja \u00ed sk\u00f3ginum? Hvar er h\u00fan, J\u00f3na?\u201c
\n\u2001\u00de\u00e6r f\u00f3ru \u00fat \u00far rj\u00f3\u00f0rinu, aftur \u00e1 sk\u00f3garst\u00edginn sem Saga haf\u00f0i labba\u00f0 \u00e1\u00f0an. Gengu hlj\u00f3\u00f0ar, hli\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0. Skuggar \u00feeirra lengdust \u00e6 meira. Saga horf\u00f0i upp \u00ed himininn. Sk\u00fdin voru enn\u00fe\u00e1 b\u00f6\u00f0u\u00f0 bleikro\u00f0anum, en h\u00f6f\u00f0u breytt um l\u00f6gun. N\u00fa l\u00edktust \u00feau litlum spend\u00fdrahj\u00f6rtum. Saga loka\u00f0i augunum \u00ed vantr\u00fa sinni, en \u00feegar h\u00fan opna\u00f0i \u00feau aftur h\u00e9ngu hj\u00f6rtun enn \u00e1 himninum. Henni virtist sem h\u00fan heyr\u00f0i hvernig \u00feau h\u00f6mu\u00f0ust \u00ed reglulegum takti, \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 brak \u00ed sprekum undir iljum hennar.
\n\u2001\u201eVi\u00f0 erum h\u00e9r,\u201c tilkynnti vinkona hennar. Saga horf\u00f0i beint fram fyrir sig. \u00de\u00e6r voru komnar \u00ed enn anna\u00f0 rj\u00f3\u00f0ur, nema \u00ed \u00feetta sinn st\u00f3\u00f0 l\u00edtil kirkja \u00ed mi\u00f0junni. H\u00fan var \u00far lj\u00f3sum vi\u00f0i, me\u00f0 einum stuttum turni sem tr\u00f3na\u00f0i einsog \u00e1minning um eftirl\u00edf. Hann minnti S\u00f6gu \u00e1 gamla kirkju sem h\u00fan haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 einu sinni \u00ed V\u00edk \u00ed M\u00fdrdal.
\n\u2001Fr\u00e1 byggingunni heyr\u00f0ist \u00fdlfur, einsog \u00ed hungru\u00f0um \u00falfi. Saga skalf. \u201eEru \u00falfar inni?\u201c
\n\u2001J\u00f3na kinka\u00f0i kolli. \u201eJ\u00e1. En mundu a\u00f0 \u00feeir geta hvorki s\u00e9\u00f0 okkur, n\u00e9 heyrt, n\u00e9 snert. Vi\u00f0 erum safe,\u201c sag\u00f0i h\u00fan me\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 enska or\u00f0i\u00f0.
\n\u2001Inni var sterk vi\u00f0arlykt, r\u00f6\u00f0 af snyrtilegum bekkjum og kross \u00e1 altari. \u00c1 bekknum s\u00e1tu \u00falfar og g\u00e1fu fr\u00e1 s\u00e9r skerandi hlj\u00f3\u00f0 af og til. \u00c1 altarinu haf\u00f0i veri\u00f0 komi\u00f0 fyrir h\u00e1s\u00e6ti og \u00ed \u00fev\u00ed sat enginn annar en afi hennar. Saga fann hvernig rei\u00f0in blossa\u00f0i upp \u00ed henni, h\u00fan skalf enn meira, og ota\u00f0i hnefanum upp \u00ed loft, en mundi svo a\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i ekkert vald h\u00e9r.
\n\u2001Afi var kl\u00e6ddur \u00ed h\u00e1t\u00ed\u00f0legan, svartan prestab\u00faninginn. Hann r\u00e9tti fram h\u00e6gri h\u00f6nd, \u00e1 henni var st\u00e6r\u00f0arinnar gullhringur skreyttur dem\u00f6ntum. Fyrir framan hann var r\u00f6\u00f0 af \u00falfum sem komu einn og einn og sleiktu hringinn, gu\u00f0hr\u00e6ddir.
\n\u2001\u201e\u00deetta er \u00f3ge\u00f0slegt!\u201c \u00f6skra\u00f0i Saga og k\u00faga\u00f0ist af eldgosarei\u00f0i.
\n\u2001J\u00f3na t\u00f3k \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 henni, hendurnar runnu saman \u00ed eitt. \u201e\u00dea\u00f0 er ekkert sem vi\u00f0 getum gert, allavega \u00ed okkar \u00e1standi,\u201c sag\u00f0i h\u00fan. \u201eKomdu, vi\u00f0 skulum fara \u00fat.\u201c
\n\u2001Saga st\u00f3\u00f0 undir berum himni og reyndi a\u00f0 r\u00f3a sig, anda\u00f0i dj\u00fapt ofan \u00ed lungu, fann hvernig hennar eigin hjartsl\u00e1ttur byrja\u00f0i a\u00f0 h\u00e6gja \u00e1 s\u00e9r. H\u00fan leit \u00e1 vinkonu s\u00edna sem gr\u00f3f h\u00f6ndina \u00ed vasanum \u00e1 \u00e6lugr\u00e6num hermannajakkanum.
\n\u2001\u201eHva\u00f0 ertu me\u00f0 \u00ed vasanum?\u201c spur\u00f0i h\u00fan.
\n\u2001J\u00f3na stj\u00e1kla\u00f0i vandr\u00e6\u00f0alega. \u201eSaga m\u00edn, \u00fea\u00f0 er eitt anna\u00f0 sem \u00e9g \u00fearf a\u00f0 s\u00fdna \u00fe\u00e9r.\u201c
\n\u2001H\u00fan r\u00e9tti fram h\u00f6ndina, h\u00e9lt \u00e1 glerkrukku. Hvernig gat h\u00fan komi\u00f0 fyrir heilli krukku \u00fearna inni?<\/i> datt S\u00f6gu \u00ed hug. Svo s\u00e1 h\u00fan a\u00f0 inni \u00ed henni var einhvers konar ol\u00eda og \u00ed honum \u00f6rl\u00edtill naggr\u00eds.
\n\u2001\u201eP\u00e9tur Pan!\u201c hr\u00f3pa\u00f0i h\u00fan. \u201eVarstu me\u00f0 \u00feetta \u00ed vasanum allan \u00feennan t\u00edma?\u201c
\n\u2001J\u00f3na kinka\u00f0i kolli. \u201e\u00deegar \u00e9g vakna\u00f0i \u00ed sk\u00f3ginum fann \u00e9g \u00feessa krukku vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00e9r. \u00c1kva\u00f0 a\u00f0 taka hana me\u00f0 og leita a\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c
\n\u2001Saga brosti, \u00fe\u00f3tt h\u00fan skildi ekki hvernig st\u00f3\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 krukkan var \u00fea\u00f0 eina sem h\u00fan gat haldi\u00f0 \u00e1 me\u00f0 h\u00f6ndum s\u00ednum. Hana gle\u00f0isvima\u00f0i. H\u00fan sko\u00f0a\u00f0i naggr\u00edsinn \u00ed krukkunni gaumg\u00e6filega. P\u00e9tur Pan var fur\u00f0ulega l\u00edtill og h\u00e1rlaus og \u00e1 floti \u00ed einhverjum feitum v\u00f6kva. \u00de\u00e1 \u00e1tta\u00f0i h\u00fan sig \u00e1 \u00fev\u00ed. \u00deetta var ekki beinl\u00ednis naggr\u00eds, heldur naggr\u00edsaf\u00f3stur.
\n\u2001\u201eHeld \u00e9g viti hva\u00f0 vi\u00f0 eigum a\u00f0 gera me\u00f0 \u00feetta,\u201c sag\u00f0i h\u00fan vi\u00f0 J\u00f3nu.
\n\u2001\u201eHva\u00f0 er \u00fea\u00f0?\u201c spur\u00f0i h\u00fan.
\n\u2001\u201eKomdu.\u201c
\n\u2001\u201eHva\u00f0 \u00e6tlar\u00f0u a\u00f0 gera, Saga? \u00de\u00fa ert me\u00f0 skelfilegt blik \u00ed augunum.\u201c
\n\u2001\u201eTreystu m\u00e9r. \u00c9g veit hva\u00f0 \u00e9g er a\u00f0 gera. Komdu.\u201c
\n\u2001\u00de\u00e6r sneru vi\u00f0 og f\u00f3ru s\u00f6mu lei\u00f0 og \u00e1\u00f0ur, aftur a\u00f0 fyrra rj\u00f3\u00f0rinu. Fundu pabba S\u00f6gu. Hann var enn\u00fe\u00e1 a\u00f0 grafa holur me\u00f0 sk\u00f3flunni, \u00f3st\u00f6\u00f0vandi og s\u00fdndi engin \u00fereytumerki.
\n\u2001\u201e\u00deetta er \u00fea\u00f0 sem mig vantar.\u201c Saga benti \u00e1 sk\u00f3fluna og t\u00f3k hana \u00far h\u00f6ndum f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. Hann h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 moka einsog ekkert hef\u00f0i \u00ed skorist. Saga gekk sp\u00f6lkorn fr\u00e1 honum og f\u00f3r a\u00f0 grafa s\u00edna eigin holu. J\u00f3na st\u00f3\u00f0 \u00e1lengdar og h\u00e9lt \u00e1 krukkunni me\u00f0 naggr\u00edsaf\u00f3strinu, sem \u00e1 broth\u00e6ttu postul\u00edni. \u00deegar Saga var b\u00fain a\u00f0 grafa n\u00f3gu dj\u00fapa holu settu \u00fe\u00e6r krukkuna \u00e1 botninn og byrju\u00f0u a\u00f0 moka moldinni yfir.
\n\u2001S\u00f3lin settist loks bakvi\u00f0 r\u00f3leg tr\u00e9 \u00feegar h\u00fan sk\u00f3fla\u00f0i s\u00ed\u00f0usta moldarlaginu ofan \u00e1 og ger\u00f0i h\u00e1t\u00ed\u00f0legt krossmark. H\u00fan t\u00f3k \u00ed h\u00f6ndina \u00e1 vinkonu sinni. \u00cd \u00feetta sinn fann h\u00fan fyrir snertingu aftur. Allt var\u00f0 fur\u00f0ulega hlj\u00f3tt, sk\u00fdju\u00f0u d\u00fdrahj\u00f6rtun sl\u00f3gu ekki lengur \u00e1 himninum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"
Jakub Stachowiak \u201eHvar heldur\u00f0u a\u00f0 P\u00e9tur Pan s\u00e9 ni\u00f0urkominn?\u201c spur\u00f0i Saga og \u00f3k s\u00e9r \u00e1 rau\u00f0um st\u00f3l. \u2001\u201eHver? \u00c6 \u2026 vertu kyrr, Saga m\u00edn, annars klippi \u00e9g eyrnasnepil af \u00fe\u00e9r,\u201c sag\u00f0i Jean-Pierre. \u201e\u00dea\u00f0 viljum vi\u00f0 ekki, s\u00e6ta m\u00edn,\u201c b\u00e6tti hann vi\u00f0 og smellti sk\u00e6rum fyrir framan nefi\u00f0 \u00e1 henni. Klipp. Klipp. \u2001Saga greip um skeljalaga […]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"jetpack_post_was_ever_published":false,"footnotes":""},"class_list":["post-286","page","type-page","status-publish","hentry"],"jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/286","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=286"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/286\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":343,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/286\/revisions\/343"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=286"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}