{"id":630,"date":"2025-02-20T17:01:17","date_gmt":"2025-02-20T17:01:17","guid":{"rendered":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=630"},"modified":"2025-03-06T06:33:00","modified_gmt":"2025-03-06T06:33:00","slug":"litli-strakur","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=630","title":{"rendered":"Litli str\u00e1kur"},"content":{"rendered":"\n<h3 class=\"wp-block-heading has-text-align-center\">Steinar Bragi<\/h3>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">1<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 stigum \u00fat \u00far b\u00edlnum \u00ed \u00fathverfi. G\u00f6turnar voru langar og beinar og teyg\u00f0u sig sex talsins \u00fat fr\u00e1 mi\u00f0ju \u00fear sem var glampandi glerk\u00fapull me\u00f0 hv\u00edtum f\u00e1na upp \u00far \u00feakinu. Vi\u00f0 enda hverrar g\u00f6tu t\u00f3k svo vi\u00f0 \u00f6nnur sams konar bygging og \u00feannig koll af kolli eins langt og auga\u00f0 eyg\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>David \u00fatsk\u00fdr\u00f0i a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri f\u00e9lagsmi\u00f0st\u00f6\u00f0 hverfisins, \u00e9g myndi kynnast n\u00e1gr\u00f6nnum m\u00ednum \u00fear. \u201eE\u00f0a muna eftir \u00feeim a\u00f0 n\u00fdju,\u201c b\u00e6tti hann vi\u00f0 g\u00f3\u00f0l\u00e1tlega.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fasin vi\u00f0 g\u00f6turnar voru \u00e1 tveimur h\u00e6\u00f0um, bygg\u00f0 \u00far timbri og hv\u00edtm\u00e1lu\u00f0, ekki \u00f6ll n\u00e1kv\u00e6mlega eins en tilbrig\u00f0in voru settleg: mismunandi l\u00f6gun glugga og dyra, hallinn \u00e1 \u00fe\u00f6kunum. L\u00f3\u00f0irnar umhverfis voru \u00feaktar gr\u00e6nu grasi og nokkrum pl\u00f6ntum, en \u00fea\u00f0 sem vakti mesta athygli m\u00edna var a\u00f0 handan vi\u00f0 h\u00fasin var eins konar lystigar\u00f0ur, l\u00f6ng gr\u00e6n r\u00e6ma me\u00f0 trj\u00e1m og fuglum sem teyg\u00f0i sig \u00fat a\u00f0 sj\u00f3ndeildarhringnum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eH\u00e9r \u00e1tt \u00fe\u00fa heima,\u201c sag\u00f0i ma\u00f0urinn og kinka\u00f0i kolli \u00ed \u00e1tt a\u00f0 h\u00fasinu n\u00e6st okkur. \u00c9g s\u00e1 st\u00f3ran b\u00edlsk\u00far, og \u00ed dyrunum sem l\u00e1gu inn \u00ed h\u00fasi\u00f0 st\u00f3\u00f0u kona og barn, \u00e9g kanna\u00f0ist vi\u00f0 hvorugt. \u201e\u00deetta eru eiginkona \u00fe\u00edn og barn, m\u00e9r skilst a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir ekki vilja\u00f0 muna eftir \u00feeim?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sag\u00f0i ekki neitt.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deeim hefur veri\u00f0 tj\u00e1\u00f0 hva\u00f0 \u00fe\u00fa ert a\u00f0 ganga \u00ed gegnum og munu s\u00fdna \u00fev\u00ed skilning. Ekki leyna \u00feau neinu, \u00fe\u00e1 ertu bara a\u00f0 fl\u00e6kja hlutina fyrir sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r. Vertu hei\u00f0arlegur og opinn. Ef \u00fe\u00fa veist ekki hva\u00f0 ber a\u00f0 gera, hvort sem er vi\u00f0 \u00e1h\u00f6ld \u00e1 heimilinu e\u00f0a \u00ed f\u00e9lagslegum a\u00f0st\u00e6\u00f0um, spur\u00f0u \u00fe\u00e1 f\u00f3lki\u00f0 \u00ed kringum \u00feig. Vi\u00f0 erum svo \u00feakkl\u00e1t fyrir framlag \u00feitt.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g vissi ekki hva\u00f0 \u00e9g \u00e1tti a\u00f0 segja \u2013 lyfti annarri augabr\u00faninni, sem virtist vekja k\u00e1t\u00ednu hj\u00e1 David, og pirra\u00f0i mig \u00f3stj\u00f3rnlega.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 gengum a\u00f0 h\u00fasinu. Konan klappa\u00f0i saman h\u00f6ndunum af k\u00e6ti og sag\u00f0ist hafa sakna\u00f0 m\u00edn, st\u00f6kk um h\u00e1ls m\u00e9r og kyssti mig me\u00f0an barni\u00f0 fa\u00f0ma\u00f0i mig fr\u00e1 hli\u00f0 og gr\u00faf\u00f0i h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 inn \u00ed mj\u00f6\u00f0mina \u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSvona, svona,\u201c sag\u00f0i \u00e9g \u00feegar konan byrja\u00f0i a\u00f0 gr\u00e1ta. H\u00fan sag\u00f0ist hafa veri\u00f0 svo hr\u00e6dd um mig og fyrr en var\u00f0i haf\u00f0i h\u00fan lyft barninu og smellt \u00fev\u00ed \u00ed fa\u00f0minn \u00e1 m\u00e9r. \u00deetta var str\u00e1kur um n\u00edu \u00e1ra aldur, \u00e9g s\u00e1 um lei\u00f0 a\u00f0 hann var l\u00edkur m\u00e9r \u00ed andlitinu, nefi\u00f0 hvasst og mikilfenglegt og h\u00e1ri\u00f0 d\u00f6kkt og hrokki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eElsku pabbi, \u00e9g hef sakna\u00f0 \u00fe\u00edn svo miki\u00f0,\u201c sag\u00f0i hann. Augun voru barmafull af t\u00e1rum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eStrj\u00faktu t\u00e1rin \u00far augum hans,\u201c sag\u00f0i konan me\u00f0 titrandi r\u00f6ddu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSvona,\u201c sag\u00f0i \u00e9g og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem h\u00fan ba\u00f0 um. Str\u00e1kurinn hl\u00f3 me\u00f0 vi\u00f0kv\u00e6mnislegu, sk\u00e6ru hlj\u00f3\u00f0i, \u00fea\u00f0 minnti \u00e1 lamb.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eKomdu, mig langar a\u00f0 s\u00fdna \u00fe\u00e9r hva\u00f0 vi\u00f0 Bragi h\u00f6fum veri\u00f0 a\u00f0 gera. Vi\u00f0 h\u00f6fum undirb\u00fai\u00f0 komu \u00fe\u00edna vandlega!\u201c H\u00fan greip um h\u00f6nd m\u00edna og leiddi mig inn \u00ed h\u00fasi\u00f0. \u00c1 vegg \u00ed stofunni h\u00e9kk bor\u00f0i me\u00f0 nafninu m\u00ednu \u00e1 og bau\u00f0 mig velkominn, \u00e1 bor\u00f0i voru alls kyns sm\u00e1r\u00e9ttir og k\u00f6kur og gos og \u00e1fengir drykkir.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eMamma baka\u00f0i,\u201c sag\u00f0i drengurinn. \u00c9g var strax b\u00fainn a\u00f0 gleyma nafninu hans.<\/p>\n\n\n\n<p>Konan leiddi mig a\u00f0 stiganum upp \u00e1 a\u00f0ra h\u00e6\u00f0ina og ba\u00f0 drenginn a\u00f0 b\u00ed\u00f0a, h\u00fan \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 s\u00fdna pabba svol\u00edti\u00f0 spennandi.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 efri h\u00e6\u00f0inni var svefnherbergi me\u00f0 hj\u00f3nar\u00fami, eitt barnaherbergi me\u00f0 engum leikf\u00f6ngum, engum b\u00f3kum, bara r\u00fami og skrifbor\u00f0i, veggirnir voru hv\u00edtir me\u00f0 daufum glj\u00e1a. Konan leiddi mig inn \u00ed svefnherbergi\u00f0 og sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eElska\u00f0u mig. G\u00f3\u00f0a besta hjarta\u00f0 mitt, elska\u00f0u mig. \u00dea\u00f0 er svo langt s\u00ed\u00f0an.\u201c H\u00fan lag\u00f0ist \u00e1 baki\u00f0 \u00ed r\u00fami\u00f0 og toga\u00f0i ni\u00f0ur um sig n\u00e6rbuxurnar, \u00fe\u00e6r birtust undan rau\u00f0um kj\u00f3lnum og v\u00f6f\u00f0ust um annan af h\u00e1h\u00e6lu\u00f0u sk\u00f3num hennar. H\u00fan f\u00e6r\u00f0i hn\u00e9n \u00ed sundur og teyg\u00f0i fram hendurnar, ba\u00f0 mig aftur um a\u00f0 elska sig og horf\u00f0i \u00e1 mig af svo mikilli \u00e1st\u00fa\u00f0 a\u00f0 \u00e9g l\u00e9t n\u00e6stum undan. \u00cd sta\u00f0inn sag\u00f0ist \u00e9g vilja vera einn, \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 hv\u00edla mig eftir fer\u00f0alagi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAu\u00f0vita\u00f0, \u00e1stin m\u00edn. Vi\u00f0 gerum \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa vilt. \u00c9g skil vel a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00feurfir meiri t\u00edma til a\u00f0 jafna \u00feig.\u201c H\u00fan kl\u00e6ddi sig aftur \u00ed n\u00e6rbuxurnar og st\u00f3\u00f0 upp. \u201eGestirnir koma br\u00e1\u00f0um.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0a gestir?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eN\u00e1grannar okkar. \u00de\u00fa getur hv\u00edlt \u00feig h\u00e9rna \u00ed r\u00faminu, \u00e9g l\u00e6t \u00feig vita \u00feegar \u00feau koma. Er \u00fea\u00f0 \u00ed lagi?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g kinka\u00f0i kolli.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">\u2042<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var sama hva\u00f0 \u00e9g reyndi, \u00e9g gat ekki m\u00e6tt \u00feessu. Af ne\u00f0ri h\u00e6\u00f0inni heyr\u00f0i \u00e9g dingla\u00f0 \u00e6 oftar \u00e1 bj\u00f6lluna og svo var l\u00e1ti\u00f0 n\u00e6gja a\u00f0 banka bara \u00e1 dyrastafinn, hr\u00f3pa kve\u00f0ju yfir kli\u00f0inn fr\u00e1 samr\u00e6\u00f0unum. Konan kom tvisvar upp og sag\u00f0i a\u00f0 gestirnir v\u00e6ru a\u00f0 spyrja eftir m\u00e9r, hvort \u00e9g vildi koma ni\u00f0ur? \u00c9g ba\u00f0 um a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 hv\u00edla mig meira. \u00cd \u00feri\u00f0ja skipti\u00f0 kom h\u00e1vaxinn eldri ma\u00f0ur, \u00e1kaflega her\u00f0abrei\u00f0ur og me\u00f0 gr\u00e1, stingandi augu. Hann sag\u00f0i a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um veri\u00f0 vinir en \u00e9g \u00feekkti hann ekki. \u00c9g ba\u00f0 \u00feau \u00f6ll um a\u00f0 l\u00e1ta mig vera og sveipa\u00f0i mig s\u00e6nginni.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fasi\u00f0 t\u00e6mdist aftur, \u00e9g hlusta\u00f0i \u00e1 hlj\u00f3\u00f0in fjara \u00fat og f\u00e9kk svo n\u00f3g af \u00fev\u00ed a\u00f0 hugsa um endurkomu konunnar \u00ed herbergi\u00f0. \u00c9g spratt \u00e1 f\u00e6tur, sneri lyklinum \u00ed skr\u00e1nni og l\u00e6sti svefnherberginu a\u00f0 innan, h\u00fan g\u00e6ti sofi\u00f0 me\u00f0 \u00feessum dreng sem \u00e1tti a\u00f0 vera sonur minn. Nokkru s\u00ed\u00f0ar var teki\u00f0 \u00ed dyrnar, \u00e9g heyr\u00f0i hana segja nafni\u00f0 mitt nokkrum sinnum en svo gafst h\u00fan upp.<\/p>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">2<\/p>\n\n\n\n<p>Um lei\u00f0 og morgna\u00f0i f\u00f3r \u00e9g fram\u00far og l\u00e6ddist ni\u00f0ur stigann, vona\u00f0i a\u00f0 konan m\u00edn myndi ekki vakna. \u00cd eldh\u00fasinu sau\u00f0 \u00e9g vatn og f\u00e9kk m\u00e9r kaffi. \u00deegar \u00e9g heyr\u00f0i umgang \u00e1 efri h\u00e6\u00f0inni l\u00e6ddist \u00e9g \u00fat og f\u00e9kk m\u00e9r g\u00f6ngut\u00far um n\u00e1grenni\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Fyrst gekk \u00e9g eftir g\u00f6tunni og virti fyrir m\u00e9r h\u00fasin sem voru \u00f6ll eins, a\u00f0 slepptu \u00feessu sem engu breytti. \u00c9g kom a\u00f0 g\u00f6ngust\u00edg \u00e1 milli tveggja \u00feeirra og fylgdi honum inn \u00ed lystigar\u00f0inn sem \u00e9g haf\u00f0i teki\u00f0 eftir daginn \u00e1\u00f0ur. Gar\u00f0urinn teyg\u00f0i sig \u00ed beinni l\u00ednu \u00e1 milli bakgar\u00f0a h\u00fasanna, sem l\u00edka st\u00f3\u00f0u \u00ed \u00fer\u00e1\u00f0beinni l\u00ednu me\u00f0fram honum \u00fe\u00f3tt m\u00e9r hef\u00f0i s\u00fdnst skipulagi\u00f0 allt \u00fat fr\u00e1 f\u00e9lagsmi\u00f0st\u00f6\u00f0vunum vera hringlaga. Eftir mi\u00f0jum gar\u00f0inum rann l\u00e6kur. \u00cd trj\u00e1num, sem sums sta\u00f0ar st\u00f3\u00f0u \u00ed \u00fe\u00e9ttum \u00feyrpingum, t\u00edstu fuglar og fi\u00f0rildi svifu \u00e1 milli bl\u00f3ma.<\/p>\n\n\n\n<p>St\u00edgurinn sem \u00e9g fylgdi sveig\u00f0ist mj\u00faklega um gar\u00f0inn og klofna\u00f0i stundum \u00ed \u00e1tt a\u00f0 litlum br\u00fam sem \u00feveru\u00f0u l\u00e6kinn. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 halda mig \u00e1 grasinu, og ef \u00e9g gengi n\u00f3gu lengi <strong>\u2013<\/strong> rann upp fyrir m\u00e9r <strong>\u2013<\/strong> k\u00e6mist \u00e9g kannski \u00fat \u00far \u00feessu hverfi. \u00c9g haf\u00f0i ekkert plan um hvernig \u00e9g k\u00e6mist af \u00e1 eigin vegum en kannski var \u00fea\u00f0 ekkert verra en a\u00f0 b\u00faa me\u00f0 \u00f3kunnugum sem \u00fe\u00f3ttust \u00feekkja mig.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dati vi\u00f0 sj\u00f3ndeildarhringinn reis fjall. \u00c9g var or\u00f0inn svo vanur \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 ekkert nema tilbrig\u00f0i vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sama a\u00f0 \u00e9g snarst\u00f6\u00f0va\u00f0i. Fjalli\u00f0 gn\u00e6f\u00f0i upp \u00far h\u00fasalengjunum, hvolf\u00fe\u00f6kum f\u00e9lagsmi\u00f0st\u00f6\u00f0va og gr\u00e6nni, l\u00e6kjarkv\u00edsla\u00f0ri, bl\u00f3mstrandi flatneskjunni. Hl\u00ed\u00f0ar \u00feess voru brattar og sameinu\u00f0ust \u00ed tindi sem hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 vera hvass en var flatur, eins og fjalli\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 h\u00e1lsh\u00f6ggvi\u00f0. Fyrir ofan tindinn var m\u00f3\u00f0a e\u00f0a \u00e1kaflega heit t\u00edbr\u00e1 sem var d\u00e1lei\u00f0andi a\u00f0 horfa \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g gekk \u00e1fram og t\u00f3k augun varla af fjallinu. \u00d3l\u00edkt \u00f6\u00f0ru \u00ed umhverfinu fannst m\u00e9r \u00fea\u00f0 vera kunnuglegt, og me\u00f0 t\u00edmanum gekk \u00e9g inn \u00ed \u00e1g\u00e6tan takt og hugsa\u00f0i sama og ekkert um a\u00f0st\u00e6\u00f0ur m\u00ednar e\u00f0a hvert \u00e9g stefndi. \u00dea\u00f0 var gott a\u00f0 hafa stefnu. \u00cd hl\u00ed\u00f0um fjallsins fannst m\u00e9r \u00e9g greina hreyfingu en var ekki viss.<\/p>\n\n\n\n<p>Ekkert l\u00edfsmark var me\u00f0 h\u00fasunum \u00e1 hvora h\u00f6nd. Af og til haf\u00f0i \u00e9g \u00e1 tilfinningunni a\u00f0 fylgst v\u00e6ri me\u00f0 m\u00e9r en \u00feegar m\u00e9r var\u00f0 liti\u00f0 upp \u00ed gluggana s\u00e1 \u00e9g engan \u00fear.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar lei\u00f0 \u00e1 g\u00f6nguna lag\u00f0ist \u00e9g \u00ed grasi\u00f0 og dotta\u00f0i, \u00e9g veit ekki hva\u00f0 lengi. \u00de\u00e1 saup \u00e9g \u00e1 l\u00e6kjarvatni og h\u00e9lt \u00e1fram g\u00f6ngunni \u00fear til birtan byrja\u00f0i a\u00f0 dofna. \u00c9g haf\u00f0i ekki enn komi\u00f0 a\u00f0 gatnam\u00f3tum, \u00fe\u00f3tt st\u00edgurinn kv\u00edsla\u00f0ist af og til inn \u00e1 milli h\u00fasanna, eins og hann vildi lokka mig aftur heim.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 eina af \u00feessum kv\u00edslum kom \u00e9g a\u00f0 h\u00fasi sem var me\u00f0 eil\u00edti\u00f0 st\u00e6rri gar\u00f0i en hin. H\u00fasi\u00f0 var gr\u00e1tt en me\u00f0 bl\u00e1m\u00e1la\u00f0 grindverk til a\u00f0 afmarka gar\u00f0inn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eG\u00f3\u00f0an daginn.\u201c \u00c9g var \u00e1varpa\u00f0ur yfir grindverki\u00f0 af konu sem birtist \u00f3v\u00e6nt, og hlaut a\u00f0 hafa veri\u00f0 a\u00f0 bogra eitthva\u00f0 ni\u00f0ri vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eS\u00e6l,\u201c sag\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deessi bolti skoppa\u00f0i \u00ed burtu. \u00c9g er me\u00f0 hund h\u00e9rna.\u201c H\u00fan lyfti bolta og kinka\u00f0i kolli til m\u00edn. Fyrir aftan hana s\u00e1 \u00e9g st\u00f3rt og miki\u00f0 gasgrill. Lyktin af kj\u00f6ti kom til m\u00edn, \u00e9g kyngdi munnvatni og svo r\u00f6mm gr\u00e6\u00f0gi rann \u00e1 mig a\u00f0 \u00e9g \u00e1tti b\u00e1gt me\u00f0 a\u00f0 leyna \u00fev\u00ed. Hva\u00f0 var langt s\u00ed\u00f0an \u00e9g bor\u00f0a\u00f0i?<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g er a\u00f0 grilla l\u00e6rissnei\u00f0ar,\u201c sag\u00f0i konan og \u00e9g fylgdi henni me\u00f0fram gir\u00f0ingunni a\u00f0 hli\u00f0i. \u201e\u00de\u00fa l\u00edtur \u00fat fyrir a\u00f0 vera \u00fereyttur. B\u00fainn a\u00f0 ganga lengi?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eS\u00ed\u00f0an \u00ed morgun.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c1ttu heima h\u00e9r n\u00e1l\u00e6gt?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei, \u00fev\u00ed mi\u00f0ur.\u201c \u00c9g vissi hversu fur\u00f0ulega \u00e9g hlj\u00f3ma\u00f0i en haf\u00f0i ekki orku til a\u00f0 spinna mig \u00e1 nokkurn h\u00e1tt, \u00e9g haf\u00f0i ekki hugsa\u00f0 neitt af \u00feessu til enda. \u00cd loftinu var kul og myrkri\u00f0 a\u00f0 taka yfir.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eErtu me\u00f0 n\u00e6tursta\u00f0?\u201c spur\u00f0i konan og opna\u00f0i hli\u00f0i\u00f0, eins og h\u00fan vissi svari\u00f0. \u00c9g hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 og elti hana inn \u00ed gar\u00f0inn.<\/p>\n\n\n\n<p>Hundurinn var einn af \u00feessum litlu lo\u00f0nu sem gjamma \u00e1 hva\u00f0 sem er, en \u00feetta eintak var \u00fe\u00f6gult.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00e6st h\u00fasinu var ver\u00f6nd me\u00f0 bor\u00f0i og st\u00f3lum, og lagt \u00e1 bor\u00f0 fyrir einn. Konan br\u00e1 s\u00e9r inn fyrir og s\u00f3tti \u00e1h\u00f6ld til a\u00f0 b\u00e6ta m\u00e9r vi\u00f0. A\u00f0 auki r\u00e9tti h\u00fan m\u00e9r bj\u00f3rfl\u00f6sku og f\u00e9kk s\u00e9r a\u00f0ra sj\u00e1lf.<\/p>\n\n\n\n<p>M\u00e1lt\u00ed\u00f0in var \u00e1g\u00e6t en n\u00e6stum \u00e1 fyrsta bita var \u00e9g ekki lengur svangur, og \u00feegar \u00e9g kl\u00e1ra\u00f0i af disknum var \u00e9g or\u00f0inn h\u00e1lf drukkinn af bj\u00f3runum sem konan s\u00f3tti inn \u00ed h\u00fas. H\u00fan sag\u00f0ist vera kokkur \u00ed n\u00e1l\u00e6gri f\u00e9lagsmi\u00f0st\u00f6\u00f0 og hafa gaman af tilraunaeldamennsku og framandi r\u00e9ttum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 eru framandi r\u00e9ttir?\u201c spur\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSekel\u00ed-g\u00fallas me\u00f0 aspas. Hummus fr\u00e1 Belize. Grillu\u00f0 keng\u00fara me\u00f0 k\u00fask\u00fas og \u00feess h\u00e1ttar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVorum vi\u00f0 a\u00f0 bor\u00f0a keng\u00farukj\u00f6t?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEkki n\u00fana nei.\u201c H\u00fan hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 eins og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00f3hugsandi.<\/p>\n\n\n\n<p>Eftir a\u00f0 h\u00fan hreinsa\u00f0i diskana af bor\u00f0inu s\u00e1tum vi\u00f0 \u00ed \u00fe\u00f6gn og drukkum v\u00edn \u00far h\u00e1um gl\u00f6sum. Eins og gerist me\u00f0 vandr\u00e6\u00f0alegar \u00feagnir, f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 hugsa um or\u00f0 sem m\u00e9r fannst \u00e9g hafa misskili\u00f0, eins og \u201egl\u00edmuskj\u00e1lfti\u201c. \u00c9g giska\u00f0i \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 merkti \u00e1hyggjur yfir einhverju sem var framundan, gl\u00edmu sem var v\u00e6ntanlega metaf\u00f3r\u00edsk, en var \u00fea\u00f0 v\u00edst?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var \u00fe\u00e1 ekkert eftir nema a\u00f0 fara upp \u00ed r\u00fam. \u00c9g s\u00e1 l\u00edti\u00f0 \u00ed kringum mig inni \u00ed h\u00fasinu en \u00ed a\u00f0alatri\u00f0um var \u00fea\u00f0 eins og hitt sem \u00e9g kom \u00far. Vi\u00f0 f\u00f3rum inn \u00ed svefnherbergi og afkl\u00e6ddumst, stundu\u00f0um kynl\u00edf sem var betra en \u00e9g bj\u00f3st vi\u00f0. Konan sat ofan \u00e1 m\u00e9r og rugga\u00f0i s\u00e9r svo hratt a\u00f0 m\u00e9r fannst h\u00fan vera v\u00e9l sem hef\u00f0i veri\u00f0 send \u00e1 mig til a\u00f0 umvefja mig hl\u00fdju og t\u00e6ma mig. H\u00fan f\u00e9kk \u00fea\u00f0 n\u00e6stum um lei\u00f0 og h\u00e9lt \u00fev\u00ed \u00e1fram \u00fear til \u00e9g haf\u00f0i sj\u00e1lfur fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 tvisvar. \u00de\u00e1 sofnu\u00f0um vi\u00f0 dau\u00f0\u00fereytt.<\/p>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">3<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g gisti hj\u00e1 henni \u00ed nokkra daga, \u00fear til m\u00e9r fannst vera kominn t\u00edmi til a\u00f0 halda \u00e1fram. Samr\u00e6\u00f0ur okkar leiddu n\u00e6stum alltaf a\u00f0 kynl\u00edfi og ef h\u00fan var ekki a\u00f0 tala um matrei\u00f0slu fannst m\u00e9r vi\u00f0 tala \u00ed kross, misskilja n\u00e6stum allt. Ef \u00e9g leiddi tali\u00f0 a\u00f0 <strong>\u2013<\/strong> \u00e9g veit \u00fea\u00f0 ekki <strong>\u2013<\/strong> samhengi l\u00edfs hennar, e\u00f0a ver\u00f6ld, hva\u00f0an h\u00fan kom og \u00e6tla\u00f0i, var eins og \u00fea\u00f0 dytti dautt ni\u00f0ur. H\u00fan reiddist m\u00e9r stundum, \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00e9g skildi yfir hverju, og \u00feag\u00f0i \u00fe\u00e1 lengi. Samt l\u00e1 \u00ed loftinu a\u00f0 Selma, sem var nafn konunnar, vildi segja m\u00e9r a\u00f0 h\u00fan elska\u00f0i mig, en \u00e9g gat ekki leyft m\u00e9r a\u00f0 taka undir \u00fea\u00f0. Enda var h\u00fan ekki eins og \u00e9g. \u00c9g vildi a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i geta\u00f0 veri\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi, en \u00e9g vissi a\u00f0 sambandi\u00f0 myndi aldrei ganga.<\/p>\n\n\n\n<p>Snemma morguns, \u00e1\u00f0ur en Selma vakna\u00f0i, skrifa\u00f0i \u00e9g kve\u00f0ju til hennar \u00e1 mi\u00f0a sem \u00e9g skildi eftir \u00ed eldh\u00fasinu. \u00de\u00e1 f\u00f3r \u00e9g \u00fat \u00ed gar\u00f0, smeyg\u00f0i m\u00e9r yfir grindverki\u00f0 og h\u00e9lt \u00e1fram g\u00f6ngunni \u00ed \u00e1tt a\u00f0 fjallinu. Yfir efsta hluta \u00feess l\u00e1gu \u00feykkir sk\u00fdjab\u00f3lstrar sem \u00f3lmu\u00f0ust af og til, eins og eitthva\u00f0 \u00feeyttist upp \u00far \u00feeim. Eftir nokkra g\u00f6ngu kom s\u00f3lin upp og fuglarnir byrju\u00f0u a\u00f0 t\u00edsta, l\u00e6kurinn hjala\u00f0i og m\u00e9r fannst ekki lengur eins og g\u00f3rilla s\u00e6ti \u00e1 her\u00f0unum \u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g haf\u00f0i gengi\u00f0 \u00ed nokkrar klukkustundir \u00feegar \u00e9g heyr\u00f0i skvamp \u00fatundan m\u00e9r og s\u00e1 konu sitja \u00e1 l\u00e6kjarbakkanum. H\u00fan busla\u00f0i me\u00f0 f\u00f3tunum \u00ed vatninu og horf\u00f0i rannsakandi framan \u00ed mig, svo brosti h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g hef ekki s\u00e9\u00f0 \u00feig \u00e1\u00f0ur \u2026 Hva\u00f0 ertu b\u00fainn a\u00f0 vera lengi h\u00e9rna?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNokkra daga.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g vissi \u00fea\u00f0!\u201c H\u00fan hl\u00f3. \u201e\u00dea\u00f0 fer enginn \u00fat \u00far h\u00fasi h\u00e9rna nema vi\u00f0. \u00de\u00fa ert \u00ed Lystum, er \u00fea\u00f0 ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 fyrsta sem m\u00e9r datt \u00ed hug var Nei, en samt svara\u00f0i \u00e9g j\u00e1tandi. H\u00fan vippa\u00f0i s\u00e9r \u00e1 f\u00e6tur. H\u00e1r hennar var d\u00f6kkt og n\u00e1\u00f0i h\u00e1lfa lei\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 bak, toppurinn \u00feverklipptur, augun br\u00fan. \u00c9g haf\u00f0i aldrei s\u00e9\u00f0 hana \u00e1\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eN\u00fdkominn hinga\u00f0 \u00ed parad\u00edsina. Og manst ekki hver \u00fe\u00fa varst \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00e9r var planta\u00f0 h\u00e9rna, manst ekki eftir fj\u00f6lskyldunni \u00feinni sem var \u00f3tr\u00falega gl\u00f6\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 \u00feig. \u00de\u00e9r finnst eitthva\u00f0 skr\u00fdti\u00f0 vi\u00f0 allt h\u00e9rna, er \u00fea\u00f0 ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00fa var komi\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 hl\u00e6ja, \u00e9g var n\u00e6stum yfirkominn af gle\u00f0i a\u00f0 heyra loks \u00ed einhverjum sem \u2013 \u00e9g veit \u00fea\u00f0 ekki \u2013 haf\u00f0i n\u00e6rveru, sag\u00f0i eitthva\u00f0 sem bar merkingu, var ekki \u00fathugsa\u00f0 af \u00f6\u00f0rum og stungi\u00f0 upp \u00ed munninn \u00e1 vi\u00f0komandi sem lak \u00fev\u00ed svo \u00fat \u00e1 milli varanna.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 hefur \u00fe\u00fa veri\u00f0 lengi? \u00c9g veit annars ekki hvar \u00e9g \u00e1 a\u00f0 byrja. Hvar erum vi\u00f0? Af hverju erum vi\u00f0 h\u00e9rna?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 var sagt vi\u00f0 \u00feig, eftir a\u00f0 \u00fe\u00fa komst hinga\u00f0?\u201c H\u00fan hristi vatni\u00f0 af f\u00f3tunum, dr\u00f3 upp l\u00edtinn gulan kl\u00fat sem h\u00fan v\u00e6tti \u00ed l\u00e6knum og strauk s\u00e9r \u00ed framan me\u00f0 honum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g var \u00e1 stofnun minnir mig. Svo var m\u00e9r sagt a\u00f0 \u00e9g \u00feyrfti t\u00edma til a\u00f0 muna betur hver \u00e9g v\u00e6ri, \u00e9g myndi hv\u00edlast vel \u00feegar \u00e9g k\u00e6mi heim, \u00e9g fengi meiri hj\u00e1lp heima til a\u00f0 lappa upp \u00e1 mig. \u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki \u2026\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg \u00fe\u00e9r l\u00ed\u00f0ur ekki eins og \u00fe\u00fa s\u00e9rt heima.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eN\u00e1kv\u00e6mlega! \u00c9g hef aldrei s\u00e9\u00f0 neitt af \u00feessu \u00e1\u00f0ur. H\u00fasi\u00f0, g\u00f6turnar, \u00feessa konu \u2013\u201c \u00c9g sleppti \u00fev\u00ed a\u00f0 minnast \u00e1 Selmu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c1ttu barn?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSon. Hann er l\u00edkur m\u00e9r, samt finnst m\u00e9r \u2026\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deetta rifjast allt upp, engar \u00e1hyggjur.\u201c Konan sag\u00f0ist heita Laureen. Andliti\u00f0 var rj\u00f3tt af strokunum me\u00f0 kl\u00fatnum, h\u00fan vaf\u00f0i honum saman og stakk ofan \u00ed hli\u00f0art\u00f6sku sem h\u00fan haf\u00f0i yfir \u00f6xlina.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g heiti ekki neitt,\u201c sag\u00f0i \u00e9g og vissi ekki hvers vegna \u00e9g laug. \u201eJ\u00e1, m\u00e9r er sagt a\u00f0 \u00e9g eigi eftir a\u00f0 lagast. \u00c9g get alveg sam\u00feykkt a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 minnislaus. \u00dea\u00f0 er samt eins og ma\u00f0ur kannist vi\u00f0 sumt, \u00fe\u00f3tt ma\u00f0ur muni ekki n\u00e1kv\u00e6mlega eftir \u00fev\u00ed. Ma\u00f0ur tengist \u00fev\u00ed. M\u00e9r finnst bara svo \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i gleymt konunni minni og barninu m\u00ednu \u2026 Er \u00e9g d\u00e1inn?\u201c Spurningin hr\u00f6kk \u00fat \u00far m\u00e9r, en um lei\u00f0 vissi \u00e9g a\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 brj\u00f3tast um \u00ed m\u00e9r lengi.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eL\u00f6bbum a\u00f0eins,\u201c sag\u00f0i Laureen og \u00e9g fylgdi henni eftir. H\u00fan sta\u00f0n\u00e6mdist \u00e1 einni af br\u00fanum sem lyftust mj\u00faklega yfir l\u00e6kinn, halla\u00f0i s\u00e9r fram \u00e1 handri\u00f0 og benti m\u00e9r \u00e1 silunga sem hreyf\u00f0u sig letilega um hyl \u00ed vatninu. Einn \u00feeirra rak h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 upp \u00far fletinum og gleypti flugu, og \u00e9g hugsa\u00f0i hva\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri raunverulegt, \u00e9g s\u00e1 d\u00f6kka blettina \u00e1 hausnum \u00e1 honum, \u00f3tal f\u00ednleg skord\u00fdr sem sveimu\u00f0u um lofti\u00f0, hreyfingar spor\u00f0anna, glampann fr\u00e1 vatninu, hreyfingu str\u00e1anna \u00e1 l\u00e6kjarbakkanum. Og \u00e1 bak vi\u00f0 su\u00f0 \u00ed flugum heyr\u00f0i \u00e9g l\u00e1gv\u00e6ra t\u00f3na, milda og flj\u00f3tandi, sem \u00e9g var \u00fe\u00f3 aldrei viss um a\u00f0 v\u00e6ru ekki \u00edmyndun: stef sem leiddi hugann a\u00f0 anddyrum h\u00f3tela, dagskr\u00e1rkynningum \u00ed sj\u00f3nvarpi \u2013<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSj\u00e1\u00f0u kan\u00ednuna,\u201c sag\u00f0i Laureen og benti ni\u00f0ur me\u00f0 l\u00e6knum. Br\u00fan kan\u00edna sat \u00e1 rassinum og tugg\u00f0i eitthva\u00f0 sem h\u00fan h\u00e9lt um milli fram\u00fe\u00f3fanna, bar \u00f3tt og t\u00edtt upp a\u00f0 munninum \u00e1 s\u00e9r og virtist \u00e1kaflega ni\u00f0ursokkin \u00ed verki\u00f0. Nema h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 hlusta \u00e1 t\u00f3nana sem b\u00e1rust fr\u00e1 himninum? \u201e\u00deetta er magna\u00f0, finnst \u00fe\u00e9r ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Laureen sag\u00f0ist vera \u00e1 g\u00f6ngu eins og \u00e9g, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri algengt.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 \u00e1ttu vi\u00f0? Erum vi\u00f0 m\u00f6rg h\u00e9rna?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEins og \u00fe\u00fa og \u00e9g? Ekki m\u00f6rg, nei. En vi\u00f0 erum h\u00e9rna af og til.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deanga\u00f0 til hva\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki. \u00dear til vi\u00f0 f\u00f6rum inn \u00ed eitt af h\u00fasunum, b\u00fdst \u00e9g vi\u00f0. \u00c9g hef ekki veri\u00f0 h\u00e9rna miki\u00f0 lengur en \u00fe\u00fa.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan spur\u00f0i mig hvort \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 stefna eitthva\u00f0 s\u00e9rstakt en \u00e9g humma\u00f0i fram af m\u00e9r spurninguna. \u00dea\u00f0 virka\u00f0i h\u00e1t\u00ed\u00f0legt a\u00f0 tala um fjalli\u00f0, \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekkert s\u00e9rstakt sem \u00e9g vildi \u00feanga\u00f0, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 lyti einhverri fagurfr\u00e6\u00f0i sem v\u00e6ri fl\u00f3ki\u00f0 a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra. Vi\u00f0 \u00feurfum \u00f6ll markmi\u00f0 og j\u00fa, l\u00edklega var \u00e9g hrifinn af fjallinu af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var bara eitt eintak af \u00fev\u00ed. \u00c9g s\u00e1 engin \u00f6nnur fj\u00f6ll neins sta\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 gengum hli\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 og mi\u00f0a\u00f0i fer\u00f0alagi\u00f0 \u00e1g\u00e6tlega, \u00fe\u00f3tt fjalli\u00f0 virtist ekki beinl\u00ednis f\u00e6rast n\u00e6r. Lj\u00f3saskiptin l\u00f6g\u00f0ust yfir og Laureen sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e6ja, sj\u00e1um hva\u00f0 gerist n\u00fa.\u201c H\u00fan skima\u00f0i meira til hli\u00f0anna en \u00e1\u00f0ur, inn \u00ed gar\u00f0ana og upp \u00ed glugga h\u00fasanna. L\u00e1gt su\u00f0 fr\u00e1 krybbum heyr\u00f0ist \u00far grasinu og runnunum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvert ertu a\u00f0 fara?\u201c spur\u00f0i \u00e9g, af \u00fev\u00ed a\u00f0 fasi\u00f0 var \u00feannig, eins og h\u00fan leita\u00f0i einhvers.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVi\u00f0 \u00feurfum sta\u00f0 til a\u00f0 gista \u00e1.\u201c H\u00fan sta\u00f0n\u00e6mdist vi\u00f0 st\u00f3rt drapplita\u00f0 h\u00fas \u00e1 \u00feremur h\u00e6\u00f0um. \u00c1 hvora h\u00f6nd voru geymslusk\u00farar me\u00f0 litlum ferk\u00f6ntu\u00f0um gluggum. Innan \u00far h\u00fasinu barst l\u00e1gur kli\u00f0ur eins og fr\u00e1 f\u00f3lki \u00ed hr\u00f3kasamr\u00e6\u00f0um. \u00c9g elti Laureen inn \u00ed gar\u00f0inn og \u00fea\u00f0an um dyr inn \u00ed stofu sem var full af bla\u00f0skellandi f\u00f3lki. \u00deau h\u00e9ldu \u00e1 gl\u00f6sum og bor\u00f0u\u00f0u snittumat af bor\u00f0i \u00ed enda stofunnar. Ekkert \u00feeirra veitti okkur s\u00e9rstaka athygli.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eL\u00e1ttu eins og heima hj\u00e1 \u00fe\u00e9r.\u201c Laureen greip frey\u00f0iv\u00ednsfl\u00f6sku, skenkti okkur \u00ed glas og vi\u00f0 byrju\u00f0um a\u00f0 ra\u00f0a \u00ed okkur snittum. \u201eSk\u00e1l,\u201c sag\u00f0i Laureen og lyfti glasi, \u201efyrir bindindinu m\u00ednu sem er b\u00fai\u00f0.\u201c Vi\u00f0 l\u00f6g\u00f0um saman gl\u00f6sin og sk\u00e1lu\u00f0um um lei\u00f0 og h\u00fan sag\u00f0ist hafa veri\u00f0 edr\u00fa \u00ed t\u00edu \u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eErtu alk\u00f3h\u00f3listi?\u201c spur\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eT\u00f3k m\u00e9r bara p\u00e1su.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvernig virka\u00f0i \u00fea\u00f0 fyrir \u00feig?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c6 \u00fea\u00f0 var bara frekar gagnlegt en lei\u00f0inlegt. Manneskja ver\u00f0ur stundum a\u00f0 breyta um skap, er \u00fea\u00f0 ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eBreyta um skap?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eMissa sig. Ver\u00f0a \u00f6nnur e\u00f0a \u00e9g veit \u00fea\u00f0 ekki, ver\u00f0a framandi sj\u00e1lfri s\u00e9r. \u00ddta vi\u00f0 s\u00e9r.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEr erfitt a\u00f0 or\u00f0a \u00feetta? Ertu or\u00f0in svona drukkin?\u201c spur\u00f0i \u00e9g og augnabliki s\u00ed\u00f0ar sprungum vi\u00f0 \u00far hl\u00e1tri. Bubblurnar \u00ed v\u00edninu ger\u00f0u okkur k\u00e6rulaus og s\u00edhl\u00e6jandi. Gestirnir gutu af og til \u00e1 okkur augunum en ekki \u00f3vingjarnlega. \u00deau t\u00f6lu\u00f0u sama tungum\u00e1l og vi\u00f0 og ekkert \u00ed fasi \u00feeirra var framandi. \u00c9g kanna\u00f0ist vi\u00f0 st\u00f6ku tilv\u00edsanir \u00ed p\u00f3lit\u00edk og menningu en \u00fea\u00f0 var undarlega flatt og tv\u00edv\u00edtt, eins og a\u00f0 kyssa sig \u00ed spegli, hreyf\u00f0i ekki vi\u00f0 m\u00e9r. \u00c9g kunni engin or\u00f0 yfir \u00fea\u00f0 hvernig m\u00e9r lei\u00f0, \u00fea\u00f0 var \u00e1 svo margan h\u00e1tt \u00e1 sama t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 Laureen t\u00f3kum me\u00f0 okkur fl\u00f6sku og h\u00fan leiddi mig upp stiga \u00e1 a\u00f0ra h\u00e6\u00f0 \u00fear sem voru skrifstofuherbergi og t\u00f3m setustofa me\u00f0 t\u00edmaritum \u00e1 glerbor\u00f0i. \u00c1 \u00feri\u00f0ju h\u00e6\u00f0inni var st\u00f3rt svefnherbergi me\u00f0 sv\u00f6lum \u00fea\u00f0an sem s\u00e1st \u00fat yfir alla bygg\u00f0ina: r\u00f6\u00f0 gatna og h\u00fasa sem l\u00e1gu \u00ed hringi \u00fat fr\u00e1 hvolf\u00fe\u00f6kum f\u00e9lagsmi\u00f0st\u00f6\u00f0va, en \u00ed beinni l\u00ednu me\u00f0fram lystig\u00f6r\u00f0um. Nokkur h\u00fasanna n\u00e1l\u00e6gt okkur voru upplj\u00f3mu\u00f0 og glaumur og t\u00f3nlist barst \u00fea\u00f0an l\u00edka.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar flaskan var h\u00e1lfnu\u00f0 kysstumst vi\u00f0 og endu\u00f0um uppi \u00ed r\u00fami. Stemningin var notaleg og fyrr en var\u00f0i f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 segja s\u00f6gu en mundi ekki hvernig h\u00fan enda\u00f0i. Til a\u00f0 koma m\u00e9r \u00far kl\u00edpunni spur\u00f0i \u00e9g hvort eigendunum v\u00e6ri sama \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 l\u00e6gjum \u00fearna.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVi\u00f0 erum l\u00e1tin \u00ed fri\u00f0i h\u00e9rna. \u00c9g veit ekki af hverju.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEinhver hl\u00fdtur a\u00f0 b\u00faa \u00ed h\u00fasinu?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er eins og vi\u00f0 smj\u00fagum um ey\u00f0urnar,\u201c byrja\u00f0i Laureen. \u201eVi\u00f0 erum ekki h\u00e9rna \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00feau. \u00deau v\u00edkja og l\u00e1ta okkur \u00ed fri\u00f0i, \u00e1 h\u00e1tt sem hentar okkur \u00f6llum, svo \u00fea\u00f0 ver\u00f0i ekki sprenging. H\u00e9lt \u00e9g til a\u00f0 byrja me\u00f0. En n\u00fa held \u00e9g a\u00f0 \u00feau vilji ekki vita af okkur og besta lei\u00f0in til \u00feess er a\u00f0 vi\u00f0 f\u00e1um a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 viljum, \u00e1n \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 f\u00e1 nokku\u00f0. Nei, \u00e9g veit \u00fea\u00f0 ekki.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eErfitt a\u00f0 or\u00f0a \u00fea\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVi\u00f0 deilum ekki heimi me\u00f0 \u00feeim. \u00c9g vil \u00fea\u00f0 ekki og held \u00fea\u00f0 s\u00e9 gagnkv\u00e6mt.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSamm\u00e1la,\u201c sag\u00f0i \u00e9g af meiri innlifun en \u00e9g bj\u00f3st vi\u00f0, \u00fe\u00f3tt \u00e9g vissi \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r varla um hva\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum a\u00f0 tala. \u00c9g mundi samt hvernig m\u00e9r lei\u00f0 me\u00f0 Selmu, \u00feessir f\u00e1einu dagar li\u00f0u eins og m\u00e1nu\u00f0ur, \u00e9g var t\u00e6mdur. \u201e\u00deau lifa \u00e1 annan h\u00e1tt en vi\u00f0,\u201c b\u00e6tti \u00e9g vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVi\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g og \u00fe\u00fa og hin sem eru eins og vi\u00f0, \u00e9g h\u00e9lt vi\u00f0 v\u00e6rum fleiri?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, \u00fea\u00f0 er r\u00e9tt.\u201c \u00c9g s\u00e1 a\u00f0 h\u00fan var or\u00f0in syfju\u00f0 og breiddi yfir hana s\u00e6ngina, hj\u00fafra\u00f0i mig upp a\u00f0 henni. Lyktin af henni var eins og kanill. \u00c9g saup \u00e1 fl\u00f6skunni \u00fear til \u00e9g nennti \u00fev\u00ed ekki lengur og sofna\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">4<\/p>\n\n\n\n<p>Morguninn eftir var h\u00fan farin. \u00c9g vakna\u00f0i einn \u00ed r\u00faminu og \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i mig loks fram \u00far, me\u00f0 voldugan hausverk, var Laureen hvergi sj\u00e1anleg. Ekki \u00e1 h\u00e6\u00f0unum fyrir ne\u00f0an og ekki \u00fati \u00ed gar\u00f0i. Ummerki um part\u00fdi\u00f0 kv\u00f6ldi\u00f0 \u00e1\u00f0ur voru alls sta\u00f0ar, t\u00f3mar fl\u00f6skur og fl\u00f3andi \u00f6skubakkar, matarleifar, drasl.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g haf\u00f0i ekkert a\u00f0 gera \u00fearna lengur og dreif mig \u00fat. Ve\u00f0ri\u00f0 var heitara en \u00e1\u00f0ur og \u00e9g lag\u00f0ist \u00e1 magann vi\u00f0 l\u00e6kjarbakkann og skvetti framan \u00ed mig k\u00f6ldu vatni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAaaah,\u201c d\u00e6sti \u00e9g. \u201eMiki\u00f0 er \u00feetta gott. H\u00e9r er \u00e9g \u2026 ma\u00f0ur \u00e1 l\u00e6kjarbakka a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 besta \u00far \u00fev\u00ed sem \u2026\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Fugl t\u00edsti \u00ed n\u00e1l\u00e6gu tr\u00e9. Laufin voru kyrr, h\u00f6fgi yfir umhverfinu. S\u00f3lin, grasi\u00f0, vatni\u00f0. T\u00f3nlistin, sem m\u00e9r haf\u00f0i fundist \u00e9g heyra \u00e1\u00f0ur og l\u00edktist lyftut\u00f3nlist, var \u00fe\u00f6gnu\u00f0. \u00c9g l\u00e1 \u00fearna \u00ed einhverja stund, \u00ed og me\u00f0 a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir a\u00f0 Laureen ger\u00f0i vart vi\u00f0 sig, en gekk svo \u00e1fram \u00ed \u00e1tt a\u00f0 fjallinu.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fas \u00e1 hvora h\u00f6nd.<\/p>\n\n\n\n<p>Gir\u00f0ingar.<\/p>\n\n\n\n<p>Gar\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00e6\u00f0ir.<\/p>\n\n\n\n<p>Litir.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00fa s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 fjalli\u00f0 var n\u00e6r en \u00e1\u00f0ur. \u00dea\u00f0 var ekki um a\u00f0 villast, og me\u00f0 sama \u00feverklippta toppinn, t\u00edbr\u00e1in \u00fear yfir eins og op v\u00e6ri \u00e1 fjallinu. Fullt af v\u00e9lum? \u00c1st, n\u00e1nd og kynl\u00edfi?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deessi dagur lei\u00f0 eins og a\u00f0rir: \u00e9g gekk. Nema a\u00f0 um kv\u00f6ldi\u00f0 lag\u00f0ist \u00e9g undir runna, eftir a\u00f0 hafa hnupla\u00f0 teppi sem haf\u00f0i veri\u00f0 hengt til \u00feerris \u00ed einum af g\u00f6r\u00f0unum.<\/p>\n\n\n\n<p>Um morguninn r\u00falla\u00f0i \u00e9g upp teppinu og gekk enn \u00ed \u00e1tt a\u00f0 fjallinu. Um kv\u00f6ldi\u00f0 lag\u00f0ist \u00e9g \u00e1 baki\u00f0 og svaf, dreymdi mann sem f\u00e9kk krabbamein og d\u00f3, og ungar konur sem s\u00e1tu \u00e1 str\u00f6nd og r\u00e6ddu fj\u00e1rfestingar.<\/p>\n\n\n\n<p>Einn daginn gekk \u00e9g fram \u00e1 t\u00f6tralegan n\u00e1unga sem virtist vera a\u00f0 leita a\u00f0 einhverju \u00ed grasinu. Skammt fr\u00e1 honum, hinum megin vi\u00f0 gir\u00f0ingu, st\u00f3\u00f0 kona me\u00f0 vandr\u00e6\u00f0alegan svip.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deetta er allt \u00ed lagi,\u201c sag\u00f0i konan. Innan \u00far h\u00fasinu heyr\u00f0ist \u00ed hl\u00e6jandi b\u00f6rnum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g bau\u00f0 g\u00f3\u00f0an daginn og spur\u00f0i hvort \u00e9g g\u00e6ti nokku\u00f0 hj\u00e1lpa\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g t\u00fdndi veski \u00ed gar\u00f0inum, e\u00f0a barni\u00f0 mitt sag\u00f0ist hafa hent \u00fev\u00ed yfir gir\u00f0inguna. \u00deessi g\u00f3\u00f0i ma\u00f0ur er a\u00f0 hj\u00e1lpa m\u00e9r,\u201c sag\u00f0i konan.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 var ekkert,\u201c sag\u00f0i ma\u00f0urinn on\u00ed j\u00f6r\u00f0ina en h\u00e9lt leitinni \u00e1fram. Fr\u00e1 honum barst st\u00e6k moldarlykt, h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 h\u00f6f\u00f0inu var gr\u00e1tt og v\u00edra\u00f0, f\u00f6tin h\u00f6f\u00f0u ekki veri\u00f0 \u00fevegin lengi. Eftir nokkrar vikur g\u00e6ti \u00feetta veri\u00f0 \u00e9g. Ef \u00e9g hef\u00f0i ekkert markmi\u00f0 ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 eflaust hra\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvernig l\u00edtur veski\u00f0 \u00fat?\u201c spur\u00f0i \u00e9g og skima\u00f0i \u00ed kringum mig \u00ed grasinu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er rautt og l\u00edti\u00f0, bara svona klinkveski.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAha.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAlveg \u00f3\u00fearfi a\u00f0 gera m\u00e1l \u00far \u00fev\u00ed. M\u00e1 ekki heldur bj\u00f3\u00f0a ykkur inn \u00ed gar\u00f0 til m\u00edn?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g \u00fe\u00e1\u00f0i bo\u00f0i\u00f0, enda langt s\u00ed\u00f0an \u00e9g haf\u00f0i bor\u00f0a\u00f0, og t\u00f6trama\u00f0urinn umla\u00f0i eitthva\u00f0 sem \u00e9g t\u00falka\u00f0i sem sam\u00feykki fyrir konuna. Vi\u00f0 settumst vi\u00f0 bor\u00f0 \u00ed gar\u00f0inum og leyf\u00f0um s\u00f3linni a\u00f0 hita okkur, \u00e9g fann volga golu berast innan \u00far h\u00fasinu.<\/p>\n\n\n\n<p>Konan kom aftur \u00fat og h\u00e9lt n\u00fa \u00e1 bakka fullum af brau\u00f0hornum og \u00e1leggi, safa \u00ed st\u00f3rri k\u00f6nnu. H\u00fan haf\u00f0i skipt um f\u00f6t og var n\u00fa \u00ed rau\u00f0um hnj\u00e1s\u00ed\u00f0um kj\u00f3l sem lag\u00f0ist \u00fe\u00e9tt a\u00f0 mittinu, og gulum st\u00edgv\u00e9lum, of l\u00e1gum til a\u00f0 vera va\u00f0st\u00edgv\u00e9l e\u00f0a nokku\u00f0 sem var\u00f0a\u00f0i l\u00e6kinn. \u00c9g ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 h\u00fan nota\u00f0i \u00feau \u00ed gar\u00f0vinnu, enda var gar\u00f0urinn vel snyrtur og bl\u00f3m \u00ed vandlega \u00fatstungnum moldarbe\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar matnum lauk komu tv\u00f6 \u00fe\u00f6gul b\u00f6rn \u00fat \u00far h\u00fasinu og l\u00e9ku s\u00e9r \u00ed gar\u00f0inum me\u00f0 bolta og sp\u00fdtur. Vi\u00f0 Alma, sem var nafn konunnar, reyndum a\u00f0 kynnast t\u00f6tramanninum en \u00fe\u00f3tt hann virtist viljugur til a\u00f0 mi\u00f0la einhverjum andskotanum skildum vi\u00f0 f\u00e1tt, \u00fear til hann st\u00f3\u00f0 upp og bugta\u00f0i sig svol\u00edti\u00f0 til a\u00f0 kve\u00f0ja. \u00c9g var feginn. Vi\u00f0 horf\u00f0um \u00e1 eftir honum ganga burt, klappa \u00f6\u00f0ru barnanna \u00e1 kollinn en halda svo lei\u00f0 s\u00edna burt, \u00ed hina \u00e1ttina mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 m\u00edna stefnu. \u00dea\u00f0 fyllti mig sn\u00f6ggu vonleysi, a\u00f0 hugsa um alla dagana sem f\u00e6ru \u00ed a\u00f0 n\u00e1 aftur \u00feeim sta\u00f0 \u00fear sem mitt fer\u00f0alag h\u00f3fst.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHann var skr\u00fdtinn,\u201c sag\u00f0i Alma og l\u00e9t sig s\u00edga ne\u00f0ar \u00ed st\u00f3lnum. \u00c9g horf\u00f0i \u00e1 sm\u00e1vaxin brj\u00f3stin \u00e1 henni og l\u00e6rin sem h\u00f6f\u00f0u f\u00e6rst \u00ed sundur, ber hn\u00e9n, s\u00f3lbr\u00fana leggina. Einn daginn yr\u00f0i \u00e9g gamall og hef\u00f0i ekki \u00e1huga, e\u00f0a leifarnar af kynhv\u00f6t byggju \u00ed l\u00edkamanum eins og bergm\u00e1l. Ef \u00e9g v\u00e6ri sen\u00edll myndi \u00e9g kannski gl\u00e1pa grimmilega \u00e1 einhverja \u00fej\u00f3nustust\u00falku \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa vit \u00e1 a\u00f0 skammast m\u00edn e\u00f0a fela l\u00f6ngunina, sem v\u00e6ri samt l\u00f6ngu slokknu\u00f0: meira\u00f0segja d\u00fdpstu hvatir okkar ver\u00f0a a\u00f0 vana \u00ed tj\u00e1ningu sinni, h\u00fan heldur \u00e1fram \u00fe\u00f3tt uppsprettan s\u00e9 \u00feornu\u00f0, vi\u00f0 l\u00edkjumst skel utan um eitthva\u00f0 sem er horfi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 sv\u00e6fa b\u00f6rnin,\u201c sag\u00f0i Alma \u00feegar lj\u00f3saskiptin komu. A\u00f0 \u00fev\u00ed loknu kveikti h\u00fan \u00e1 lj\u00f3sum \u00ed gar\u00f0inum, marglitum rau\u00f0um, gulum og gr\u00e6num og vi\u00f0 drukkum \u00feessa s\u00f6mu bj\u00f3ra og \u00e9g haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 \u00fearna \u00e1\u00f0ur \u00ed h\u00fasunum. Enn eitt kynl\u00edfi\u00f0 l\u00e1 \u00ed loftinu og \u00fe\u00f3tt \u00e9g nennti \u00fev\u00ed ekki kraup \u00e9g fyrir framan hana \u00ed st\u00f3lnum, toga\u00f0i n\u00e6rbuxurnar ni\u00f0ur um hana og byrja\u00f0i a\u00f0 putta hana. \u00c9g ju\u00f0a\u00f0i \u00feumli sk\u00e1hallt upp\u00e1vi\u00f0 og heyr\u00f0i a\u00f0 \u00d6lmu l\u00edka\u00f0i \u00fea\u00f0 og glennti f\u00e6turna lengra \u00fat. \u00c1 sama t\u00edma nudda\u00f0i \u00e9g handarbakinu vi\u00f0 sn\u00edpinn \u00e1 henni. Nokkrum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar sp\u00fdttist v\u00f6kvi \u00fat \u00far henni, e\u00f0a \u00e9g fann volgan hita leggjast yfir handarbaki\u00f0, mj\u00faklega eins og \u00fa\u00f0i, og \u00feegar \u00e9g dr\u00f3 til m\u00edn h\u00f6ndina var h\u00fan l\u00f6\u00f0randi \u00ed sl\u00edmi. Sumt af \u00fev\u00ed haf\u00f0i leki\u00f0 on\u00ed gulu st\u00edgv\u00e9lin.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd stofunni var slatti af h\u00fasg\u00f6gnum og st\u00f3r t\u00f6lvuskj\u00e1r \u00e1 bor\u00f0i. \u00c1 efri h\u00e6\u00f0inni voru svefnherbergi barnanna en Alma svaf \u00ed litlu herbergi \u00fat af stofunni \u00e1 svefns\u00f3fa. Vi\u00f0 l\u00f6g\u00f0umst upp \u00ed s\u00f3fann og h\u00fan kveikti \u00e1 h\u00e1talara \u00fear sem heyr\u00f0ist \u00ed konu sem hv\u00edsla\u00f0i og strauk grei\u00f0u \u00ed gegnum h\u00e1ri\u00f0. Alma reyndi a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra fyrir m\u00e9r hvernig \u00feessi hv\u00edslandi kona b\u00e6g\u00f0i burt kv\u00ed\u00f0a. \u00c1 eftir sag\u00f0ist h\u00fan vinna vi\u00f0 a\u00f0 forma hreyfingar pers\u00f3na \u00ed t\u00f6lvuleikjum en l\u00e9ti sig dreyma um a\u00f0 gefa \u00fat eigin leik sem h\u00e9ti Hiroshima, fullkomna endursk\u00f6pun hinnar s\u00f6gulegu borgar Hiroshima \u00ed \u00fer\u00edv\u00eddd \u00e1 deginum sem bombunni Litla str\u00e1k var varpa\u00f0 \u00e1 hana: spilarinn \u00e6tti a\u00f0 safna \u00edtemum og bjarga eins m\u00f6rgum manneskjum fr\u00e1 dau\u00f0a og h\u00e6gt v\u00e6ri.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sofna\u00f0i loksins.<\/p>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">5<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar \u00e9g var barn gekk \u00e9g eftir str\u00f6nd vi\u00f0 st\u00f6\u00f0uvatn, \u00e9g man ekki samhengi\u00f0 en \u00e6tli \u00e9g og foreldrar m\u00ednir h\u00f6fum ekki veri\u00f0 \u00ed sumarb\u00fasta\u00f0. \u00dear \u00e1 gr\u00e1um sandi gekk \u00e9g fram \u00e1 eldri konu, sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 h\u00fan hefur allt eins geta\u00f0 veri\u00f0 tv\u00edtug, \u00fer\u00edtug e\u00f0a fertug. H\u00fan haf\u00f0i bakka\u00f0 litlum jeppa ni\u00f0ur \u00ed fl\u00e6\u00f0arm\u00e1li\u00f0, aftan \u00ed jeppanum var kerra og \u00e1 henni langt r\u00f6r sem konan var \u00ed \u00f3\u00f0a\u00f6nn a\u00f0 skr\u00fafa upp \u00ed loft og sn\u00faa \u00fev\u00ed svo \u00fat \u00e1 hli\u00f0 samkv\u00e6mt t\u00f6lum \u00e1 skj\u00e1 ofan \u00e1 \u00feaki b\u00edlsins. \u00c9g spur\u00f0i hva\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 gera.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g er \u00ed vinnunni litli minn<\/em>, sag\u00f0i h\u00fan \u00fe\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Vi\u00f0 hva\u00f0 vinnur\u00f0u?<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g vinn vi\u00f0 a\u00f0 leita a\u00f0 t\u00fdndu f\u00f3lki.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan s\u00fdndi m\u00e9r r\u00f6ri\u00f0 og leyf\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 klifra um bor\u00f0 \u00ed kerruna og horfa inn um r\u00f6ri\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00de\u00fa ver\u00f0ur feginn a\u00f0 vera ekki me\u00f0 h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00fearna eftir sm\u00e1stund<\/em>, sag\u00f0i h\u00fan \u00fe\u00e1 me\u00f0 h\u00famor \u00ed r\u00f6ddinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Af hverju?<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan opna\u00f0i skotti\u00f0 \u00e1 b\u00edlnum \u00fear sem var kassi fullur af st\u00f3rum og \u00feungum k\u00falum.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00deetta eru fallbyssuk\u00falur<\/em>, sag\u00f0i h\u00fan \u00fe\u00e1. <em>Veistu hva\u00f0 ma\u00f0ur gerir vi\u00f0 \u00feannig k\u00falur?<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>L\u00e6tur \u00fe\u00e6r \u00ed fallbyssuna.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Alveg r\u00e9tt.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0 \u00feessu loknu opna\u00f0i h\u00fan hlera ne\u00f0st \u00e1 fallbyssur\u00f6rinu, h\u00edf\u00f0i eina af k\u00falunum \u00feanga\u00f0 og l\u00e9t hana falla on\u00ed r\u00f6ri\u00f0. Dynkurinn var \u00feungur eins og allt l\u00edf fullor\u00f0inna v\u00e6ri \u00fear sam\u00fejappa\u00f0, og \u00f3ma\u00f0i \u00fat yfir vatni\u00f0, g\u00e6ddi \u00fea\u00f0 depur\u00f0 og formi sem ekkert r\u00fama\u00f0ist \u00ed. Sj\u00e1lfsagt kom \u00e9g ekki or\u00f0um yfir \u00fea\u00f0 fyrr en s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p>Eftir nokkra sn\u00faninga \u00ed vi\u00f0b\u00f3t og gl\u00e1p \u00e1 skj\u00e1inn ba\u00f0 konan mig a\u00f0 f\u00e6ra mig fj\u00e6r b\u00edlnum og gr\u00edpa fyrir eyrun. \u00c9g hl\u00fdddi en \u00fe\u00f3ttist bara taka fyrir eyrun. Glymjandi hvellur heyr\u00f0ist fr\u00e1 byssunni, svo h\u00e1r a\u00f0 vatni\u00f0 n\u00e6st okkur g\u00e1ra\u00f0ist, og s\u00far reykur fyllti lofti\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Sj\u00e1\u00f0u<\/em>, hr\u00f3pa\u00f0i konan og benti \u00fat \u00e1 vatni\u00f0, r\u00f6ddin hennar var fjarl\u00e6g. \u00c9g s\u00e1 vatnsgusu st\u00edga til himins langt \u00fati \u00e1 st\u00f6\u00f0uvatninu. Konan sneri fallbyssunni, b\u00e6tti vi\u00f0 k\u00falu og skaut aftur. \u00c6randi h\u00e1va\u00f0i, gusa \u00fati \u00e1 vatninu. Hvellur, gusa. Hvellur, gusa. \u00c1 milli \u00feess a\u00f0 konan hleypti af t\u00f3k h\u00fan upp k\u00edki og star\u00f0i gegnum hann \u00fat \u00e1 vatni\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Ertu a\u00f0 finna t\u00fdnda f\u00f3lki\u00f0<\/em>? spur\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Vonandi.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan skaut nokkrum sinnum \u00ed vi\u00f0b\u00f3t \u00fear til h\u00fan fann \u00fea\u00f0 sem h\u00fan leita\u00f0i, \u00e9g s\u00e1 \u00fea\u00f0 af fasinu: h\u00fan horf\u00f0i \u00ed k\u00edkinn en l\u00e9t hann svo s\u00edga, p\u00edr\u00f0i augun \u00fat \u00e1 vatni\u00f0 og kinka\u00f0i kolli.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00dearna er hann<\/em>, sag\u00f0i h\u00fan a\u00f0 lokum. H\u00fan r\u00e9tti m\u00e9r k\u00edkinn, hj\u00e1lpa\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 beina honum \u00ed r\u00e9tta \u00e1tt \u00fear til \u00e9g s\u00e1 \u00fea\u00f0 sama og h\u00fan: \u00fea\u00f0 l\u00edktist trj\u00e1bol flj\u00f3tandi \u00ed vatninu.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00deetta er karl sem gekk \u00fat \u00ed vatni\u00f0 og d\u00f3<\/em>, sag\u00f0i konan. <em>Allir vinir hans hafa veri\u00f0 a\u00f0 leita a\u00f0 honum en n\u00fa fundum vi\u00f0 hann. N\u00fa getum vi\u00f0 jar\u00f0a\u00f0 hann.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">\u2042<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g h\u00e9lt \u00e1fram g\u00f6ngunni og fann \u00e1 m\u00e9r a\u00f0 henni f\u00e6ri a\u00f0 lj\u00faka. R\u00e9ttara sagt s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 fjalli\u00f0 var svo n\u00e6rri a\u00f0 br\u00e1tt hlyti \u00e9g a\u00f0 koma a\u00f0 r\u00f3tum \u00feess og byrja klifri\u00f0. \u00c1 tindinum s\u00e6i \u00e9g \u00fe\u00e1 v\u00e6ntanlega on\u00ed fjalli\u00f0 og g\u00e6ti \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00ed framhaldinu hva\u00f0 best v\u00e6ri a\u00f0 gera. Eftir \u00fev\u00ed sem n\u00e6r dr\u00f3 greindi \u00e9g hlj\u00f3\u00f0 fr\u00e1 fjallinu, taktfastan sl\u00e1tt \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 <em>tunk tunk tunk<\/em>, \u00feurrt hlj\u00f3\u00f0, eins og einhver sp\u00fdtti \u00feurru en \u00e1 sl\u00edkum hra\u00f0a a\u00f0 ekkert s\u00e1st sem kom \u00fat. \u00c1 \u00f3venju lygnum degi greindi \u00e9g \u00fej\u00f3tandi r\u00e1kir ofan vi\u00f0 fjalli\u00f0, l\u00f3\u00f0r\u00e9ttar, bein strik \u00fat \u00ed geim, en \u00fea\u00f0 var ekkert til a\u00f0 vera viss um.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fasin \u00e1 hvora h\u00f6nd voru \u00feau s\u00f6mu og fyrr. Grasi\u00f0 \u00fea\u00f0 sama og fuglarnir, tr\u00e9n, l\u00e6kurinn, fiskarnir, litlu br\u00fdrnar fr\u00e1 einum bakka yfir \u00e1 hinn. Vatni\u00f0 var svalt og gott, s\u00f3lin heit. \u00c1 minni l\u00f6ngu g\u00f6ngu haf\u00f0i \u00e9g kynnst f\u00f3lki, noti\u00f0 \u00e1sta og teki\u00f0 lit. \u00c9g vissi ekki hva\u00f0 anna\u00f0 v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 bi\u00f0ja um. \u00dereki\u00f0 var betra en \u00e1\u00f0ur og \u00e9g gaf mig ekki lengur a\u00f0 hugsunum sem l\u00e1gu \u00ed hring og h\u00f6f\u00f0u ekkert svar, og \u00fea\u00f0 sem h\u00e9t tilfinningar<strong> <strong>\u2013<\/strong><\/strong> frumst\u00e6\u00f0 og m\u00f6gulega sk\u00fdrari ger\u00f0 hugsunar <strong>\u2013<\/strong> kom \u00e6 sjaldnar til m\u00edn eftir \u00fev\u00ed sem \u00e9g leita\u00f0i minna \u00ed samneyti vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00e6r fjallinu f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 taka eftir \u00f6\u00f0ru hlj\u00f3\u00f0i en tunkinu, \u00fea\u00f0 var m\u00fdkra og reglulegra. \u00cd lj\u00f3saskiptunum settist \u00e9g undir tr\u00e9 og leyf\u00f0i \u00feessu hlj\u00f3\u00f0i a\u00f0 renna me\u00f0 bl\u00f3\u00f0inu \u00ed m\u00e9r, hring um l\u00edkamann, a\u00f0 og fr\u00e1, og gruna\u00f0i af hverju \u00fea\u00f0 stafa\u00f0i. \u00c9g lag\u00f0ist til svefns undir runna, sveipa\u00f0i um mig teppinu og \u00ed dagrenningunni braut \u00e9g \u00fea\u00f0 saman og gekk s\u00ed\u00f0asta sp\u00f6linn \u00e1 fer\u00f0alagi m\u00ednu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g kom a\u00f0 str\u00f6nd. \u00dear sem h\u00fasin endu\u00f0u t\u00f3k vi\u00f0 fjara, mj\u00f3 og sendin. \u00dear utar var sj\u00f3rinn, hann teyg\u00f0i sig lengri lei\u00f0 en \u00e9g bj\u00f3st vi\u00f0 a\u00f0 fjallinu sem var \u00e1 eyju fyrir utan str\u00f6ndina. Upp \u00far tindi fjallsins sp\u00fdttist holl af \u00feessum hlutum sem vildu burt, hurfu \u00e1 lj\u00f3shra\u00f0a <strong>\u2013<\/strong> e\u00f0a \u00feannig or\u00f0a\u00f0i \u00e9g \u00fea\u00f0 fyrir sj\u00e1lfum m\u00e9r <strong>\u2013<\/strong> upp \u00ed bl\u00e1mann og \u00fat \u00ed myrkri\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g settist \u00e1 grj\u00f3t \u00ed fj\u00f6rukambinum og nudda\u00f0i \u00e1 m\u00e9r andliti\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00e1 syndi \u00e9g?\u201c sag\u00f0i \u00e9g til a\u00f0 m\u00e1ta mig vi\u00f0 \u00fea\u00f0. En fjarl\u00e6g\u00f0in var of mikil. \u00c9g reif mig \u00e1 f\u00e6tur og gekk eftir str\u00f6ndinni, \u00ed og me\u00f0 til a\u00f0 g\u00e6gjast fyrir horn \u00e1 fjallinu ef ske kynni a\u00f0 \u00fea\u00f0 st\u00e6\u00f0i yst \u00e1 nesi sem m\u00e6tti \u00fe\u00e1 n\u00e1lgast me\u00f0 \u00e1framhaldandi g\u00f6ngu. Eftir allan \u00feennan t\u00edma me\u00f0 h\u00fas \u00e1 b\u00e1\u00f0ar hendur var ringlandi a\u00f0 hafa \u00feau bara \u00f6\u00f0rum megin: til vinstri var regluleg r\u00f6\u00f0 af h\u00fasum en n\u00fa s\u00e9\u00f0 fr\u00e1 hli\u00f0 en ekki a\u00f0 aftan, og \u00ed hina \u00e1ttina var vellandi sj\u00f3rinn me\u00f0 lykt af salti og \u00feangi.<\/p>\n\n\n\n<p>Lj\u00f3saskiptin komu og framundan, \u00e1 fj\u00f6rukambinum, s\u00e1 \u00e9g \u00fatl\u00ednur manns. Hann st\u00f3\u00f0 og bei\u00f0 m\u00edn, hokinn og veiklulegur \u00ed fasi, m\u00e9r fannst \u00e9g n\u00e6stum \u00fev\u00ed greina skj\u00e1lftann \u00ed hreyfingum hans. \u00deegar n\u00e6r dr\u00f3 s\u00e1 \u00e9g framan \u00ed hann, le\u00f0ra\u00f0 og hrukk\u00f3tt andlit, og glitti \u00ed silaleg augun undir framst\u00e6\u00f0u, slapandi enni. Hann studdi sig vi\u00f0 sk\u00f3flu og virtist a\u00f0framkominn eftir eitthva\u00f0 erfi\u00f0i. \u00c9g fylgdi augliti hans a\u00f0 h\u00fasinu n\u00e6st okkur. Sandur fr\u00e1 str\u00f6ndinni haf\u00f0i foki\u00f0 \u00fat yfir grasi\u00f0 \u00ed gar\u00f0inum og h\u00fasveggurinn sem sneri a\u00f0 okkur var ve\u00f0ra\u00f0ur. Engin gir\u00f0ing var umhverfis gar\u00f0inn og hola \u00ed honum mi\u00f0jum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 ertu a\u00f0 horfa \u00e1 gamli?\u201c spur\u00f0i \u00e9g en bei\u00f0 ekki eftir svari. \u00c9g gekk a\u00f0 gar\u00f0inum og virti fyrir m\u00e9r holuna. H\u00fan var \u00e1 lengd vi\u00f0 manneskju og n\u00f3gu dj\u00fap til a\u00f0 m\u00e6tti jar\u00f0a eina sl\u00edka. Moldarhaugur var n\u00e6st holunni, sem \u00e9g ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 karlinn hef\u00f0i moka\u00f0 til a\u00f0 framkalla gr\u00f6fina. Kannski l\u00e1 honum \u00e1 a\u00f0 deyja.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g greindi hreyfingu fyrir aftan mig. Eitthva\u00f0 skall \u00e1 h\u00f6f\u00f0inu og \u00e9g bar fyrir mig hendurnar, en \u00fea\u00f0 var of seint. M\u00e9r fannst bl\u00f3\u00f0i\u00f0 renna \u00far \u00feeim og m\u00e9r \u00f6llum. \u00c9g seig ni\u00f0ur \u00e1 hn\u00e9n, depla\u00f0i augunum. Holan var beint fyrir framan mig. \u00cd stutta stund s\u00e1 \u00e9g hvert sm\u00e1atri\u00f0i hennar eins og kveikt v\u00e6ri \u00e1 blysi \u00e1 himninum, fl\u00e6r skutust um veggina me\u00f0 \u00feruski, ormur rann inn um holu \u00ed bakkanum, glampandi vatn l\u00e1 \u00e1 botninum. \u00c9g heyr\u00f0i karlinn stynja vi\u00f0 eyra\u00f0, uppg\u00f6tva\u00f0i a\u00f0 hann h\u00e9lt undir handleggina \u00e1 m\u00e9r og reyndi a\u00f0 velta m\u00e9r ofan \u00ed gr\u00f6fina. \u00c9g ger\u00f0i mitt besta til a\u00f0 streitast \u00e1 m\u00f3ti en haf\u00f0i ekki kraft \u00ed \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00e1 hrapa\u00f0i \u00e9g og ver\u00f6ldin snerist \u00e1 hvolf. Dynkur kom \u00e1 baki\u00f0 og allt sem \u00e9g s\u00e1 var\u00f0 hv\u00edtt \u00ed augnablik, \u00fear til myrkri\u00f0 \u00ferengdi a\u00f0 fr\u00e1 hli\u00f0unum en skildi eftir svol\u00edtinn glugga. H\u00f6fu\u00f0 gamla mannsins g\u00e6g\u00f0ist inn um gluggann en hvarf svo aftur. Mold s\u00e1ldra\u00f0ist ni\u00f0ur til m\u00edn en kom svo \u00ed gusum eins og karlinn hef\u00f0i muna\u00f0 hvernig \u00e1tti a\u00f0 nota sk\u00f3fluna. M\u00e9r var\u00f0 hugsa\u00f0 til l\u00edfs m\u00edns: \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 hef\u00f0i virka\u00f0 langt og \u00e1 einhvern h\u00e1tt kn\u00fdjandi me\u00f0an \u00e1 \u00fev\u00ed st\u00f3\u00f0, var ekki beinl\u00ednis neitt sem \u00e9g sakna\u00f0i. Og mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fereytuna sem fylgdi \u00fev\u00ed a\u00f0 halda \u00f6llu gangandi, hreyfa sig innan og utan, var l\u00e9ttir a\u00f0 \u00feurfa \u00feess ekki lengur. <strong>\u2013<\/strong> Eftir langa g\u00f6ngu, a\u00f0 liggja og finna j\u00f6r\u00f0ina \u00fe\u00e9ttast utan um sig og ver\u00f0a a\u00f0 engu.<\/p>\n\n\n\n<p><em>M\u00e9r \u00feykir \u00fea\u00f0 leitt.<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Steinar Bragi 1 Vi\u00f0 stigum \u00fat \u00far b\u00edlnum \u00ed \u00fathverfi. G\u00f6turnar voru langar og beinar og teyg\u00f0u sig sex talsins \u00fat fr\u00e1 mi\u00f0ju \u00fear sem var glampandi glerk\u00fapull me\u00f0 hv\u00edtum f\u00e1na upp \u00far \u00feakinu. Vi\u00f0 enda hverrar g\u00f6tu t\u00f3k svo vi\u00f0 \u00f6nnur sams konar bygging og \u00feannig koll af kolli eins langt og auga\u00f0 eyg\u00f0i. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"jetpack_post_was_ever_published":false,"footnotes":""},"class_list":["post-630","page","type-page","status-publish","hentry"],"jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/630","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=630"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/630\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":678,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/630\/revisions\/678"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=630"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}