{"id":553,"date":"2024-12-04T08:16:21","date_gmt":"2024-12-04T08:16:21","guid":{"rendered":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=553"},"modified":"2024-12-05T17:15:39","modified_gmt":"2024-12-05T17:15:39","slug":"bragakaffi","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=553","title":{"rendered":"Bragakaffi"},"content":{"rendered":"\n<h3 class=\"wp-block-heading has-text-align-center\">Ma\u00f3 Alheimsd\u00f3ttir<\/h3>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 Bragi st\u00f6ndum fyrir utan kaffih\u00fas. \u00cd v\u00f6sum okkar liggur heill rafr\u00e6nn hn\u00f6ttur. Allir vinir okkar eru \u00fear l\u00edka \u00ed betri \u00fatg\u00e1fu af sj\u00e1lfum s\u00e9r, tilb\u00fanir til a\u00f0 svara einsemdar\u00fatkalli. \u00c9g horfi \u00e1 Braga me\u00f0 nik\u00f3t\u00ednf\u00edkn \u00ed augum og samhyg\u00f0 \u00ed hjarta. Fimm deyf\u00f0ar m\u00edn\u00fatur sem vi\u00f0 deilum \u00e1n \u00feess a\u00f0 d\u00e6ma hvort anna\u00f0 fyrir a\u00f0 vera ekki sterkari. \u00c9g spyr hann ekki hven\u00e6r hann byrja\u00f0i aftur. \u00c9g segi honum ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 mig langi a\u00f0 h\u00e6tta. \u00cd fimm m\u00edn\u00fatur upplifi \u00e9g eitthva\u00f0 meira en \u00f6rbylgjur snjalls\u00edmans m\u00edns. Vi\u00f0 h\u00f6ldum \u00e1fram a\u00f0 reykja undir gr\u00e1leitum jan\u00faarsk\u00fdjum, fylgjumst me\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu regndropum morguns\u00e1rsins sem renna letilega ni\u00f0ur h\u00fasveggi, b\u00edlr\u00fa\u00f0ur, kinnbein. Bragi fl\u00fdtir s\u00e9r ekki a\u00f0 segja neitt. \u00c9g veit ekki heldur hvort mig langi a\u00f0 tala vi\u00f0 hann \u00ed dag. Fyrir tveimur d\u00f6gum f\u00e9kk \u00e9g tauga\u00e1fall. \u00c9g efast um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 efni \u00ed kaffispjall vi\u00f0 mann sem \u00e9g \u00feekki ekki \u00fea\u00f0 vel. Hann \u00feekkir mig reyndar betur en flestir samf\u00e9lagsmi\u00f0lavinir m\u00ednir. Hann \u00feekkir tungum\u00e1l l\u00edkama m\u00edns og bl\u00e6 raddar minnar \u00fear sem vi\u00f0 h\u00f6fum hist n\u00e6stum \u00fev\u00ed \u00e1 hverjum degi s\u00ed\u00f0an \u00ed haust. Vi\u00f0 m\u00e6lum okkur aldrei m\u00f3t. Vi\u00f0 drekkum a\u00f0eins kaffi \u00e1 sama t\u00edma \u00e1 sama kaffih\u00fasi \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 h\u00f6ldum \u00e1fram \u00ed mismunandi \u00e1ttir, hvort \u00e1 sinn vinnusta\u00f0. Bragi segir m\u00e9r stundum fr\u00e1 vinnunni sinni. \u00c9g segi honum stundum fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem \u00e9g geri. Vi\u00f0 heilsum upp \u00e1 a\u00f0ra vi\u00f0skiptavini \u00e1 lei\u00f0inni inn og \u00fat af kaffih\u00fasinu. \u00d6\u00f0ru hverju h\u00e6gir einhver gestanna \u00e1 s\u00e9r e\u00f0a jafnvel stoppar hj\u00e1 okkur til a\u00f0 skiptast \u00e1 sko\u00f0unum um eitthva\u00f0 sem vi\u00f0 erum a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Vi\u00f0 Bragi t\u00f6lum sjaldan um samskipti og samb\u00f6nd vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk. \u00c9g man reyndar mj\u00f6g vel eftir einu fyrsta samtali okkar sem var sm\u00e1 vandr\u00e6\u00f0alegt. Vi\u00f0 s\u00e1tum vi\u00f0 \u00fatibor\u00f0 kaffish\u00fassins \u00ed septembers\u00f3linni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g \u00fearf a\u00f0 m\u00e6ta \u00e1 foreldrafund \u00ed dag. \u00c9g nenni samt ekki a\u00f0 fara. \u00dea\u00f0 eina sem mig langar a\u00f0 gera \u00ed dag er n\u00e1kv\u00e6mlega \u00fea\u00f0 sem \u00e9g er a\u00f0 gera n\u00fana.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Bragi horfir brosandi \u00e1 mig og f\u00e6r s\u00e9r kaffisopa. \u00c9g svara honum me\u00f0 brosi l\u00edka svo spyr \u00e9g hann hva\u00f0 d\u00f3ttir hans heiti.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00daa, h\u00fan ver\u00f0ur sj\u00f6 \u00e1ra \u00e1 sunnudaginn. \u00c1tt \u00fe\u00fa b\u00f6rn?<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Nei, en \u00e9g \u00e1 k\u00f6tt. Hann er reyndar k\u00f6ttur fyrrverandi k\u00e6rasta m\u00edns, segi \u00e9g og \u00e1tta mig \u00e1 sama t\u00edma a\u00f0 \u00fea\u00f0 hlj\u00f3mar eins og \u00e9g s\u00e9 a\u00f0 tilkynna a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 \u00e1 lausu e\u00f0a a\u00f0 g\u00e6lud\u00fdr og b\u00f6rn s\u00e9u \u00fea\u00f0 sama. Mig langar a\u00f0 b\u00e6ta einhverju vi\u00f0, einhverju sem myndi m\u00e1la betri mynd af sambandsleysi m\u00ednu, gildi g\u00e6lud\u00fdra og barna og koma \u00ed veg fyrir spurningar um hvers vegna \u00e9g enda\u00f0i me\u00f0 k\u00f6tt fyrrverandi. En \u00e1\u00f0ur en \u00e9g n\u00e6 a\u00f0 finna vi\u00f0eigandi or\u00f0 gerir Bragi \u00fea\u00f0 enn verra me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja,<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g f\u00edla ketti, en konan m\u00edn er me\u00f0 ofn\u00e6mi fyrir \u00feeim.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Hvorugt okkar segir neitt meira \u00ed g\u00f3\u00f0a stund. \u00c9g reyni a\u00f0 sannf\u00e6ra sj\u00e1lfa mig um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 mj\u00f6g e\u00f0lilegt a\u00f0 Bragi hafi sagt m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann s\u00e9 \u00ed sambandi og a\u00f0 hann hafi ekki gert \u00fea\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g sag\u00f0i a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u00fea\u00f0 ekki.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Klukkan hva\u00f0 er foreldrafundurinn? spyr \u00e9g alveg \u00e1kve\u00f0in \u00ed a\u00f0 best s\u00e9 a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 tala um ketti og eiginkonur.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>H\u00e1lf fimm, svarar Bragi og l\u00edtur um lei\u00f0 \u00e1 klukkuna, en \u00feanga\u00f0 til ver\u00f0 \u00e9g l\u00edka a\u00f0 gera eitthva\u00f0 \u00ed vinnunni. \u00dea\u00f0 var gott a\u00f0 sj\u00e1 \u00feig N\u00edna, vi\u00f0 sj\u00e1umst.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Bragi yfirgefur kaffiskj\u00f3l okkar \u00e1 undan m\u00e9r \u00ed dag. \u00c9g sit \u00e1fram \u00fati, ein og fylgist me\u00f0 f\u00f3lki gangandi upp og ni\u00f0ur verslunarg\u00f6tu borgarinnar. \u00d6nnur hver manneskja er me\u00f0 snjalls\u00edma \u00ed hendi. Sumir reyna a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 sta\u00f0setningu og n\u00e6sta \u00e1fangasta\u00f0, a\u00f0rir tala \u00ed s\u00edmann e\u00f0a taka myndir me\u00f0 honum. Einn og einn ma\u00f0ur, \u00f3hr\u00e6ddur vi\u00f0 a\u00f0 lenda \u00ed slysi vi\u00f0 lj\u00f3sastaur e\u00f0a vi\u00f0 a\u00f0ra gangandi manneskju, skrifar skilabo\u00f0 og gengur samt\u00edmis. \u00c9g tek upp s\u00edmann l\u00edka og fer a\u00f0 sko\u00f0a f\u00e6rslur og myndir \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, hugsandi um hvernig \u00e9g kann varla lengur a\u00f0 vera ein me\u00f0 sj\u00e1lfri m\u00e9r, s\u00edmalaus. En jafnvel \u00e1 me\u00f0an \u00e9g er \u00ed s\u00edmanum l\u00ed\u00f0ur m\u00e9r ekki minna einmana.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">\u2042<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 Valent\u00ednusardegi vakna \u00e9g me\u00f0 hausverk og beinverki. \u00dea\u00f0 er reyndar engin \u00fe\u00f6rf \u00e1 a\u00f0 afl\u00fdsa \u00e1starpl\u00f6num. M\u00e9r var hvort e\u00f0 er ekki bo\u00f0i\u00f0 \u00e1 neitt stefnum\u00f3t. \u00der\u00e1tt fyrir flensueinkenni og Valent\u00ednusarvonbrig\u00f0i er l\u00f6ngun \u00ed kaffi fr\u00e1 kaffih\u00fasinu m\u00ednu mj\u00f6g sterk. \u00c9g skelli m\u00e9r \u00ed vetrark\u00e1pu utan yfir bol og f\u00f6\u00f0urland og me\u00f0 bankakort \u00ed vasanum fl\u00fdti \u00e9g m\u00e9r a\u00f0 b\u00edlnum m\u00ednum sem er \u00e1 kafi \u00ed snj\u00f3. Eftir a\u00f0 hafa hreinsa\u00f0 b\u00edlr\u00fa\u00f0urnar sest \u00e9g \u00ed b\u00edlinn, set hann \u00ed gang og r\u00fdf skjannahv\u00edta morgun\u00fe\u00f6gn g\u00f6tunnar minnar. \u00c9g vir\u00f0ist vera ein \u00e1 lei\u00f0 \u00e1 \u00feessum laugardagsmorgni. Hverfi\u00f0 mitt sefur r\u00f3tt undir hv\u00edtum p\u00fa\u00f0urs\u00e6ngum sem fylla hverja r\u00f6nd \u00ed b\u00e1ruj\u00e1rns\u00fe\u00f6kum og \u00fe\u00e6r eru breiddar yfir jafnvel mj\u00f3stu trj\u00e1greinar. \u00c9g keyri h\u00e6gt og varlega \u00fear sem \u00e9g finn fyrir h\u00e1lku undir \u00feykku lagi af n\u00fdf\u00f6llnum snj\u00f3num. \u00c1 rau\u00f0u lj\u00f3si \u00e1 horni \u00c6gisg\u00f6tu og M\u00fdrag\u00f6tu horfi \u00e9g \u00e1 bryggju fulla af snj\u00f3. \u00c9g horfi \u00e1 d\u00f6kkbl\u00e1tt vatni\u00f0 sem vaggar r\u00f3lega litlum fiskib\u00e1tum, hugsandi um hva\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri yndislegt a\u00f0 eiga sk\u00fatu e\u00f0a b\u00e1t og geta siglt \u00e1 sumrin \u00ed kringum landi\u00f0, fr\u00e1 fir\u00f0i til fjar\u00f0ar, frj\u00e1ls fr\u00e1 b\u00edlaumfer\u00f0 og fer\u00f0am\u00f6nnum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g n\u00e6 ekki a\u00f0 kafa d\u00fdpra \u00ed r\u00f3mant\u00edskum p\u00e6lingum um hi\u00f0 fullkomna fer\u00f0alag \u00fear sem m\u00e9r breg\u00f0ur vi\u00f0 hlj\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00ed b\u00edlflautu einhvers sem \u00f3l\u00edkt m\u00e9r er me\u00f0 athyglina, \u00e1 veginum. \u00c9g keyri \u00e1fram \u00ed gegnum byggingarsv\u00e6\u00f0i me\u00f0 st\u00f3rum h\u00e1lfkl\u00e1ru\u00f0um h\u00f3tel- og verslunarbyggingum sem taka yfir \u00fats\u00fdni og mi\u00f0b\u00e6inn. Gler og steypa \u00ed miklu magni mynda ferk\u00f6ntu\u00f0 \u00f3pers\u00f3nuleg form sem hafa meira me\u00f0 gr\u00e6\u00f0gi borgarstj\u00f3rnar a\u00f0 gera en arkitekt\u00far gamla mi\u00f0b\u00e6jarins. \u00c9g finn b\u00edlast\u00e6\u00f0i r\u00e9tt hj\u00e1 kaffih\u00fasinu. \u00cd b\u00fa\u00f0arglugga vi\u00f0 hli\u00f0ina hangir hjarta \u00far rau\u00f0u plasti og undir hjartanu standa tveir mi\u00f0lungs st\u00f3rir gervisvanir horfandi framan \u00ed hvorn annan. Vi\u00f0 glugga kaffih\u00fassins sitja ma\u00f0ur og kona \u00e1 \u00fer\u00edtugsaldri sem horfa hvort \u00e1 anna\u00f0 eins og gervisvanapari\u00f0, d\u00e1leidd og frosin. \u00c1 me\u00f0an \u00e9g fylgist me\u00f0 kaffi\u00fej\u00f3ni fylla g\u00f6tum\u00e1l me\u00f0 \u00f3mj\u00f3lk heyri \u00e9g kunnuglega r\u00f6dd.<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00e6l N\u00edna,<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00e6 Bragi, segi \u00e9g og sn\u00fd h\u00f6f\u00f0inu \u00ed \u00e1tt til hans. Til hamingju me\u00f0 daginn, b\u00e6ti \u00e9g vi\u00f0 \u00e1n nokkurrar gle\u00f0i \u00ed r\u00f6ddinni. Bragi f\u00e6rir m\u00e9r bros \u00e1samt s\u00f6mulei\u00f0is svari og pantar kaffi. \u00c9g set lok \u00e1 g\u00f6tum\u00e1li\u00f0 og fer a\u00f0 dyrunum.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00edna, ertu a\u00f0 fl\u00fdta \u00fe\u00e9r?<\/p>\n\n\n\n<p>Nei, \u00e9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 f\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 reykja \u00e1\u00f0ur \u00e9g keyri heim.<\/p>\n\n\n\n<p>Sj\u00e1umst eftir sm\u00e1, segir Bragi og sn\u00fdr s\u00e9r aftur a\u00f0 afgrei\u00f0slumanninum til a\u00f0 kl\u00e1ra kaffivi\u00f0skipti s\u00edn. Um lei\u00f0 og \u00e9g kveiki \u00ed s\u00edgarettu byrja snj\u00f3korn a\u00f0 falla til jar\u00f0ar. Fyrst eru snj\u00f3kornin f\u00e1 og feimin svo sm\u00e1m saman fj\u00f6lgar \u00feeim og \u00feau st\u00e6kka en enginn vindur truflar komu \u00feeirra. Bragi kemur \u00fat me\u00f0 bollann sinn og vi\u00f0 st\u00f6ndum og st\u00f6rum b\u00e6\u00f0i tv\u00f6 \u00e1 \u00e1starskrauti\u00f0 \u00ed b\u00fa\u00f0arglugganum vi\u00f0 hli\u00f0ina.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd gamla daga veiddu \u00cdslendingar \u00e1lftir til matar, segir Bragi allt \u00ed einu.<\/p>\n\n\n\n<p>Bor\u00f0a\u00f0i f\u00f3lk svani?<\/p>\n\n\n\n<p>J\u00e1, \u00e9g hef lesi\u00f0 og heyrt s\u00f6gur um \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u00f3l\u00f6glegt \u00ed dag. \u00c1lftin er fri\u00f0u\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 sumir b\u00e6ndur s\u00e9u alls ekki \u00e1n\u00e6g\u00f0ir me\u00f0 \u00fea\u00f0. En \u00fea\u00f0 er vegna tj\u00f3ns \u00e1 t\u00fanum af v\u00f6ldum \u00e1lftanna, og g\u00e6sa reyndar l\u00edka.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 \u00feurfti \u00fe\u00e1 a\u00f0 drepa \u00fe\u00e6r alltaf \u00ed p\u00f6rum svo \u00fe\u00e6r endu\u00f0u ekki einmana e\u00f0a frekar einsvana, segi \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p>Einmitt, \u00fe\u00e6r velja s\u00e9r maka fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0, ekki eins og vi\u00f0, e\u00f0a sumir okkar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 heyrist hik \u00ed r\u00f6dd Braga og m\u00e9r s\u00fdnist a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 meira sem hann vill segja m\u00e9r fr\u00e1 en eftir greinilega langa \u00fe\u00f6gn bl\u00e6s hann a\u00f0eins s\u00edgarettureyknum \u00fat \u00far s\u00e9r og horfir \u00ed fjarskann. \u00c9g er alveg a\u00f0 drepast \u00far beinverkjum, segi \u00e9g til a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir frekari \u00fe\u00f6gn og <em>um hva\u00f0a suma ertu a\u00f0 tala <\/em>spurningunni sem mig langar a\u00f0 spyrja. Sj\u00e1umst \u00e1 morgun? spyr \u00e9g hann \u00ed sta\u00f0inn og dr\u00edf mig inn \u00ed b\u00edlinn minn sem byrja\u00f0ur er a\u00f0 hverfa \u00ed snj\u00f3num \u00e1 n\u00fd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">\u2042<\/p>\n\n\n\n<p>Vetrarmyrkri\u00f0 gefur eftir en \u00fea\u00f0 er enn langt \u00ed sumarhita. \u00c9g skil samt b\u00edlinn eftir heima og ganga \u00e1 vinnustofu m\u00edna. \u00dea\u00f0 er hvort e\u00f0 er ekki um langa lei\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. En \u00fea\u00f0 er leti \u00ed m\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 ganga \u00e1 m\u00f3ti k\u00f6ldum vindi og \u00e1 klaka sem myndast \u00e1 gangst\u00e9ttum tekur oft yfir umhverfisvakningu og almenna skynsemi um a\u00f0 hreyfa sig reglulega. \u00dea\u00f0 er reyndar \u00feurrt \u00e1 g\u00f6tunum \u00ed dag \u00fear sem allur snj\u00f3rinn \u00ed borginni br\u00e1\u00f0na\u00f0i n\u00fdlega. \u00c9g geng upp a\u00f0alg\u00f6tuna og m\u00e6ti varla kunnuglegu andliti. \u00c9g horfi me\u00f0 s\u00f6knu\u00f0i \u00ed \u00e1tt a\u00f0 byggingu sem var skj\u00f3l fyrir br\u00e9f og sendingar \u00ed hundra\u00f0 og fimmt\u00edu \u00e1r. \u00cd fr\u00e9ttunum kom fram a\u00f0 flutningur p\u00f3sth\u00fassins v\u00e6ri vegna sl\u00e6ms a\u00f0gengis, a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki n\u00f3g af b\u00edlast\u00e6\u00f0um vi\u00f0 P\u00f3sth\u00fasstr\u00e6ti. Svo var l\u00edka sagt a\u00f0 \u00e1 n\u00fdjum sta\u00f0 yr\u00f0i betri a\u00f0b\u00fana\u00f0ur starfsmanna. \u00c1 hverju \u00e1ri fj\u00f6lgar veitingah\u00fasum \u00ed verslunarg\u00f6tum mi\u00f0b\u00e6jarins og m\u00f6rku\u00f0um me\u00f0 \u00fativistafatna\u00f0i fyrir illa kl\u00e6ddu fer\u00f0amennina sem vilja endilega eiga prakt\u00edskan minjagrip fr\u00e1 nor\u00f0urheimskautslandi. \u00dea\u00f0 fj\u00f6lgar einnig klass\u00edskum minjagripab\u00fa\u00f0um sem flagga fl\u00edslundum og v\u00edkingahj\u00e1lmum \u00ed gluggum s\u00ednum. H\u00f3fstilltir t\u00faristar sem t\u00edma ekki a\u00f0 ey\u00f0a tug\u00fe\u00fasundum kr\u00f3na \u00ed \u00edslenskan regnjakka upp \u00e1 n\u00fdjasta m\u00f3\u00f0inn geta \u00ed sta\u00f0inn keypt segul me\u00f0 gamalli mynd af litla fiski\u00feorpinu sem Reykjav\u00edk var fyrir hundra\u00f0 \u00e1rum. \u00c1 Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edg fer \u00e9g framhj\u00e1 verkst\u00e6\u00f0i \u00farsmi\u00f0sins sem \u00feurfti a\u00f0 gefa sig fyrir hagna\u00f0ar\u00fer\u00f3uninni og stj\u00f3rnarleysi p\u00f3lit\u00edkusa. Flestum sm\u00e1verslunum og litlum verkst\u00e6\u00f0um \u00ed mi\u00f0b\u00e6num var loka\u00f0 e\u00f0a \u00feau neyddust til a\u00f0 flytja vegna uppsprengds leiguver\u00f0s. Eigandi upp\u00e1haldskaffih\u00fassins m\u00edns er sem betur fer eigandi r\u00fdmisins \u00feannig a\u00f0 hann \u00feurfti ekki a\u00f0 yfirgefa mi\u00f0b\u00e6jarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 eins og margir a\u00f0rir. \u00c1 kaffih\u00fasinu n\u00e6 \u00e9g \u00ed kaffiklippikort sem hangir vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 klippikortum annarra fastak\u00fanna sem borga fyrir tuttugu kaffibolla \u00ed einu \u00feannig a\u00f0 \u00ed m\u00e1nu\u00f0 e\u00f0a tvo geta \u00feeir gengi\u00f0 inn \u00e1 kaffih\u00fasi\u00f0 veskislausir og samt fengi\u00f0 kaffi. \u00c9g set kaffibollann minn og smj\u00f6rdeigshorn \u00e1 h\u00e1tt bor\u00f0 vi\u00f0 spegilvegg \u00fear sem bl\u00f6\u00f0in liggja. Fasteignas\u00f6luaugl\u00fdsingar sem \u00e9g rekst \u00e1 \u00ed einu bla\u00f0anna kalla fram \u00f3brag\u00f0 \u00ed munninn. Flokkahatur \u00ed p\u00f3lit\u00edk og blekkingatal bla\u00f0amanna \u00ed greinum \u00e1 n\u00e6stu s\u00ed\u00f0um hj\u00e1lpar m\u00e9r a\u00f0 l\u00e1ta bl\u00f6\u00f0in alveg \u00ed fri\u00f0i. \u00c9g s\u00f6tra kaffi\u00f0 og gl\u00e1pi a\u00f0 dyrunum \u00ed von um a\u00f0 sj\u00e1 kaffif\u00e9lagann minn. \u00c9g ver\u00f0 ekki fyrir vonbrig\u00f0um \u00fear sem Bragi kemur inn \u00e1\u00f0ur en \u00e9g er b\u00fain me\u00f0 kaffi\u00f0. \u00c1 sama t\u00edma og kaffi\u00f0 hans Braga er tilb\u00fai\u00f0 losna tv\u00f6 s\u00e6ti vi\u00f0 gluggann sem eru \u00ed rauninni einu s\u00e6tin \u00e1 kaffih\u00fasinu. Vi\u00f0 gr\u00edpum t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 og f\u00e6rum okkur a\u00f0 glugganum. Bragi segir m\u00e9r fr\u00e1 sumarb\u00fasta\u00f0arfer\u00f0 sinni \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku, hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var gott a\u00f0 fara \u00fat \u00far b\u00e6num \u00ed sm\u00e1 stund og \u00feurfa ekki a\u00f0 vera \u00ed s\u00edma \u00ed nokkra daga, vera virkilega einn. Vi\u00f0 t\u00f6lum l\u00edka um enn eina l\u00e6g\u00f0 \u00e1 lei\u00f0inni og um veturinn sem tekur aldrei enda. \u00c9g segi honum fr\u00e1 sk\u00e1lds\u00f6gu sem \u00e9g las um daginn, hann s\u00fdnir m\u00e9r myndir og myndband sem hann t\u00f3k \u00ed sumarb\u00fasta\u00f0num. Vi\u00f0 hl\u00e6jum a\u00f0 self\u00edmyndb\u00f6ndum Braga \u00fear sem hann \u00fatsk\u00fdrir me\u00f0 miklum h\u00famor fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r hvernig \u00e1 a\u00f0 kveikja \u00ed kam\u00ednu og opna v\u00ednfl\u00f6sku \u00e1n tappatogara. Svo er klukkan or\u00f0in of margt fyrir mig til a\u00f0 halda \u00e1fram spjallinu \u00fe\u00f3 a\u00f0 mig langi alls ekki a\u00f0 h\u00e6tta. En \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 fara \u00ed vinnuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">\u2042<\/p>\n\n\n\n<p>Mars. Yfirvaraskegg og framtalsskil. \u00dea\u00f0 gengur n\u00e6stum \u00fev\u00ed betur me\u00f0 skeggi\u00f0 en hitt. \u00de\u00f3 a\u00f0 X-kynlitningurinn hafi r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed sameiningu kynfruma foreldra minna. \u00c9g g\u00e6ti kannski n\u00fdtt h\u00e1rv\u00f6xtinn framan \u00ed m\u00e9r til a\u00f0 s\u00fdna karlm\u00f6nnum sem greinast me\u00f0 krabbamein samst\u00f6\u00f0u. En \u00e9g get ekki lengur horft framhj\u00e1 \u00f3kl\u00e1ra\u00f0ri skattsk\u00fdrslunni. A\u00f0 vinna sem verkataki og laun\u00feegi til skiptis fl\u00e6kir tilt\u00f6lulega m\u00e1li\u00f0 \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fatreikningi \u00e1 \u00e1rlegri innkomu. A\u00f0 vinna ekki n\u00f3g til a\u00f0 t\u00edma a\u00f0 borga einhverjum \u00f6\u00f0rum fyrir \u00fatreikninginn endar me\u00f0 pirringi og h\u00f6fu\u00f0verk \u00e1r eftir \u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<p>M\u00edgrenimars \u00ed sta\u00f0inn fyrir mottumars, tilkynni \u00e9g Braga yfir kaffibolla, ert \u00fe\u00fa b\u00fainn a\u00f0 skila framtali?<\/p>\n\n\n\n<p>Ekki enn\u00fe\u00e1, svarar Bragi og b\u00edtur \u00ed s\u00e6tabrau\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g er reyndar b\u00fain a\u00f0 fylla \u00fat flest en \u00e9g er svo stressu\u00f0 um a\u00f0 hafa sk\u00e1lda\u00f0 allt of miki\u00f0 \u00ed nokkrum reitum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g \u00fearf einmitt a\u00f0 k\u00edkja \u00e1 fr\u00e6nda \u00e1 eftir, skila s\u00ed\u00f0ustum reikningunum til hans, b\u00e6tir Bragi vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Fr\u00e6nda?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g s\u00e9 m\u00f3\u00f0ur m\u00edna a\u00f0 setja gleraugun \u00e1 sig og fara einbeitt yfir allar sk\u00fdrslur fr\u00e6ndf\u00f3lksins. Reyktungur r\u00edsa upp \u00far \u00f6skubakka sem stendur vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 bla\u00f0abunka me\u00f0 endalausum bl\u00e1um og gr\u00e6num reitum. Myndin af m\u00f3\u00f0ur minni hverfur um lei\u00f0 og Bragi heldur \u00e1fram a\u00f0 tala. \u00c9g er komin aftur \u00ed \u00edslenskan veruleika sem m\u00f3\u00f0ir m\u00edn hefur aldrei kynnst.<\/p>\n\n\n\n<p>Hann er b\u00f3khaldari, hann J\u00f3n fr\u00e6ndi, hann er alveg fr\u00e1b\u00e6r. \u00c9g er nokku\u00f0 viss um a\u00f0 hann g\u00e6ti k\u00edkt \u00e1 sk\u00fdrsluna \u00fe\u00edna og sko\u00f0a\u00f0 framtalsn\u00fdyr\u00f0i \u00fe\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p>Heldur\u00f0u a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki n\u00f3g a\u00f0 gera hj\u00e1 honum? spyr \u00e9g feimin.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 er alltaf fullt a\u00f0 gera hj\u00e1 honum samt hefur hann alltaf t\u00edma, segir Bragi me\u00f0 bros \u00e1 v\u00f6rum s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00fa g\u00e6tir \u00fe\u00e1 kannski spurt hann hvort hann v\u00e6ri til \u00ed a\u00f0 fara yfir framtali\u00f0 mitt og hven\u00e6r \u00e9g g\u00e6ti fari\u00f0 til hans. Ef hann hefur t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p>Bragi stendur upp me\u00f0 kaffibolla \u00ed annarri hendinni og s\u00edgarettu \u00ed hinni. \u00c9g stend l\u00edka upp og fylgi honum \u00fat.<\/p>\n\n\n\n<p>Hefur \u00fe\u00fa t\u00edma \u00ed h\u00e1deginu \u00ed dag? spyr hann allt \u00ed einu.<\/p>\n\n\n\n<p>J\u00e1, af hverju?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g s\u00e6ki \u00feig \u00fe\u00e1 \u00ed h\u00e1deginu og vi\u00f0 f\u00f6rum saman til fr\u00e6nda. Hvert viltu a\u00f0 \u00e9g s\u00e6ki \u00feig?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00d3\u00f0instorg.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g horfi \u00e1 Braga og reyni a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 hva\u00f0 hafi gerst. \u00c9g er hissa hva\u00f0 \u00e9g \u00fe\u00e1\u00f0i bo\u00f0 hans \u00e1n m\u00f3tm\u00e6la. Var \u00fea\u00f0 vegna \u00feess hve e\u00f0lilegt \u00fea\u00f0 hlj\u00f3ma\u00f0i e\u00f0a var \u00fea\u00f0 \u00e1kve\u00f0nin \u00ed r\u00f6dd Braga e\u00f0a b\u00e6\u00f0i samt\u00edmis?<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 sj\u00e1umst \u00e1 eftir, korter yfir t\u00f3lf, segir Bragi og skilur mig eftir me\u00f0 hugsunum m\u00ednum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">\u2042<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g k\u00edki \u00e1 klukkuna \u00ed s\u00edmanum. Tuttugu m\u00edn\u00fatur yfir t\u00f3lf. \u00c9g stend \u00e1 \u00d3\u00f0instorgi me\u00f0 fart\u00f6lvu \u00ed t\u00f6skunni \u00f3viss um hvort \u00e9g eigi a\u00f0 b\u00ed\u00f0a lengur e\u00f0a fara aftur inn \u00e1 vinnustofuna. \u00cd sama mund s\u00e9 \u00e9g gamlan Grand Vitara h\u00e6gja \u00e1 s\u00e9r og st\u00f6\u00f0vast vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p>Afsaka\u00f0u bi\u00f0ina, Bragi opnar far\u00feegahur\u00f0ina a\u00f0 innan, \u00e9g var a\u00f0 leita a\u00f0 reikningum, h\u00e9lt a\u00f0 allt v\u00e6ri \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0 en svo var au\u00f0vita\u00f0 ekki.<\/p>\n\n\n\n<p>Allt \u00ed g\u00f3\u00f0u, \u00e9g sest inn \u00ed b\u00edlinn og vi\u00f0 keyrum af sta\u00f0. \u00cd gegnum einstefnug\u00f6tur mi\u00f0b\u00e6jarins og rau\u00f0 lj\u00f3s Miklubrautar hlusta \u00e9g \u00e1 Braga tala \u00ed s\u00edmann vi\u00f0 einhvern sem vir\u00f0ist vera d\u00f3ttir hans.<\/p>\n\n\n\n<p>Fyrirgef\u00f0u, \u00e9g \u00feurfti a\u00f0 taka \u00feetta s\u00edmtal. D\u00f3ttir m\u00edn er b\u00fain a\u00f0 vera \u00ed s\u00edfelldu uppn\u00e1mi s\u00ed\u00f0an \u00e9g flutti \u00fat.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 keyrum fram hj\u00e1 \u00e1ttat\u00eduk\u00edl\u00f3metrahra\u00f0a skilti og \u00e9g \u00e1tta mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Bragi hafi ekki minnst neitt \u00e1 heimilisst\u00f6\u00f0u s\u00edna vi\u00f0 mig fyrr en n\u00fana. \u00c9g hef reyndar ekki spurt heldur. Kannski hefur hann reynt a\u00f0 segja m\u00e9r \u00fea\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 r\u00e6ddum \u00e1starl\u00edf svana en \u00e9g l\u00e9t mig hverfa \u00ed fl\u00fdti heim. Kannski var hann a\u00f0 reyna a\u00f0 segja m\u00e9r fr\u00e1 konunni sinni sem var a\u00f0 halda fram hj\u00e1 honum e\u00f0a einhverju sem hann haf\u00f0i gert sem leiddi a\u00f0 \u00feessum flutningum. Steypuferningar \u00edb\u00fa\u00f0ablokka og verslana birtast og hverfa jafn\u00f3\u00f0um b\u00e1\u00f0um megin vi\u00f0 \u00feref\u00f6ldu akbrautina. Mig langar a\u00f0 spyrja hven\u00e6r hann flutti \u00fat og hvers vegna en \u00e9g geri \u00fea\u00f0 ekki. Eitthva\u00f0 \u00ed m\u00e9r segir m\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki r\u00e9tti t\u00edminn til \u00feess. Mig langar a\u00f0 segja eitthva\u00f0 uppbyggjandi e\u00f0a k\u00e6rleiksfullt en \u00ed sta\u00f0inn segi \u00e9g a\u00f0eins,<\/p>\n\n\n\n<p>J\u00e1, \u00e9g skil.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd fjarl\u00e6g\u00f0 glitra v\u00edkurv\u00f6tn. Kranar og flutningag\u00e1mar eru \u00e1 st\u00e6r\u00f0 leikfangakubba. Bl\u00e1ir, m\u00f3rau\u00f0ir, hv\u00edtir. Uppi \u00ed \u00c1rt\u00fansbrekku r\u00eds Esja, og M\u00f3skar\u00f0shn\u00fakar og Akranesfj\u00f6ll. \u00cd fjallshl\u00ed\u00f0um \u00feeirra s\u00e9 \u00e9g snj\u00f3skafla sem eru \u00f6ll \u00ed lagi eins og brosti\u00f0 hjarta Braga, barnsm\u00f3\u00f0ur hans, sj\u00f6 \u00e1ra d\u00f3ttur \u00feeirra, mitt eigi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Hvar er skrifstofa fr\u00e6nda \u00fe\u00edns? spyr \u00e9g Braga \u00e1 me\u00f0an hann beygir inn \u00e1 gr\u00e1tt H\u00f6f\u00f0asv\u00e6\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan er \u00e1 bak vi\u00f0 bogabygginguna en \u00fea\u00f0 er algj\u00f6r kr\u00f3kalei\u00f0 a\u00f0 komast \u00feanga\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Ertu b\u00fainn a\u00f0 vera lengi me\u00f0 \u00feinn eigin rekstur?<\/p>\n\n\n\n<p>Bragi segir m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed hvernig hann bygg\u00f0i upp fyrirt\u00e6ki\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00feremur \u00e1rum og hva\u00f0 fr\u00e6ndi hans hafi veri\u00f0 duglegur a\u00f0 passa upp \u00e1 skattpeningana.<\/p>\n\n\n\n<p>Skrifstofa fr\u00e6ndans er hv\u00edt og l\u00edtil, me\u00f0 \u00f3pers\u00f3nulegum h\u00fasg\u00f6gnum og fj\u00f6lskyldumynd vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 st\u00f3rum t\u00f6lvuskj\u00e1. En fr\u00e6ndi Braga er hl\u00fdr og me\u00f0 st\u00f3rt hjarta. Hann sko\u00f0ar framtali\u00f0 mitt og lagar tvennt \u00e1 n\u00f3inu en neitar a\u00f0 f\u00e1 nokku\u00f0 greitt fyrir \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deetta var ekki neitt, segir hann brosandi, vilji\u00f0 \u00fei\u00f0 kaffi?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g af\u00feakka kurteislega og afsaka sj\u00e1lfa mig \u00fear sem s\u00edminn minn hringir. \u00c9g fer \u00fat \u00e1 gang til a\u00f0 svara.<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00e6l N\u00edna, r\u00f6dd fyrrverandi eiganda kattarins, \u00f3mar \u00ed s\u00edmanum, getum vi\u00f0 tala\u00f0 a\u00f0eins saman?<\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0eins, \u00e9g er hj\u00e1 b\u00f3khaldara.<\/p>\n\n\n\n<p>Ertu komin me\u00f0 b\u00f3khaldara?<\/p>\n\n\n\n<p>Nei, j\u00e1, \u00e9g hugsa me\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g hafi engan \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra sm\u00e1atri\u00f0i hva\u00f0 var\u00f0ar framtali\u00f0 mitt og fr\u00e6nda Braga fyrir manninum sem skildi mig eftir me\u00f0 brosti\u00f0 hjarta og k\u00f6ttinn, tvisvar. \u00de\u00f3 a\u00f0 \u00e9g hafi ekkert \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed a\u00f0 hann skyldi skilja k\u00f6ttinn eftir. \u00c9g veit ekki hvers vegna \u00e9g svara honum heldur, en \u00e9g geri \u00fea\u00f0, n\u00e6stum \u00fev\u00ed \u00ed hvert skipti sem hann hringir \u00ed mig. \u00c9g hlusta \u00e1 hann og me\u00f0 hverju or\u00f0i gefur verndarbjarg sem hefur myndast \u00ed kringum hjarta\u00f0 mitt eftir undan tilfinningahafi. Hur\u00f0in a\u00f0 skrifstofunni opnast og Bragi \u00e1samt fr\u00e6nda birtast \u00ed g\u00e6ttinni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g heyri \u00ed \u00fe\u00e9r betur \u00e1 eftir, \u00e9g \u00fearf a\u00f0 fara. \u00c9g set s\u00edmann \u00ed vasann og fer n\u00e6r hur\u00f0inni til a\u00f0 kve\u00f0ja b\u00f3khaldarann og \u00feakka honum einu sinni enn fyrir hj\u00e1lpina. Um lei\u00f0 og Bragi opnar b\u00edlinn hringir einhver \u00ed hann sem vir\u00f0ist \u00ed \u00feetta skipti vera barnsm\u00f3\u00f0ir hans. Hann segir hlj\u00f3\u00f0laust <em>afsaka\u00f0u <\/em>\u00ed m\u00edna \u00e1tt \u00e1n \u00feess a\u00f0 gera s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er fegin a\u00f0 hann s\u00e9 \u00ed s\u00edmanum. \u00c9g svara l\u00edka <em>allt \u00ed lagi <\/em>\u00e1 sama hlj\u00f3\u00f0lausa h\u00e1tt og set heyrnat\u00f3l \u00ed eyrun. \u00c9g horfi \u00ed gegnum b\u00edlr\u00fa\u00f0una \u00e1 \u00fathverfi og sj\u00f3ndeildarhring hafsins. Vi\u00f0 Eir\u00edksg\u00f6tu leggur Bragi s\u00edmann fr\u00e1 s\u00e9r. \u00c9g slekk l\u00edka \u00e1 t\u00f3nlistinni og vi\u00f0 skiptumst \u00e1 nokkrum afsakandi or\u00f0um um a\u00f0 hafa veri\u00f0 svo miki\u00f0 \u00ed s\u00edmanum.<\/p>\n\n\n\n<p>Takk fyrir a\u00f0 fara me\u00f0 mig til fr\u00e6nda \u00fe\u00edns. \u00c9g get loksins anda\u00f0 l\u00e9ttar aftur, segi \u00e9g vi\u00f0 Braga \u00feegar hann st\u00f6\u00f0var b\u00edlinn \u00e1 \u00d3\u00f0instorgi, vi\u00f0 sj\u00e1umst.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 gerum \u00fea\u00f0, segir Bragi upptekinn vi\u00f0 hugsanir s\u00ednar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00f3 a\u00f0 marsm\u00e1nu\u00f0ur taki br\u00e1\u00f0um enda skellur enn \u00f6\u00f0ru hverju \u00e1 stormur. Snj\u00f3koma og svell taka yfir borgina \u00ed tvo daga svo hl\u00fdnar og hann rignir \u00fear til allt br\u00e1\u00f0nar \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi. \u00cd n\u00e6stu tvo s\u00f3larhringa getur ma\u00f0ur r\u00e9tt \u00far s\u00e9r og gengi\u00f0 \u00fati \u00e1n \u00feess a\u00f0 b\u00f6lva yfir vetrinum og vorkenna sj\u00e1lfum s\u00e9r. Svo \u00e1 fimmta e\u00f0a sj\u00f6tta degi kemur \u00f6nnur l\u00e6g\u00f0 og \u00f3ve\u00f0ur tekur vi\u00f0 \u00e1 n\u00fd. \u00dea\u00f0 er reyndar ekkert \u00f3e\u00f0lilegt vi\u00f0 sl\u00edkt ve\u00f0ur \u00e1 \u00feeim \u00e1rst\u00edma. \u00dea\u00f0 eru enn \u00ferj\u00e1r vikur \u00ed sumardaginn fyrsta sem hvort e\u00f0 er er engin sta\u00f0festing \u00e1 a\u00f0 s\u00f3lardagar \u00e1n \u00farkomu ver\u00f0i r\u00edkjandi. En \u00ed dag er einn af \u00feessum betri millid\u00f6gum me\u00f0 vindhra\u00f0a varla upp \u00e1 \u00e1tta metra \u00e1 sek\u00fandu og \u00farkomulausum sk\u00fdjum. \u00cd tilefni millidagsins \u00e1kve\u00f0 \u00e9g a\u00f0 yfirgefa \u00edb\u00fa\u00f0ina m\u00edna r\u00famlega klukkan korter \u00ed \u00e1tta sem er h\u00e1lft\u00edma \u00e1 undan venjulegri \u00e1\u00e6tlun. \u00c9g skipti l\u00edka um lei\u00f0 sem \u00e9g fer yfirleitt og geng a\u00f0 gamla kirkjugar\u00f0inum. \u00c1 bak vi\u00f0 hli\u00f0 kirkjugar\u00f0sins b\u00ed\u00f0ur m\u00edn annar heimur. \u00cd grafa- og tr\u00e9g\u00f6ngunum gleymi \u00e9g \u00f6llum vandam\u00e1lum og \u00e1hyggjum. \u00c9g les n\u00f6fn \u00feeirra sem voru einu sinni eins og \u00e9g a\u00f0 fara \u00ed vinnuna \u00ed gegnum kirkjugar\u00f0inn. \u00deeir voru l\u00edka a\u00f0 horfa \u00e1 mosa vaxa \u00e1 legsteinum, b\u00ed\u00f0a eftir bj\u00f6rkum og reynitrj\u00e1m a\u00f0 vakna undan l\u00f6ngum vetri. Svo liggja \u00feeir n\u00fana kyrrir og l\u00edflausir a\u00f0 breytast \u00ed \u00f6sku og beinahr\u00fagu. \u00c9g geng \u00fat \u00far gar\u00f0inum vi\u00f0 Su\u00f0urg\u00f6tu og held \u00e1fram ni\u00f0ur Skoth\u00fasveg. \u00c1 br\u00fa \u00e1 Tj\u00f6rninni stoppa \u00e9g \u00ed sm\u00e1 stund. \u00c9g fylgist me\u00f0 m\u00e1fum taka hringi fyrir ofan vatni\u00f0. \u00c9g horfi \u00e1 v\u00ed\u00f0mynd mi\u00f0b\u00e6jarins. Hvert skipti sem \u00e9g stend \u00e1 \u00feessari br\u00fa l\u00ed\u00f0ur m\u00e9r eins og \u00e9g s\u00e9 a\u00f0eins \u00e1horfandi l\u00edfsins sem gerist innan og \u00e1 milli margra bygginga sem sj\u00e1st svo vel h\u00e9\u00f0an. Og a\u00f0 \u00ed \u00f6llum b\u00edlum sem fara framhj\u00e1 m\u00e9r \u00feegar \u00e9g geng \u00e1fram a\u00f0 umfer\u00f0arlj\u00f3sum vi\u00f0 S\u00f3leyjarg\u00f6tu sitji f\u00f3lk sem, \u00f3l\u00edkt m\u00e9r, er me\u00f0 alv\u00f6ru pl\u00f6n og alv\u00f6ru \u00e1fangasta\u00f0i og a\u00f0 allt sem \u00feetta f\u00f3lk geri s\u00e9 mikilv\u00e6gt og meiki sens. \u00c1 me\u00f0an \u00e9g sn\u00fdst \u00ed hringi l\u00edkt og m\u00e1farnir. \u00c1\u00e6tlunarlaus, haldin einfaldri frumst\u00e6\u00f0ri l\u00f6ngun um a\u00f0 f\u00e1 m\u00e9r kaffi \u00far n\u00fdm\u00f6lu\u00f0um kaffibaunum, hitta Braga, tala um ekki neitt, f\u00e1 m\u00e9r s\u00edgarettu. \u00c9g geng upp \u00deingholtsbrekku og stari \u00ed glugga g\u00f6mlu h\u00fasanna og \u00e1 fali\u00f0 l\u00edf \u00e1 bak vi\u00f0 gluggana. \u00c9g hef alltaf gert \u00feetta s\u00ed\u00f0an \u00e9g man, alls sta\u00f0ar sem \u00e9g bj\u00f3. Mig langa\u00f0i oft a\u00f0 banka upp \u00e1 hj\u00e1 \u00f3kunnugu f\u00f3lki og bj\u00f3\u00f0a sj\u00e1lfri m\u00e9r inn heim til \u00feeirra, a\u00f0 sitja vi\u00f0 \u00f3kunnuglegt eldh\u00fasbor\u00f0 me\u00f0 rj\u00fakandi kaffi \u00e1 k\u00f6nnunni. \u00c9g vildi vita hvernig \u00fea\u00f0 er a\u00f0 tilheyra, a\u00f0 vera me\u00f0, \u00ed alv\u00f6ru. \u00c9g opna glerdyrnar a\u00f0 kaffih\u00fasinu og s\u00e9 Braga a\u00f0 sn\u00faa vi\u00f0 bla\u00f0s\u00ed\u00f0u \u00ed b\u00f3k.<\/p>\n\n\n\n<p>Loksins gott ve\u00f0ur, segi \u00e9g vi\u00f0 kaffi\u00fej\u00f3n \u00e1 me\u00f0an \u00e9g r\u00e9tti \u00fej\u00f3ninum klippikorti\u00f0 mitt.<\/p>\n\n\n\n<p>Heldur betur, segir Bragi og horfir upp \u00far b\u00f3kinni sinni. F\u00f3rstu \u00ed g\u00f6ngut\u00far?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g kinka kollinum og brosi til hans.<\/p>\n\n\n\n<p>En \u00fe\u00fa?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g \u00e6tla \u00e1 eftir, \u00feegar \u00e9g er b\u00fainn me\u00f0 kaffi\u00f0. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 sleppa a\u00f0 fara \u00ed vinnuna \u00ed dag.<\/p>\n\n\n\n<p>Ekki sl\u00e6m hugmynd. \u00dea\u00f0 er algj\u00f6r synd a\u00f0 sitja inni \u00feessu f\u00e1u \u00f3ve\u00f0urslausu daga.<\/p>\n\n\n\n<p>Viltu ekki a\u00f0 sleppa \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00ed vinnuna l\u00edka og koma me\u00f0 m\u00e9r \u00ed g\u00f6ngut\u00far?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g get \u00fea\u00f0 ekki, \u00fev\u00ed mi\u00f0ur, \u00e9g \u00fearf a\u00f0 m\u00e6ta \u00e1 fund \u00ed dag.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 Bragi f\u00f6rum \u00fat saman til a\u00f0 f\u00e1 okkur a\u00f0 reykja og h\u00f6ldum \u00e1fram a\u00f0 tala a\u00f0eins um millidaganna. Svo \u00feegar Bragi er b\u00fainn me\u00f0 s\u00edgarettuna s\u00edna, \u00f3skar hann m\u00e9r g\u00f3\u00f0s fundar og hverfur handan vi\u00f0 horni\u00f0. \u00c9g fer aftur inn til a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti tilb\u00fanum kaffibolla m\u00ednum, hugsandi um hva\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri til \u00ed a\u00f0 fresta fundinum og fara me\u00f0 Braga a\u00f0 r\u00f6lta \u00ed hverfinu. En fyrir utan a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki mj\u00f6g skynsamlegt og fagmannlegt \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 l\u00edka of seint. Bragi er farinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">\u2042<\/p>\n\n\n\n<p><em>Loka\u00f0 t\u00edmabundi\u00f0 vegna k\u00f3r\u00f3nufaraldurs<\/em>. Hv\u00edtt tilkynningarbla\u00f0 hangir \u00ed glugga upp\u00e1haldskaffih\u00fassins m\u00edns. S\u00f3lin sk\u00edn \u00f3feimin \u00e1 g\u00f6tuna og \u00f3\u00e1kve\u00f0na mig. Hvert fer \u00e9g? Laugardagsmorgunn \u00ed allri sinni nekt fullur af valm\u00f6guleikum og vonbrig\u00f0um. Anna\u00f0hvort get \u00e9g fari\u00f0 heim e\u00f0a leita\u00f0 a\u00f0 \u00f6\u00f0ru kaffih\u00fasi, st\u00e6rra og h\u00e1v\u00e6rara, l\u00edklega me\u00f0 hugsj\u00f3namiklum einstaklingum sem h\u00f3past \u00ed kringum bor\u00f0 til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a sams\u00e6riskenningar og gildi b\u00f3lusetninga. Hvergi annars sta\u00f0ar \u00ed borginni finnst eins l\u00edti\u00f0 og \u00fe\u00e6gilegt kaffih\u00fas sem b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1 f\u00ednasta kaffi en engar margradda umr\u00e6\u00f0ur. \u00c9g stend \u00e1fram \u00e1 \u00f6rgangst\u00e9ttinni sem er \u00ed r\u00e9ttu hlutfalli vi\u00f0 r\u00fdmi kaffih\u00fassins. Eftir g\u00f3\u00f0a stund sest \u00e9g \u00e1 almenningsbekk hinum megin vi\u00f0 kaffih\u00fasi\u00f0 og kveiki \u00ed s\u00edgarettu. \u00c9g lygni augunum og leyfi s\u00f3linni a\u00f0 leika s\u00e9r a\u00f0 augnlokunum. Rau\u00f0ur, appels\u00ednugulur, gulur, flekk\u00f3ttur rau\u00f0ur. Kalt. \u00c9g opna augun. Einsamalt sk\u00fd b\u00fai\u00f0 a\u00f0 taka yfir s\u00f3larlj\u00f3si\u00f0. \u00c9g drep \u00ed s\u00edgarettunni, \u00e1kve\u00f0in \u00ed a\u00f0 fara heim. \u00cd gegnum \u00deingholtin r\u00f6lti \u00e9g ni\u00f0ur brekku beint a\u00f0 almenningsgar\u00f0i. Sk\u00fdi\u00f0 yfirgaf kuldaleik og \u00e9g finn aftur fyrir s\u00f3largeislum. \u00c9g geng me\u00f0fram tj\u00f6rninni, m\u00e6ti hundaf\u00f3lki og fer\u00f0am\u00f6nnum. Kirsuberjatr\u00e9n eru byrju\u00f0 a\u00f0 bl\u00f3mstra. \u00dea\u00f0 styttist \u00ed Hanami. \u00c9g hlakka til lautarfer\u00f0ar \u00fear sem \u00edslensk-japanska f\u00e9lagi\u00f0 mun eflaust vera me\u00f0 skemmtiatri\u00f0i og hressingu a\u00f0 jap\u00f6nskum si\u00f0. L\u00edkt og \u00ed fyrra og hittifyrra. Kannski g\u00e6ti g\u00e6ti kannski bo\u00f0i\u00f0 Braga me\u00f0. E\u00f0a bara nefnt vi\u00f0 hann a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i opin samkoma undir kirsuberjatrj\u00e1m og gaman yr\u00f0i a\u00f0 sj\u00e1 hann. \u00c9g vil ekki a\u00f0 hann haldi a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 a\u00f0 reyna vi\u00f0 hann \u00fe\u00f3 a\u00f0 m\u00e9r finnist hann mj\u00f6g skemmtilegur og a\u00f0la\u00f0andi. M\u00e9r s\u00fdnist a\u00f0 vi\u00f0 Bragi s\u00e9um b\u00e6\u00f0i tv\u00f6 \u00ed einhvers konar sambandslimb\u00f3i. Bragi er n\u00fdb\u00fainn a\u00f0 skilja vi\u00f0 barnsm\u00f3\u00f0ur s\u00edna og \u00e9g er enn\u00fe\u00e1 a\u00f0 tala vi\u00f0 fyrrverandi k\u00e6rasta, \u00f3\u00e1kve\u00f0in hva\u00f0 \u00e9g vilji fr\u00e1 honum, ringlu\u00f0 hva\u00f0 hann vilji fr\u00e1 m\u00e9r. \u00c9g v\u00e6ri samt til \u00ed a\u00f0 kynnast Braga betur og \u00e1 annan en tilviljunarkenndan h\u00e1tt. R\u00e9tt hj\u00e1 r\u00e1\u00f0h\u00fasinu h\u00e6tti \u00e9g vi\u00f0 a\u00f0 fara strax heim. L\u00f6ngunin \u00ed kaffi er of sterk, \u00e9g er l\u00edka sv\u00f6ng. \u00c9g geng \u00e1 br\u00fanni \u00ed \u00e1tt a\u00f0 byggingu sem stendur vi\u00f0 Vonarstr\u00e6ti. Fyrir hundra\u00f0 \u00e1rum var Vonarstr\u00e6ti s\u00e9rstaklega erfitt yfirfer\u00f0ar vegna bleytu, \u00ed dag er \u00fea\u00f0 erfitt vegna \u00f3endanlegra framkv\u00e6mda og r\u00fatuumfer\u00f0ar. \u00c9g opna \u00feungar dyrnar og geng inn \u00ed I\u00f0n\u00f3. Kaffi- og matarlykt t\u00e6lir mig \u00e1 stundinni til a\u00f0 velja m\u00e9r s\u00e6ti vi\u00f0 glugga \u00e1n \u00feess a\u00f0 athuga e\u00f0a spyrja nokkurs fyrst. \u00c9g \u00fearf ekki a\u00f0 b\u00ed\u00f0a lengi eftir \u00fej\u00f3nustu og a\u00f0 auki brosir fallega manneskjan til m\u00edn \u00e1 me\u00f0an h\u00fan tekur vi\u00f0 p\u00f6ntun minni, sem \u00ed \u00feessari borg gerist jafn oft og s\u00f3lskin \u00e1 veturna. Eftir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 m\u00e9r kaffi pr\u00f3fa \u00e9g einn f\u00e1u r\u00e9ttanna \u00e1 matse\u00f0linum. \u00cd fyrsta skipti lengi finnst m\u00e9r maturinn vera \u00ed jafnv\u00e6gi, ekki of saltur, ekki of brag\u00f0sterkur, ekki me\u00f0 neinni s\u00f3su e\u00f0a gr\u00e6nmetismauki. Me\u00f0alst\u00f3rt lambastykki \u00ed mi\u00f0ju sk\u00e1lar, umkringt alls konar gr\u00e6nmeti, so\u00f0nu, s\u00faru, fersku. \u00c9g er b\u00e6\u00f0i hissa og gl\u00f6\u00f0 \u00feegar \u00e9g finn undir kj\u00f6tinu h\u00fd\u00f0ishr\u00edsgrj\u00f3n. Skammturinn samsvarar fullkomlega h\u00e1degismatar\u00fe\u00f6rfum m\u00ednum \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 enn klukkut\u00edmi \u00ed h\u00e1degi\u00f0. \u00c9g f\u00e6 m\u00e9r \u00e1b\u00f3t \u00e1 kaffi\u00f0 og horfi s\u00f6dd \u00e1 \u00f6mmur, afa og barnab\u00f6rn a\u00f0 gefa fuglum s\u00ed\u00f0ustu brau\u00f0snei\u00f0arnar fyrir sumari\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">\u2042<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g geng um h\u00e1lft\u00f3mar g\u00f6tur borgarinnar og fylgist me\u00f0 hundaf\u00f3lki, einum og einum manni sem sv\u00edfur um eins og draugur me\u00f0 dapurlegan svip og t\u00f3mt augnar\u00e1\u00f0. Flest kaffih\u00fas eru loku\u00f0, \u00fear \u00e1 me\u00f0al mitt vegna \u00feess a\u00f0 r\u00fdmi kaffih\u00fassins b\u00fd\u00f0ur ekki upp \u00e1 tveggja metra fjarl\u00e6g\u00f0 \u00e1 milli manna. Tveir metrar til a\u00f0 minnka h\u00e6ttu \u00e1 smiti. Tveir metrar til a\u00f0 hl\u00faa a\u00f0 l\u00edfi \u00feeirra vi\u00f0kv\u00e6mustu. \u00c9g geng hra\u00f0ar til a\u00f0 losa mig vi\u00f0 fyrirsagnir fr\u00e9tta um atvinnuleysi, s\u00f3ttkv\u00ed og hand\u00fevott sem blikka \u00ed h\u00f6f\u00f0inu \u00e1 m\u00e9r vi\u00f0 hvert skref. \u00c9g er l\u00f6ngu h\u00e6tt a\u00f0 lesa hva\u00f0 stendur undir fyrirs\u00f6gnunum og t\u00f6lulegar uppl\u00fdsingar um hve margir hafi smitast fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed g\u00e6r, um hve miki\u00f0 hafi fj\u00f6lga\u00f0 \u00e1 gj\u00f6rg\u00e6slu Landsp\u00edtalans e\u00f0a um hversu margir l\u00e9tust af v\u00f6ldum veirunnar s\u00ed\u00f0asta s\u00f3larhringinn \u00ed heiminum. \u00c9g geng enn hra\u00f0ar til a\u00f0 gleyma \u00feeim k\u00f3r\u00f3nuveruleika sem vi\u00f0 b\u00faum \u00ed. En k\u00f3r\u00f3nuveiran fylgir m\u00e9r alls sta\u00f0ar sem \u00e9g fer. \u00c9g s\u00e9 hana \u00ed kyrr\u00f0 borgarinnar, \u00ed einnota g\u00famm\u00edh\u00f6nskum \u00e1 h\u00f6ndum \u00feeirra f\u00e1u sem \u00e9g m\u00e6ti \u00ed matarb\u00fa\u00f0um, \u00ed endurspeglun minni \u00ed plexigleri sem var sett upp vi\u00f0 kassa til a\u00f0 verjast smiti. \u00c9g fer heim og \u00fev\u00e6 m\u00e9r um hendur, \u00e9g geng fr\u00e1 matv\u00f6rum sem \u00e9g keypti og \u00fev\u00e6 m\u00e9r um hendur. \u00c9g helli upp \u00e1 kaffi, tek t\u00fasspenna og m\u00e1lband. \u00c9g teikna \u00e1 g\u00f3lfi\u00f0 \u00ed stofunni hring me\u00f0 tveggja metra rad\u00edus. Svo annan. \u00c9g n\u00e6 \u00ed kaffibolla og sest \u00ed mi\u00f0ju annars hringsins. \u00c9g fletti upp \u00e1 Braga \u00ed s\u00edmaskr\u00e1nni og \u00fdti \u00e1 gr\u00e6na takkann.<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00e6ll Bragi, N\u00edna h\u00e9r, segi \u00e9g mj\u00f6g formlega \u00fe\u00f3 a\u00f0 mig langi a\u00f0 skella upp \u00far.<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00e6l og blessu\u00f0, hva\u00f0 segir \u00fe\u00fa \u00ed dag? svarar Bragi \u00e1 m\u00f6gulega e\u00f0lilegasta h\u00e1tt sem h\u00e6gt er, eins og hann hafi b\u00faist vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hringdi, eins og vi\u00f0 v\u00e6rum alltaf a\u00f0 hringja hvort \u00ed anna\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g er b\u00fain a\u00f0 teikna tvo hringi \u00ed stofunni hj\u00e1 m\u00e9r, held \u00e9g \u00e1fram \u00e1n \u00feess a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r hva\u00f0 Braga myndi finnast um mig. Me\u00f0 tveggja metra rad\u00edus, b\u00e6ti \u00e9g vi\u00f0, sit svo \u00ed einum \u00feeirra og drekk kaffi.<\/p>\n\n\n\n<p>Vantar \u00feig einhvern \u00ed hinn hringinn? spyr Bragi hl\u00e6jandi.<\/p>\n\n\n\n<p>J\u00e1, sta\u00f0festi \u00e9g \u00f3feimin, mig br\u00e1\u00f0vantar einhvern til a\u00f0 drekka kaffi me\u00f0, einhvern sem er ekki \u00ed s\u00f3ttkv\u00ed og vill tala um eitthva\u00f0 anna\u00f0 en s\u00f3ttkv\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g er alveg til \u00ed a\u00f0 vera s\u00e1 einhver, \u00e9g sit \u00ed stofunni minni hringlaus og lei\u00f0ur \u00e1 sj\u00e1lfum m\u00e9r, segir Bragi og spyr mig svo hvar \u00e9g eigi heima. \u00c9g segi honum \u00fea\u00f0 og kve\u00f0 hann me\u00f0 <em>sj\u00e1umst eftir sm\u00e1<\/em>. Svo fer \u00e9g a\u00f0 hugsa hvernig k\u00f3r\u00f3nuveruleikinn breytir \u00f6llu og hvort \u00e9g myndi bj\u00f3\u00f0a manni heim sem \u00e9g veit \u00ed raun ekkert um undir venjulegum kringumst\u00e6\u00f0um. \u00d3drukkin um h\u00e1bjartan dag. \u00d6fugt vi\u00f0 hvernig \u00e9g kynntist fyrrverandi eiganda kisunnar minnar. Faraldurinn hefur gert okkur a\u00f0 hittast ekki, \u00fear sem hann er b\u00fasettur erlendis og \u00feannig fastur heima hj\u00e1 s\u00e9r. \u00c9g hugsa um hva\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed matinn og hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00f3g af s\u00e1pu og hversu lengi vi\u00f0 munum lifa me\u00f0 samkomubanni og innan loka\u00f0ra landam\u00e6ra. \u00c1 me\u00f0an hugurinn veltist \u00ed hringi, \u00fe\u00e1 er banka\u00f0 \u00e1 dyrnar. \u00c9g stend upp og st\u00edg \u00fat \u00far hringnum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ma\u00f3 Alheimsd\u00f3ttir Vi\u00f0 Bragi st\u00f6ndum fyrir utan kaffih\u00fas. \u00cd v\u00f6sum okkar liggur heill rafr\u00e6nn hn\u00f6ttur. Allir vinir okkar eru \u00fear l\u00edka \u00ed betri \u00fatg\u00e1fu af sj\u00e1lfum s\u00e9r, tilb\u00fanir til a\u00f0 svara einsemdar\u00fatkalli. \u00c9g horfi \u00e1 Braga me\u00f0 nik\u00f3t\u00ednf\u00edkn \u00ed augum og samhyg\u00f0 \u00ed hjarta. Fimm deyf\u00f0ar m\u00edn\u00fatur sem vi\u00f0 deilum \u00e1n \u00feess a\u00f0 d\u00e6ma hvort [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"jetpack_post_was_ever_published":false,"footnotes":""},"class_list":["post-553","page","type-page","status-publish","hentry"],"jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/553","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=553"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/553\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":616,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/553\/revisions\/616"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=553"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}