Níundi ritstjórnarpistill

Guð hjálpar þeim sem hjálpast að söng Spilverk þjóðanna nokkrum árum áður en ritstjórar Stelks fæddust í þennan heim. Jólin eru tími þar sem fólk hugsar um aðra, gefur gjafir og aðstoðar þau sem á þurfa að halda. Hjálpsemi leikur lykilhlutverk í sögunum fjórum sem birtast í jólahefti Stelks að þessu sinni.

Fjóla, aðalpersóna sögunnar Útfrymi eftir Elísabetu Dröfn Kristjánsdóttur, leitast við að hjálpa sjálfri sér að þrauka í hversdagsleika nútímans, og fær svo aðstoð til þess úr óvæntri átt. Til að líta inn á við þarf oft að spegla sig.

Hálfhringur, ferðasaga eftir Miriam Petru Ómarsdóttur Awad, segir frá bílferð austur á land, þar sem ferðalangarnir þurfa að flýja veðrið og leita á náðir annarra. Á ferðalaginu speglar sögukona sig í ferðafélaga sínum og leitast við að skilja tengsl sín við landið.

Það getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar að bjóða einhverjum far. Sérstaklega á Íslandi, sérstaklega í myrkrinu um miðjan vetur. Dýr, eftir Tryggva Stein Sturluson, er saga þar sem ókunnugt fólk er svo sannarlega ókennilegt.

Í Air fryer, eftir Sigurð Sverri Stephensen, fer líf Steinunnar í algert uppnám í aðdraganda jólanna. Í miðri óreiðunni réttir henni hjálparhönd manneskja úr nærumhverfinu sem hún þekkir samt lítil deili á.

Stelkur sendir lesendum sínum til sjávar og sveita hugheilar jóla- og nýárskveðjur, sem og höfundunum sem treystu okkur til að birta sögurnar sínar. Við erum glöð og hrærð yfir viðtökunum í ár, sem hafa verið framar okkar björtustu vonum. Hafið það gott yfir jólin – og ef jólabækurnar þrýtur má alltaf leita í eldri tölublöð Stelks.