Tíundi ritstjórnarpistill

Við sem höfum upplifað það að verða tíu ára gömul, sem ritstjórarnir gera ráð fyrir að eigi við langflesta lesendur Stelks, munum hvað það var stórt skref að bæta heilum tölustaf við aldurinn. Áður hafði talan breyst algerlega með aldrinum, en að verða 10 gaf fyrirheit um framtíð, þessi tölustafur, „1“, myndi fylgja okkur lengi. Vonandi mun Stelkur lifa það að verða tuttugu tölublaða gamall, en það er mikilvægt að fagna tímamótum, og því hefur Stelkur ákveðið að blása til smásagnahátíðar í septemberbyrjun með vel völdum gestum í Norræna húsinu. Þá mun koma út tvöfalt tölublað, 11 og 12, með sögunum af hátíðinni.

Þið talnaglöggu lesendur hafa kannski áttað sig á því að þá mun ekki koma út annað tölublað fyrr en í september, en við getum glatt ykkur með því að við birtum nú fjórar sögur sem má snúa aftur til mörgum sinnum án þess að þurrausa merkingu úr þeim. Allar eiga þær sameiginlegt fjalla um persónu sem þarf að endurhugsa allt líf sitt þegar óvæntur atburður á sér stað.

Hjörtur, sjómaðurinn í Sjómannshjartanu eftir Móheiði Hlíf Geirlaugsdóttur upplifir tilgangsleysi eftir að hjartaáfall rænir hann starfsviðurværinu. Anna Salvör, sögumaðurinn í Hjónabandsráðgjöf Fríðu Ísberg hélt að hún væri með samband sitt á hreinu, og leitar til ráðgjafa þegar hún kemst að því að svo er ekki. Tinna er sjálf ráðgjafi í Kleinum eftir Natöshu S, en þegar bróðir gamals kærasta kemur í skaðaminnkandi meðferð leitar fortíðin á hana. Söguhetjan Bíbí í Stjörnukorti fyrir stelpuna eftir Elísu Jóhannsdóttur hefur alist upp hjá móður sinni en leit hennar að föður leiða hana að sannleika sem hún er kannski ekki alveg tilbúin að meðtaka og hefur afleiðingar langt inn í framtíðina.

Við þökkum enn og aftur fyrir lesturinn gegnum árin og hlökkum til að sjá ykkur í Norræna húsinu, og hér á vefnum, í september.