{"id":705,"date":"2025-06-14T14:38:12","date_gmt":"2025-06-14T14:38:12","guid":{"rendered":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=705"},"modified":"2025-06-19T11:21:52","modified_gmt":"2025-06-19T11:21:52","slug":"kyrra-lif","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/stelkur.is\/?page_id=705","title":{"rendered":"Kyrra l\u00edf"},"content":{"rendered":"\n<h3 class=\"wp-block-heading has-text-align-center\">Kar\u00f3l\u00edna R\u00f3s \u00d3lafsd\u00f3ttir<\/h3>\n\n\n\n<div style=\"height:100px\" aria-hidden=\"true\" class=\"wp-block-spacer\"><\/div>\n\n\n\n<p>Kart\u00f6flurnar eru farnar a\u00f0 sp\u00edra \u00ed sk\u00e1pnum undir ofninum. Lj\u00f3sfj\u00f3lubl\u00e1ir og sk\u00e6rgr\u00e6nir angar stingast \u00fat um netapokann og teygja sig upp, nokkrir til hli\u00f0ar en a\u00f0allega upp. Eins og griparmar e\u00f0a f\u00e1lmarar sem fagna endurkomu lj\u00f3ssins eftir langa n\u00f3tt. R\u00f3tarskotin standa teinr\u00e9tt! \u00deau eru eins og margar litlar hendur sem bi\u00f0ja mig um a\u00f0 taka sig \u00ed fangi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feau telja mig frelsara sinn \u2013 \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e9g sem kaupi alltaf fleiri kart\u00f6flur en \u00e9g f\u00e6 torga\u00f0 \u2013 og s\u00e9 \u00ed raun fangarinn. Pr\u00edsundin \u00ed eldh\u00fassk\u00e1pnum for\u00f0a\u00f0i \u00feeim vissulega fr\u00e1 forso\u00f0nu s\u00f6ltu\u00f0u vatni hugsa \u00e9g. \u00dea\u00f0 var m\u00e9r a\u00f0 \u00feakka. For\u00f0a\u00f0i \u00feeim fr\u00e1 <em>St\u00f6kkum kr\u00f6mdum kart\u00f6flum Sunnu<\/em> sem \u00e9g l\u00e6r\u00f0i n\u00fdlega a\u00f0 gera og get ekki h\u00e6tt a\u00f0 hugsa um. Falleg kona me\u00f0 gelneglur kramdi so\u00f0nar kart\u00f6flur endurteki\u00f0 undir glerglasi me\u00f0 \u00feykkum botni \u00e1\u00f0ur en h\u00fan krydda\u00f0i og velti upp \u00far matars\u00f3da og setti svo \u00ed ofn. \u201eGu\u00f0d\u00f3mlegt\u201c fullvissa\u00f0i h\u00fan mig um r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en myndbandi\u00f0 t\u00f3k annan hring og konan, Sunna reikna \u00e9g me\u00f0, s\u00fdndi m\u00e9r aftur hvernig best v\u00e6ri a\u00f0 leggja \u00feungt glasi\u00f0 \u00e1 mj\u00fakt r\u00f3targr\u00e6nmeti\u00f0 og kremja \u00fea\u00f0 r\u00e9tt. Ekki svo \u00fea\u00f0 fletjist \u00fat heldur r\u00e9tt n\u00f3g til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 tapi s\u00ednu upprunalega formi svo \u00fe\u00fa getir gefi\u00f0 \u00fev\u00ed n\u00fdtt. G\u00f3\u00f0ar me\u00f0 gr\u00edskri j\u00f3g\u00fart e\u00f0a chilli-m\u00e6j\u00f3. \u00deetta var lykillinn. Leyndarm\u00e1l Sunnu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g vakna me\u00f0 kl\u00edstru\u00f0 augu og m\u00e6ti kart\u00f6flupokanum aftur \u00feremur d\u00f6gum seinna vi\u00f0 leit m\u00edna a\u00f0 einhverju \u00e6tilegu. \u00cdssk\u00e1purinn t\u00f3mur utan Smj\u00f6rva og hv\u00edtlauks. \u00c9g legg af sta\u00f0 til l\u00e6knis og hugsa a\u00f0 \u00e9g ver\u00f0i a\u00f0 muna a\u00f0 koma vi\u00f0 \u00ed b\u00fa\u00f0. \u00c9g sit \u00ed heilan dag \u00e1 bi\u00f0stofu \u00e1n \u00feess a\u00f0 f\u00e1 skrifa\u00f0 upp \u00e1 s\u00fdklalyf. Sama hva\u00f0 \u00e9g h\u00f3sta og d\u00e6si \u00fear sem \u00e9g sit \u00e1 m\u00f3ti f\u00f6lu endurprenti af m\u00e1lverki Krist\u00ednar J\u00f3nsd\u00f3ttur <em>Kyrra l\u00edfi<\/em> finnst mj\u00f3slegnum, \u00e1kve\u00f0num hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingi varla \u00e1st\u00e6\u00f0a til \u00feess a\u00f0 leyfa m\u00e9r a\u00f0 hitta l\u00e6kni. S\u00farefnisinntakan er 100 pr\u00f3sent og lungun hlj\u00f3ma nokku\u00f0 vel. \u00c9g spyr hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 e\u00f0lilegt a\u00f0 f\u00e1 gular st\u00edrur \u00e1 morgnana og vera svona rau\u00f0 um augun. <em>Finnst \u00fe\u00e9r \u00feau mj\u00f6g rau\u00f0? <\/em>spyr h\u00fan til baka. <em>Hvernig eru \u00feau venjulega? <\/em>Eplin \u00e1 mynd Krist\u00ednar eru fletir lita. \u00deetta er eitt af \u00feessum m\u00e1lverkum \u00fear sem \u00fea\u00f0 eru engin hlutf\u00f6ll, \u00ed sta\u00f0inn sn\u00fdst allt um r\u00e9tt magn lita. Akk\u00farat svona miki\u00f0 bl\u00e1tt. Pera g\u00e6ti veri\u00f0 \u00e1 st\u00e6r\u00f0 vi\u00f0 vatnsmel\u00f3nu og h\u00f6fu\u00f0 \u00e1 st\u00e6r\u00f0 vi\u00f0 kirsuber \u2013 markmi\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 skapa margslungi\u00f0 p\u00fasluspil. Markmi\u00f0i\u00f0 er ekki a\u00f0 segja \u00fe\u00e9r hvernig heimurinn er heldur hvernig hann getur ra\u00f0ast saman. Hva\u00f0 g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0. <em>\u00deau eru ekki svona venjulega, <\/em>svara \u00e9g \u00fe\u00f3tt \u00e9g efist au\u00f0vita\u00f0 n\u00fana. Kannski er hv\u00edtan \u00ed augunum ekki eins hv\u00edt og mig minnti. Kannski eru gulu eplin \u00e1 mynd Krist\u00ednar kart\u00f6flur. \u00dea\u00f0 er sjaldan sem \u00e9g hef lent \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur og m\u00e1lverk spyrji mig s\u00f6mu spurninga. <em>\u00dea\u00f0 er almennt ekki veri\u00f0 a\u00f0 gefa s\u00fdklalyf fyrr en \u00fe\u00fa hefur veri\u00f0 me\u00f0 mikla verki \u00ed a\u00f0 minnsta kosti t\u00edu daga, <\/em>hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingurinn r\u00e9ttir m\u00e9r tissj\u00fa \u00fear sem \u00e9g h\u00f3sta lj\u00f3sgulu. <em>Kl\u00e6\u00f0a sig vel og bor\u00f0a hollt, <\/em>segir h\u00fan gla\u00f0lega og n\u00e6r einhvern veginn a\u00f0 lei\u00f0a mig \u00fat \u00far stofunni \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00e9g taki eftir \u00fev\u00ed. \u00c9g labba heim me\u00f0fram sj\u00f3num og t\u00fdnist \u00ed a\u00f0 \u00edmynda m\u00e9r hverskonar augnskuggar g\u00e6tu fari\u00f0 vel me\u00f0 bleikri hv\u00edtu, ef ske kynni a\u00f0 \u00feessi fl\u00f6tur litar v\u00e6ri kominn til a\u00f0 vera. \u00c9g kemst heim \u00e1n \u00feess a\u00f0 muna eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00ed b\u00fa\u00f0. Heilinn n\u00e6r ekki a\u00f0 halda uppi b\u00e6\u00f0i listanum: <em>brau\u00f0, ostur, g\u00farka (ef til)<\/em>, og \u00fev\u00ed hvernig best v\u00e6ri a\u00f0 ramma \u00feessa n\u00fdju verund inn.<\/p>\n\n\n\n<p>Sp\u00edrurnar \u00ed sk\u00e1pnum eru n\u00fa d\u00f6kkfj\u00f3lubl\u00e1ar. \u00de\u00e6r eru or\u00f0nar svo langar a\u00f0 \u00feegar \u00e9g opna sk\u00e1phur\u00f0ina renna nokkrir angar s\u00e9r \u00fat og yfir br\u00fanina \u00e1 hillunni. Eru kannski b\u00fanir a\u00f0 fatta a\u00f0 heimurinn s\u00e9 st\u00e6rri en Maximera 50&#215;80 me\u00f0 beinhv\u00edtri framhli\u00f0. \u00c9g sit \u00e1 h\u00e6kjum m\u00e9r og fylgist me\u00f0 \u00f6ngunum teygja sig um allar trissur, \u00feyrstir \u00ed n\u00e6ringu af einhverju tagi, v\u00f6kva, s\u00f3l. A\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 meira og betra sem b\u00ed\u00f0ur \u00feeirra. Kjallara\u00edb\u00fa\u00f0in er ekki st\u00f3r sem \u00edb\u00fa\u00f0 en v\u00e6ri vel \u00fatil\u00e1tinn r\u00e6ktunarskiki. V\u00e6ri fallegur fl\u00f6tur \u00e1 landi \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 ekki \u00fdkja merkileg \u00fear sem h\u00fan stendur, merkt me\u00f0 st\u00f3ru ry\u00f0gu\u00f0u 8 og litlu b, gengi\u00f0 inn a\u00f0 aftan. Brynj\u00f3lfi finnst \u00edb\u00fa\u00f0in svosem ekkert l\u00edtil en hann er miki\u00f0 fyrir \u00fativist og tekur takmarka\u00f0an \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 halda heimilinu f\u00ednu, \u00fe\u00f3tt hann hafi miklar sko\u00f0anir \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00e9g eigi miki\u00f0 drasl. Hann hefur ekki teki\u00f0 eftir kart\u00f6flunum heldur, og fyrst hvorugt okkar hefur enda\u00f0 tilvist \u00feeirra hefur gr\u00e6nmeti\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi a\u00f0 \u00fer\u00f3ast \u00e1fram, ver\u00f0a planta og \u00e1 s\u00e9r n\u00fa draum um a\u00f0 ver\u00f0a kart\u00f6flum\u00f3\u00f0ir, st\u00e6r\u00f0arinnar net \u00fer\u00e1\u00f0a. Kart\u00f6flugar\u00f0ar eru ekkert anna\u00f0 en samf\u00e9l\u00f6g ne\u00f0anjar\u00f0ar, segir Brynj\u00f3lfur sposkur \u00feegar \u00e9g s\u00fdni honum ferl\u00edki\u00f0. \u00dea\u00f0 er satt, \u00feau eru eins og vi\u00f0, me\u00f0 mi\u00f0jum og augum og \u00f6rmum. Skj\u00f3ta svo upp litlum dj\u00fapgr\u00e6num laufbr\u00faskum \u00feegar \u00feeim l\u00ed\u00f0ur n\u00f3gu vel og \u00fe\u00f3 a\u00f0 okkur skorti getuna til a\u00f0 bl\u00f3mstra jafn fallega eigum vi\u00f0 \u00fdmsar hli\u00f0st\u00e6\u00f0ur: listsk\u00f6pun, hl\u00e1tur, standp\u00ednu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g tek til \u00ed eldh\u00fasinu, \u00feurrka af, moppa, h\u00f3sta upp \u00feykku sl\u00edmi, v\u00f6kva veikbur\u00f0a r\u00f3smar\u00edn \u00ed glugganum. Eldh\u00fasbekkurinn er blessunarlega \u00far efni sem heldur s\u00e9r vel, m\u00e1 vel \u00fer\u00edfa, \u00e1 me\u00f0an restin er \u00far \u00f3d\u00fdrum sp\u00f3napl\u00f6tum. Allt l\u00edmt e\u00f0a \u00fev\u00ed p\u00fasla\u00f0 saman me\u00f0 t\u00f6ppum sem ekki er h\u00e6gt a\u00f0 endurn\u00fdta. \u00deegar pabbi kom fyrst \u00ed heims\u00f3kn hristi hann h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 dapurlega, <em>enn eitt skamm\u00e6rt eldh\u00fasi\u00f0. <\/em>Hann l\u00fdsti oft yfir \u00e1hyggjum s\u00ednum af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekkert vanda\u00f0 \u00ed ver\u00f6ldinni lengur sem h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 arflei\u00f0a n\u00e6stu kynsl\u00f3\u00f0ir a\u00f0, og smi\u00f0shjarta\u00f0 brast \u00f6rl\u00edti\u00f0 \u00ed hvert sinn. <em>\u00dea\u00f0 \u00e1 enginn skatthol lengur, enginn neitt \u00far mahon\u00ed. <\/em>Stundum ef mig langar a\u00f0 taka p\u00e1su fr\u00e1 \u00f3rei\u00f0unni \u00ed h\u00f6f\u00f0inu og \u00e1 skj\u00e1num \u00fe\u00e1 byrja \u00e9g a\u00f0 hella upp \u00e1 meira kaffi og segi, <em>b\u00edddu<\/em> <em>hva\u00f0 er aftur mahon\u00ed? <\/em>Leyfi svo dj\u00fapri r\u00f6ddinni a\u00f0 m\u00e6ra d\u00f6kkan vi\u00f0inn \u00fear til ekkert kemst a\u00f0 nema sk\u00f3gur \u00feeirra trj\u00e1a sem taka sig vel \u00fat sem mublur, sem m\u00fdkst er a\u00f0 t\u00e1lga, gefa n\u00fdtt form.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sest \u00e1 g\u00f3lfi\u00f0 fyrir framan kart\u00f6fluna og sendi pabba sms, hvort hann vilji ekki k\u00edkja vi\u00f0 \u00ed kaffi. \u00c9g hlakka til a\u00f0 s\u00fdna honum. Brynj\u00f3lfur \u00fearf a\u00f0 komast inn \u00ed eldh\u00fas og smeygir s\u00e9r framhj\u00e1 m\u00e9r. Hann r\u00e9tt danglar \u00ed fj\u00f3lubl\u00e1an arminn \u00e1 lei\u00f0 hj\u00e1, eflaust a\u00f0 fur\u00f0a sig \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vegna \u00e9g stari svona einbeitt \u00e1 \u00f3\u00e6tar kart\u00f6flur. \u00c9g s\u00e9 \u00fea\u00f0 oft a\u00f0 honum finnst \u00e9g ey\u00f0a of l\u00f6ngum t\u00edma \u00ed eldh\u00fasinu a\u00f0 bard\u00fasa eitthva\u00f0. Bara svona eitthva\u00f0. A\u00f0 hans mati \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 elda meira og yfirh\u00f6fu\u00f0 bor\u00f0a meira. Kaupa inn betri matv\u00f6rur og g\u00e6\u00f0ameiri og kannski \u00far Kr\u00f3nunni st\u00f6ku sinnum e\u00f0a Hagkaup, ekki alltaf Euroshopper-B\u00f3nus-s\u00ed\u00f0asti-s\u00e9ns. Hann er sj\u00e1lfur ekki hrifinn af kart\u00f6flum. Nema, j\u00fa, kart\u00f6flust\u00f6ppu bor\u00f0ar hann en bara ef mig langar \u00ed hana og hef b\u00fai\u00f0 hana til. Helst vill hann hana \u00f3salta\u00f0a og me\u00f0 fiski, \u00fe\u00e1 stendur hann yfir pottinum \u00f3\u00feolinm\u00f3\u00f0ur og er svo frekur \u00e1 fiskinn a\u00f0 \u00e9g \u00fearf passa mig a\u00f0 l\u00edta ekki af m\u00ednum skammti, annars stelur hann af diskinum.<\/p>\n\n\n\n<p>Mamma, sem hefur fr\u00e9tt af kart\u00f6flunum, segir a\u00f0 \u00e9g eigi a\u00f0 henda pokanum eins og hann leggur sig, og passa a\u00f0 Brynj\u00f3lfur bor\u00f0i \u00fe\u00e6r ekki. \u00de\u00e6r s\u00e9u vissulega holl og g\u00f3\u00f0 f\u00e6\u00f0a og fullar af orku en ekki \u00feegar svona er komi\u00f0 fyrir \u00feeim. <em>\u00dea\u00f0 er ekki \u00f3h\u00e6tt fyrir ykkur<\/em>, segir h\u00fan. <em>Svona kart\u00f6flur eru or\u00f0nar eitra\u00f0ar. <\/em>Drama. <em>Nei,<\/em> segir mamma, <em>\u00e9g meina \u00fea\u00f0, getur veri\u00f0 ST\u00d3Rh\u00e6ttulegt. <\/em>Vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan heyrir a\u00f0 \u00e9g tr\u00fai henni ekki \u00ed s\u00edmann f\u00e6 \u00e9g hlekk \u00e1 grein um kaffileyti\u00f0 sem a\u00f0 varar vi\u00f0 sp\u00edru\u00f0um og gr\u00e6num kart\u00f6flum. Eins og hver \u00f6nnur l\u00edfvera b\u00fdst kartaflan til a\u00f0 verjast \u00feegar h\u00fan s\u00e9r a\u00f0 h\u00fan \u00e1 s\u00e9ns. Kartafla sem vill ekki vera \u00e9tin af skord\u00fdrum, grasb\u00edtum, ungri konu \u00ed kjallara\u00edb\u00fa\u00f0, framlei\u00f0ir kem\u00edskt efni til \u00feess a\u00f0 verjast. \u00deetta er miklu e\u00f0lilegri notkun efnavopna. A\u00f0 bara s\u00e1 sem b\u00edti \u00feurfi a\u00f0 \u00fej\u00e1st. Efni\u00f0, s\u00f3lan\u00edn, er ekki gott a\u00f0 innbyr\u00f0a og getur haft alvarleg \u00e1hrif \u00e1 taugakerfi\u00f0, valdi\u00f0 kvi\u00f0- og h\u00f6fu\u00f0verkjum, ni\u00f0urgangi, \u00fatbrotum, martr\u00f6\u00f0um, ofskynjunum, \u00fer\u00e1l\u00e1tum kipp \u00ed auga, dau\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g gleymi kart\u00f6flunum og aftur blasa \u00fe\u00e6r vi\u00f0 m\u00e9r me\u00f0 allar hendur upp \u00ed loft \u00feegar \u00e9g opna sk\u00e1pinn til \u00feess a\u00f0 leita a\u00f0 st\u00e1lull. \u00c9g gleymi samstundis hva\u00f0 \u00e9g \u00e6tla\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 skr\u00fabba. Aftur l\u00ed\u00f0ur m\u00e9r eins og herskarinn fagni m\u00e9r, \u00e9g er riddarinn sem er loksins kominn heim \u00far h\u00e1skalegri sva\u00f0ilf\u00f6r. Eftir a\u00f0 \u00e9g stekk af tignarlegum hesti og sveifla h\u00e1rinu l\u00edtillega, svo \u00fea\u00f0 s\u00e9 eins og \u00fea\u00f0 gerist alveg \u00f3vart, veifa \u00e9g til fj\u00f3lubl\u00e1rrar hir\u00f0arinnar sem hr\u00f3par og kallar af gle\u00f0i. Ef \u00feetta v\u00e6ri raunin myndi \u00e9g svo au\u00f0vita\u00f0 giftast fallegustu d\u00f3ttur konungsins og taka vi\u00f0 r\u00edkinu \u00feegar s\u00e1 gamli hrykki upp af. En sem stendur eru \u00fea\u00f0 bara \u00e9g og Brynj\u00f3lfur og klukkan a\u00f0 detta \u00ed fj\u00f6gur. \u00de\u00f3tt \u00e9g haf\u00f0i ekki hent kart\u00f6flunum, e\u00f0a planta\u00f0, og vissi a\u00f0 \u00fearna s\u00e6ti pokinn enn, er \u00e9g einhvern veginn undrandi. Er minnt \u00e1 hvernig l\u00edf heldur \u00e1fram a\u00f0 \u00fer\u00edfast og dafna \u00fe\u00f3 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00far augs\u00fdn.<br><em>Ekki gleyma a\u00f0 henda kart\u00f6flunum, \u00fearf \u00e9g a\u00f0 koma a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fer\u00edfa? <\/em>segir mamma \u00e1hyggjufull \u00ed s\u00edmann. <em>\u00dea\u00f0 getur veri\u00f0 svo erfitt a\u00f0 drepa kart\u00f6flur elskan, \u00fe\u00e6r halda bara \u00e1fram a\u00f0 vaxa. <\/em>\u00dea\u00f0 er v\u00edst svo a\u00f0 ef ein kartafla er skilin eftir \u00ed j\u00f6r\u00f0inni spretta alltaf upp n\u00fd kart\u00f6flugr\u00f6s. <em>Alltaf. <\/em>Aftur, eins og me\u00f0 a\u00f0ra, vir\u00f0ist kartaflan bara vilja lifa af. \u00c9g s\u00fd\u00f0 hafra \u00ed potti \u00e1 me\u00f0an h\u00fan segir m\u00e9r sorgars\u00f6guna. <em>Vi\u00f0 lentum \u00ed \u00feessu, <\/em>segir h\u00fan \u00e1 innsoginu, <em>alveg hrikalegt,<\/em> me\u00f0 sama harmi og f\u00f3rnarlamb fellibyls l\u00fdsir \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fas takist \u00e1 loft, <em>\u00feegar vi\u00f0 keyptum h\u00fasi\u00f0. Kart\u00f6flur alls sta\u00f0ar! <\/em>\u00c9g hugsa strax hva\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti spara\u00f0 m\u00e9r m\u00e1na\u00f0arlega ef kart\u00f6flur hef\u00f0u fylgt h\u00fasinu. \u00c9g g\u00e6ti alveg sleppt \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa parket \u00e1 einu herbergi ef \u00e9g g\u00e6ti alltaf bara stungi\u00f0 hendinni \u00ed g\u00f3lfi\u00f0 og gripi\u00f0 nokkrar \u00ed pott. <em>\u00dea\u00f0 er svo erfitt a\u00f0 finna \u00fe\u00e6r allar, <\/em>\u00fatsk\u00fdrir mamma, <em>\u00fea\u00f0 var vandam\u00e1li\u00f0. <\/em>Mig langar a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 bara vandam\u00e1l ef \u00fe\u00fa \u00e6tlar a\u00f0 breyta kart\u00f6flugar\u00f0i \u00ed bl\u00f3mabe\u00f0 en svara <em>j\u00e1 einmitt. Einmitt<\/em>. L\u00famskir andskotar segir pabbi \u00ed bakgrunn. T\u00fal\u00edpanarnir fengu engan fri\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Brynj\u00f3lfur hefur ekki snert kart\u00f6flurnar \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g hafi skili\u00f0 sk\u00e1phur\u00f0ina eftir opna til a\u00f0 fylgjast me\u00f0 framvindu m\u00e1la. \u00dea\u00f0 er einfaldara a\u00f0 muna me\u00f0 enga hur\u00f0. Og skilja. Vi\u00f0 l\u00e1tum alltaf eins og myndab\u00e6kur s\u00e9u bara gagnlegar b\u00f6rnum sem kunna ekki a\u00f0 reima sk\u00f3nna s\u00edna en svo vir\u00f0ast svo margir \u00feurfa a\u00f0 hafa eitthva\u00f0 beint fyrir framan nefi\u00f0 \u00e1 s\u00e9r til a\u00f0 skilja og tr\u00faa \u00fev\u00ed. Af hverju \u00fearf ma\u00f0ur \u00e1 mi\u00f0jum aldri a\u00f0 sj\u00e1 mynd af l\u00e1tnu barni til \u00feess a\u00f0 s\u00e6kja sam\u00fa\u00f0ina? \u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa sam\u00fa\u00f0ina eins og anna\u00f0. \u00c9g \u00feekki mann sem hefur fari\u00f0 \u00e1 rei\u00f0istj\u00f3rnunarn\u00e1mskei\u00f0 og konu sem hefur fari\u00f0 \u00e1 minnisn\u00e1mskei\u00f0. Hann er or\u00f0inn passasamari og ver\u00f0ur sjaldnar rau\u00f0ur \u00ed framan. N\u00fa n\u00e6r hann a\u00f0 stoppa ro\u00f0ann vi\u00f0 barkak\u00fdli\u00f0. \u00dear mallar hann j\u00fa stundum en f\u00f6lnar alltaf hra\u00f0ar \u00ed laxableikan \u00e1\u00f0ur en hann hverfur. \u00deegar ro\u00f0inn byrjar a\u00f0 r\u00edsa s\u00e9 \u00e9g hvernig hann f\u00e6rir sig inn \u00e1 vi\u00f0, \u00fea\u00f0 s\u00e9st \u00e1 augunum sem ver\u00f0a skyndilega stj\u00f6rf. Au\u00f0vita\u00f0 v\u00e6ri skemmtilegast a\u00f0 l\u00fdsa \u00fev\u00ed sem svo a\u00f0 \u00e9g sj\u00e1i hvernig rofar til \u00e1 fallegum gulbleikum himni \u00feegar \u00e9g s\u00e9 hann reyna a\u00f0 k\u00e6fa rei\u00f0ina \u2013 e\u00f0a tannhj\u00f3l a\u00f0 sn\u00faast fyrst me\u00f0 herkjum svo \u00edskrar en n\u00e1 s\u00e9r svo \u00e1 strik, e\u00f0a hamstur sem hleypur hring eftir hring \u00ed litlu hj\u00f3li \u00fear til hann loksins n\u00e6r a\u00f0 h\u00e6gja \u00e1 s\u00e9r og st\u00f6\u00f0va \u00f3sk\u00f6pin. \u00dea\u00f0 er sefandi a\u00f0 reyna a\u00f0 sj\u00e1 \u00fea\u00f0 fyrir s\u00e9r svolei\u00f0is, eins og myndband merkt: <em>how satisfying is this!<\/em> En \u00fea\u00f0 er ekki eins og a\u00f0 horfa \u00e1 m\u00e1lningu, rau\u00f0a og bl\u00e1a, a\u00f0 ver\u00f0a a\u00f0 fagurfj\u00f3lubl\u00e1rri \u00fev\u00ed allt gengur upp, \u00fea\u00f0 er ekki svolei\u00f0is sem \u00fea\u00f0 ber fyrir sj\u00f3nir. \u00deegar hann fer inn \u00e1 vi\u00f0 er eins og hann loki sig inni \u00ed herbergi. Innan \u00far \u00fev\u00ed heyrist skarkali og vi\u00f0 sem st\u00f6ndum fyrir utan getum ekki komist a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 er a\u00f0 gerast. Hvort einhver setji saman bor\u00f0, r\u00fasti einhverju, s\u00e9 a\u00f0 elda. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u00e1tekta og vona a\u00f0 hann komi \u00fat \u00far herberginu \u00ed heilu lagi.<\/p>\n\n\n\n<p>Mamma sag\u00f0i a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i heyrt a\u00f0 svona menn \u00feyrftu miki\u00f0 a\u00f0 telja. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur \u00ed ferlinu. Telur ma\u00f0ur kindur fyrir rei\u00f0ina eins og svefninn? \u00c9g reyni a\u00f0 \u00edmynda m\u00e9r a\u00f0 hann sj\u00e1i kremhv\u00edt l\u00f6mb sem hoppa gla\u00f0lega yfir grindverk en \u00fea\u00f0 er kannski einhver hugmynd sem \u00e9g hef fr\u00e1 Hollywood. \u00dea\u00f0 vita allir sem hafa fari\u00f0 \u00ed r\u00e9ttir a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekkert r\u00f3andi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 telja kindur. \u00c9g \u00feekki ekki muninn \u00e1 T\u00e1tu og Skutlu \u00feannig a\u00f0 \u00e9g tel hvora tvisvar og 1457 er svo l\u00edtil a\u00f0 h\u00fan fer framhj\u00e1 m\u00e9r og \u00e9g veit ekki einu sinni hva\u00f0 h\u00fan heitir og \u00fe\u00f3 a\u00f0 b\u00f3ndinn \u00feekki \u00fe\u00e6r allar er enginn t\u00edmi til a\u00f0 bera undir hann hvort talan s\u00e9 r\u00e9tt fyrr en st\u00f3rskorin kona hefur spurt mig hvort \u00e9g HAFI EKKI L\u00c6RT A\u00d0 TELJA \u00deARNA \u00cd B\u00c6NUM. \u00der\u00edr, tveir, einn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g veit ekki hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 nokku\u00f0 tala\u00f0 um d\u00fdr \u00e1 svona n\u00e1mskei\u00f0um \u00fev\u00ed f\u00f3lk, og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega karlmenn, vill sjaldan l\u00e1ta bera sig saman vi\u00f0 \u00f6nnur d\u00fdr. Lj\u00f3n og naut og hestar vir\u00f0ast sleppa en \u00fea\u00f0 er oftar en ekki miklu n\u00e6rri lagi a\u00f0 nota endur, meind\u00fdr og \u00f3rang\u00fatana til samanbur\u00f0ar. Mest var\u00f0andi \u00fatlit en eitthva\u00f0 heg\u00f0un. Og me\u00f0an ma\u00f0ur me\u00f0 \u00fatst\u00e6\u00f0 augu, sem sleikti st\u00f6\u00f0ugt \u00fat um og hreyf\u00f0i fingurna \u00f6rt m\u00f3\u00f0ga\u00f0ist agalega \u00feegar \u00e9g sag\u00f0i \u00ed part\u00fdleik a\u00f0 hann minnti helst \u00e1 salam\u00f6ndru, kippa s\u00e9r allt of f\u00e1ir upp vi\u00f0 foxy, t\u00f3fa, t\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p><em>V\u00e1! <\/em>segir pabbi og finnst miki\u00f0 til kart\u00f6flunnar koma sem hefur n\u00fa teki\u00f0 yfir allan sk\u00e1pinn. <em>\u00deetta er eins og taugakerfi! <\/em>\u00dea\u00f0 er ekki svo fjarri lagi. Eins og hi\u00f0 fl\u00f3knasta lestarkort \u00e1 vefurinn a\u00f0 bera n\u00e6ringu og efnabo\u00f0 \u00fevert yfir be\u00f0i\u00f0 svo allt gerist t\u00edmanlega og hvert \u00fats\u00e6\u00f0i geti uppfyllt sinn draum um a\u00f0 ver\u00f0a heljarinnar kart\u00f6flur\u00edki. Svo gildir \u00fea\u00f0 sama um sp\u00edrurnar og vatnslagnir, \u00fe\u00e6r ver\u00f0a bara a\u00f0 haldast heilar til \u00feess a\u00f0 allt gangi upp. Svo a\u00f0 vatni\u00f0 komist \u00e1 lei\u00f0arenda, svo \u00e9g geti skr\u00fafa\u00f0 fr\u00e1 krananum. Svo a\u00f0 hver sp\u00edra skr\u00ed\u00f0i \u00ed \u00e1tt a\u00f0 lj\u00f3si. Svo gildir \u00fea\u00f0 sama um taugaenda okkar, svo bo\u00f0i\u00f0 komist til skila, svo hendin kippist hratt af hellunni. Svo einn f\u00f3turinn f\u00e6rist fram fyrir hinn. Svo sam\u00fa\u00f0in s\u00e9 innbygg\u00f0 en ekki bara virkju\u00f0 me\u00f0 gikk. Svo vi\u00f0 getum einfaldlega skipt um vagn \u00ed Mj\u00f3ddinni og heims\u00f3tt m\u00f6mmu \u00ed H\u00f3lana. Svo a\u00f0 s\u00f3l \u00fe\u00fd\u00f0i gr\u00e6nt \u00fe\u00fd\u00f0i von, komdu, j\u00e1, \u00fe\u00fd\u00f0i \u00e1fram.<\/p>\n\n\n\n<p>Augun eru enn\u00fe\u00e1 bleikleit. Nefrennsli\u00f0 og \u00fer\u00fdstingurinn \u00fer\u00e1l\u00e1tur. \u00c1fram er sk\u00e1phur\u00f0in opin. T\u00edminn l\u00ed\u00f0ur \u00ed takt vi\u00f0 angana sem skr\u00ed\u00f0a h\u00e6gar en m\u00edn augu nema. Brynj\u00f3lfur segist sj\u00e1 \u00fea\u00f0 gerast reglulega. Hann er stundum a\u00f0eins noja\u00f0ur. Hann bi\u00f0ur mig a\u00f0 loka sk\u00e1pnum \u00e1 n\u00f3ttunni. \u00c9g get ekki muna\u00f0 \u00fea\u00f0. Hann h\u00e1lfpartinn hv\u00e6sir, er illa vi\u00f0 a\u00f0 angarnir f\u00e1i a\u00f0 skr\u00ed\u00f0a eins og sl\u00f6ngur um allt eldh\u00fasi\u00f0. \u00c9g get samt ekki muna\u00f0 \u00fea\u00f0. Segi a\u00f0 kannski \u00feurfi \u00e9g a\u00f0 fara \u00e1 minnisn\u00e1mskei\u00f0. Ein kona sem \u00e9g \u00feekki f\u00f3r \u00e1 svolei\u00f0is. Minnisn\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 var ekki jafn skilvirkt og rei\u00f0istj\u00f3rnunin en konan gleymdi flj\u00f3tt a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri skr\u00e1\u00f0 og h\u00e6tti \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e6ta. \u00dea\u00f0 sem rata\u00f0i ekki \u00e1 gulan mi\u00f0a vi\u00f0 spegilinn \u00e1 ba\u00f0inu ger\u00f0ist ekki. H\u00fan hringdi ekki \u00ed systur s\u00edna \u00e1 afm\u00e6lisdaginn. Gleymdi a\u00f0 borga Helga. H\u00e6tti a\u00f0 taka nefstera, tv\u00f6 p\u00fast \u00ed hvora n\u00f6s tvisvar \u00e1 dag, til a\u00f0 losna vi\u00f0 s\u00fdkingu \u00ed kinnholum \u2013 sem h\u00fan gleymdi s\u00ed\u00f0an a\u00f0 h\u00fan var me\u00f0 og h\u00e9lt \u00fe\u00e1 a\u00f0 verkurinn sem var farinn a\u00f0 lei\u00f0a ni\u00f0ur andliti\u00f0 v\u00e6ri tannp\u00edna. \u00c9g gr\u00ednast miki\u00f0 me\u00f0 \u00feessa konu \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00f3farir hennar s\u00e9u allar sannar og \u00e9g segi f\u00f3lki oft fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan hafi gleymt \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00e1 minnisn\u00e1mskei\u00f0. \u00dea\u00f0 er eins og fimmaurabrandari. Kannski segi \u00e9g of oft fr\u00e1 \u00fev\u00ed. Brynj\u00f3lfur er farinn a\u00f0 labba \u00fat \u00feegar \u00e9g byrja: \u201eEin kona sem \u00e9g \u00feekki&#8230;\u201c Kannski finnst honum bara hall\u00e6rislegt a\u00f0 \u00e9g byrji s\u00f6guna svona. Hann er nefndur Brynj\u00f3lfur \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 biskup og \u00e9g held \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00feess vegna sem a\u00f0 hann er hrifnari af \u00fev\u00ed \u00feegar \u00e9g vanda or\u00f0avali\u00f0 betur. <em>Minni\u00f0, eins og l\u00edfi\u00f0, er hverfult<\/em>, vildi hann eflaust frekar a\u00f0 \u00e9g seg\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>Fyrst st\u00f3\u00f0 hur\u00f0in opin \u00fat \u00e1 mitt g\u00f3lf yfir daginn og \u00fea\u00f0 trufla\u00f0i Brynj\u00f3lf ekki, sem vatt s\u00e9r fimlega \u00ed kringum hana inn og \u00fat \u00far eldh\u00fasinu. \u00c9g gekk hinsvegar \u00e1 horni\u00f0 aftur og aftur, safna\u00f0i purpura og gr\u00e6nu \u00e1 h\u00e6gri mj\u00f6\u00f0mina. \u00deegar mari\u00f0 var fari\u00f0 a\u00f0 minna \u00e1 eitt af haustum Kjarvals \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 taka hur\u00f0ina af hj\u00f6runum. Einf\u00f6ld lausn. Kart\u00f6flur\u00edki\u00f0 st\u00e6kka\u00f0i \u00f6rt. \u00c9g fer \u00ed st\u00edgv\u00e9l, geng me\u00f0 sk\u00e1phur\u00f0ina \u00ed Sorpu. Reyni a\u00f0 hringja \u00ed l\u00e6kni, er n\u00famer sj\u00f6 \u00ed r\u00f6\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 er hvorki h\u00e6gt a\u00f0 steikja n\u00e9 sj\u00f3\u00f0a efni\u00f0 burt, mamma fullvissar mig um \u00fea\u00f0. <em>Ekki bor\u00f0a \u00fe\u00e6r, sama hva\u00f0!<\/em> segir h\u00fan \u00e1kve\u00f0in. <em>Sama hva\u00f0 <\/em>og <em>aldrei <\/em>eru svona or\u00f0 sem er gott a\u00f0 eiga en f\u00e6stir nota r\u00e9tt. <em>Nema bara <\/em>er gjarnan skammt undan og \u00fe\u00e1 er h\u00e6gt a\u00f0 hlaupa me\u00f0 setninguna hvert \u00e1 land sem er. \u00c9g veit a\u00f0 \u00e9g myndi ekki hika vi\u00f0 a\u00f0 bor\u00f0a \u00feessar kart\u00f6flur \u00ed \u00f6\u00f0rum og allskonar a\u00f0st\u00e6\u00f0um. \u00c1 ey\u00f0ieyju til d\u00e6mis, hugsa \u00e9g fyrst. Ef uppskeran brestur. Ef d\u00fdrin deyja. Ef einhver myndi mana mig og segjast \u00e6tla gefa m\u00e9r tuttugu og fimm \u00fe\u00fasund kall. \u00dea\u00f0 \u00feyrfti ekki meira til. \u00c9g myndi alveg vera me\u00f0 magaverk e\u00f0a fj\u00f6rfisk \u00ed auganu \u00ed dag e\u00f0a tvo fyrir svolei\u00f0is upph\u00e6\u00f0. Martra\u00f0irnar \u00fej\u00e1 mig fr\u00edtt svo \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00ed raun b\u00f3t a\u00f0 f\u00e1 borga\u00f0 fyrir sl\u00edka aukaverkun. \u00cd g\u00e6rn\u00f3tt hlj\u00f3p \u00e9g um \u00ed bakgar\u00f0i foreldra minna a\u00f0 reyna a\u00f0 bjarga kettinum fr\u00e1 \u00e1gengum h\u00f3pi pardussela sem a\u00f0 h\u00e9ldu greinilega a\u00f0 svarthv\u00edt l\u00e6\u00f0an v\u00e6ri m\u00f6rg\u00e6s. \u00c9g vakna\u00f0i tvisvar sveitt og sofna\u00f0i samstundis aftur til selanna. Jafnvel ef \u00e9g fengi bara fimm \u00fe\u00fasund kall fyrir hvern svona draum \u2013<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00f3 a\u00f0 \u00edb\u00fa\u00f0in geti ekki kallast bj\u00f6rt er au\u00f0vita\u00f0 munur fyrir kart\u00f6flur\u00edki\u00f0 a\u00f0 vera ekki inniloka\u00f0. Gatnakerfi\u00f0 st\u00e6kkar h\u00e6gt en \u00f6rugglega \u00fat fyrir barma innr\u00e9ttingarinnar og heldur \u00e1fram leitinni a\u00f0 n\u00e6ringu, v\u00f6kva, s\u00f3l. Er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 taka eftir lj\u00f3sinu og hefur sett stefnuna \u00e1 gluggann undir bl\u00fandugard\u00ednunum. Brynj\u00f3lfur potar stundum \u00ed fj\u00f3lubl\u00e1tt neti\u00f0 eins og til a\u00f0 athuga hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 h\u00e9rna \u00ed raun en hefur annars s\u00e6tt sig a\u00f0 mestu leyti vi\u00f0 \u00feessa vi\u00f0b\u00f3t \u00ed samb\u00fa\u00f0 okkar.<\/p>\n\n\n\n<p>Upprunalegt form pokans er horfi\u00f0 og erfitt er a\u00f0 segja til um hvar ein kartafla byrjar og \u00f6nnur endar. Sp\u00edrurnar eru a\u00f0 reyna a\u00f0 tro\u00f0a s\u00e9r \u00ed hn\u00edfaparask\u00faffuna til vinstri og \u00edssk\u00e1pinn til h\u00e6gri. Einhverjar fara upp \u00e1 vi\u00f0 en vir\u00f0ast \u00fe\u00f3 skynja h\u00e6ttuna sem stafar af hitaboxinu. Muna kannski eftir \u00fev\u00ed \u00feegar \u00e9g grilla\u00f0i frosnar franskar \u00ed ofninum n\u00fdveri\u00f0. Brenndi \u00f3vart. Ein kartaflan stendur h\u00e6rra en hinar. \u00cd einhverjum vaxtarkippnum hefur h\u00fan hafist \u00e1 loft. Fyrst held \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 svona reyni plantan a\u00f0 f\u00e6ra m\u00e9r, frelsara s\u00ednum, gj\u00f6f e\u00f0a f\u00f3rn fyrir alla \u00fe\u00e1 al\u00fa\u00f0 og miskunn sem \u00e9g hef veitt \u00feeim h\u00e9r \u00ed eldh\u00fasinu. Fyrir a\u00f0 \u201eleyfa\u201c \u00feeim a\u00f0 lifa.<\/p>\n\n\n\n<p>Vefs\u00ed\u00f0a um heilbrig\u00f0an l\u00edfsst\u00edl segir a\u00f0 m\u00e9r \u201eberi a\u00f0 henda \u00feeim kart\u00f6flum sem byrja\u00f0ar eru a\u00f0 sp\u00edra og \u00fea\u00f0 sama gildir um \u00fe\u00e6r sem eru or\u00f0nar gr\u00e6nar a\u00f0 innan.\u201c \u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 taka \u00fev\u00ed alvarlega \u00feegar einhver segir a\u00f0 manni \u201eberi\u201c a\u00f0 gera eitt e\u00f0a anna\u00f0. Hva\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feegar \u00fea\u00f0, og greinin \u00f6ll, er skrifu\u00f0 \u00ed Pacifico e\u00f0a Satisfy me\u00f0 fundinni netmynd af sk\u00e6rlitu\u00f0u gr\u00e6nmeti sem liggur uppstillt undir titlinum <em>Gr\u00e6nn og v\u00e6nn n\u00f3vember: 10 g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0!<\/em> Af \u00f6llum m\u00e1nu\u00f0um skil \u00e9g heldur ekki a\u00f0 skrifa um gr\u00e6nmeti \u00ed n\u00f3vember. Allavega ekki h\u00e9r. Allavega ekki eins og ve\u00f0rar h\u00e9r n\u00fana. Kannski ver\u00f0ur einn daginn h\u00e6gt a\u00f0 keppa um titilinn <em>St\u00e6rsta grasker Vesturlands<\/em> og <em>K\u00farb\u00edtsmeistari Sau\u00f0\u00e1rkr\u00f3ks<\/em> \u00fear sem \u00fearf a\u00f0 vigta hvern k\u00farb\u00edt vandlega og \u00f6rf\u00e1 gr\u00f6mm skera \u00far um sigurvegarann. En \u00fea\u00f0 gerist ekki strax, \u00feetta ver\u00f0ur eftir-j\u00f6kla \u00cdsland. Greinin er auglj\u00f3slega skrifu\u00f0 upp \u00far amer\u00edsku. B\u00e6\u00f0i er setningager\u00f0in undarleg \u00e1 tveimur st\u00f6\u00f0um og svo er hitt a\u00f0 f\u00e6st gr\u00e6nmeti\u00f0 sem a\u00f0 h\u00f6fundurinn nefnir vex h\u00e9rna megin hafsins. Ekki svona a\u00f0 sta\u00f0aldri. Ekki svo \u00fea\u00f0 geti heiti\u00f0 \u00e1rst\u00ed\u00f0abundi\u00f0 me\u00f0 sanni. Sem greinin segir a\u00f0 s\u00e9 mikilv\u00e6gt a\u00f0 taka inn \u00ed myndina hva\u00f0 var\u00f0ar <em>heilbrigt<\/em> matar\u00e6\u00f0i. Mj\u00f6g mikilv\u00e6gt. N\u00e6ringarfr\u00e6\u00f0ingur me\u00f0 bros yfirfullt af t\u00f6nnum brosir til m\u00edn af skj\u00e1num. \u00d3l\u00edkt m\u00e1lverki Krist\u00ednar er engin regla \u00e1 fl\u00f6tum lita \u00e1 \u00feessari mynd, allt of miki\u00f0 hv\u00edtt og glansandi. \u00c9g les textann upph\u00e1tt fyrir Brynj\u00f3lf \u00fev\u00ed m\u00e9r finnst svo fyndi\u00f0 a\u00f0 \u00edmynda m\u00e9r einhvern bur\u00f0ast me\u00f0 grasker \u00ed snj\u00f3stormi og l\u00fdsi \u00fev\u00ed fyrir honum, svart, gult, m\u00e1sandi, appels\u00ednugult og endurskin, hversu f\u00e1r\u00e1nlegt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri. Snj\u00f3stormsmarinera\u00f0 yr\u00f0i \u00fea\u00f0 eflaust enn betra \u00e1 brag\u00f0i\u00f0, heilbrigt, mikilv\u00e6gt, <em>gu\u00f0d\u00f3mlegt.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>Greinin minnir \u00e1 a\u00f0 henda g\u00f6mlum sp\u00edru\u00f0um kart\u00f6flum en minnist hvergi \u00e1 a\u00f0 bor\u00f0a \u00fe\u00e6r. Stingur ekki einu sinni upp \u00e1 heilsuuppskrift. Minnist ekkert \u00e1 hvar og hvernig s\u00e9 best a\u00f0 r\u00e6kta \u00fe\u00e6r og hvernig ma\u00f0ur geti stu\u00f0la\u00f0 a\u00f0 \u201efr\u00e1b\u00e6rri uppskeru!\u201c Veit h\u00f6fundurinn ekki a\u00f0 \u00feetta er sta\u00f0urinn \u00fear sem kart\u00f6flur vaxa undir snj\u00f3sk\u00f6flum? A\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u frostelskandi gr\u00e6nmeti, \u00feunn h\u00fa\u00f0in \u00feolir illa lj\u00f3s. Einhvers sta\u00f0ar las \u00e9g a\u00f0 fyrsta kartaflan hef\u00f0i komi\u00f0 upp \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um 1758 og fyrstu sm\u00e6lkin \u00e1 \u00cdslandi tekin upp \u00ed okt\u00f3ber 1759. <em>Ef einhver \u00e1 skili\u00f0 F\u00e1lkaor\u00f0una<\/em> <em>er \u00fea\u00f0 jar\u00f0epli\u00f0<\/em>, segir pabbi sem er h\u00e6st\u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 tilraunastarfsemi m\u00edna \u00ed eldh\u00fasinu. <em>\u00dev\u00edl\u00edkir \u00e1lar! <\/em>segir hann. Sem \u00e9g vissi ekki a\u00f0 v\u00e6ri or\u00f0 s\u00e9rstaklega um sp\u00edrur kartafla. Mamma er hikandi, spyr hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 allt \u00ed lagi hj\u00e1 okkur Brynj\u00f3lfi \u00feegar \u00feau koma \u00ed kaffi og \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 fara me\u00f0 hra\u00f0su\u00f0uketilinn inn \u00e1 ba\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vaskurinn er fullur af \u00e1lum. <em>\u00de\u00fa ver\u00f0ur n\u00fa a\u00f0 geta nota\u00f0 eldh\u00fasi\u00f0 elskan<\/em>, <em>vi\u00f0 pabbi \u00feinn getum alveg hj\u00e1lpa\u00f0 \u00fe\u00e9r. E\u00f0a fengi\u00f0 Mugga fr\u00e6nda til \u00feess a\u00f0 koma og taka \u00feetta. <\/em>\u00c9g svara \u00e6stari en \u00e9g \u00e6tla m\u00e9r, vil ekki heyra minnst \u00e1 a\u00f0 hringja \u00ed Mugga, hann er karlremba og h\u00f3m\u00f3f\u00f3b. Meind\u00fdraey\u00f0ir \u00ed ofan\u00e1lag.<em> \u00deetta er l\u00edfr\u00edki! <\/em>segi \u00e9g og skelli kaffibollum \u00f3\u00fearflega harkalega \u00e1 bor\u00f0i\u00f0. Er me\u00f0 lj\u00f3tan h\u00f3sta. B\u00fd\u00f0 ekki upp \u00e1 sykur. Er enn ekki b\u00fain a\u00f0 n\u00e1 m\u00e9r s\u00ed\u00f0an \u00e9g s\u00e1 fyrst dau\u00f0a m\u00fas \u00ed gildru. \u00cd barnslegri einl\u00e6gni haf\u00f0i \u00e9g ekki \u00e1tta\u00f0 mig \u00e1 grimmd m\u00fasagildrunnar. Ekki \u00e1tta\u00f0 mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 boginn leggst \u00e1 og kremur h\u00f6fu\u00f0k\u00fapuna. Eins og kart\u00f6flur Sunnu. Andliti\u00f0 hverfur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g \u00e1kve\u00f0 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a m\u00f6mmu og pabba ekki \u00ed kaffi \u00e1 n\u00e6stunni. Pabbi sendir m\u00e9r skilabo\u00f0 \u00ed leyni um hvernig gangi me\u00f0 r\u00edkid\u00e6mi\u00f0. Mamma spyr hvort \u00e9g s\u00e9 ekki b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 s\u00fdklalyf, sendir m\u00e9r hlekki \u00e1 ge\u00f0heilsur\u00e6kt, s\u00e6t kattamyndb\u00f6nd, <em>Quick and Easy Cleaning Tips.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 Brynj\u00f3lfur lesum okkur til um gr\u00e6nmetisr\u00e6kt. Allt of margar greinar eru um heilsu en ekki r\u00e6ktun. Allt of m\u00f6rg \u00feeirra eru gagnr\u00fdnin \u00e1 kart\u00f6fluna. <em>Fjandans kolvetnishatur, <\/em>svarar pabbi \u00feegar \u00e9g segi honum fr\u00e1 lesefninu. <em>Fjandans kolefnis\u00e1st.<\/em> <em>\u00c9g er h\u00e6ttur a\u00f0 bor\u00f0a gr\u00e6nmeti sem hefur fari\u00f0 \u00ed flugv\u00e9l. <\/em>Vi\u00f0 finnum einhver r\u00e1\u00f0 um r\u00e6ktun \u00e1 vefs\u00ed\u00f0um byggingarv\u00f6ruverslana en \u00fe\u00e6r eru au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 selja besta \u00e1bur\u00f0inn og brei\u00f0virkasta eitri\u00f0 me\u00f0fram uppl\u00fdsingunum. Vi\u00f0 finnum engin r\u00e1\u00f0 um r\u00e6ktun innandyra. <em>Meira rugli\u00f0, <\/em>segir pabbi l\u00e1gt sem veit a\u00f0 mamma byrjar a\u00f0 hlusta ef h\u00fan heyrir okkur tala um konungsr\u00edki\u00f0. <em>\u00c9g skal renna vi\u00f0 me\u00f0 gar\u00f0yrkjub\u00f3k anna\u00f0 kv\u00f6ld. <\/em>\u00c9g halla m\u00e9r upp a\u00f0 eina veggnum sem er ekki or\u00f0inn gr\u00e6nn og fj\u00f3lubl\u00e1r. \u00c9g \u00e6tla\u00f0i hvort e\u00f0 er alltaf a\u00f0 m\u00e1la veggina e\u00f0a fl\u00edsaleggja skr\u00e6p\u00f3tt. \u00c1larnir hafa spara\u00f0 m\u00e9r \u00fev\u00edl\u00edkar summur.<\/p>\n\n\n\n<p>Mest er um uppskriftir og v\u00e6nis\u00fdki \u00e1 netinu. Vi\u00f0 erum ekki viss hvort f\u00f3lki\u00f0 sem fari eftir \u00feessu s\u00e9 mest tr\u00fagjarnt e\u00f0a eigi bara n\u00f3g af peningum til \u00feess a\u00f0 vera alltaf a\u00f0 kaupa ferskara gr\u00e6nmeti en vi\u00f0 h\u00f6fum a\u00f0gang a\u00f0. F\u00f3lk hl\u00fdtur a\u00f0 vera a\u00f0 leita s\u00e9r alls konar r\u00e1\u00f0a fyrst \u00feessir textar halda \u00e1fram a\u00f0 d\u00fakka upp. Aftur vitum vi\u00f0 ekki hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 eftirspurnin sem dr\u00edfur h\u00f6funda \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 RoyLiveKindly e\u00f0a kant-augl\u00fdsingar og klikk sem vi\u00f0 skiljum ekki hvernig virka. \u00c9g tek skj\u00e1skot til a\u00f0 gera gr\u00edn a\u00f0 seinna, af grein um notagildi t\u00f3mata \u00ed krabbameinsme\u00f0fer\u00f0 og bloggi um t\u00e1rlausa lauka sem eru s\u00e9rstaklega g\u00f3\u00f0ir ef \u00fe\u00fa ert a\u00f0 elda \u00e1 stefnum\u00f3ti og vilt ekki gera \u00feig a\u00f0 f\u00edfli. Steinari \u00ed eldh\u00fasinu finnst greinilega a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9u bara f\u00edfl sem gr\u00e1ti. \u00c9g byrja hneyksla\u00f0a einr\u00e6\u00f0u. Brynj\u00f3lfi finnst \u00e9g eitthva\u00f0 \u00e6st, missir \u00e1hugann og fer fram \u00ed stofu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g er bo\u00f0in \u00ed mat til m\u00f6mmu og pabba en \u00e9g er b\u00fain a\u00f0 hitta \u00feau minna upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0. Mamma reyndi meira a\u00f0 segja a\u00f0 k\u00edkja vi\u00f0 me\u00f0 Mugga fr\u00e6nda og laug \u00fev\u00ed a\u00f0 hann langa\u00f0i bara a\u00f0 hitta Brynj\u00f3lf, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri svo langt s\u00ed\u00f0an s\u00ed\u00f0ast. <em>Brynj\u00f3lfur er ekki heima<\/em>, laug \u00e9g til baka, <em>og svo er \u00e9g me\u00f0 \u00f3ge\u00f0slega gubbupest<\/em>. <em>Gvu\u00f0 ekki bor\u00f0a\u00f0ir\u00f0u kart\u00f6flurnar! <\/em>segir mamma \u00e1hyggjufull. <em>Nei, <\/em>svara \u00e9g, <em>\u00fea\u00f0 er bara eitthva\u00f0 a\u00f0 ganga. <\/em>Sem g\u00e6ti svo sem veri\u00f0 satt en \u00e9g veit \u00fea\u00f0 ekki fyrir v\u00edst \u00fev\u00ed \u00e9g hitti engan lengur. \u00c1 lei\u00f0inni \u00fat man \u00e9g a\u00f0 \u00e9g var ekki b\u00fain a\u00f0 \u00feiggja f\u00f3rn kart\u00f6flur\u00edkisins en s\u00ed\u00f0an \u00e9g t\u00f3k eftir henni hef \u00e9g veri\u00f0 \u00f6ll upp me\u00f0 m\u00e9r. <em>Ha, handa m\u00e9r? Algj\u00f6r \u00f3\u00fearfi. <\/em>\u00dea\u00f0 er langt s\u00ed\u00f0an \u00e9g hef fengi\u00f0 gj\u00f6f, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 svona hugulsama, dramat\u00edska. Til \u00fe\u00edn, h\u00e9r er hluti af m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p>Sp\u00edrurnar eru komnar ni\u00f0ur \u00e1 g\u00f3lf og hreyfa sig me\u00f0fram veggjunum. \u00c9g fer \u00ed ullarsokka til a\u00f0 skemma ekkert, st\u00edg varlega til jar\u00f0ar, vil ekki rj\u00fafa nein tengsl. \u00c9g kr\u00fdp vi\u00f0 hjarta r\u00edkisins, sk\u00e1pinn undir ofninum, r\u00e9tti b\u00e1\u00f0ar hendur fram og \u00e6tla a\u00f0 fara a\u00f0 sl\u00edta kart\u00f6fluna varlega \u00far netinu. \u00deegar h\u00fan haggast ekki staldra \u00e9g vi\u00f0. \u00deegar h\u00fan losnar ekki af \u00ed l\u00f3fa m\u00e9r f\u00e6 \u00e9g sting \u00ed magann. Finn sk\u00f6mm. <em>Mannhverfan \u00ed m\u00e9r<\/em>, hugsa \u00e9g. S\u00e9 a\u00f0 \u00far st\u00f3ru auga \u00ed mi\u00f0ju kart\u00f6flunnar vex falleg \u00fer\u00edskipt frj\u00f3n\u00e1l. \u00deetta er ekki f\u00f3rn. \u00deetta hl\u00fdtur a\u00f0 vera h\u00fan, sv\u00edfandi, kart\u00f6fludrottningin.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g gleymi a\u00f0 fara \u00ed kv\u00f6ldmat. Pabbi dinglar upp\u00far t\u00edu me\u00f0 k\u00faffullan disk, \u00fe\u00e9ttvafinn \u00ed plastfilmu. <em>\u00de\u00fa m\u00e1tt ekki gleyma a\u00f0 bor\u00f0a <\/em>segir hann. <em>Og hringdu og l\u00e1ttu okkur vita n\u00e6st, vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00e1hyggjur. <\/em>\u00c9g segi takk og fyrirgef\u00f0u. Spyr hvort a\u00f0 pabbi vilji koma a\u00f0 l\u00edta \u00e1 kart\u00f6flur\u00edki\u00f0. <em>\u00c9g kem inn n\u00e6st, <\/em>segir hann, <em>mamma \u00fe\u00edn er a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u00fat \u00ed b\u00edl. H\u00fan vildi koma til \u00f6ryggis. <\/em>\u00c9g spyr hva\u00f0 hann meinar. <em>\u00c6 bara vera me\u00f0 ef \u00fe\u00fa skyldir vera\u2013 ef \u00feig vanta\u00f0i hj\u00e1lp. <\/em>Horfir beint \u00ed augun \u00e1 m\u00e9r, \u00e1 bleiku fletina. Hann fa\u00f0mar mig og kastar kve\u00f0ju \u00e1 Brynj\u00f3lf sem a\u00f0 horfir \u00e1 sj\u00f3nvarpi\u00f0 \u00ed fart\u00f6lvunni. <em>Komdu n\u00fa vi\u00f0 um helgina, \u00f3kei?<\/em> \u00c9g lofa \u00fev\u00ed, ekki alveg heilshugar. <em>Brynj\u00f3lfur m\u00e1 l\u00edka alveg vera hj\u00e1 okkur ef hann vill <\/em>b\u00e6tir pabbi vi\u00f0. Mamma heldur eflaust a\u00f0 \u00e9g haldi honum f\u00f6ngum h\u00e9r l\u00edka. \u00c9g sest \u00ed stofuna og tek af disknum, \u00fea\u00f0 er n\u00fa alltaf huggulegt a\u00f0 f\u00e1 heimager\u00f0an mat. Brynj\u00f3lfur stendur upp fr\u00e1 skj\u00e1num og vill a\u00f0 \u00e9g deili me\u00f0 honum. Hann krefst \u00feess, fyrst a\u00f0 \u00e9g eldi aldrei neitt lengur. \u00c9g \u00fearf a\u00f0 vefja tvo hringi af til a\u00f0 sj\u00e1 \u00ed matinn. Fiskur \u00ed raspi, laukur og kart\u00f6flur, skornar \u00ed b\u00e1ta, baka\u00f0ar. \u00c9g og Brynj\u00f3lfur deilum fisknum. \u00c9g tek laukinn, hann m\u00e1 alls ekki bor\u00f0a lauk. \u00c9g get ekki hugsa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 bor\u00f0a kart\u00f6flurnar. F\u00e6 illt \u00ed magann vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00e6r skornar \u00ed fj\u00f3ra e\u00f0a sex. Brynj\u00f3lfur gr\u00edpur \u00ferj\u00e1 b\u00e1ta og restin fer \u00ed rusli\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>K\u00f3r\u00f3na drottningarinnar st\u00e6kkar, frj\u00f3n\u00e1lin er enn \u00fer\u00edskipt og n\u00fa komin me\u00f0 minni n\u00e1lar \u00e1 hvern anga. \u00c9g er h\u00e6tt a\u00f0 matrei\u00f0a, kaupi allt tilb\u00fai\u00f0 og bor\u00f0a \u00fea\u00f0 kalt ef \u00e9g n\u00e6 ekki a\u00f0 halda \u00fev\u00ed heitu alla lei\u00f0 heim \u00far b\u00fa\u00f0inni. Brynj\u00f3lfur kallar mig \u00f3nytjung. Klikka\u00f0a. \u00c9g segi honum a\u00f0 hann \u00feurfi ekkert a\u00f0 vera h\u00e9rna. Vi\u00f0 r\u00edfumst oftar. F\u00f6\u00f0mumst minna. Mamma hringir og spyr um hann, ekki mig, ekki eldh\u00fasi\u00f0. H\u00fan hefur gefi\u00f0 Mugga n\u00fameri\u00f0 mitt og hann reynir a\u00f0 hringja nokkur kv\u00f6ld \u00ed r\u00f6\u00f0. \u00c9g svara ekki. Set litla hausk\u00fapu vi\u00f0 nafni\u00f0 hans \u00ed s\u00edmaskr\u00e1nni \u00ed meinf\u00fdsniskasti.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00f3vember er b\u00fainn og desember n\u00e6stum b\u00fainn og eldh\u00fasi\u00f0 er hj\u00fapa\u00f0 r\u00f3tum. \u00c9g ligg \u00e1 g\u00f3lfinu sem r\u00e6turnar hafa gert a\u00f0 mj\u00faku yfirbor\u00f0i. Eins og a\u00f0 liggja \u00ed mosa, e\u00f0a botni sk\u00f3gar. \u00c9g m\u00e6ti ekki \u00ed j\u00f3labo\u00f0, \u00e9g b\u00fd\u00f0 engum \u00ed heims\u00f3kn. Fallegi fj\u00f3lubl\u00e1i liturinn og s\u00e1 sk\u00e6ri gr\u00e6ni sj\u00e1st n\u00fana bara \u00e1 n\u00fdjustu sprotunum, restin or\u00f0in daufbr\u00fan. R\u00e6turnar eru \u00feykkar, n\u00e6stum plastkenndar og hringast um hver a\u00f0ra stefnulaust. Bl\u00fandugard\u00ednan sem var alltaf svo \u00f6mmuleg er n\u00fana eins og fl\u00f3kin h\u00f6nnun, \u00fatp\u00e6ldur art deco bogi. Hver r\u00f3t fer inn \u00ed eitt gat og \u00fat um anna\u00f0 og vefur sig inn \u00ed hv\u00edta b\u00f3mullina. \u00de\u00e6r eru sterklegar vi\u00f0 gluggann. F\u00e1 \u00fear b\u00e6\u00f0i raka og lj\u00f3s. Eru farnar a\u00f0 teygja sig a\u00f0 \u00fevalri r\u00fa\u00f0unni. Kart\u00f6flur\u00edki\u00f0 skreytir sig. \u00c9g set ekki upp j\u00f3lalj\u00f3sin. \u00c9g er of upptekin vi\u00f0 a\u00f0 fylgjast me\u00f0 l\u00edfinu finna s\u00e9r farveg. Brynj\u00f3lfur kemur inn. Hann er greinilega tilb\u00fainn til a\u00f0 s\u00e6ttast. Leggst \u00e1 bringuna \u00e1 m\u00e9r og \u00fear sem \u00e9g str\u00fdk mj\u00faku gr\u00e1u h\u00e1rinu byrjar hann a\u00f0 mala. Vi\u00f0 \u00f6ndum \u00ed takt vi\u00f0 allt eldh\u00fasi\u00f0. \u00c9g greini ekki \u00e1 milli braksins \u00ed hreyfingum \u00e1lanna og \u00far maga kattarins. \u00c9g veit a\u00f0 hann telur sig h\u00fasb\u00f3ndann, a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 \u00fej\u00f3ninn og \u00e9g svara j\u00e1 herra, \u00fear sem \u00e9g veit aftur upp \u00e1 mig s\u00f6kina a\u00f0 vera ekki frelsarinn heldur fangarinn. \u00cdb\u00fa\u00f0in angar af j\u00f6r\u00f0. Litlar agnir dansa \u00ed \u00feeim sm\u00e1u geislum sem brj\u00f3ta s\u00e9r lei\u00f0 inn um bl\u00fanduna. \u00c9g ver\u00f0 hluti af \u00feessu utan\u00e1liggjandi taugakerfi kart\u00f6flur\u00edkisins. Vefna\u00f0ur er e\u00f0lilegra form en l\u00ednan. Einhvers sta\u00f0ar undir r\u00f3tunum heyri \u00e9g enn r\u00f6dd upplj\u00f3stra leyndarm\u00e1li Sunnu, s\u00edminn spilar <em>gu\u00f0d\u00f3mlegt<\/em> aftur og aftur. Brynj\u00f3lfur ver\u00f0ur partur af m\u00e9r eins og l\u00edtil kartafla sem vex \u00fat fr\u00e1 kart\u00f6flum\u00f3\u00f0ur \u00ed be\u00f0i. H\u00e9r erum vi\u00f0 frostelskandi, v\u00f6xum vonandi l\u00edka vel undir snj\u00f3.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Kar\u00f3l\u00edna R\u00f3s \u00d3lafsd\u00f3ttir Kart\u00f6flurnar eru farnar a\u00f0 sp\u00edra \u00ed sk\u00e1pnum undir ofninum. Lj\u00f3sfj\u00f3lubl\u00e1ir og sk\u00e6rgr\u00e6nir angar stingast \u00fat um netapokann og teygja sig upp, nokkrir til hli\u00f0ar en a\u00f0allega upp. Eins og griparmar e\u00f0a f\u00e1lmarar sem fagna endurkomu lj\u00f3ssins eftir langa n\u00f3tt. R\u00f3tarskotin standa teinr\u00e9tt! \u00deau eru eins og margar litlar hendur sem bi\u00f0ja mig [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"jetpack_post_was_ever_published":false,"footnotes":""},"class_list":["post-705","page","type-page","status-publish","hentry"],"jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/705","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=705"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/705\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":733,"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/705\/revisions\/733"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/stelkur.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=705"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}